Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011
var bunki af fjölskylduvídeóum.
Svona varst þú. Gerðir allt fyrir
alla, og hugsaðir vel um alla.
Nú verða ljúfu samverustund-
irnar ekki fleiri.
Við kveðjum þig, elsku Ragnar
frændi, með söknuð í hjarta, en
um leið með þakklæti fyrir allt
það sem þú varst okkur.
Minning þín mun lifa í okkur.
Arnfreyr og Steinunn.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðard.)
Hvíl í friði, elsku frændi.
Þínar frænkur,
Inga María, Hanna
María, Birgitta Inga,
Karen Mjöll og börn.
Á einu augabragði breytist svo
margt. Það sem var í gær er ekki
lengur. Maður gæti eytt orku og
tíma í að spyrja sig „af hverju?“
eða leyft reiðinni gagnvart ósann-
girni heimsins ná tökum á sér.
Það hins vegar hefði Ragnar ekki
gert og á þann hátt viljum við ekki
kveðja þennan hjartastóra mann.
Ragnar frændi var einn besti
maður sem við höfum kynnst.
Hann var alltaf tilbúinn til að að-
stoða og gefa góð ráð, ekkert var
of lítið eða of stórt. Örlátari mann
er erfitt að finna, en hann var ör-
látur á sjálfan sig, elsku sína og
hlýju, jafnt gagnvart stórum sem
smáum, ungum eða gömlum.
Ragnar var mikill fjölskyldu-
maður og passaði ávallt upp á að
fjölskyldan hittist reglulega, í
jólaboðum, á ferðalagi eða bara
við tækifæri. Hann var dáður og
virtur af öllum fjölskyldumeðlim-
um og kunni svo sannarlega að
gefa af sér. Hverjum öðrum dett-
ur í hug að gefa frænda sínum
einkaútsýnisflug yfir Eyjafjalla-
gosið í fermingargjöf. Það er
nokkuð sem aldrei gleymist og lif-
ir með ungum manni, lengur en
nokkrir seðlar í umslagi. Ragnar
vissi sannarlega að það sem skipti
máli í lífinu er að njóta fjölskyldu
og vina og það kunni hann svo
sannarlega. Sem frændi var hann
í uppáhaldi, sem ferðafélagi var
hann í uppáhaldi og sem persóna
var hann í uppáhaldi.
Þó svo að okkur líði eins og ein-
hver hafi grafið djúpa holu í
hjarta okkar, þá lifir Ragnar í
okkur öllum.
Rebekka, Sigurður og börn.
Elsku Raggi frændi
Mikið rosalega er þetta órétt-
látt, sárt og óraunverulegt að þú
skulir vera farin frá okkur.
Það er ótrúlegt að við sitjum
hér og skrifum okkar lokaorð til
þín eftir að hafa verið að fagna 55
ára afmæli þínu á Þingvöllum fyr-
ir nokkrum vikum.
Hjálpsemi er eitt af þeim lýs-
ingarorðum sem lýsa þér best.
Þegar við fluttum í Lyngbrekku
þá ætluðum við að gera þetta
hægt og rólega og taka bara alla
helgina í þetta en þú hélst nú
ekki, reifst mannskapinn af stað
og nokkrum klukkutímum seinna
var búslóðin komin í nýju íbúðina
og þú stóðst uppi í stiga að hengja
upp reykskynjarann og sagðir
svo: Þetta er það fyrsta sem á að
gera þegar maður flytur. Við höf-
um flutt nokkrum sinnum eftir
þetta og reykskynjarinn fer alltaf
strax á sinn stað.
Þú varst með eindæmum barn-
góður maður og nutu drengirnir
okkar hverrar mínútu sem þeir
eyddu með þér. Spurningin hve-
nær ætlum við að heimsækja
Ragga frænda í sveitina kom ansi
oft upp eftir að við eyddum ynd-
islegri viku saman í fallega húsinu
ykkar í Úlfstaðarskógi.
Þekking þín á landinu var mikil
og gaman var að ferðast með þér
um hálendið þar sem þú gast þul-
ið upp heitið á hverri þúfu.
