Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tæpu hálfuári eftir aðfjármála- ráðherra tilkynnti á Alþingi um skip- un starfshóps til að fjalla um eldsneyt- isverð liggur skýrsla hópsins nú fyrir. Hóp- urinn var skipaður í kjölfar mikillar umræðu um hátt elds- neytisverð til almennings hér á landi og kröfur um að álögur ríkisins yrðu lækkaðar. Niður- staða hóps fjármálaráðherra hefur hins vegar orðið sú að eldsneytisverð sé of lágt hér á landi, að skattar á eldsneyti dugi ekki fyrir vegafram- kvæmdum og að lækkun skatta muni ekki lækka verðið til neytenda. Niðurstaðan gat ekki farið nær málflutningi fjármála- ráðherra, sem hefur barist gegn lækkun skatta á elds- neyti. Til að tryggja niðurstöð- una var aðstoðarmaður fjár- málaráðherra settur yfir starfshópinn, enda var ætlunin með skipun hans aldrei önnur en að vinna tíma og finna rök til að styðja þá skoðun ráð- herrans og ríkisstjórnarinnar að álögur á almenning megi alls ekki lækka. Rökin eru að vísu fráleit, en ríkisstjórnin mun láta sér það í léttu rúmi liggja og tefla þeim fram til að koma í veg fyrir að þurfa að lækka eldsneytis- verðið til almennings. Þannig er því haldið fram að þar sem margir telji að olíuverð kunni að hækka áfram þá taki því ekki að lækka álögurnar. Hækkun á heimsmarkaðsverði muni hvort eð er éta upp þá lækkun. Þegar kröfurnar til röksemdafærslunnar gegn lækkun skatta eru ekki meiri en svo að slíkur málflutn- ingur ratar inn í skýrslu aðstoðar- manns fjár- málaráðherra, þá er augljóst orðið að skattgreiðendur eiga enga möguleika. Nú er eins augljóst og það getur orðið að ríkisstjórnin vill ekki lækka eldsneytisskatt- ana. Þvert á móti þá virðist hún vera að undirbúa hækkun þeirra, því að aðstoðarmað- urinn segir skattana of lága. Ríkisstjórnin getur þó ekki vikið sér undan því, að ríkið tekur í dag til sín fleiri krónur af hverjum seldum eldsneytis- lítra en áður vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði. Talna- kúnstir geta ekki breytt þessu og ekki heldur því að það er al- menningur sem greiðir þessa viðbótarskatta í hvert sinn sem hann fyllir á tankinn. Talnakúnstir breyta því ekki heldur að ríkisstjórnin hefur komið óheiðarlega fram í þessu máli, þóst vera reiðubú- in til að skoða eldsneytisverðið og skipað starfshóp í þeim til- gangi. Nú liggur fyrir að til- gangurinn var að afvegaleiða umræðuna, blekkja almenning og undirbúa frekari skatta- hækkun. Eftir langa reynslu af ríkisstjórninni er fátt sem kemur orðið á óvart. Þó má ætla, að almenningur hafi ekki búist við því, að starfshópur ríkisstjórnarinnar sem skip- aður var „til að fara yfir mögu- leg viðbrögð stjórnvalda vegna hækkandi verðs á olíu“ finni það út að olíuverð sé of lágt hér á landi og álögurnar þurfi að hækka. Aðstoðarmaður Steingríms skilaði fráleitri niðurstöðu sem hentar ríkis- stjórninni vel} Of lágir skattar á eldsneyti? Stundum erengu líkara en að Samfylking- unni sé uppsigað við það sem ís- lenskast er. Ís- lenskur landbún- aður hefur lengi farið í fínu taugarnar á for- ystumönnum á þeim bæ. Og of- næmið hefur brotist út með bólum og kláða þegar bændur hafa leyft sér að spyrja mál- efnalegra spurninga um áhrif aðildar að ESB á umhverfi ís- lensks landbúnaðar. Að óreyndu mætti ætla að þeir sem fjálglegast tala um að ekki megi taka afstöðu til þess máls nema í kjölfar „upplýstrar umræðu“ myndu fagna sér- hverri málefna- legri spurningu frá bændum. En það er öðru nær. Og þessi andúð í garð bænda virðist ekki eingöngu bundin við þá sem gegna trúnaðarstörfum fyrir þennan sérstaka stjórnmálaflokk. Ákafir stuðningsmenn hans, sem eiga þó einkum að gæta annarra hagsmuna, geta sjaldnast stillt sig. Þannig hlýt- ur Gylfa Arnbjörnssyni að vera ljóst