Morgunblaðið - 06.06.2011, Qupperneq 18
FRÉTTASKÝRING
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Stundum er sagt að besta leið-in til að hætta að reykja séað byrja aldrei. Sú kynslóðsem nú er að komast á full-
orðinsár mun ekki þurfa að glíma við
að venja sig af tóbaksfíkn í sama mæli
og kynslóðirnar á undan því verulega
hefur dregið úr reykingum ung-
menna undanfarin 12 ár.
Árið 1995 reyktu 32% unglinga í
10. bekk grunnskóla vikulega og 21%
þeirra reykti daglega. Nú árið 2011
er hlutfall unglinga sem reykja viku-
lega komið niður í 9% og aðeins 5%
þeirra reykja daglega.
Þetta eru niðurstöður evrópsku
vímuefnarannsóknarinnar ESPAD
sem Rannsóknasetur Háskólans á
Akureyri vann á Íslandi, en rann-
sóknin nær til 15-16 ára unglinga í
flestum löndum Evrópu á fjögurra
ára fresti og var sú fyrsta gerð 1995.
Niðurstöðurnar sýna að á þess-
um 16 árum hafa miklar breytingar
orðið á tóbaksreykingum íslenskra
unglinga og eru þær orðnar næsta fá-
tíðar. Tíundi hver nemandi í 10. bekk
reykir vikulega og tuttugasti hver
daglega. Árið 1995 reykti hins vegar
þriðji hver nemandi vikulega og
fimmti hver daglega.
Aðgengið minna en áður
„Þetta eru mjög ánægjulegar
niðurstöður því þarna er auðvitað ný-
liðunin,“ segir Viðar Jensson, verk-
efnisstjóri í tóbaksvörnum á lýð-
heilsusviði landlæknis. Viðar bendir á
að samkvæmt rannsókninni Heilsa og
líðan Íslendinga, sem Lýðheilsustöð
stóð að, eru 73% líkur á því að fólk
byrji aldrei að reykja ef það er ekki
byrjað fyrir tvítugt.
„Þess vegna er svo mikilvægt að
fresta því að ungt fólk byrji tóbaks-
notkun, því að þegar maður nær
ákveðnum aldri og þroska aukast
mikið líkurnar á því að maður byrji
aldrei. Svo það er til mikils að vinna
og þarna er öflugt forvarnarstarf að
skila sér.“
Viðar segist þó telja að það séu
margir samliggjandi þættir að baki
þessari jákvæðu þróun, sem á sér
ekki aðeins stað hjá unglingum held-
ur hefur fullorðnum reykingamönn-
um líka fækkað mjög síðustu ár. „Það
hefur dregið mjög úr reykingum al-
mennt og þar er margt sem spilar inn
í auk forvarnarstarfsins. Samkvæmt
World Health Organization eru mikil-
vægustu þættirnir lög og reglur, að
halda verði háu og svo takmarkanir á
aðgengi.“
Frá árinu 1999 hefur aðgengi
unglinga að tóbaki einnig verið kannað
í ESPAD-rannsókninni. Það ár töldu
aðeins 3% unglinga að það væri erfitt
eða útilokað að verða sér úti um sígar-
ettur, en 73% að það væri mjög auð-
velt. Vorið 2011 töldu hins vegar 19%
að það væri erfitt eða útilokað en 24%
að það væri auðvelt.
Á sama tíma og dregur úr reyk-
ingum hefur notkun munntóbaks auk-
ist meðal unglinga. Viðar telur þó ekki
að munntókakið komi í staðinn fyrir
sígarettureykingar.
„Við viljum meina að munntóbak
sé viðbót, því við sjáum að reykingar
eru almennt að dragast saman, líka hjá
fullorðnum, en munntóbaksneyslan er
mestmegnis bundin við unga karl-
menn. Við höfum merkt mikla aukn-
ingu í aldurshópnum 16-23 ára en þar
segjast 20% pilta nota munntóbak og
þar af 15% daglega, því þetta er svo
ávanabindandi.“ Í forvarnarstarfinu er
því sjónum beint í auknum mæli að
munntóbaksnotkun en Viðar segir að
hvergi verði heldur slegið slöku við í
baráttunni gegn reykingum.
„Við þurfum að spýta í lófana, því
það þarf stöðugt að vinna í forvörnum
hvað varðar tóbak, sama í hvaða formi
það er.“
Glæðurnar slökkna
með nýrri kynslóð
Reykingar ungmenna 1995-2011
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Hlutfall nemenda í 10. bekk sem reyktu sígarettur vikulega eða daglega
1995 1999 2003 2007 2011
Vikulegar reykingar
Daglegar reykingar
32%
28%
20%
17%
9%
21%
19%
14%
11%
5%
18
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ríkisstjórninfékk ábaukinn á
sjómannadaginn
og skyldi engan
undra miðað við
þær sendingar sem
sjómenn hafa að undanförnu
fengið úr stjórnarráðinu. Sjó-
mannadagurinn var að þessu
sinni haldinn hátíðlegur í
skugga tveggja frumvarpa rík-
isstjórnarinnar sem vega að
rótum sjávarútvegs í landinu,
sjálfrar undirstöðu-
atvinnugreinar þjóðarinnar.