Þú varst kletturinn í fjölskyld-
unni sem ekkert bjátaði á, þú sást
alltaf til þess að fjölskyldan hittist
t.d. í jólaboðum, ættarmótum og
afmælum og að sjálfsögðu mynd-
aðir þú allt svo minningarnar
myndu aldrei glatast.
Þú ert eins og náttúran vildi, að þú
værir.
Vöxt þinn hindraði aldrei neinn.
Allir vegir voru þér færir –
viljinn sterkur og hreinn.
Þrunginn krafti, sem kjarnann nærir,
klifrar þú djarfur og einn,
léttur í spori, líkamsfagur.
Lund þín og bragur er heiðskír dagur,
frjálsborni fjallasveinn.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Minning þín skilur eftir sig
djúp og stór spor í hjarta okkar.
Þorvaldur Gísli og Heiðdís.
Fallinn er frá ástkær vinur
okkar, Ragnar Heiðar Kristins-
son. Það er svo óendanlega sárt
að vita til þess að hann skuli ekki
vera lengur á meðal okkar. Ljúfar
hugsanir um góðan og yndislegan
dreng fylla hugi okkar minning-
um sem spanna hart nær þrjátíu
og fimm ár.
Kynnin hófust á gamla rúntin-
um þar sem Habba, Elín og Dadý
ásamt fleirum þeyttust um á app-
elsínugulu Cortínunni úr Lauga-
vegsapóteki og Raggi og Jónas
keyrðu um á Willis-jeppa. Á þess-
um tíma byrjuðu þau Dadý og
Raggi að gjóa augum hvort á ann-
að og að lokum byrjuðu þau sam-
an og enduðu í farsælu hjóna-
bandi. Á ungdómsárunum var
farið í margar ógleymanlegar
jeppaferðir, auk þess sem vina-
hópurinn var saman öllum stund-
um bæði við leik og vinnu. Vin-
skapurinn hélt áfram að þroskast
og þróast með árunum. Samband
okkar við þau Dadý og Ragga hef-
ur ávallt verið mjög náið. Þannig
litu börnin frekar á þau sem
frænku og frænda heldur en fjar-
læga vini og minnast margra
góðra stunda úr ýmsum lands-
hlutum s.s. úr íbúðinni fyrir ofan
Laugavegsapótek, úr Mosfells-
bænum, utan af Álftanesi og héð-
an af Seyðisfirði. Þá er að minnast
heimsókna í Úlfsstaðaskóg þar
sem jafnan var kátt á hjalla.
Raggi var alltaf foringinn í
okkar hópi, óumdeildur leiðtogi,
sem alltaf var boðinn og búinn að
hjálpa í stóru sem smáu. Var þá
alveg sama hvort þurfti leiðbein-
ingar við smíðar, bílaviðgerðir
eða hvað eina, alltaf var Raggi
tilbúinn að hjálpa og það jafnvel
þótt endurnýja þyrfti heilu húsin.
Í bók Kahlil Gibran, Spámann-
inum, segir:
„Vinur þinn er þér allt, hann er akur sál-
arinnar, þar sem samúð þinni er sáð og
gleði þín uppskorin. Þú skalt ekki
hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn,
því að það, sem þér þykir vænst um í
fari hans, getur orðið þér ljósara í fjar-
veru hans, eins og fjallgöngumaður sér
fjallið best af sléttunni. Vertu glaður
með vini þínum og njóttu með honum
lífsins.“
Fráfall Ragga skilur eftir djúp
sár í hjörtum okkar, en eftir lifir
minningin um góðan dreng.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum.)
Elsku Dadý og fjölskylda megi
Guð styrkja ykkur á þessum erf-
iðu tímum. Ingu og öðrum ætt-
mennum Ragga sendum við okk-
ar dýpstu samúðarkveðjur.
Lárus, Hrafnhildur,
Svava, Árni Geir
og Ingibjörg.
