Morgunblaðið - 06.06.2011, Page 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
» Stöð 2 fagnaði nýrrisumardagskrá í
húsakynnum Kex hostel
við Skúlagötu í höfuð-
borginni á miðvikudag-
inn var. Margt var um
manninn og létt yfir
fólkinu. Boðið var upp á
léttar veitingar af ýmsu
tagi og sýndar svip-
myndir úr sumar-
dagskránni.
Nýrri sumardagskrá Stöðvar 2 fagnað
Morgunblaðið/Ernir
Ekki skorti á veitingarnar í kynningu Stöðvar 2 og mun enginn hafa farið þyrstur heim.
Bjarni Haukur var mættur, svo og sjálfur Siggi Hlö. Simmi og Jói voru ferskir að vanda og þeim leiddist ekki á Kex hostel.
Margt var um manninn á dagskrárkynningu sjónvarpsstöðvarinnar.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Tveggja tíma hláturskast...með hléi. Síðustu sýningar þessa leikárs
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Þri 7/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Mið 8/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00
Fös 10/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Faust (Stóra svið)
Fim 9/6 kl. 20:00 lokasýn
Allra síðustu sýningar
Klúbburinn (Litla sviðið)
Þri 7/6 kl. 20:00 4.k Mið 8/6 kl. 20:00 5.k
Á Listahátíð - Leikhús, dans og tónlist renna saman í eina órjúfanlega heild
NEI RÁÐHERRA! – HHHH IB, Mbl
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Ég er að hlusta á ýmiss konar tónlist, t.d. síðustu
tvær plötur hljómsveitarinnar Blonde Redhead, Keith
Jarrett að spila Goldberg-tilbrigði J.S. Bachs, plötu
Avishai Cohen, Gently Disturbed, og plötu Toumani
Diabate, The Mandé Variations.
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið
gerð að þínu mati?
Mér finnst ekki vera til besta neitt í heiminum, en
sem betur fer eru til ógrynnin öll af frábærri hljóðlist.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir
þú hana?
Mig minnir að það hafi verið Here Today, Tomorrow
Next Week! Sykurmolanna, í Japis.
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Mér þykir vænt um plötuna Pétur
og úlfurinn eftir Prokofieff þar sem
Bessi Bjarnason var í hlutverki
sögumannsins. Þetta verk hafði
mjög mikil áhrif á mig sem barn og
ég hlustaði milljón sinnum á það og
geri enn.
Hvaða tónlistarmaður værir þú
mest til í að vera?
Ég væri t.d. alveg spennt fyrir að prófa að vera Ella
Fitzgerald, Amalia Rodrigues eða Thom Yorke, sumsé
að geta sungið yndislega og nota eingöngu líkamann
sem hljóðfæri.
Hvað syngur þú í sturtunni?
Ég syng stundum nokkrar Sanskrit-möntrur í
sturtu, dálítið einræna endurtekningu sem ég lærði
fyrir um 10 árum. Þá daga sem ég vakna með lög eftir
Sting á heilanum (já, Sting!) reyni ég að syngja lög sem
mótvægi, t.d. Stevie Wonder eða lögin sem Haukur
Morthens söng.
Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum?
Síðastliðinn föstudag hlustaði ég t.d. á Fela Kuti,
Earth (Urði Hákonardóttur), Steve Reich og The
Knife. Svo hlustaði ég líka á Gufuna, sem er kannski
ekki mjög villt!
En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum?
Fuglasöngur og þýð Þingholts-þögnin.
Í mínum eyrum Birta Guðjónsdóttir
Pétur, úlfurinn og Bessi