Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 27
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rf3 e6 5. Be2
Re7 6. 0-0 Bg6 7. Rh4 c5 8. c3 Rbc6 9. Be3
cxd4 10. cxd4 Rf5 11. Rxf5 Bxf5 12. Rc3
Be7 13. f4 Bg6 14. a3 0-0 15. b4 f6 16. Dd2
Dd7 17. g3 Bf5 18. h4 Bh3 19. Hfc1 fxe5
20. fxe5 Had8 21. Hd1 h6 22. g4 h5 23.
gxh5 Bxh4 24. Kh2 Bf5 25. Hg1 Hf7 26.
Rb5 Be7 27. Hg2 Be4 28. Hg3 Hdf8 29.
Hag1 Bh4 30. Rd6 Bxg3+ 31. Hxg3 Dd8
32. Bg5 Hf2+ 33. Kg1
Staðan kom upp á heimsmeistaramóti
20 ára og yngri í opnum flokki sem lauk
fyrir skömmu í Chennai á Indlandi. Ar-
menski stórmeistarinn Robert Hovhann-
isyan (2.556) hafði svart gegn þýska al-
þjóðlega meistaranum Niclas
Huschenbeth (2.521). 33. … Rxd4! 34.
Dxd4 Hxe2 35. Bf6 hvítur hefði orðið mát
eftir 35. Bxd8 He1+ 36. Kh2 Hh1#.
35. … Hxf6 36. exf6 Dxd6 37. f7+ Kxf7
38. Hxg7+ Ke8 39. Hg8+ Kd7 40. Hg7+
Kc6 41. Dc3+ Kb6 42. Dd4+ Ka6 43. b5+
Kxb5 44. Hxb7+ Kc6 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
8
6 9 5 4
9 1
2 5 7
1 8 4 5
9 7 6
8 4
1 4 8 6
7 5
7 1
1 8 4 3
2 4 7 5
6
8 1 4 7
6 4
6 3 8
1 5
5 7 3 2
4 7 9
6 3 1
1 2
4 3
2 1 4 5
5 8 4 1
8 6 4
7 9
1 7
1 7 8 4 2 3 9 5 6
2 6 5 1 7 9 8 3 4
4 3 9 5 8 6 2 7 1
6 8 1 3 5 2 7 4 9
9 5 7 6 4 8 3 1 2
3 2 4 9 1 7 5 6 8
8 1 2 7 3 4 6 9 5
5 9 3 2 6 1 4 8 7
7 4 6 8 9 5 1 2 3
4 8 2 7 6 5 9 1 3
1 5 9 2 4 3 7 8 6
6 3 7 1 8 9 4 5 2
8 9 6 5 1 2 3 7 4
3 2 5 8 7 4 1 6 9
7 4 1 3 9 6 8 2 5
9 1 4 6 2 8 5 3 7
5 6 8 4 3 7 2 9 1
2 7 3 9 5 1 6 4 8
2 8 1 5 4 7 6 9 3
5 9 6 1 8 3 7 2 4
3 7 4 6 9 2 5 1 8
6 3 9 8 2 4 1 7 5
1 4 7 9 3 5 8 6 2
8 2 5 7 1 6 4 3 9
4 6 2 3 7 8 9 5 1
9 5 8 2 6 1 3 4 7
7 1 3 4 5 9 2 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 30. ágúst, 242. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls
frétti, að Abner væri dauður í Hebron,
féllust honum hendur, og allur Ísrael
varð óttasleginn. (II Sam. 4, 1.-2.)
Á dögunum sprakk vatnsleiðsla ígötunni við hús Víkverja (eða
það hlýtur að vera) með þeim afleið-
ingum að vatn vellur nú undan kant-
steini sem leið liggur í næsta niður-
fall.
Í fyrstu amaðist Víkverji við þessu
en eftir að hafa setið úti í logninu og
þögninni síðastliðið laugardagskvöld
hefur honum snúist hugur. Hljóðið í
vatnsrennslinu er afar notalegt og
minnti Víkverja á lækjarniðinn í
sveitinni í gamla daga. Það vantaði
bara jarmið í stöku sauðkind.
Fékkst Víkverji ekki til að fara inn
fyrr en komið var vel fram yfir mið-
nætti. Ekki þarf að taka fram að
hann sofnaði eins og kornabarn í
framhaldinu.
x x x
Nágranni Víkverja tilkynnti umþennan nýja læk um leið og
hann varð hans var og í kjölfarið
komu tveir menn og horfðu drykk-
langa stund á herlegheitin. Engin
verkfæri voru tekin úr slíðrum og
ekkert hefur spurst til mannanna
síðan. Víkverji grætur það ekki, allt-
ént meðan hann finnur ekki fyrir
lekanum innandyra.
x x x
Fáir taka líklega bilunum afmeira æðruleysi en við Íslend-
ingar. Í það minnsta gleymir Vík-
verji því seint þegar hann bjó á stúd-
entagörðum og svalahurð varð fyrir
hnjaski með þeim afleiðingum að
ekki var lengur hægt að opna svala-
dyrnar. Haft var samband við iðn-
aðarmann sem byrjaði á því að mæta
á staðinn og horfa drykklanga stund
á hurðina. Síðan fór hann. Næsta
dag kom hann aftur með verkfærin
og skildi þau eftir. Á þriðja degi
gerði hann við hurðina.
