Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Þ
að var lið úr Hafnarfirði
að nafni Hot Shot sem
bar sigur úr býtum á Ís-
landsmeistaramótinu í
brennó í ár. Í öðru sæti
var liðið Fimm fræknu og í því
þriðja lenti Úrvalsliðið sem var sett
saman af þeim bestu úr nokkrum
liðum. Ein úr Úrvalsliðinu er Heið-
rún Ólafsdóttir en hún er líka ein
þeirra sem eiga heiðurinn af vin-
sældum brenniboltans hér á landi.
„Við byrjuðum að spila í Hafn-
arfirði snemma vors 2009 og það var
svo gaman að strax í sömu vikunni
stofnuðum við brenniboltafélag í
Reykjavík líka. Það eru æfingar
einu sinni í viku á hvorum stað yfir
sumartímann og við höfum margar
verið að æfa á báðum stöðum. Í vet-
ur sláum við svo saman og æfum
innanhús tvisvar í viku,“ segir Heið-
rún. Brenniboltasagan nær þó
lengra aftur en til vorsins 2009.
„Þetta byrjaði allt í Danmörku en
við bjuggum þar nokkrar úr þessum
hópi. Karlarnir voru alltaf að fara út
í fótbolta, svo við konurnar ákváðum
að fara líka út að leika og hittumst
nokkrum sinnum til að spila brennó.
Þetta var svo gaman að við gátum
ekki hætt og héldum áfram þegar
heim til Íslands var komið.“
Keppt til sigurs
Brenniboltinn hefur borist víða,
í Reykjavík eru tvö félög, eitt í
Hafnarfirði og svo á Hólmavík,
Höfn, Selfossi, Keflavík, Borgarnesi,
Akureyri, Akranesi og Mosfellsbæ.
„Þetta hefur dreift sér víða, enda
brennó skemmtileg hreyfing. Það
Barist til sigurs
í brennibolta
Íslandsmeistaramótið í brennibolta fór fram á Klambratúni síðastliðinn laugar-
dag. Þar mættu tíu brenniboltalið til leiks, með fimm keppendur hvert og spilaður
var brennibolti í fjóra klukkutíma. Heiðrún Ólafsdóttir er ein þeirra sem eiga
heiðurinn af vinsældum brenniboltans hér á landi nú um stundir. Hún segir
brennó vera mikla og skemmtilega hreyfingu sem henti öllum.
Ljósmynd/Kristín Þóra
Þriðja sæti Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Heiðrún Ólafsdóttir, Helga Björk
Hauksdóttir, Sóley Eva Gústafsdóttir og Lilja Gréta Norðdahl.
Sigurliðið Frá vinstri; Hildur Guðný, Þóra, Auður, Rósa og Bryndís. Þær
skipa liðið Hot Shot sem er Íslandsmeistari í Brennibolta 2011.
Við erum svo heppin á Íslandi að það
eru sundlaugar nánast á hverju götu-
horni. Sund er líkamsrækt sem er
auðvelt fyrir okkur að stunda allan
ársins hring, en það er sérstaklega
hentugt að skella sér í vatnið þegar
kólnar í veðri og erfitt getur reynst
að koma sér út í göngutúr.
Þótt mörg okkar hafi verið skyldug
til að fara í skólasund í grunnskóla er
ekki sjálfgefið að við kunnum að
synda. Fyrir þá sem vilja rifja upp
sundtökin ætti vefsíðan Enjoy-
swimming.com að vera hentug. Þar
er farið í hverja aðferð, bringusund,
baksund, flugsund og skriðsund, og
útskýrt hvernig á að taka hvert sund-
tak. Sundaðferðinni er lýst, svo er
kennslumyndband og vísað í greinar
sem lýsa sundtökunum nánar.
Fleira tengt sundi má lesa á síð-
unni, sem er fræðandi, snyrtilega
uppsett og einföld í notkun.
Vefsíðan www.enjoy-swimming.com
Skapti Hallgrímsson
Synt Það er góð líkamsrækt að synda en sundtökin þarf þá að kunna.
Rifjið upp sundtökin
Yfir sumartímann er auðvelt að
stunda fjölbreytta líkamsrækt utan-
húss. Þegar haustið nálgast fara
margir að huga að því að halda í inn-
anhússlíkamsrækt. Líkamsræktar-
stöðvarnar byrja þá með nýja stunda-
skrá og fjölbreytt námskeið sem
ættu að henta breiðum hópi. Verið
samt ekki fljótfær, hugsið ykkur vel
um áður en þið farið að fjárfesta í
hreyfingunni. Ertu í alvörunni mann-
gerðin sem fer í crossfit eða súmba-
dans? Vissulega er gott að ögra sjálf-
um sér og prófa eitthvað nýtt en
vertu viss um að það sé eitthvað sem
hentar þér og þinni líkamsgerð.
Endilega …
… hugið að
líkamsræktinni
Morgunblaðið/Ernir
Ekki fyrir alla Staðið á höndum.
Ef offita heldur áfram að aukast jafn-
hratt og hún hefur gert hingað til í
Bandaríkjunum gæti helmingur allra
Bandaríkjamanna verið haldinn offitu
eftir 20 ár. Þetta myndi þýða að 65
milljónir manna myndu bætast við
þann fjölda sem nú þegar er haldinn
offitu í landinu. Þessar niðurstöður er
að finna í rannsókn sem birt var í
tímaritinu Lancet en næstu fjögur
tölublöð þess eru tileiknuð umræðu
um offitu. Við rannsóknina voru not-
aðar upplýsingar um hæð og þyngd
Breta og Bandaríkjamanna síðastliðin
20 ár og þær notaðar til að áætla lík-
amsþyngdarstuðul fram í tímann. Ef
svo fer fram sem horfir hefur það al-
varlegar afleiðingar á heilsu Banda-
ríkjamanna. Sykursýki myndi aukast
svo og hjartasjúkdómar en búast
mætti við meira en átta milljónum
nýrra tilfella af sykursýki. Hár blóð-
þrýstingur yrði líka algengari og þótt
hann sé ekki lífshættulegur hefur
hann sín áhrif á heilsu fólks. Þetta
myndi því hafa mjög slæm áhrif á
heilsu landsmanna auk þess að bæta
við gríðarlegum kostnaði í heilbrigð-
iskerfinu. Baráttan er þó síður en svo
töpuð og enn nokkur tími til að berjast
við þann óvin nútímamannsins sem
offitan er. Ef Bandaríkjamenn fylgdust
dálítið betur með því hvað þeir borð-
uðu og hreyfðu sig nóg til þess að lík-
amsþyngdarstuðullinn drægist saman
um aðeins eitt prósent myndi það
hafa sín áhrif. Slíkt gæti komið í veg
fyrir allt að 2,4 milljón ný tilvik af syk-
ursýki og allt upp í 127.000 ný tilvik af
krabbameini. Vissulega veit enginn
hvaða stefnu offitufaraldurinn mun
taka í framtíðinni en það mun taka
einhvern tíma fyrir Bandaríkjamenn
að snúa við blaðinu. Þá er jú gott að
muna að góðir hlutir gerast hægt.
Frétt um niðurstöður rannsóknarinnar
var birt á vefsíðu Los Angeles Times
og er vitnað til hennar í þessari grein.
Offita
Nauðsynlegt að Bandaríkjamenn vendi sínu
kvæði og hugi betur að holdarfari sínu og heilsu
REUTERS
Offita Bandaríkjamenn munu þurfa stórar stærðir með þessu áframhaldi.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Könnun á næringarinnihaldi á bíó-
poppkorni í Bandaríkjunum leiddi í
ljós að það inniheldur hættulega
mikið magn af fitu, salti og kalórí-
um, jafnvel í minnstu skömmt-
unum.
Skoðað var poppkorn í öllum
stærðum frá þremur bíóhúsakeðj-
um. Stór poki af poppkorni hjá
Regal-bíóhúsunum inniheldur tutt-
ugu bolla af poppkorni, 1200 kaló-
ríur, 980 milligrömm af natríum og
60 grömm af mettaðri fitu. Með
því að setja aðeins teskeið af
smjöri útí bætast 130 kalóríur við.
Þá er hægt að fá fría áfyllingu af
poppi hjá þessu bíóhúsi.
Millistærðin var með sama inni-
haldi og sú stóra en lítill popp sem
taldi ellefu bolla inniheldur 670 ka-
lóríur, 550 milligrömm af natríum
og 24 grömm af mettaðri fitu.
Þessar niðurstöður gætu komið
þeim á óvart sem velja popp fram
yfir sælgæti í bíó því þeir telja það
nokkuð heilsusamlegt snakk. Stað-
reyndin er að venjulegt loft-poppað
poppkorn hefur lítið kalóríuinnihald
og er laust við mettaða fitu. Bíó-
popp er hinsvegar poppað í olíu,
oft kókosolíu sem er 90% mettuð
fita. Með því að bæta salti við
verður það sem hefði getað orðið
hollt snakk ógn við heilsuna. Einn
stór skammtur af bíópoppi fyllir
þrjá fjórðu af daglegri kalóríu-
inntöku.
Heilsusamlegasta dæmið um bíó-
popp var lítill skammtur hjá AMC.
Hann inniheldur sex bolla og 370
kalóríur. Þriðja bíóhúsakeðjan sem
var skoðuð heitir Cinemark og kom
hún aðeins betur út en hinar tvær
því þar er poppið ekki poppað upp
úr hertri fitu. Þar inniheldur stór
popp sautján bolla, með 910 kalórí-
um, 4 g af mettaðri fitu og 1500
milligrömm af natríum sem er ná-
lægt því að vera dagskammtur fyr-
ir fullorðna manneskju.
Ein leið til að fá heilsusamlegra
poppkorn í bíói er að biðja þá um
að poppa skammt án salts. Annars
er besta leiðin að deila einum
stórum skammti með tíu vinum
eða bara borða ekkert á meðan
horft er á myndina. Sagt er frá
þessu á vefsíðu The New York Tim-
es.
Heilsa
Reuters
Poppkorn Mokað í poka í bíóhúsi.
Dökku hliðar poppkornsins