Morgunblaðið - 18.07.2011, Síða 21

Morgunblaðið - 18.07.2011, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 ✝ Hellen S. Ben-ónýsdóttir fæddist á Hvamms- tanga 9. mars 1953. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 8. júlí 2011. Faðir Hellenar var Benóný Elís- son, verkamaður, f. 15.4. 1923, d. 3.2. 1997, og móðir Hellenar er Þóra Eggertsdóttir, kennari, f. 28.9. 1926. Systkini Hellenar eru: Eggert Atli Ben- ónýsson, f. 16.5. 1960, eiginkona hans er Lone Rasmussen. Guð- rún Elín Benónýsdóttir, f. 19.12. 1961, eiginmaður hennar er Björn Líndal Traustason. Hörð- ur Þorsteinn Benónýsson, f. 15.3. 1966, eiginkona hans er Eydís Rut Gunnarsdóttir. Eiginmaður Hellenar 16.4. 1983, er Andri Jónasson, lyfja- Dís Heimisdóttir, f. 2004, Krist- ófer Gauti Heimisson, f. 2007. Silja Dögg Andradóttir f. 7.2. 1980, maki Sigurður Freyr Bjarnason. Börn Silju Daggar og Sigurðar Freys eru: Aníta Rut Sigurðardóttir, f. 2003, Bjarni Leó Sigurðsson, f. 2007, Óskar Andri Sigurðsson, f. 2010. Hellen ólst upp og bjó á Hvammstanga fram til ársins 1977 en þá flutti hún suður til Reykjavíkur. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Héraðsskólanum að Reykjum 1970 og útskrif- aðist sem sjúkraliði frá Náms- flokkum Reykjavíkur 1989. Hellen starfaði lengst af við aðhlynningu og umönnun sjúk- linga og aldraðra, á Sjúkrahús- inu á Hvammstanga, Landspít- alanum við Hringbraut og á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund en þar starfaði hún til æviloka. Fjölskyldan var alltaf númer eitt hjá henni og voru barna- börnin í miklu uppáhaldi, enda kallaði hún þau gullin sín. Útför Hellenar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 18. júlí 2011, og hefst athöfnin kl. 13. fræðingur, f. 10.11. 1952 í Stykkis- hólmi. Faðir Andra var Jónas Jóhanns- son, f. 18.12. 1899, d. 25.2. 1995, bóndi á Valþúfu, og móð- ir Andra er Guð- björg Andrésdóttir, f. 26.3. 1917. Sam- an eiga Hellen og Andri þrjú börn: Anna Rut Hellenar- dóttir f. 12.7. 1972, maki Pétur Breiðfjörð Pétursson. Börn Önnu Rutar og Péturs Breið- fjörð eru: Thelma Dögg B. Pét- ursdóttir, f. 1993, Berglind María B. Pétursdóttir, f. 1999, Elísabeth Ósk B. Pétursdóttir, f. 2008. Heimir Þór Andrason f. 24.12. 1975, maki Erla Gréta Skúladóttir. Börn Heimis Þórs og Erlu Grétu eru: Alexander Bjarki Kristinsson f. 1999, Eva Elsku mamma mín. Það er svo erfitt að setjast niður og skrifa minningargrein um þig. Sl. haust veiktist þú af ólæknandi sjúkdómi, hann kom eins og þruma úr heiðskíru lofti, þú varst ekki vön að kvarta en viðurkenndir þó að þú værir ólík sjálfri þér. Þú barðist eins og hetja, en sjúkdómurinn sigraði ein sól- ríkan dag í júlí sl. Ég var svo heppin að geta verið hjá þér tvo morgna í viku í vetur og áttum við þá góðar stundir saman. Sumir dagar voru góðir og þá vorum við duglegar að nýta þá í göngu- ferðir, búðarráp o.fl. En svo komu slæmu dagarnir og þá voru þeir nýttir í að liggja uppi í rúmi og spjalla. Þú kallaðir mig stóra skrímslið þitt, því þú vissir að þegar ég var komin þá þurftir þú að fara fram úr (und- an sænginni). Elskan mín, þú varst kjarna- kona, ef það þurfti að halda veislur, stórar eða litlar töfr- aðir þú þær fram eins og ekk- ert væri. Þegar Heimir Þór kom í bæinn