Ragnar Árnason, prófessor í
fiskihagfræði, ræddi frum-
vörpin á Grandagarði í gær og
sagði að næðu þau fram að
ganga myndu allir tapa, ís-
lenskur sjávarútvegur hverfa
aftur til fyrra skipulags of-
sóknar, styrkja- og uppbót-
arkerfis og reglulegra geng-
isfellinga. „Hann mun dragast
aftur úr sjávarútvegi ná-
grannalandanna, markaðir
munu tapast. Geta íslenskra
fyrirtækja til að hasla sér völl í
fiskveiðum utan landhelgi mun
hverfa. Þetta mun óhjákvæmi-
lega hafa í för með sér tekju-
skerðingu fyrir sjómenn og
byggðarlög,“ sagði Ragnar.
Hann minnti einnig á það,
sem ekki er vanþörf á miðað við
árásir ríkisstjórnarinnar á
greinina, að sjávarútvegur afl-
aði gjaldeyristekna sem stæðu
undir nánast helmingi af inn-
flutningi landsmanna. Rann-
sóknir sýndu einn-
ig að
sjávarútvegur
stæði beint og
óbeint undir 25-
30% af lands-
framleiðslunni.
Fleiri fjölluðu um efnahags-
leg áhrif frumvarpanna því í
gær sagði Útvegsmannafélag
Vestfjarða frá því að úttekt á
þeim sýndi að aflaheimildir á
Vestfjörðum muni skerðast um
3700 þorskígildistonn verði þau
að lögum. Úttektin leiðir einnig
í ljós að af um 860 störfum sjó-
manna og fiskverkafólks á
Vestfjörðum muni um 100 störf
tapast komi ríkisstjórnin frum-
vörpunum í gegnum þingið.
„Kaldar kveðjur og nístandi
óvissa er sendingin úr stjórn-
arráðinu fyrir sunnan í tilefni
sjómannadagsins og með fylgja
loforð um að lögfesta bæði
fækkun starfsfólks og kjara-
skerðingu í sjávarútvegi. Þetta
er dapurlegt og sannarlega allt
annað en atvinnulíf og launa-
fólk á Vestfjörðum þarf á að
halda á erfiðum tímum,“ er
haft eftir formanni félagsins.
Ætli ræður gærdagsins og
auknar upplýsingar um skelfi-
legar afleiðingar áforma rík-
isstjórnarinnar dragi úr yfir-
læti forsprakka hennar í garð
þeirra sem byggja afkomu sína
beint á sjávarútvegi? Ætli
Samfylkingin sjái að sér og
leggi þessar kreddur til hliðar?
Því miður er það ekki líklegt.
Sjómannadagurinn
var í ár haldinn
undir árásum frá
ríkisstjórninni}
Í skugga frumvarpa
Fjandskapurríkisstjórnar-
innar í garð at-
vinnulífsins ein-
skorðast ekki við
útgerð og sjávar-
útveg eða við stór-
iðjuframkvæmdir á Suðvestur-
eða Norðausturlandi. Í Morg-
unblaðinu var á dögunum rætt
við Höskuld Steinarsson, fram-
kvæmdastjóra Fjarðalax, sem
er laxeldisfyrirtæki á Vest-
fjörðum, og hann hafði ekki
fagra sögu að segja af stjórn-
völdum.
Höskuldur lýsti því að treg-
lega hefði gengið að fá leyfi fyr-
ir starfsemina og að hið op-
inbera hefði dregið lappirnar.
Svo sagði hann: „Þetta er að
gerast á sama tíma og stjórn-
völd segjast vera að reyna að
laða erlenda fjárfesta til lands-
ins og tönnlast á mikilvægi þess
að auka veg útflutningsgreina.
Svo stöndum við klárir með er-
lent fjármagn, besta fáanlega
búnað og tilbúnir að ráða fjölda
manns í vinnu á sunnanverðum
Vestfjörðum, en það virðist
stefna í að taka á þriðja ár að fá
leyfi fyrir starfseminni. Mig
skal ekki undra að
erlendir fjárfestar
staldri við þegar
þeir finna fyrir því
hvernig þessum
málum er háttað á
Íslandi.“
Viðhorf ríkisstjórnarinnar til
íslensks atvinnulífs birtist í
ýmsum myndum og er einn
allra mesti vandinn sem við er
að glíma í íslenskum efnahags-
málum. Þetta viðhorf hefur
dregið verulega úr trú á efna-
hag landsins, ekki síst hvert
stefnir. Jafnvel stjórnvöld sjálf
virðast átta sig á þessu, enda
væru þau tæpast að öðrum
kosti að vinna að því að keyra í
gegnum þingið lög sem festa
stórskaðleg gjaldeyrishöftin í
sessi.