Yfirvegun er dyggð enda óþarfi að
ana að nokkrum hlut.
x x x
Að lokum þetta: Víkverji þakkaraf heilum hug öllum sem sýndu
honum hluttekningu í gær vegna
8:2-ósigurs Arsenal gegn Manchest-
er United á sunnudaginn. Á erfiðum
stundum í þessu lífi er ómetanlegt
að eiga góða að. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hrakninga, 4
ávöxtur, 7 úrskurður, 8 for-
mæður, 9 mergð, 11 leðju,
13 at, 14 málminum, 15 haf,
17 södd, 20 lamdi, 22 ber, 23
snúa upp á, 24 þurrkuð út,
25 hafa fyrir sið.
Lóðrétt | 1 víntegund, 2 ber,
3 harmur, 4 líf, 5 lestr-
armerki, 6 hinar, 10 gesta-
gangur, 12 und, 13 nokkur,
15 gefa gaum að, 16 árnum,
18 líkamshlutinn, 19 fugl, 20
lögun, 21 dá.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 rekkjuvoð, 8 eljan, 9 dáður, 10 nýr, 11 dorma, 13 aum-
ur, 15 stáls, 18 slæða, 21 vol, 22 fræða, 23 ásinn, 24 villingur.
Lóðrétt 2 erjur, 3 kenna, 4 undra, 5 orðum, 6 held, 7 þrír, 12
mál, 14 uml, 15 saft, 16 áræði, 17 svall, 18 sláin, 19 æðinu, 20
asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hvað meinar tölvan?
Norður
♠1093
♥K106
♦G96
♣D1085
Vestur Austur
♠ÁD842 ♠K765
♥DG85 ♥97
♦K872 ♦10543
♣– ♣763
Suður
♠G
♥Á432
♦ÁD
♣ÁKG942
Suður spilar 5♣.
Fastagestur í Sumarbrids fór sáttur
að sofa mánudagskvöldið fyrir viku,
viss í þeirri trú að engin leið væri að
vinna 5♣. Við athugun á tölvuútskrift-
inni daginn eftir kom annað í ljós.
Reikniforritið staðhæfði að suður ætti
kost á 11 slögum. Hvernig þá?
Besta byrjun varnarinnar er ♠Á og
♠D í öðrum slag. Vinningsleiðin bygg-
ist á því að þjarma að vestri með fjór-
um trompum í upphafi. Vestur má
missa einn tígul og tvo spaða, en fjórða
trompið setur hann í vanda. Ef hann
hendir rauðu spili er þriðji spaðinn
trompaður og vestur svo endaspilaður í
þeim lit sem hann henti frá.
En hvað gerist með smáum spaða út
upp á kóng og tígli um hæl? Jú, sagn-
hafi svínar, hendir hjarta niður í ♦G
við tækifæri og þvingar svo vestur í há-
litunum. Tölvan klikkar ekki.
30. ágúst 1720
Jón Vídalín Skálholtsbiskup
lést á leið norður Kaldadal.
Staðurinn var nefndur Bisk-
upsbrekka. Þar hefur verið
reistur kross til minningar um
þennan atburð. Jón, sem varð
54 ára, þótti mikill mælsku-
snillingur. Hann er þekktastur
fyrir húslestrarbók sína, Ví-
dalínspostillu, sem kom fyrst
út 1718.
30. ágúst 1874
Efnt var aftur til þjóðhátíðar-
halds í Reykjavík í blíðskapar-
veðri „með því að ýmsum
bæjarbúum hafði þótt þjóðhá-
tíðarhaldið á Öskjuhlíð í byrj-
un mánaðarins heppnast mið-
ur en skyldi, m.a. vegna mikils
hvassviðris,“ eins og sagði í
Árbókum Reykjavíkur.
30. ágúst 1935
Íslenska ríkið eignaðist Geysi í
Haukadal og hverasvæðið um-
hverfis hann, en svæðið hafði
verið í eigu útlendinga í tíu ár.
Sigurður Jónasson gaf fé til
kaupanna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Við ætlum að grilla sex læri og bjóða til veislu
klukkan sex í dag, við verðum hér gömlu hjónin,
dæturnar fjórar, tengdasynirnir fjórir og barna-
börnin 12,“ segir Atli Viðar Jóhannsson.
