Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Óvenjumikið af lunda hefur haldið til við Vestmannaeyjar undanfarna daga og vikur og segjast kunnugir ekki hafa séð svona mikið af fugli á þessum árstíma í mörg ár. Þá hafi sést til fugla bera síli í holur til að fæða unga. Dr. Erpur Snær Hansen segir að varpið í Eyjum hafi verið mun seinna á ferðinni og sjálfsagt fái einhverjir ungar enn að éta. Þetta breyti þó ekki heildarniðurstöðunni: varpárangur verði enginn, enginn ungi komist á legg. Sigurmundur Einarsson, sem rek- ur ferðaþjónustuna Viking Tours, segir að svo virðist sem margir er- lendir ferðamenn hafi fengið þær upplýsingar að lundi sé nær horfinn úr Eyjum. Svo sé alls ekki. „Lundinn er úti um allt. Ég hef ekki séð svona mikið af lunda í Heimakletti í mörg ár,“ segir hann en Sigurmundur hef- ur siglt með ferðamenn við Eyjar undanfarin ellefu ár Einnig sé mikið af lunda í Smáeyjum og í Stakkabót, svo nokkur dæmi séu nefnd. Yfirleitt er lundinn að miklu leyti farinn frá Vestmannaeyjum í lok ágúst. Sigurmundur bendir á að vor- ið hafi verið kalt og lundinn hafi verpt seinna en áður. Þá hafi mælingar hans á sjávarhita sýnt að sjórinn sé mun kald- ari en í fyrra. Hiti við yf- irborð hafi verið 11,2- 11,4°C á sunnudag en á sama tíma undan- farin ár hafi sjávar- hiti í lok ágúst yfir- leitt verið 13,2-13,8°C. Ýmislegt hafi því breyst og vill Sigurmundur að kannað verði hversu mikið sé af ung- um í lundaholum núna því ljóst sé að lundinn sé enn að bera síli í unga. Aumingi sem kom í bæinn Erpur Snær Hansen, líffræðingur og sviðsstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir vissulega rétt að mikið sé af lunda við Vestmannaeyjar. Hann hafi sömuleiðis fengið fregnir af því að lundinn hafi verið óvenju lengi í Látrabjargi, á Breiðafirði og við Dyrhólaey. Því miður breyti þetta engu um varpárangur í Vestmanna- eyjum og hann nefnir sem dæmi að aðeins hafi ein pysja komið niður í Vestmannaeyjabæ, eftir því sem hann viti best. „Og hún var 95 grömm. Þær þurfa að vera yfir 260 grömm til að eiga von um að lifa af og góðar pysjur eru um 370 grömm. Þetta var bara aum- ingi sem hefði veslast upp.“ Lundafjöld í Eyjum en varpið í rugli  Ekki séð svo mikið af lunda í mörg ár  Ferðamenn halda að lundinn sé horfinn Í flestum tilvikum hlaupi börnin í burtu. Foreldrum og forráðamönnum barna í Lækjarskóla var í gær send viðvörun vegna málsins. Þá hafa bæj- aryfirvöld í Hafnarfirði vakið athygli á málinu. „Allt starfsfólk hefur verið beðið um að hafa augun opin og foreldrum nemenda hefur verið gert viðvart,“ segir Guðlaugur Baldursson, aðstoð- arskólastjóri Lækjarskóla. Eftir að skólinn sendi viðvörunina í gær hafði foreldri samband við hann og til- kynnti um svipað tilfelli sem varð síð- degis á laugardaginn. Þá hafði maður sem passaði við umrædda lýsingu reynt að tæla unga stúlku til sín. Tvö tilvik á Suðurnesjum í gær Lögreglunni á Suðurnesjum bár- ust í gær tvær tilkynningar um menn sem reyndu að lokka börn til sín. Í öðru tilfellinu náðist greinargóð lýs- ing á manninum. Hann var þéttvax- inn um fertugt á hvítum jeppa. Hann reyndi að lokka til sín 10 ára gamlan dreng með því að bjóða honum að skoða legokubba. Málin eru í rannsókn en ekki er vit- að hvort þau tengjast. Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nú á varðbergi gagnvart manni sem reynt hefur að lokka grunnskólanem- endur í Hafnarfirði upp í bílinn til sín. Þá voru tvö slík tilvik tilkynnt í Kefla- vík í gær. Tilkynnt hefur verið um þrjú tilvik við grunnskóla í Hafnar- firði síðan í síðustu viku, auk þess sem eitt tilvik til viðbótar átti sér stað síðastliðið laugardagskvöld. Öll til- vikin eru keimlík en manninum er lýst sem feitlögnum og frekar ungum. Hann ekur um á stórum bláum bíl, nokkuð gömlum og sennilega amer- ískum. Frekari lýsing er ekki fyrir hendi en lögreglumenn sem eru á ferðinni í Hafnarfirði hafa svipast um eftir manninum við grunnskóla bæjarins. Þeir munu hafa afskipti af grun- samlegum mönnum telji þeir þörf á. Lýgur til um alvarlegt slys Maðurinn í Hafnarfirði hefur reynt að lokka til sín stúlkur á aldrinum 10 til 12 ára. Kynferðisbrotadeild lög- reglunnar hefur verið tilkynnt um ferðir mannsins við Víðistaðaskóla, Setbergsskóla og nú síðast um hádegisbilið í gær við Lækjarskóla. Málin eru ótengd að því leyti að fórnarlömbin þekkjast ekki. Stúlk- urnar sem um ræðir segja allar sömu söguna af því hvernig maðurinn ber sig að. Ein stúlkan segir þó að tveir menn hafi verið í bílnum. Aðferð mannsins er einkar ógeð- felld en hann hefur reynt að lokka til sín ungar stúlkur með því að segja við þær að móðir þeirra hafi slasast al- varlega í bílslysi og liggi nú á spítala. Þær þurfi því að koma með honum og hann muni aka þeim á spítalann. Því ber að halda til haga að manninum hefur ekki orðið ágengt. Stelpurnar komust allar undan á hlaupum. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögregl- una líta málið alvarlegum augum. Lít- ið sé þó hægt að gera nema svipast um eftir manninum og brýna fyrir börnum að fara varlega. Björgvin segir mál sem þetta oft koma upp á haustin þegar skólarnir fari aftur af stað. Hins vegar sé sjaldgjæft að níð- ingar nái til barna með þessum hætti. Reynir að lokka til sín ungar skólastúlkur  Segir börnunum að móðir þeirra hafi slasast í bílslysi Hafnarfjörður Tilkynnt hefur verið um fjögur tilvik á tæpri viku þar sem maður hefur reynt að tæla ungar stúlkur. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Erpur og samstarfsmenn hans fylgdust með á annað hundrað lundaholum í Vestmannaeyjum í sumar. Í öllum holunum voru eggin afrækt, það síðasta fyrir um tíu dögum. Varpárangur hefur því enginn verið. Erpur bendir á að varpið í ár hafi verið seinna á ferð- inni en nokkru sinni. Lund- ar hafi orpið í byrjun júlí en í venjulegu árferði ættu ungar að vera að skríða úr eggjum á þessum tíma. Lundar liggja á í um 32 daga og ungarnir hefðu því skriðið úr eggjum í byrjun ágúst. Í meðalári eru ungar lund- ans í hreiðri í um 39 daga en þegar verr árar getur vaxtartíminn verið lengri eða upp undir 49 dag- ar. Í arfaslæmu árferði, eins og nú, eru einnig dæmi um það erlendis að ungar hafi hírst í hreiðrum í um 80 daga. Erpur segir að það séu nánast engar líkur á að ungar kom- ist á legg þótt þeir séu fóðraðir svo lengi. Réttara sé að tala um hungurvöxt og ekki víst að ung- arnir fái næga fæðu til að halda á sér hita, hvað þá til að hún nægi til að búa þá undir farflug og vet- urinn. „Það getur vel verið að í mörg þúsund lundaholum fái ein- hverjar lundapysjur eitthvað að éta. En þær skipta engu í stóra samhenginu, ástandið er svo svæsið.“ Geta hírst lengi í hreiðri URPU ÞEGAR UNGARNIR HEFÐU ÁTT AÐ VERA AÐ KLEKJAST ÚT Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. ALLT FYRIR HEIMILIÐ fyrst og fremst ódýrt Baldur Arnarson baldur@mbl.is Samstaða var um það á flokksráðs- fundi VG um helgina að fordæma aðgerðir NATO í Líbíu. Þetta segir Auður Lilja Erlingsdóttir, fram- kvæmdastýra VG, og bendir á að utanríkis- stefna, þ.e. frið- arstefna, sé ein af grunnstoðun- um í stefnu VG. Flokksmenn álíti það brýnt að Ís- land standi utan hernaðarbanda- laga. Hana rekur ekki minni til að nokkur fundar- manna hafi greitt atkvæði gegn ályktuninni. Auður Lilja ítrekar að friðar- stefnan sé grasrótinni mjög ofar- lega í huga. Hluti félagsmanna studdi ályktun öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna en um leið og NATO hafi tekið yfir aðgerðirnar hafi þær farið út fyrir þann ramma sem var samþykktur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Samstaða um að HS fari aftur í almenningseigu Spurð um breytingartillögu á ályktuninni um Líbíu er snýr að rannsókn á þeirri ákvörðun ís- lensku ríkisstjórnarinnar að styðja ályktun Sameinuðu þjóðanna, svar- ar Auður Lilja því til að hún hafi verið lögð fram að kvöldi síðasta föstudags. Hana reki með líku lagi ekki minni til þess að nokkur við- staddra hafi verið henni mótfall- inn. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru þau Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason við- stödd umræðurnar um að fordæma bæri árásirnar. Auður Lilja segir að samstaða hafi verið um það á flokksráðsfundi VG að Hitaveita Suðurnesja ætti að fara aftur í almenningseigu, enda sé það í fullu samræmi við stefnu flokksins og ríkisstjórnar- innar um þjóðareign á auðlindum. VG samstiga um Líbíurannsókn Auður Lilja Erlingsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.