eða Silja Dögg til landsins varst þú fljót að bjóða okkur í hádegismat, grill eða kaffi og veitingarnar voru endalausar, já, mamma mín, það var alveg sama hvað þú tókst að þér sauma á okkur föt, prjóna peysur, hekla/sauma gardínur, sjá um fjölskylduboð, halda veislur, baka kransakök- ur, marsipankökur, elda fiski- bollurnar þínar sem eru þær bestu á landinu, passa barna- börnin þá var það ekkert mál því allt sem þú gerðir, það gerðir þú vel og vandlega. Jólin voru þín hátíð, á aðventunni skreyttir þú heimilið ykkar pabba, brunaðir norður og skreyttir Skarð, eða austur og gerðir Lundinn okkar jólaleg- an, bakaðir smákökur, gerðir Toblerone-ísinn þinn og mars- íssósuna, föndraðir jólakort, merkispjöld og jólagjafir. Ég man þegar þú saumaðir á mig brúðarkjólinn, þá settir þú á þig hvíta bómullarhanska, því þú varst svo þurr á höndunum og þú vildir ekki draga til í efn- inu, kjóllinn er enn til og verð- ur vel geymdur og það er aldrei að vita, kannski vilja stelpurnar mínar nota hann þegar þær verða eldri. Þegar við Pétur eignuðumst Thelmu Dögg varst þú að vinna á Landspítalanum við Hring- braut og komst oft á dag yfir á sængurkvennadeildina bara til að sitja með litla gullmolann í fanginu. Þið Thelma Dögg átt- uð ykkar sameiginlega áhuga- mál, saumaskap og handavinnu og naut hún þess að koma til þín og sýna þér það sem hún var að sauma eða hanna hér heima eða í skólanum. Berglind María er svolítið lík þér, alltaf nóg að gera hjá henni og fer frekar hratt yfir eins og þú áttir til að gera, hún saknar þín sárt. Svo er það litla Óskin okkar hún Elísabeth Ósk, síðustu daga hefur hún strokið mér um vangann og segir þetta er allt í lagi, amma er búinn að vera veik og nú er hún hjá Jesú. Ég veit að það var vel tekið á móti þér á þessum fallega stað sem þú ert komin á og ég bið að heilsa Benna afa. Minning þín er ljós í lífi okk- ar. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (SÞ) Þín dóttir, Anna Rut. Elsku besta amma mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Takk fyrir að vera amma mín. Þín Elísabeth Ósk (Litla Óskin þín). Elsku amma mín. Ég get ekki enn trúað því að þú sért farin frá mér. Ég sem átti eftir að gera svo margt með þér. Mér þótti svo vænt um þig og ég veit að nú líður þér vel og þú ert ekki lengur veik. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Þín, Berglind María. Elsku amma mín. Ég á enn erfitt með að trúa því að þú hafðir veikst svona mikið og sért farin frá mér. Við urðum nánari eftir að þú veiktist og ég reyndi að koma sem oftast til þín. Það var alltaf svo gaman að koma og heim- sækja þig, við gátum endalaust talað um tísku og föt, skoðað sauma- og tískublöð, sagt okkar skoðanir og hlegið saman. Ég man þegar ég var 8 ára gömul og þú sagðir mér að þú hefðir fengið saumavél í ferm- ingargjöf og þá sagði ég við þig að mig langaði í saumavél þeg- ar ég myndi fermast. Og auð- vitað fékk ég saumavél í gjöf frá ykkur afa 6 árum síðar. Þegar ég hóf nám við fata- iðnbraut við tækniskóla hafðir þú mikinn áhuga á þeim verk- efnum sem ég var að vinna með og þér fannst alltaf svo gaman þegar ég kom og sýndi þér það sem ég hafði verið að sauma, ég fékk alltaf góð ráð frá þér enda varst þú snillingur í að sauma. Hún Þóra amma hefur sagt mér að þú hafir snemma byrjað á því að fá að sauma á vélina hennar. Við keyptum okkur overlock- vél saman og ég fékk að hafa hana og nota við þau verkefni sem ég var að vinna fyrir skól- ann. Manstu (ég gleymi því aldr- ei) þegar við saumuðum saman kjól á mig fyrir 1. des.