Morgunblaðið - 18.07.2011, Side 32
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 199. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Flókið ástarlíf Elin Nordgren
2. Djarfar myndir af Lindsey Lohan
3. Allardyce: Ég hætti við að fá Eið
4. J-Lo fékk nóg!
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Herdís Anna Jónsdóttir og Steef
van Oosterhout úr Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, verða með barna-
dagskrá á „Sail Húsavík“ í dag og
miðvikudag kl. 11 og spila meðal ann-
ars á skyrdós og tréskó.
Dúó Stemma með
barnaskemmtun
Þessa vikuna
ætla hljómsveit-
irnar Agent
Fresco, Lockerbie
og Of Monsters
and Men að fara
saman á rúntinn
og ferðast hring-
inn í kringum
landið og spila á
fimm tónleikum á fimm dögum.
Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld á
Prófastinum í Vestmannaeyjum kl. 21
og má búast við góðri stemningu.
Fimm tónleikar
á fimm dögum
Margir bíða spenntir eftir að fá að
sjá teiknimyndina Hetjur Valhallar,
Thor, en hún verður frumsýnd
í haust. Þetta er dýrasta
mynd Íslandssögunnar,
kostaði yfir milljarð króna
og hefur verið unnið að
henni í sjö ár. Hún
er að mestu
kostuð með er-
lendu fjármagni
og er nú þegar
búið að selja hana
víða um heim. »28
Dýrasta mynd Íslands
frumsýnd í haust
Á þriðjudag og miðvikudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og
víða léttskýjað, en stöku síðdegisskúrir. Þokubakkar úti við norður-
og austurströndina. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast suðvestanlands, en
sums staðar mun svalara við sjóinn.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða léttskýjað, en sums staðar þokuloft
norðaustantil. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast í uppsveitum SV-lands.
VEÐUR
KR er áfram með eins stigs
forystu á Val á toppi Pepsi-
deildar karla í fótbolta eftir
jafntefli liðanna, 1:1, í Vest-
urbænum. Mörkin komu á
æsispennandi lokakafla í
leiknum. Eyjamenn fóru illa
að ráði sínu en þeir nýttu sér
ekki jafntefli keppinautanna
og töpuðu óvænt í Grinda-
vík. Fylkir vann upp tveggja
marka forskot FH-inga þegar
liðin skildu jöfn.
»3,4,5
KR áfram á toppn-
um eftir jafntefli
Japan varð í gærkvöld
fyrsta Asíuþjóðin til að
hampa heimsmeistara-
titli í knattspyrnu en
Japanar lögðu Bandarík-
in í úrslitaleik HM kvenna
í Frankfurt. Homare Sawa
fyrirliði tók við heims-
styttunni en hún var
jafnframt útnefnd
besti leikmaður
mótsins og varð
markadrottn-
ing þess.
»7
Norðurírski kylfingurinn Darren
Clarke sigraði í gær á sínu fyrsta
risamóti í golfi þegar hann lauk leik á
pari á lokahring Opna meistaramóts-
ins í Bretlandi. Samtals lék hann
hringina þrjá á fimm höggum undir
pari og var tveimur höggum á undan
næstu mönnum. Þetta var í 20. sinn
sem hann keppir á mótinu og hafði
hann því beðið lengi eftir sigri. »8
Darren Clarke lék loka-
hringina af miklu öryggi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Andri Karl
andri@mbl.is
„Þetta er mikil virðingarstaða og
með þessu er verið að segja að mað-
ur hafi gert hlutina ágætlega,“ segir
Þorfinnur Gunnlaugsson, prófessor í
efnafræði við Trinity College í Dyfl-
inni, en hann var nýverið kjörinn fé-
lagi í Konunglegu írsku akademí-
unni. Um er að ræða æðsta heiður
sem fræðimanni hlotnast á Írlandi
en aðeins eru um tíu raunvísinda-
menn kjörnir á ári hverju. Þorfinnur
var eini efnafræðingurinn sem kjör-
inn var í ár og jafnframt sá yngsti.
