Morgunblaðið - 06.06.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
H
a
u
ku
r
0
6
.1
1
Guðni Halldórsson
viðskiptalögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
Hlynur Rafn Guðjónsson
viðskiptafræðingur
hlynur@kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og
skráning á www.kontakt.is.
• Rótgróin fataverslun með eigin innflutning. Ársvelta 150 mkr.
• Meðeigandi óskast að stóru ferðaþjónustufyrirtæki. Viðkomandi þarf að
leggja fram um 50 mkr., sem gefur góða ávöxtun.
• Heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 40 mkr.
• Framleiðslufyrirtæki í vaxandi atvinnugrein. Hentar vel til flutnings út á land.
Þarf a.m.k. 600 fm húsnæði með lágmark 8 metra lofthæð.
• Lítið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 50 mkr. Hentar vel tveimur
handlögnum. Auðveld kaup.
• Vel tækjum búið þjónustufyrirtæki með fasta samninga við opinberar
stofnanir og einkaaðila um þjónustu utandyra. Ársvelta um 100 mkr.
• Lítil heildverslun með kerti, servéttur og gjafavörur. Ársvelta 50 mkr.
• Eitt besta bakarí borgarinnar. Ársvelta 70 mkr. Gott tækifæri fyrir duglega
bakara sem vilja eignast eigin rekstur.
• Lítil trésmiðja sem sérhæfir sig í gluggum og hurðum. Góð tæki. Hentar til
flutnings út á land. Auðveld kaup.
Búist er við að Alþjóðasamband flug-
félaga muni lækka spár sínar um
hagnað flugfélaga á heimsvísu fyrir
árið 2011. IATA sendi í mars frá sér
spá á þá leið að flugfélögin myndu á
þessu ári skila um 8,6 milljörðum
bandaríkjadala í hagnað. Ný spá
verður kynnt á árlegum aðalfundi
sambandsins sem fer fram í Singapúr
í dag.
Spáin í mars gerði ráð fyrir 52%
lækkun hagnaðar frá fyrra ári, en í
ljósi ýmissa áfalla segja fulltrúar
IATA nú að jafnvel sú tala verði að
teljast nokkuð bjartsýn. Að því er
fram kemur í frétt BBC var flugiðn-
aðurinn fljótari en menn höfðu búist
við að ná sér aftur á strik eftir sam-
drátt efnahagskerfisins á heimsvísu
og nam hagnaður síðasta árs 18 millj-
örðum dala. Yfirstandandi flugár á
hins vegar að hafa farið mjög illa af
stað á marga vegu.
Olían stór biti
Þannig hefur hækkandi olíuverð
mikil áhrif. Spáin í mars gerði ráð fyr-
ir 96 dölum á olíufatið, en síðan þá
hefur heimsmarkaðsverð hækkað
upp í um 110 dali á fatið. Hækkun sem
nemur 1 dal á fat þýðir 1,6 milljarða
kostnaðaraukningu fyrir fluggeirann
á heimsvísu. Samkvæmt tölum IATA
nemur eldsneytiskostnaður 30% af
útgjöldum flugfélaga á þessu ári.
Þá hafa hamfarir líka sett strik í
reikninginn. Afleiðingar jarðskjálft-
ans og fljóðbylgjunnar í Japan hafa
minnkað eftirspurn eftir innanlands-
flugi um 31% í þessu 3. stærsta hag-
kerfi heims. Þá dróst alþjóðaflug til
og frá Japan saman um 20%, en Jap-
anski flugiðnaðurinn stendur undir
um 10% af hagnaði flugfélaga á
heimsvísu.
ai@mbl.is
Reiknað með minni
hagnaði af flugi
Reuters
Svífandi Það er ekki eintóm sæla að
reka flugfélag í þessu árferði.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hárgreiðslustofan Circus Circus
er með nýrri fyrirtækjum í mið-
borginni og ekki er liðið ár síðan
stofan var opnuð á Laugavegi 86.
Benedikt Rafn Rafnsson er einn
af eigendum stofunnar. „Það sem
var lagt upp með var að hafa ekki
aðeins hárgreiðslustofu heldur
bjóða líka upp á landsins besta úr-
val af hágæðahárvörum. Við erum
því að tvinna saman verslun og
hársnyrtistofu,“ segir hann en þá
sem koma inn á hárgreiðslustof-
una rekur oft í rogastans að sjá
allt framboðið af hárvörum.
Að baki rekstrinum standa tvö
pör sem þekkst hafa í áratug.