-ball í skólanum mínum, þá var ég í 10. bekk. Rauður kjól með und- irpilsi. Það dáðust allir að kjólnum enda er hann rosaflott- ur og ég mun geyma hann vel. Elsku besta amma mín, ég sakna þín svo mikið. Þín, Thelma Dögg. Hellen, okkar trausta og góða vinkona, er látin langt fyr- ir aldur fram. Andlátsdagurinn var tákn- rænn fyrir líf hennar. Sólbjart- ur sumardagur rennur upp, glæðir vonir og léttir lund. Að áliðnum degi en þó löngu fyrir sólarlag og gagnstætt öllu sem ætla mátti er lífi Hellenar lokið í þessari tilvist. Hellen lifði í sólbjörtu um- hverfi og lærði í uppeldinu að standa á eigin fótum og gera kröfur til sjálfrar sín. Auk þess að vera skynsöm og greind þá hafði hún ríka réttlætiskennd sem auðveldaði henni að greina það varanlega frá tískustraum- um. Með skarpri innsýn á gæði greip hún þau tækifæri sem færðu henni mesta hamingju og gleði. Þegar nýstúdentinn og skólabróðir okkar Andri ákvað að hvíla sig frá námi og gerast kennari á Hvammstanga einn vetur var Hellen, sem þar bjó, fljót að átta sig á þeim góðu kostum sem hann var búinn. Tryggðin sem Andra var í blóð borin og nærgætnin við að hlúa að því sem honum var kærast sem vakti áhuga hennar. Andri og Hellen voru eins og sköpuð fyrir hvort annað, báru virð- ingu fyrir hvort öðru og höfðu sameiginlegan skilning á því hvað væri eftirsóknarvert. Hellen var afar myndarleg og smekkleg kona. Uppeldi barna sinna og að treysta inn- viði heimilisins var Hellen dýr- mætt og sinnti hún því hlut- verki á þann veg að vart verður betur að staðið. Í því sem öðru voru þau Andri samstiga. Þess bera þrjú börn þeirra og níu barnabörn fagurt vitni. Dugleg, vel gerð og samhent og er þá í engu ofsagt. Hellen vann alla tíð mikið. Hún var menntaður sjúkraliði og vann lengstum við umönnunarstörf þar sem skjól- stæðingar hennar fengu notið alúðar hennar og umhyggju. Hún var listræn og allt lék í höndum hennar. Gilti þá einu hvort um var að ræða mat- reiðslu, garðrækt, sauma eða gerð annarra listmuna. Ófá handtök hennar og listmuni er að finna á Skarði æskuheimili hennar á Vatnsnesi, sem fjöl- skyldan hefur búið vel að, og í sumarbústað þeirra Andra í Grímsnesi. Það var gott að eiga þau Hellen og Andra að vinum og við höfum notið þess í ríkum mæli á svo margvíslegan hátt. Fyrir það er nú þakkað. Bjart- ar minningar frá ferðalögum og fjölmörgum samverustundum verða okkur hjartkærar. Það var okkur mikils virði að Hell- en gat verið með á okkar ár- lega þorrablóti í Skagafirði í vetur. Hellen greindist með krabbamein sl. haust. Þá þegar hófst óvægin barátta til að ná betri heilsu sem tók á og var erfið. Barátta hennar einkennd- ist af miklu æðruleysi og ein- beittum sigurvilja. Lífsganga Hellenar er sannarlega sigur þeirra gilda sem hún stóð fyrir og eru til eftirbreytni þeim sem vilja rækta með sér fagurt mannlíf og umhverfi. Umvafin fjölskyldu sinni kvaddi Hellen þennan heim. Ástkær eigin- kona, móðir, tengdamóðir og amma hefur verið hrifin burt í