Þorfinnur er Hafnfirðingur, fædd-
ur árið 1967. Hann lauk B.Sc.-prófi í
efnafræði frá Háskóla Íslands árið
1992 og doktorsprófi frá Queens
University í Belfast árið 1996 og
vann í framhaldinu að rannsóknum í
Durham-háskóla í Bretlandi þangað
til hann fékk lektorsstöðu í Trinity
árið 1998. Þorfinnur hefur síðan
hlotið hæstu prófessorstöðu (e.
personal chair) en hann byggði upp
eigin rannsóknarstofu í skólanum og
hafa hátt í þrjátíu doktorsnemar
klárað nám sitt hjá honum. Hann
játar því að hann komist varla hærra
sem fræðimaður á Írlandi.
Rannsóknir sem vekja athygli
Kjörið í Konunglegu írsku aka-
demíuna er ekki síst mikill heiður
fyrir þær sakir að ekki er sótt
um að verða meðlimur,
mælt er með viðkom-
andi og þarf til sam-
þykki annarra með-
lima. Þorfinnur og lið
hans í Trinity hefur
vakið mikla athygli
fyrir rannsóknir sínar
og hlotið marga stóra
styrki.
„Við fengum til
dæmis mjög stóran
styrk í fyrra og
verkið byrjar í ár. Þá notum við jónir
til að búa til stærri efni úr minni efn-
um. Í einföldu máli má segja að það
sé eins og að vera með fullt af legó-
kubbum sem settir eru saman, en
límið sem heldur þeim saman er
þessar jónir.“
Efnafræðin sem Þorfinnur og lið
hans vinnur að þykir afar þróuð.
Einnig vakti mikla athygli vinna
með örsmáar agnir (e. nano partic-
les) sem skreyttar voru með
ákveðnum efnum. „Og við höfum
notað þetta til dæmis til að koma
lyfjum inn í kjarna frumna, og til að
drepa frumur.“ Er það ekki síst at-
hyglisvert út frá rannsóknum á
krabbameini en með þessari tækni
er hægt að upplýsa hvað er að gerast
innan frumna.
Æðsti heiður sem veittur er
Þorfinnur Gunn-
laugsson kjörinn fé-
lagi í Konunglegu
írsku akademíunni
Kjörnir Fjórir fræðimenn innan vébanda Trinity College í Dyflinni voru kjörnir í Konunglegu írsku akademíuna.
Með Þorfinni (til vinstri) á myndinni eru prófessorarnir Shane O’Mara, Colm O’Morain og Jane Ohlmeyer.
Konunglega írska akademían
var stofnuð árið 1785. Ári síð-
ar fékk Grímur Thorkelín
leyndarskjalavörður styrk til að
ferðast til Englands, Írlands og
Skotlands og safna fornskjölum
og minjum til að varpa ljósi á
sögu Danmerkur. Styrkurinn var
til tveggja ára, en Grímur fékk
hann framlengdan og dvaldi á
Bretlandseyjum í fjögur og
hálft ár. Þar hlaut hann ýmsan
sóma, hitti meðal annars ensku
konungshjónin, var kjörinn heið-
ursfélagi Konunglegu írsku aka-
demíunnar vegna lærdómsafreka
og hlaut doktorsnafnbót í lögum
við háskólann í St. Andrews í Skot-
landi.
Grímur var raunar einnig gerður
að heiðursborgara í nokkrum borg-
um Skotlands en meðal þess sem
hann rannsakaði í ferð sinni var
hið fornenska handrit Bjólfskviðu.
Í hópi með Grími Thorkelín
KJÖRINN HEIÐURSFÉLAGI Á UPPHAFSÁRUNUM
Húsnæði
Konung-
legu írsku
akademí-
unnar.
Japan meistari og Sawa
fékk stærstu verðlaunin