Fyrstu kynnin af Ragga voru
þegar við vorum að undirbúa
byggingu Setursins, skála Ferða-
klúbbsins 4x4, árið 1988 en þar
var Raggi byggingarstjóri. Það
má segja að með elju sinni og
ákveðni hafi hann gert nánast það
ómögulega þ.a.s. að skálinn skyldi
rísa á einu sumri en þessir eig-
inleikar fylgdu honum alla tíð. Til
að byrja með var vinskapur okkar
og ferðamennska eingöngu tengd
starfi 4x4 þá aðallega að vetri til
en það breyttist fljótlega og
næstu árin urðu ferðirnar og
skúrakvöldin fleiri. Raggi var ein-
staklega hjálpsamur og gafst
aldrei upp hvernig sem veður og
aðstæður á fjöllum voru eða ef um
bilanir eða festur var að ræða.
Hann var oft með verkfæri og
varahluti meðferðis sem hefðu
dugað til allra þeirra viðgerða
sem geta komið uppá í svona ferð-
um.
Til dæmis í okkar fyrstu ferð
páskana 1988, þegar skoða átti
fyrirhugaðan byggingarstað Set-
ursins, lentum við í leiðinda
blöndungsbilun á einum jepp-
anna. Þar sem við, einn bifvéla-
virki og tveir vélvirkjar, stóðum
yfir blöndungnum eftir að hafa
tekið hann úr bílnum og veltum
fyrir okkur aðgerðum þá fannst
Ragga þetta ganga frekar hægt
og ýtti okkur frá, tók blöndunginn
í sundur, hreinsaði og stillti, rétti
okkur hann síðan og lét okkur
setja hann í. Það er skemmst frá
því að segja að viðgerðin tókst
fullkomlega. Það var ekki fyrr en
seinna sem hann sagði mér að
svona hlut hafði hann, húsasmið-
urinn, aldrei tekið í sundur áður.
Svona var Raggi hjálpsamur og
úrræðagóður svo um munaði.
Allir ferðahópar fá einhver
nöfn og hópurinn okkar var fljót-
lega kallaður Djöflagengið.
Næstu árin ferðuðumst við
talsvert og eru áramóta- og
páskaferðirnar ógleymanlegar.
Raggi átti á þessum árum Wil-
lys jeppa mikinn á 44“ dekkjum
og með átta sýlindra vél með
keflablásara sem virkaði ógur-
lega.
Með Ragga í för var ávallt
Dadý, eiginkona hans sem ekki
hafði síður yndi af ferðamennsk-
unni og saman voru þau hjónin
máttarstólpar í félagsskapnum.
Ragnar og vídeómyndavélin voru
óaðskiljanleg og festi hann mörg
gullin augnablik á filmu sem verð-
ur sífellt ánægjulegra að skoða
eftir því sem tímar líða. Þannig
lifa um ókomna tíð fjölmargar
samverustundir með Ragga og í
huga okkar lifa enn fleiri minn-
ingar um góðan dreng og félaga.
Hvíl í friði, kæri vinur. Megi
góður Guð styrkja Dadý, hennar
nánustu í fjölskyldu Ragga.
Þórarinn og Kristín.
Elsku Ragnar okkar.
Við sem eigum okkur svo langa
sögu – vinskap yfir 30 ár.
Viljum við þakka þér fyrir vin-
skapinn, alltaf stutt í brosið, fé-
lagsskapinn, tryggur ferðafélagi,
aðstoðina, réttir alltaf hjálpar-
hönd, velvildina við okkur og
strákana okkar, trúmennskuna,
stóðst eins og klettur.
Upp í hugann kemur allt sem
við brölluðum. Langar videonæt-
ur með margar spólur og mikið
nammi.
Öll partíin og partíið sem við
buðum óboðið til ykkar á Lauga-
veginn.
Allar jeppaferðirnar með há-
punktinum á Hvannadalshnjúk
við sólsetur.
Allar áramótaferðirnar í Setr-
inu, Hólaskjóli, Stóru Laxá og
Geysi.
Óteljandi ferðalög innanlands
með strákaslagsmálum í sundi.
Londonferð og skíðaferðir til
Austurríkis, Ítalíu og Kanada.
Allar stóru og smá afmælis-
veislurnar með áherslu á strandp-
artíið.
