Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. Á G Ú S T 2 0 1 1  Stofnað 1913  202. tölublað  99. árgangur  LEIÐA SAMAN HESTA SÍNA Í HÖRPU Í KVÖLD BRENNIBOLTI ER VINSÆLL HÉR Á LANDI BOÐIÐ TIL MIKILLAR DANSVEISLU ÍSLANDSMEISTARAMÓT 10 REYKJAVÍK DANCE FESTIVAL 32JAZZHÁTÍÐ 30 Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði í gær að ekki hefði enn borist undanþágubeiðni frá fjárfestinum og ljóðskáldinu Huang Nubo fyrir kaupum á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. Eins og fram hefur komið eru kaupin háð samþykki ís- lenskra stjórnvalda þar sem hann er hvorki ís- lenskur ríkisborgari né búsettur innan Evrópska efnahagssvæðisins. Jörðin Grímsstaðir er í heild sinni um 300 fer- kílómetrar sem eru í óskiptri sameign ríkisins að um fjórðungi og annarra eigenda að þremur fjórðu. Ef ríkið ætti jörðina í óskiptri sameign með Hu- Axelssonar hrl. og dósents við lagadeild Háskóla Íslands. Ögmundur taldi ekki tímabært að svara því hvort til greina kæmi að ríkið ætti jörðina áfram með fjárfestinum enda lægi ekki fyrir hvort jörðin yrði seld honum. „Hins vegar er ljóst að við mun- um ráðast í heildarendurskoðun laganna út frá heildarhagsmunum Íslendinga varðandi eignar- hald sem fært er út fyrir landsteinana.“ Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fer sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið með hlut ríkisins í Grímsstaðajörðinni. Samþykki innanrík- isráðherra kaup Huangs á jörðinni, þá þyrfti Hu- ang að eiga við sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, Jón Bjarnason, um fyrirhugaða uppbyggingu á henni. ang þýddi það samkvæmt almennum reglum að hann gæti ekki ráðist í neinar grundvallarbreyt- ingar á jörðinni, uppbyggingu hennar eða rekstri nema með samþykki meðeiganda að sögn Karls Ráðherra hefur lokaorðið  Eignarhlutur ríkisins í jörðinni á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra  Gæti þurft að bera ákvarðanir um uppbyggingu á Grímsstöðum undir hann Ljósmynd/Birkir Fanndal Fagurt er á fjöllum Grímsstaðir á Fjöllum. Þau eru mörg handtökin sem þarf til að viðhalda einu helsta kennileiti borgarinnar sem þarf að tak- ast á við vott og vindasamt haustveðrið á næstunni. Það fór ekki mikið fyrir lofthræðslu hjá þessum vösku verkamönnum sem héngu utan á Perlunni og tryggðu að hún væri vatns- og vindheld. Morgunblaðið/Golli Perlan búin undir haustið Áætlað er að heildarframleiðsluverðmæti eldisfisks verði um 4 milljarðar króna á árinu samanborið við 3,7 milljarða króna í fyrra. Þetta segir Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Landssambands fisk- eldisstöðva. „Hægt og bítandi er verið að auka framleiðslu- getu í fiskeldis- stöðvum landsins.“ Nú eru framleidd um 3000 tonn af eldisbleikju en Guðbergur telur að sú tala gæti farið í 6000 tonn án þess að byggja þyrfti upp nýjar stöðvar. Hann telur jafn- framt að raunhæft sé að auka heildar- framleiðsluna upp í tuttugu þúsund tonn á ári. Áætlað er að framleiða um 5.600 tonn í ár. Þá er laxeldi vaxandi atvinnugrein og þá einkum á sunnanverðum Vestfjörðum. Nýjar tegundir Íslensk matorka ehf. setti nýlega á mark- að hekluborra sem ræktaður er í Fellsmúla í Landsveit á Suðurlandi. Borrinn á upp- runa að rekja til Kanada og er alinn í 27-28 gráða heitu vatni í sex mánuði. Þá hefur fyr- irtækið Stolt Sea Farm, sem er hluti af norsku Stolt-Nielsen samsteypunni, hug á að rækta senegalflúru á Reykjanesi. Íslensk matorka ræktar einnig bleikju og stefnt er að um 300 tonna ræktun á ári. Stef- anía K. Karlsdóttir, einn eigenda fyrirtæk- isins, segir það vera að skoða fleiri tegundir enda sé mikilvægt að vera með ólíka stofna til að verjast sveiflum í framleiðslu og á mörkuðum. hallurmar@mbl.is »4 Mikil gróska í fiskeldi  Hekluborri frá Fells- múla kominn á markað Í sókn » Heildarfram- leiðsluverðmæti afurða í fiskeldi er áætlað um 4 milljarðar í ár. » Hægt að fjór- falda framleiðsl- una og nýjar teg- undir eru að koma á markað.  Kartöflu- bændur á Norð- urlandi sjá fram á slakt ár. Berg- vin Jóhannsson, formaður Lands- sambands kart- öflubænda, telur að uppskeran í Eyjafirði verði aðeins um helmingur af því sem verið hefur undanfarin ár. Sumir telji ekki borga sig að taka upp. Bergvin segir útlit fyrir betri upp- skeru í Hornafirði og á Suðurlandi en hvergi mjög góða. »6 Útlit fyrir slaka kartöfluuppskeru  Saksóknari í máli ákæruvalds- ins gegn tveimur karlmönnum tengdum vél- hjólagenginu Black Pistons hafði mikinn áhuga á að vita hvort annar þeirra verndaði yfirboðara sinn, foringja samtakanna, með breytt- um framburði frá skýrslutöku hjá lögreglu. Samkvæmt framburði fyrir dómi kom foringi samtakanna hvergi nálægt afbrotum þeim sem ákært er fyrir. »12 Foringi Black Pistons verndaður? Sakborningar leidd- ir fyrir dómara. Þingfundir hefj- ast að nýju á föstudag að loknu sumarleyfi þingmanna. Fer þá fram svonefnt septemberþing sem aðeins stendur til 15. september með alls níu starfsdögum. Haustþing hefst svo 1. október. Þingmenn hafa hins vegar ekki fengið mikið frí í ágúst þar sem flestar þing- nefndir hafa fundað en í gær og dag koma þær nær allar saman. Þar er lögð áhersla á að afgreiða þau þingmál sem út af stóðu eftir sumarþingið. »16 Stutt en snarpt septemberþing  Margeir Pét- ursson, aðaleig- andi EA fjárfest- ingafélags hf., sem áður hét MP banki, segist vera mjög ósátt- ur við þá ákvörð- un Fjármálaeft- irlitsins að sekta félagið fyrir brot gegn reglum um stórar áhættur. Segir hann að fjórmenningarnir, sem FME telur tengda, séu það ekki í skilningi laga og reglna um fjár- málafyrirtæki. »14 Mjög ósáttur við ákvörðun FME Margeir Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.