„Nú fer maður að byrja að spila brids í septem-
ber og maður spilar allan veturinn fram í maí. Ég
þarf alltaf eitthvað að vera að gera, við fórum
hjónin í langa reisu um landið í sumar og seldum
öngla og girni fyrir handfærin í stangveiðina,“
segir Atli. „Ég er bara mjög hress, það þýðir ekk-
ert annað enda hætti ég að reykja fyrir 12 árum
og það bjargaði miklu. Var þá búinn að reykja í 40
ár,“ segir Atli og hann segist vera rosalega stífur við sjálfan sig.
„Fyrst byrjaði nú afi minn að kaupa Morgunblaðið, þá var ég smápolli
og svo móðir mín. Ég tók svo við af þeim, það eina sem ég vildi breyta
væri að fá blaðið aðeins fyrr á morgnana,“ segir Atli.
Atli starfaði við sjómennsku á síðutogurum á Akureyri en flutti svo
á Eskifjörð þar sem hann rak fiskvinnslufyrirtæki og löndunarfyrir-
tæki. Hann tók virkan þátt í félagsstörfum, þar á meðal í Lions-
klúbbnum um árabil. Segir hann það vera ákveðinn lífsstíl að lesa
Morgunblaðið. mep@mbl.is
Atli Viðar Jóhannsson 70 ára í dag
„Lífsstíll að lesa Moggann“
Hlutavelta
Andrea Sól Viktorsdóttir,
Arnar Högni Arnarsson,
Kristjana Laufey Adolfs-
dóttir, Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir og Diljá Ýr
Halldórsdóttir stóðu fyrir
flóamarkaði á Hvolsvelli.
Þau gengu í hús og ósk-
uðu eftir munum. Ágóð-
ann, krónur 8.300, færðu
þau Rauða krossinum.
Flóðogfjara
30. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.52 0,0 6.56 4,2 13.07 -0,0 19.12 4,5 6.04 20.54
Ísafjörður 3.00 -0,0 8.56 2,3 15.13 0,0 21.06 2,6 6.01 21.07
Siglufjörður 5.19 0,0 11.34 1,4 17.22 0,1 23.43 1,5 5.44 20.50
Djúpivogur 4.07 2,3 10.18 0,1 16.29 2,4 22.39 0,2 5.32 20.25
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Oft er það svo að þegar maður gerir
einhverjum greiða þá skilar hann sér aftur
þegar maður þarf sjálfur á aðstoð að halda.
Gættu þín vel á manneskju sem þú hefur ný-
verið kynnst.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Náinn vinur þinn vekur undrun þína
með því að hrósa þér þegar þú síst áttir von
á. Heilsa, peningar og góðir vinir stuðla að
hamingju.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú heldur áfram að mennta þig.
Leiddu vandamálin ekki hjá þér heldur líttu í
eigin barm og skoðaðu málin.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Mannlegu samskiptin sitja í fyrirrúmi
en þú þarft að gæta þess að þau komi ekki
niður á starfi þínu. Taktu frá tíma fyrir
sjálfa/n þig í dag.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þið eigið að gefa ykkur tíma til að njóta
félagsskapar vina og vandamanna því fátt er
dýrmætara en góðar stundir í þeim ranni.
Kauptu eitthvað fallegt fyrir heimilið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú er rétti tíminn til þess að fitja upp
á einhverju nýju, hvort heldur er í einka-
málum eða atvinnu. Þú færð góða viðskipta-
hugmynd.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Einhver sem þú hefur verið lítið með
undanfarið er meira en til í að einoka þig
seinni partinn. Þú hefur áhyggjur af unglingn-
um á heimilinu, það reynist svo óþarfi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki er ósennilegt að þú sýnir
óvænta einlægni og hreinskilni í dag. Sam-
band systkina gengur betur þessar vikurnar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eins og einhver aft-
urkippur hafi komið í starfsgleði þína. Vertu á
varðbergi gagnvart gylliboðum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það getur verið erfitt að standa á
sínu þegar allir virðast annarrar skoðunar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Taktu það sem þú ætlar að fram-
kvæma í áföngum. Að mörgu er að hyggja og
ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Tilfinningasemi setur mark sitt á nán-
asta samband þitt í dag. Notaðu daginn til að
slaka á og hvíla þig ef þú hefur tækifæri til
þess.
Stjörnuspá
Jóhann Ólafs-
son múrari, Víði-
hlíð í Grindavík,
er 80 ára í dag,
30. ágúst. Af því
tilefni tekur
hann á móti gest-
um laugardaginn
3. september kl.
17 í Verkalýðshúsinu í Grindavík,
Víkurbraut 46.
80 ára