að jafn föst fylgispekt og hann hefur jafnan sýnt við sjónarmið Samfylkingar í sér- hverju máli dregur úr vægi orða hans þegar hann virðist tala í nafni ASÍ. Menn sem gegna þýðingarmiklum stöðum í þágu almannasamtaka verða að gæta að sér} Samflokksleg andúð E inhverju sinni upplifði ég sér- kennilegt augnablik inni í versl- uninni Europris. Engin tónlist ómaði úr hátalarakerfinu og þessi framandi þögn sem ríkti gjörbreytti andrúmsloftinu í innkaupa-, eða öllu heldur vettvangsferð minni í þessa merkilegu búð. Viðskiptavinir liðu um ganga í hálfgerðri öræfaþögn og kynntu sér tilboð á brauði, tómatsósu og hjólsögum og gaum- gæfðu kassa utan um uppblásnar, átta manna garðsundlaugar. Ég sá mann – í dauðaþögn – brjóta heilann um hvort hann ætti að fjárfesta í rauðum sandölum með frönskum rennilás. Tveimur metrum frá hon- um var sturtuklefi á 30% afslætti. Á næsta gangi tók kona tvo lítra af appelsínusafa úr kæli. Ég sá veru mína í Europris í öðru samhengi í þögn- inni. Auðvelt væri að segja að þögnin hefði verið nota- leg eða nýta tækifærið til að hæðast að hryllilegri ís- lenskri popptónlist sem yfirleitt er leikin í opinberum rýmum. En þögnin kallaði mun fremur fram þau hug- hrif að mér leið betur gagnvart sjálfum mér inni í Europris; ég fann ekki jafnmikið fyrir þessari skömm og lítillækkun sem fylgir því að reika sviplaus um stóra verslun þar sem hvarvetna blasa við líflegar myndir af fallegu fólki, ágeng skilaboð um að hitt og þetta sé ódýrt – góð kaup – og fyrirmæli um að meðvitaður neytandi megi ekki láta tiltekin tilboð fram hjá sér fara. Án stórmarkaðatónlistar – sem yfirleitt er áreynslu- laus og lítt ágeng á sama hátt og sú tónlist sem leikin er á Bylgjunni – var eins og rammann vant- aði utan um þá upplifun sem fylgir því að vera hjarðneytandi. Minnkandi þögn í samfélagi helst, að mér virðist, í hendur við aukinn hraða. Auknum hraða fylgir einfaldleiki því enginn tími gefst til þess að einbeita sér að einhverju sem ekki blasir við. Fréttir styttast því fólk hefur að sögn ekki tíma til að lesa þær. Í tölvu- heiminum eykst hraðinn stöðugt; fólk sækir sér sjónvarpsþáttavímu, tónlist og meira að segja bækur á ógnarhraða. Dagleg sam- skipti fólks fara fram, bókstaflega, á ljós- hraða. Dálkar í dagblöðum eru orðnir að stuttum pistlum eins og þessum hér vegna þess að hvorki er gert ráð fyrir að ég hafi tíma til að skrifa hann né þú að lesa hann. Ég tengi hraða við hávaða og þögn við tíma. Að lesa bók krefst tíma, einbeitingar og þagnar og því skyldi engan undra að fólk sé hætt að lesa erf- iðar bókmenntir og kjósi nú frekar að horfa á sjón- varpsþætti, sem allir fjalla með einum eða öðrum hætti um fallegt fólk og tiltölulega einfalt ástalíf þess enda eru þeir skapaðir til að höfða til sem flestra. Sjálfur vil ég trúa því að það sé meira í flesta spunnið en að óska sér einungis að fá að fullnægja þörfum sín- um – svala hvötum – eins snöggt og hægt er. Ég held að í flestum búi einhvers staðar þrá eftir þögn og ein- veru og verðlaunum sem felast í því að leggja sig fram án þess að þurfa þess; að einbeita sér að einhverju einu – blaðagrein, bók eða listaverki – í kannski hálftíma í senn án hávaða eða truflunar. haa@mbl.is Halldór Arm- and Ásgeirsson Pistill Þögnin og tíminn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is H raðakstur er það umferðarlagabrot sem flestir eru teknir fyrir. Samkvæmt töl- fræði sem sjá má í ársskýrslu lögreglu höfuðborgar- svæðisins fyrir síðasta ár má sjá að karlar eru oftar teknir fyrir þær sakir en konur og jafnframt að yngri karl- menn koma yfirleitt við sögu þegar um ofsaakstur er að ræða. Ungur karlmaður varð einmitt valdur að um- ferðarslysi nýverið á Gullinbrú. Sá var 17 