Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 29
Sigursæl Katy Perry landaði tveimur verðlaunum á verðlaunahátíðinni. Reuters MTV-tónlistarmyndbandaverðlaunahátíðin var haldin með pomp og prakt vestanhafs í fyrradag. Verðlaunin sjálf féllu allt að því í skugga uppátækjasamrar popptónlistarelít- unnar, sem mætti til leiks í sínu fínasta og skrautlegasta pússi. Af verðlaunum er það þó að segja að þau helstu, fyrir myndband ársins, féllu söng- konunni Katy Perry í skaut fyrir mynd- bandið við lagið „Firework“ en hún var einnig verðlaunuð fyrir samstarf sitt við Kanye West fyrir myndbandið við lagið „E.T.“ Lady Gaga, sem sló í gegn á hátíðinni í gervi ofurgæjans Joes Calderones, vann til tvennra verðlauna fyrir myndbandið við lagið „Born This Way“, en það þótti besta myndband kvenkyns listamanns og besta myndbandið með boðskap. Myndbandið við lag bresku dívunnar Adele, „Rolling in the Deep“, var verð- launað fyrir bestu listrænu stjórn, klipp- ingu og myndatöku. Poppguttinn Justin Bieber átti hins vegar besta myndband karlkyns lista- manns, við lagið „U Smile“, Nicki Minaj þótti eiga besta hip-hop-myndbandið við lagið „Super Bass“, besta popmyndbandið átti Britney Spears við lagið „Till the World Ends“, Foo Fighters áttu besta rokkmyndbandið við lagið „Walk“ og besta dansmyndbandið þótti myndband Beyonce við lagið „Run the World (Girls)“. Konur sópuðu á MTV MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011 Gunnar Reynir Sveinssonvar einn helsti tónsnill-ingur Íslendinga á seinnihluta 20. aldar. Verk hans spönnuðu sannast sagna allt litróf tónlistarinnar um hans daga. Tón- leikar Jazzhátíðar Reykjavíkur í Hörpu, honum til heiðurs, báru yf- irskriftina „Maður hefur nú“, sem er nafn á einu þekktasta sönglagi hans, sem flutt hefur verið af ekki minni snillingi en Niels-Henning Ørsted Pedersen. Lagið heyrðist fyrst í kvikmyndinni „Bréfi til Söndru“ sungið af Bubba Morthens, en á Hörputónleikunum söng Ás- gerður Júníusdóttir það með Sveit- inni, er sá um allan hljóðfæraleik á tónleikunum: Kjartani Valdimars- syni píanista, Hauki Gröndal saxó- fónleikara, Þórði Högnasyni bassa- leikara og Pétri Grétarssyni slagverksleikara. Eina bassasóló Þórðar á tónleikunum var í þessu lagi og sérlega flott kompónerað. Ásgerður söng einnig „Nóttin er til þess að gráta í“ úr leikriti Sigurðar Pálssonar „Undir suðvesturhimni“, en eignkona Gunnars, Ásta Thor- stensen, söng það í rómaðri sjón- varpsútsendingu á sinni tíð og Gunnar sló þá víbrafóninn. Þriðja lagið sem Ásgerður söng var „Fyrir utan ystu skóga“ við ljóð Kiljans, en hann var það skáld er Gunnar Reynir tónsetti mest og best. Þarna tókst söngkonunni vel upp í sveifl- unni og kongótrommur Péturs Grétarssonar voru seiðandi. Sveitin lék þrjá kafla úr minningarkonsert um Gunnar Ormslev, er skrifaður var fyrir Sigurð Flosason, og fékk tónlistin nýjan svip með nýjum mönnum, ekki síst vegna rafeffekta í anda „meistarans frá Utrecht“ (GRS). Enn meiri fengur var í túlkun K-tríósins, Kristjáns Tryggva Mart- inssonar píanista, Andra Ólafssonar bassaleikara og Magnúsar Trygva- sonar Eliassen, á þremur verkum Gunnars: „Nýtt bráðabirgðalag“ sem er fimmti kafli „Samstæðna“, eins fremsta „þriðjastraumsverks“ evrópsks tónskálds, og Kiljanslög- unum „Dans“ og „Haldið’ún Gróa hafi skó“ þar sem norrænn tónn hinnar heiðríku fegurðar ríkti öðru ofar. Það er oft stutt í fúguna hjá Gunnari Reyni, enda sagði hann gjarnan að Johann Sebastian væri „uppáhaldsdjasstónskáldið sitt“. Flutningur K-tríósins var nokkuð laus í sér í þessu verki en því fínni í enn fúguskotnari ópusi, „Dans“: „Ríður ríður hoffman í rauðan skóg“ sem leiftraði í hugmyndaríku sólói Kristjáns. Þetta hefði Gunna Sveins líkað