Án grundvallarbreytinga á
viðhorfi stjórnvalda til atvinnu-
lífsins verður framþróunin hæg
og fjárfestingin lítil. Þá munu
fjárfestar halda áfram að sér
höndum og kjarabætur almenn-
ings verða litlar eða engar. Hið
dapurlega er hversu óþörf nú-
verandi staða er, því að allt væri
þetta auðleyst með breyttu við-
horfi til atvinnulífsins.
Viðhorfsbreyting
stjórnvalda í garð
atvinnulífsins er
bráðnauðsynleg}
Jafnræði í fjandskapnum
E
in helsta frétt nýliðinnar helgi var
tölvusnyrtur búkur Egils Ein-
arssonar á forsíðu ekki ómerkari
bókar en sjálfrar símaskrárinnar.
Glöggir menn tóku eftir því að sá
Egill sem prýddi forsíðuna var talsvert ólíkur
Agli þeim sem sprangaði glaðhlakkalegur um í
sjónvarpsauglýsingu um sama efni.
Eftir nokkra eftirgrennslan kom í ljós að út-
liti Egils hefði verið breytt í tölvuforriti. Orsakir
þess hafa ekki verið gefnar upp og það er verð-
ugt umhugsunarefni að íhuga hvers vegna ein-
hver heldur það teljast símaskránni til tekna að
forsíðu hennar prýði tölvubreyttur og óeðlileg-
ur karlmaður. Miklu nær hefði verið að hafa
hinn eðlilega og náttúrulega Egil á forsíðunni,
það hefði hugsanlega frekar fengið fólk til að
taka sér þennan níðþunga doðrant í hönd.
Ýmsir hafa lagt lóð sín á vogarskálarnar í þessari um-
ræðu, þeirra á meðal heilsu- og næringarfræðingar, sem
segja tölvubreytingu Egils senda slæm skilaboð til barna
og unglinga. Áhrifin geti orðið þau að fólk fari að reyna að
sækjast eftir einhverju útliti, sem ómögulegt sé að ná,
enda getur fólk af lifandi holdi og blóði ekki með nokkru
móti litið út eins og eitthvað sem hefur verið skrumskælt í
tölvu af grafískum hönnuðum.
Ábúðarfullur fréttamaður klykkti svo út með því að
segja að enginn liti út eins og Egill á myndinni, ekki einu
sinni Egill sjálfur.
Fræg eru ummæli ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford
um að hún óskaði þess að líta út eins og Cindy
Crawford. Með því átti hún við að hún væri al-
gerlega óþekkjanleg á myndum, vegna þess
hversu mikið þeim hefði verið breytt þegar þær
birtust á síðum tímaritanna.
Fólk virðist þurfa að undirgangast ýmsar út-
litsbreytingar í tölvum áður en það telst boðlegt
að koma fyrir sjónir almennings. Pistilshöf-
undur getur vitnað um það eftir áralöng störf á
tímaritum. En það eru oftast konur. Það virðist
vera síður fréttnæmt en téð breyting á Agli og
fáir býsnast yfir því að það geti verið slæmt til
fyrirmyndar. Af þessu mætti halda að líkami
karla væri eitthvert heilagt vé, á meðan það er
í besta lagi að þjösnast á konum með tölvumús
að vopni daginn út og inn.
Í snyrtivöruauglýsingum er öllum konum
meira eða minna rennt í gegnum myndvinnslu-
forrit og skiptir þá litlu máli hvort þær eru fimmtán ára
eða fimmtugar. Það er alveg nógu slæmt að við konur
þurfum að horfa upp á að stúlkur á fermingaraldri komi
fram sem fulltrúar allrar kvenþjóðarinnar í auglýsingum
og skiptir þá litlu máli hvort verið er að auglýsa bikiní,
tölvur eða hrukkukrem. En í ofanálag sleppa ekki einu
sinni fermingarstúlkurnar við að úr þeim sé sléttað með
tölvutækni. Hefur enginn neitt að segja um það? Er það
ekki slæm fyrirmynd fyrir ungar stúlkur?
Að lokum skal þess getið að með þessari grein fylgir
mynd sem engin kynni hefur haft af Photoshop. En það
þarf líklega ekki að taka það fram. annalilja@mbl.is
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
Þegar karl var fótósjoppaður
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
75%
unglinga telja að mikil hætta sé
á því að fólk skaði sig á því að
reykja pakka af sígarettum á dag
Tuttugasti
hver unglingur í 10. bekk reykti
daglega vorið 2011
1/5
hluti unglinga í 10. bekk reykti
hins vegar daglega árið 1995
1984
voru sett heildstæð lög um
tóbaksvarnir á Íslandi
‹ KÆFT Í REYKNUM ›
»