ára og hafði fengið ökuréttindi þremur dögum fyrir slysið. Í því slas- aðist kona á sjötugsaldri alvarlega. Í nýjum umferðarlögum, sem enn hafa ekki verið afgreidd frá Alþingi, er gert ráð fyrir að hækka bílprófsald- urinn um eitt ár. En sitt sýnist hverj- um um ágæti þess. Ögmundur Jónasson, innanríkis- ráðherra, sagði á Alþingi þegar málið var flutt, að um væri að ræða mikil- vægt nýmæli. „Að mati rannsókn- arnefndar umferðarslysa er talið unnt að áætla í ljósi fyrirliggjandi rannsókna að hlutfallsleg fækkun umferðarslysa meðal nýliða yrði á bilinu 5-9% ef tillögur frumvarpsins yrðu að veruleika.“ Einnig benti hann á, að núgildandi fyrirkomulag valdi vandkvæðum að ýmsu leyti þegar ökumaður undir 18 ára aldri lendir í slysi sem veldur honum eða öðrum teljanlegu fjárhagstjóni, en hann geti ekki borið fjárhagslega ábyrgð á öku- tæki sínu án aðkomu foreldra eða for- ráðamanna. Færist yfir á 18 ára ökumenn Í umsögn Umferðarstofu er mikil- væga nýmælið hins vegar gagnrýnt. „Hækkun ökuleyfisaldurs í 18 ár fel- ur í sér að einn árgangur er útilok- aður frá akstri og með því þeim hætt- um umferðarinnar sem ökumaður bifreiðar er í. Tími reynsluleysis fær- ist á næsta árgang og ætla má að slysatíðni 18 ára ökumanna aukist verulega.“ Auk þess bendir Umferðarstofa á að aðrar þjóðir á Evrópska efnahags- svæðinu séu með 17 ára lágmarks- aldur og nýlega hafi Austurríki lækk- að aldurinn úr 18 ára í 17 ára, m.a. til að koma á viðlíka kerfi fyrir unga ökumenn og er hér á landi, þ.e. með skilyrtu ökuskírteini, bráðabirgða- skírteini, akstursmati, punktakerfi, akstursbanni og sérstökum nám- skeiðum fyrir þá sem brjóta af sér. „Það kerfi sem við höfum byggt upp hér á landi fyrir unga ökumenn hefur skilað ótvíræðum árangri, dregið hef- ur úr hraða- og ölvunarakstri um 50- 60% ef miðað er við stöðu mála á und- an og eftir aukningu í kröfum til ungra ökumanna sem gerðar voru með breytingu á umferðarlögum 2007.“ Enginn látist undanfarin ár Hvað sem umsögn Umferðarstofu líður sagðist innanríkisráðherra í um- ræðum um ökuleyfisaldurinn á þingi sannfærður um að rétt væri að færa aldurinn upp. „Umferðarslys eru al- gengasta dánarorsök fólks á aldrinum 15-24 ára innan OECD-ríkja en rúm- lega 35% þeirra sem láta lífið á þessu aldursbili farast í umferðarslysum.“ Umferðarstofa bendir hins vegar á það, að ef litið er til hlutdeildar ungra ökumanna í umferðarslysum síðastlið- inn áratug hafi yngsti árgangurinn bætt sig verulega, andstætt því sem gerst hefur hjá nágrannaþjóðum Ís- lands. „Ennfremur má nefna að af þeim 24 ökumönnum sem létust síð- astliðin þrjú ár í umferðarslysum var enginn undir 20 ára aldri, en 13 voru 59 ára eða eldri.“ Ennfremur er á það bent að í grein- argerð með frumvarpinu séu birtar þriggja og fjögurra ára tölur um um- ferðarslys ungra ökumanna, þ.e. frá því fyrir að breytingar voru gerðar á umferðarlögum. Ungir íslenskir öku- menn hafa bætt sig Morgunblaðið/Ómar Umferð Aðeins eitt banaslys kom til rannsóknar hjá embætti lögreglu höf- uðborgarsvæðisins 2010. Þau voru ýmist tvö eða þrjú á árunum 2007-2009. Lögregla höfuðborgarsvæðisins hefur fylgst með umferðar- hraða í og við íbúðagötur í um- dæminu og raunar gert það með kerfisbundnum hætti frá árinu 2008. Með því móti hafa safn- ast mikilvægar upplýsingar um raunhraða á þessum stöðum. Niðurstöður hraðamælinga í íbúðahverfum eru sendar sveitarfélögunum til upplýs- ingar svo þau geti brugðist við þar sem tilefni er til. „Ástæða er hins vegar til að nefna að við- brögð sveitarfélaganna mættu vera betri þegar kemur að úr- bótum vegna hraðaksturs,“ segir í ársskýrslu lögreglunnar. Þarf betri viðbrögð FYLGJAST MEÐ HRAÐA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.