blóma lífsins en ástríki hennar verður þeim leiðarljós alla tíð og linar sársauka sorgarinnar. Kæri Andri, Anna Rut, Heimir Þór, Silja Dögg og fjöl- skyldur. Missir ykkar er mikill. Við vottum ykkur, Þóru móður Hellenar og systkinum hennar okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning okkar kæru vin- konu. Anna Björg og Halldór, Auður og Þorvaldur, Birna og Þorsteinn, Dalla og Agnar, Hildur og Torfi Rúnar, Margrét, Ragna og Sveinbjörn. Hellen S. Benónýsdóttir Eini afi minn, nú ertu farinn. Það er sárt og minningarnar hrannast upp. Hugurinn leitar gjarnan langt aftur. Kjalarferðir okkar rifjast upp þar sem við brunuðum á bláa Cheeroke eftir holóttum fjallveg- um. Þú varst alveg hæfilega kærulaus og frábær ferðafélagi. Þú gafst okkur afabörnunum allt- of mikla nammipeninga og svarið var ævinlega já, alveg sama hver bónin var. Milli þess sem við krakkarnir ældum í bílnum vegna bílveiki þá sungum við öll saman og fórum með vísur. Þú Kristinn Ingvarsson ✝ Kristinn Ingv-arsson fæddist á Litla Fljóti í Bisk- upstungum 25. nóv- ember 1922, en flutti þremur árum síðar að Hvítár- bakka. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Fossheimum 1. júlí 2011. Útför Kristins fór fram frá Skál- holtskirkju 12. júlí 2011. sagðir okkur svæsn- ar draugasögur og ljótar stríðssögur sem teljast víst ekki allar við barna hæfi en þær voru ógur- lega spennandi. Sögurnar léstu ekki gjalda sannleikans og í lokin hlóst þú sjálfur mest af öll- um. Alla mína barn- æsku kom fólkið á torfunni sam- an í morgunkaffi í gamla húsinu í Austurhlíð. Þar voru ótrúlegustu málefni rædd af ákefð. Þegar mamma og Jói voru farin að hafa hátt sast þú ævinlega slakur úti í horni og sýndir okkur krökkun- um athygli með glensi og mola- sykri. Þú hefur verið mér fyrirmynd í mörgu en það sem ég hef dáðst mest að er sú óbilandi þolinmæði og samstarfsvilji, ást og um- hyggja sem þú hefur sýnt henni Siggu-ömmu í gegnum tíðina. Kærleikurinn og samband ykkar er einstakt. Ég er þakklát fyrir tímann sem við fengum að eiga saman og að börnin mín hafi fengið að kynnast þér. Sigríður dóttir mín hefur sótt í nærveru þína og fékk því að koma með þegar við heim- sóttum þig í síðasta sinn. Magnús var þá orðinn svo stór að hann fór að takast á við þig og það fannst þér gaman. Þú hafðir einmitt flutt niður á Selfoss þegar ég lá á fæðingardeildinni eftir fæðingu hans og þótti mér vænt um það þegar þú „straukst“ til mín og dvaldir langtímum saman inni á herbergi hjá mér. Í síðustu heimsókn minni til þín kyssti ég þig og kvaddi og hvíslaði í eyrað þitt að okkur þætti vænt um þig, þú horfðir á mig þessum himinbláu augum sem óðum voru að tæmast og sál- in að fjara út, síðan blikaði tár á hvarmi og ég vissi að gamla sterka hjartað þitt var enn á sín- um stað. Hafðu þökk fyrir óeigingjarna samveru alla tíð, betri afa hefði ég ekki getað hugsað mér að eiga. Við töluðum oft um dauðann og þú þóttist nú ekki hræðast hann, þetta væri nú ekki stórmál og maður hyrfi bara eins og hver önnur skepna. Sennilega er það alveg rétt hjá þér en ég vona nú samt að þú hafir farið ríðandi á fallegum fák inn í eilífðina á milli sona þinna sæll og sáttur. Þín nafna Kristín Sigríður Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.