og sagt að „gæjarnir svinguðu ad helvede til“. Fjörutíu ár eru liðin síðan frum- flutningur kantötu Gunnars Reynis við ljóðaflokk Birgis Sigurðssonar, „Á jörð ertu kominn“, var fyrirhug- aður á Listahátíð í Reykjavík. Ljóðaflokkurinn er í 22 köflum og voru fjórir fluttir hér. Upphaflega var verkið hugsað fyrir kór, lesara og djasssveit. Kórnóturnar hafa varðveist en hljómsveitarnóturnar ekki. Kjartan Valdimarsson, píanisti og tónskáld, hefur skrifað hljóm- sveitarútgáfuna í anda höfundar og tekist vel. Hann tengdi kaflana sam- an og Haukur Gröndal spann listi- lega í anda Ormslevs á „Sam- stæðum“. Þetta brot úr verkinu er við fengum að heyra er magnað og tónskáldskapur Gunnars rímar vel við ljóð Birgis, það besta sem ég hef lesið frá hans hendi. Það var sterk sveifla í upphafsljóðinu og einsöngv- ararnir, Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og Hafsteinn Þórólfsson barítón, sungu vel „Sannleikurinn er eins og barn“. Djassryþminn í margbrotinni raddsetningu á „Ó heyr þær raddir er æða um heim“ hreif hugann ekki síður en flott altó- sóló Hauks Gröndals og síðan lauk tónleikunum á „Í upphafi var eitt- hvað“ í klassískum kórstíl Gunnars Reynis. Þetta var margbrotinn konsert, en vonandi gefa þessar línur les- anda einhverja hugmynd um þá kraftbirtingu er tónleikagestir urðu fyrir. Vonandi verður einhvern tíma hægt að flytja kantötuna „Á jörð ertu kominn“ í heild og ekki er úti- lokað að einhverjar nótur af hljóm- sveitarhlutanum komi í leitirnar, en ljóðið mun birtast í öllu sínu veldi í næsta hefti Tímarits Máls og menn- ingar. Hafi Jazzhátíð þökk fyrir fram- takið ekki síður en hinn óþreytandi stjórnandi Kammerkórs Suður- lands, Hilmar Örn Agnarsson. Stórtónskáld á djasshátíð Norðurljós Hörpunnar Verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson bbbbn K-tríóið, Ásgerður Júníusdóttir, Kamm- erkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnars Agnarssonar, einsöngvarar og Sveitin. Miðvikudaginn 24. ágúst 2011. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST Morgunblaðið/Kristinn Sveifla Þriðja lagið sem Ásgerður Júníusdóttir söng á tónleikunum var „Fyrir utan ystu skóga“ við ljóð Kiljans. Tókst söngkonunni vel upp í sveiflunni og kongótrommur Péturs Grétarssonar voru seiðandi, að mati rýnis. Galdrakarlinn í Oz – forsalan hefst á morgun Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fös 2/9 kl. 19:30 16.sýn Fös 9/9 kl. 19:30 18.sýn Fös 16/9 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/9 kl. 19:30 17.sýn Lau 10/9 kl. 19:30 19.sýn Lau 17/9 kl. 19:30 21.sýn Listaverkið (Stóra sviðið) Lau 1/10 kl. 16:00 2.sýn Sun 2/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 1/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/10 kl. 19:30 5.sýn Svartur hundur prestsins (Kassinn) Sun 18/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 2/10 kl. 19:30 8.sýn Fös 23/9 kl. 19:30 3.sýn Fös 30/9 kl. 19:30 6.sýn Lau 24/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 1/10 kl. 19:30 7.sýn Hreinsun (Stóra sviðið) Fös 21/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 3/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 8. sýn Fim 27/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 4/11 kl. 19:30 6.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 4.sýn Mið 9/11 kl. 19:30 7.sýn Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Sun 4/9 kl. 14:00 32.sýn Sun 18/9 kl. 14:00 34.sýn Sun 11/9 kl. 14:00 33.sýn Sun 25/9 kl. 14:00 35.sýn Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna! Verði þér að góðu (Kassinn) Fös 2/9 kl. 20:00 Sun 4/9 kl. 21:00 Sun 11/9 kl. 19:30 Lau 3/9 kl. 21:30 Lau 10/9 kl. 19:30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.