Benedikt er í því hlutverki að
halda utan um markaðsmál og
bókhald en starfar annars hjá
auglýsngastofu á öðrum stað við
Laugaveg. Hann segir ýmsa þætti
hafa ráðið því að Laugavegurinn
varð fyrir valinu. „Við fundum
þetta góða húsnæði til leigu og
hafði mikið að segja að hér voru
fyrir innréttingar sem hentuðu
okkur og þýddi að þurfti ekki að
leggja í mikinn kostnað áður en
við hæfum reksturinn. Síðan mát-
um við líka kosti þess hversu mik-
ill umgangur er af fólki um götuna
og líf allt í kringum hárgreiðslu-
stofuna. Við sjáum enda að fjöldi
gangandi vegfarenda og ferða-
manna lítur inn í búðina og kaupir
sér hárvörur. Margir nota svo
tækifærið til að panta tíma í klipp-
ingu.“
Borga fyrir streymið
Því er ekki hægt að neita að leigu-
verðið er hærra á Laugavegi en
víða annars staðar í borginni og
Benedikt segir að vitaskuld hafi
aðstandendur Circus Circus hugs-
að sig vandlega um áður en þeir
tóku stökkið. „Við lögðumst í ít-
arlega útreikninga og áætlanagerð
til að lágmarka alla áhættu, og
sáum fljótt að þetta væri skyn-
samlegasti kosturinn. Leigan er
eflaust lægri á Smiðjuveginum en
þar fær maður ekki sama streym-
ið af fólki.“
Reksturinn hefur gengið ágæt-
lega það sem af er, en Benedikt
greinir samt að reksturinn getur
verið viðkvæmur fyrir ýmsum ytri
þáttum og hlutir sem gerast ofar
eða neðar á Laugaveginum geta
haft áhrif á Circus Circus. „Ég
heyri það t.d. af verslunareig-
endum hérna í kringum okkur að
þeir fundu fyrir töluverðum áhrif-
um af því þegar verslunin 17 fór
úr húsinu hér beint á móti og
minnkaði fólksumferð um svæðið.“
Vandi Laugavegarins segir
Benedikt að sé annars ekki skort-
ur á bílastæðum eða hvort götur
eru hafðar opnar eða lokaðar fyrir
bílaumferð. Það sem þurfi sé að
byggja upp góða og fjölbreytta
þjónustu og verslun sem laði fólk í
bæinn. Þar styðji hvert framfar-
skref við það næsta. „Þrátt fyrir
allt er Laugavegurinn mjög góður
staður fyrir verslun, en hann gæti
verið mikið betri.“
Ákvörðun Benedikt reiknaði vandlega út kosti og galla þess að vera í miðbænum. „Við sáum fljótt að þetta væri
skynsamlegasti kosturinn. Leigan er eflaust lægri á Smiðjuveginum en þar fær maður ekki sama streymið af fólki.“
Laugavegurinn góður
en gæti verið betri
Opnuðu hárgreiðslustofu og verslun síðasta sumar og
una sér vel á Laugaveginum Þykir bæta upp nokkuð
dýra leiguna að hafa líf og umgang í kringum fyrirtækið
Benedikt kemur auga á einn stóran annmarka við að reka hárgreiðslu-
stofuna á Laugavegi frekar en t.d. í Kringlunni eða Smáralind: Það virð-
ist skorta á heildarmarkaðssetningu fyrir svæðið sem verslunar- og
þjónustustað. Hann bendir á hvernig stóru verslunarmiðstöðvarnar
hafa frá upphafi staðið fyrir heilsteyptum auglýsingaherferðum til að
festa sig í sessi sem „betri leið til að versla“ eða áfangastað þar sem fá
má „allt í einni ferð“. „Kringlan og Smáralind virðast eiga mikið auglýs-
ingafé og nota á mjög útsjónarsaman hátt, en á Laugaveginum er hver í
sínu horni.“
Benedikt segir að oft væri eins og borgaryfirvöld og aðrir hags-
munaaðilar ynnu ekki í takt og verslunareigendur væru einnig oft ekki
sammála um hvernig best væri að haga málefnum verslunar í miðborg-
inni. Það væri hins vegar til mikils að vinna ef allir á svæðinu gætu snú-
ið bökum saman.
Hver verslun í sínu horni
SKORTUR Á SAMSTILLTRI MARKAÐSSÓKN
Morgunblaðið/Heiddi
Iðandi Það er iðulega líf og fjör í miðborginni og ágætur straumur af fólki.