Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand LÍSA KANN SKO AÐ KISSA HÚN ER ÓTRÚLEGA GÓÐ ÓTRRRRRRRÚLEGA GÓÐ! ÉG VISSI EKKI AÐ ÉG VÆRI MEÐ BLYGÐUNARKENND EN HANN ER BÚINN AÐ SÆRA HANA ER BÚIÐ AÐ ÁKVEÐA HVAÐ SYSTIR ÞÍN Á AÐ HEITA? HÚN Á AÐ HEITA SALKA SALKA?! SALKA... SALKA BJARNA... GAMLA GÓÐA SALKA! EKKI SVO SLÆMT HVERNIG FINNST ÞÉR ÞESSI NÝJI RÉTTUR? HANN KEMUR MÉR SPÁNSKT FYRIR SJÓNIR HVAÐ ER Í GANGI? MAMMA HRÆDDI HRÆGAMMSUNGANN OG HANN ÆLDI Á FÓTINN Á HENNI VERTU ALVEG RÓLEGUR, ÉG ER BÚIN AÐ ÞURRKA ÆLUNA AF, ÞETTA ERU HÁTÍSKU- SKÓR, ÞEIR EIGA AÐ VERA SVONA VILTU GEFA MÉR EITTHVAÐ AÐ DREKKA? SEGÐU „VILTU VERA SVO VÆN” AF HVERJU? VEGNA ÞESS AÐ ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ VERA KURTEIS VIÐ AÐRA AF HVERJU? VEGNA ÞESS AÐ ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ SÝNA ÖÐRU FÓLKI VIRÐINGU ÉG VISSI AÐ ÞAÐ VÆRI ENGIN GÓÐ ÁSTÆÐA FYRIR MANNASIÐUM *ANDVARP* SVO JAMESON KOMST AÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ SELDIR MYNDIR Í MIAMI? JÁ, HANN KOMST AÐ ÞVÍ EN SABRETOOTH MÁ EKKI KOMAST AÐ ÞVÍ AÐ KÓNGULÓAR- MAÐURINN ER Í MIAMI ÞÚ SLEPPIR ÞVÍ BARA AÐ KLÆÐ- AST BÚN- INGNUM MÉR FINNST ÖMURLEGT AÐ GET EKKI VERIÐ ÉG SJÁLFUR ÚT AF ÞESSU DÝRI ENDA ER ÞETTA SPÆNSKUR KJÖTRÉTTUR! ÉG HELD AÐ HÚN HAFI ELDAÐ ÞETTA BARA TIL AÐ GETA SAGT ÞENNAN BRANDARA Tapað – fundið Opel-bíllyklar með N1-bensínlykli á, gráum plasthlut og lítilli fjarstýringu töp- uðust 13. ágúst sl. á Laugavegi, Klappar- stíg eða Bankastræti. Fullorðinsgírahjól fannst 8. ágúst sl. í Seljahverfi. Upplýs- ingar í s. 897 0443 eða 567 0443. Lýðræðið er dýrmætt Ég er mótfallin því að Kínverjar fái að kaupa hér landsvæði og hasli sér völl á Íslandi. Munum framferði þeirra í Tíbet þar sem margir voru myrtir og aðrir fangelsaðir. Fjöldi fólks flýði til Indlands. Margir létu lífið við hörmulegar aðstæður á flótta yfir fjöllin. Síðan fluttu þeir inn Kínverja í stórum stíl í Tíbet. Við erum fá- menn þjóð, það tæki okkur ekki mörg ár að verða minnihluti í eigin landi. Lýðræðið er dýrmætt, glutr- um því ekki fyrir stundarhagnað. Guðrún Magnúsdóttir. Hvaða þjóð vantar land- og lífsrými nú? Erum við að láta sveit- arstjórnir/stjórnvöld selja yndislega landið/ auðlindir okkar án þess að hugsa um af- leiðingar fyrir börnin okkar og þjóðina alla? Munið hvernig reynt var að útrýma menn- ingu og trúarbrögðum landsmanna og nú ríkja herlög Kín- verja í Tíbet vegna kröfu lama- munka um sjálfstæði landsins. Hafið að minnsta kosti uppsegjanlega samninga eða aðeins afnot af land- kostum í einhvern tíma af eign okkar allra Íslendinga! Föðurlandsvinur. Ást er… … það sem vex og dafnar með umhyggju og alúð. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vetrarstarfið hefst í sept.: Útskurður 5. og 7.9. kl. 13, les- hópur 6.9. kl. 13.30, postulín 6.9. kl. 13 og 7.9. kl. 9/13, myndmennt 8.9. kl. 13 og bókmenntakl. kl. 13.45. Skráning hafin í spænsku fyrir byrjendur og tölvufærni. Hláturjóga 17. okt. kl. 17.30, bingó 9. sept. kl. 13.30, skartgripatorg 14. sept. og hausttískan kynnt og seld 28. sept. Skrán. og uppl. á staðnum og í s. 411-2702. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9, handavinna kl. 13. Boðinn | Handavinna m/leiðbein. kl. 9. Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé- lagsvist kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8- 16. Félagsheimilið Gjábakki | Kynning á fyrirhugaðri starfsemi í Gjábakka til áramóta kl. 14. Félag eldri borgara í Kópavogi, íþróttafélagið Glóð og hinir ýmsu hópar kynna fjölbreytta dagskrá vetrarins. Skráning á námskeið á sama tíma. Heitt á könnunni. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður og myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kanasta kl. 13. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Kaffi- spjall í krók kl. 10.30. Jóga Skólabraut kl. 11. Opinn salur Skólabraut kl. 14. Skapandi skrif í Gróttusal íþróttahúsi kl. 14.30. Félagsstarf Gerðubergi | Opnað kl. 9, m.a. perlusaumur f. hádegi. Stafganga kl. 10.30. Vatnsleikfimi í Breiðholtslaug hefst mán. 5. verður á mán. og mið. kl. 9.50. Fim. 1. sept. kemur Anna Jóna frá Fél. heyrnarlausra til starfa. Unnið er að gerð haust- og vetrardagskrár, ábend- ingar óskast. S. 5757720. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, botsía kl. 10.30, Bónusbíll kl. 12.15. Skráning hafin í félagsstarf, leikfimi, myndlist, glerlist, postulín og tréskurð- ur. Kynningarfundur á félagsstarfi verð- ur 1. sept. kl. 13-16. Tímap. á hár- greiðslustofu s. 8946856, tímap. hjá Helgu fótafræðingi s. 6984938. Hraunsel | Brids kl. 13, dagskrá vetr- arins kemur í september, s. 555 0142. Hæðargarður 31 | Hugmyndir í vetur: Skapandi skrif, magadans, leirmótun. tölvuleiðbeiningar, postulín, þrívídd- arsaumur, framsögn, thai chi, glerlist, refilssaumur, vikivaki, hláturjóga, blóm í fóstur og Vínartónleikar 6. jan. 2012. Félagsvist mán. kl. 13.30. Hausthátíð og kynning 2. sept. kl. 14. Uppl. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Línudans í Kópa- vogsskóla, hópur I kl. 14.40, hópur II kl. 16.10, hópur III kl. 17.40. Pútt á æf- ingasvæðinu við Kópavogslæk kl. 17. Uppl. í síma 554-2780. Vitatorg, félagsmiðstöð | Skrán. hafin á námskeið í vetur. Bútasaumur, bók- band, postulínsmálun, leirmótun og glerbræðsla, uppl. í síma 411-9450. Handavinnustofan opin, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar, félagsvist kl. 14. Karlinn á Laugaveginum varmeð veiðitösku í hendinni, þegar ég mætti honum. Hann sagði að nú væri rétti tíminn til að renna því að boðið væri til maðkaveislu í mörgum af bestu laxveiðiám lands- ins. Fluguveiðimenn væru góðir með sig eins og sjá mætti af því sem skráð væri í veiðibækurnar, – „en ekki er allt sem sýnist,“ sagði hann: Flugur eru fallegar og fært í letur – en feitir maðkar bragðast betur! Gamall skólabróðir minn og vin- ur, Grétar Snær Hjartarson, sendi mér tölvupóst út af vísu karlsins á Laugaveginum, þar sem hann rifj- aði upp „Í Möðrudal“ eftir Þorberg Þórðarson og er ég þakklátur hon- um fyrir það, því að margvíslegur samgangur hefur í aldir verið milli Grímsstaða og Möðrudals, sem að- eins er á færi kunnugra að rekja. Og víkjum nú sögunni að Þór- bergi: „Þetta vísukríli er sönglað fram í fólksflutningsbíl frá Akur- eyri miðvikudaginn 4. ágúst 1937, þegar við ókum frá Möðrudal á Fjöllum á leið austuryfir öræfin. Það var nálægt kl. 9.45 árdegis í sólskini og suðvestanvindi. Höfðum staðið við í Möðrudal í 10 mínútur. Lesandinn er beðinn að reyna að lifa upp með sjáandi augum ást- meyjuna og tunglsljósið og kvöld- stjörnuna. Lag kompóneraði ég við kvæðið um leið og ég raulaði það fram. Í Möðrudal á Fjöllum er mánaljósið tært og meyjaraugun fegri en himinsólin. Og kvöldstjörnunnar ljós, það lýsir þar svo skært. Þar leiðast þau, sem elskast, bakvið hólinn.“ Á hinn bóginn var það þessi vísa úr Hallormsstaðaskógi eftir Hall- dór Laxness sem varð kveikjan að vísu karlsins á Laugaveginum ef ég þekki hann rétt: Máríuklukkan grær á grænum völlum guðhrædd og prúð sem feimið barn í saung; og hún er best af blómunum mínum öllum, – það borðar hana dalakindin svaung. Pósturinn gistir Grímsstaði á Fjöllum, gaman er þar um sumarkvöldin laung. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Feitur maðkur bragðast betur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.