Húsbyggingar á húsbyggingar
ofan hjá okkur og Elvari.
Kallaferðirnar með strákunum
í eggjaferðir á Langanes.
Heimboðin og alla matsölu-
staðina sem við reyndum og röbb-
uðum á.
Og þakklæti, já Ragnar, þakk-
læti fyrir ógleymanlegar stundir.
Far þú í friði, vinur.
Elsku hjartans Dadý, okkar
dýpstu samúðaróskir til þín og
allra þinna.
Ægir og Herdís (Didda)
Elvar, Rúnar, Steinar
og fjölskyldur.
Ragnar Heiðar
Kristinsson
✝
Ástkær eiginmaður minn, fóstursonur, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR MARKÚSSON
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Sléttuvegi 17,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi mánudaginn 22. ágúst,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
1. september kl. 13.00.
Ingiríður (Inga) Árnadóttir,
Guðríður Guðbrandsdóttir,
Guðríður St. Sigurðardóttir,
Guðbrandur Sigurðsson, Rannveig Pálsdóttir,
Einar Sigurðsson, Elfa Lilja Gísladóttir,
Antoníus Þ. Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær systir okkar, mágkona, frænka og
vinkona,
SIGURBORG HJALTADÓTTIR
frá Hólum,
Hornafirði,
sem lést sunnudaginn 21. ágúst, verður
jarðsungin frá Bjarnaneskirkju, Hornafirði,
laugardaginn 3. september kl. 14.00.
Minningarathöfn fer fram í Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
1. september kl. 13.00.
Jón Hjaltason, Steinunn B. Sigurðardóttir,
Halldóra Hjaltadóttir,
Þorleifur Hjaltason, Edda Lúðvíksdóttir,
Hjálmar Kristinsson,
Aðalheiður Geirsdóttir,
Helga Karlsdóttir,
Baldur Sigurjónsson
og fjölskyldur.
✝
Okkar kæra
MARÍA PÁLSDÓTTIR,
Furulundi 11D,
Akureyri,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 21. ágúst, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 2. september
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Heima-
hlynningar á Akureyri.
Páll Jónsson, Kolbrún Björk Ragnarsdóttir,
Lovísa Jónsdóttir, Óskar Þór Halldórsson,
Steingrímur Jónsson, Árún K. Sigurðardóttir,
Jón Árni Jónsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Stefán Jónsson, Yean Fee Quay,
Þóra Jónsdóttir, Björn Halldórsson,
barna- og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar ástkærs ástvinar, föður, fósturföður,
tengdaföður, afa og langafa,
ÓMARS KONRÁÐSSONAR
tannlæknis.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
starfsfólki hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar fyrir frábæra
umönnun svo og tannlæknum sem sýndu honum virðingu sína
með því að bera kistuna.
Edda Eyfeld,
Ásta Ómarsdóttir, Ómar Richter,
Hrund Ómarsdóttir, Swaroop Pusala,
Hafdís Huld Haakansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RUTH GUÐMUNDSSON,
Seljahlíð,
Hjallaseli 55,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 31. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð
Seljahlíðar, sími 540 2400.
Guðmundur J. Axelsson, Arndís Axelsson,
Dóra Axelsdóttir, Guðmundur R. Jónsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Okkar ástkæra
HRUND HELGADÓTTIR
hjúkrunarfræðingur
lést á líknardeild Landspítalans
að kvöldi laugardagsins 27. ágúst.
Hörður V. Sigmarsson,
Eva Bjarnadóttir, Snorri Örn Arnarson,
Hervör Hólmjárn
og systkini hinnar látnu.
✝
Faðir okkar og tengdafaðir,
LÚÐVÍK INGVARSSON,
fyrrum sýslumaður
og síðar prófessor,
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Karl Lúðvíksson, Borghildur Brynjarsdóttir,
Margrét Lúðvíksdóttir, Ingimundur Friðriksson,
Ari Már Lúðvíksson, Helga Guðrún Helgadóttir,
Ágúst Lúðvíksson, Amei Hoffmann,
Ingiríður Lúðvíksdóttir.
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson