Morgunblaðið - 30.08.2011, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Vopnasala breskra fyrirtækja til
Mið-Austurlanda og Norður-Afríku
hefur aukist um 30% frá því að arab-
íska vorið svonefnda hófst, að sögn
breska dagblaðsins The Times.
Rannsókn blaðsins leiddi í ljós að
bresk fyrirtæki seldu vopn fyrir 30,5
milljónir punda, sem svarar 5,6 millj-
örðum króna, til landa í þessum
heimshluta á tímabilinu frá febrúar
til júní í ár. Á sama tímabili á síðasta
ári nam salan 22,2 milljónum punda,
jafnvirði 4,1 milljarðs króna.
Á meðal landanna sem fengu
vopnin eru Líbía, Barein og Sádi--
Arabía. Löndin hafa m.a. fengið vopn
sem öryggissveitir geta beitt til að
kveða niður mótmæli. Breska stjórn-
in hefur sætt harðri gagnrýni vegna
vopnasölunnar, að sögn The Times.
Eftir að arabalönd á borð við Bar-
ein beittu hervaldi til að kveða niður
mótmæli hét breska utanríkisráðu-
neytið því að endurskoða þegar í
stað allan vopnaútflutning Breta til
Mið-Austurlanda og Norður-Afríku.
Um það bil 160 útflutningsleyfi voru
felld úr gildi.
Rannsókn The Times leiddi þó í
ljós að yfir 600 vopnaútflutningsleyfi
til Mið-Austurlanda eru enn í gildi. Á
meðal þeirra eru leyfi til að selja
vopn og önnur hernaðartæki að and-
virði alls 1,45 milljarða punda, eða
268 milljarða króna, til Barein, Jem-
en og Egyptalands.
Breska stjórnin heimilar til að
mynda enn sölu á haglabyssum og
skotfærum til Barein þótt talið sé að
stjórn landsins hafi beitt slíkum
vopnum í mars til að kveða niður
mótmæli meðal sjíta sem eru í meiri-
hluta í landinu. Yfirvöld í Barein
segja að 24 hafi beðið bana í mót-
mælunum, þeirra á meðal fjórir lög-
reglumenn. Mannréttindasamtök
segja að minnst 500 manns hafi verið
handtekin fyrir að taka þátt í mót-
mælunum.
Breska stjórnin heimilar enn
vopnasölu til Egyptalands þótt
stjórnvöld í Þýskalandi og Frakk-
landi hafi stöðvað vopnasölu til
landsins í febrúar þegar Hosni Mub-
arak hraktist frá völdum vegna mót-
mæla. Bresk fyrirtæki seldu vopn að
andvirði 60.000 punda, 11 milljóna
króna, til Líbíu í febrúar, áður en
Muammar Gaddafi beitti öryggis-
sveitum sínum með grimmilegum
hætti til að reyna að halda völdunum.
Græða á arabíska vorinu
Vopnasala Breta til arabalanda jókst um 30% eftir að mótmælin hófust
Breska ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir að heimila m.a. sölu vopna til Barein
Reuters
Andóf Kona tekur þátt í mótmælum
sjíta gegn stjórninni í Barein.
Stórfelld viðskipti
» Bretland er annar mesti
vopnaútflytjandi heims á eftir
Bandaríkjunum.
» Bretar tryggðu sér vopna-
sölusamninga að andvirði nær
sex milljarða punda, 1.100
milljarða króna, á síðasta ári.
» Megnið af vopnunum fer til
Sádi-Arabíu og Sameinuðu
arabísku furstadæmanna.
Tíbeskur búddamunkur stendur á milli ferða-
manna og risastórrar myndar, sem nefnist
thangka, á Shoton-hátíðinni í Drepung-
klaustrinu við jaðar Lhasa. Venja er að hefja há-
tíðina með því að sýna thangka, sem er trúar-
legur silkiútsaumur eða málverk. Á hátíðinni
eru einnig fluttar tíbeskar óperur og haldnar
sýningar af ýmsum toga, svo sem í reiðmennsku,
auk jakuxakappreiða sem njóta mikilla vinsælda.
Hátíð búddasýninganna hafin í Tíbet
Reuters
Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar
vísindamanna við CERN, Evrópsku
rannsóknamiðstöðina í öreindafræði
í Genf, benda til þess að geimgeislar
kunni að valda skýjamyndun í loft-
hjúpi jarðar og breyta loftslaginu,
að því er fram kemur í grein í vís-
indatímaritinu Nature.
Bráðabirgðaniðurstöðurnar hafa
blásið nýju lífi í umræðuna um
hvort fjarlægar stjörnur geti haft
veruleg áhrif á loftslagsbreytingar á
jörðinni.
Geimgeislar eru aðallega rót-
eindir sem streyma um geiminn frá
sprengistjörnum. Þegar róteind-
irnar fara í gegnum lofthjúpinn geta
þær jónað rokgjörn efnasambönd,
orðið til þess að þau þéttist og
myndi smádropa eða úða í loftinu.
Hugsanlegt er að þessir smádropar
geti myndað ský, að sögn Nature.
Fjöldi geimgeislanna, sem koma í
lofthjúpinn, ræðst af sólinni. Þegar
geislunin frá sólinni er mikil ver
segulsvið hennar jörðina fyrir geim-
geislum. Þegar virkni sólar minnkar
komast fleiri geimgeislar í lofthjúp
jarðar.
Að sögn Nature eru vísindamenn
sammála um þessar staðreyndir en
þá greinir á um hvort geimgeislar
geti haft mikil áhrif á skýjamyndun
í lofthjúpnum og loftslagsbreyt-
ingar. Nokkrir vísindamenn hafi
fært rök fyrir því að þegar virkni
sólar er mikil og geimgeislum fækk-
ar í lofthjúpnum geti það orðið til
þess að skýjahulan minnki og jörðin
hlýni. Aðrir vísindamenn segja að
engar tölulegar staðreyndir styðji
þessa kenningu.
Þekkingin of lítil
Jasper Kirkby, eðlisfræðingur
hjá CERN, telur að umræðan um
loftslagsmál hafi einkennst alltof
mikið af því að vísindamenn hafi
klofnað í andstæðar fylkingar og
séu fastir í skotgröfunum. Hann
segir að þekking manna á mjög
mikilvægum sviðum sé enn mjög lít-
il, einkum sé skortur á vönduðum
rannsóknum á því hvaða áhrif geim-
geislar geti haft á efnasambönd í
lofthjúpnum.
Við rannsókn CERN nota vís-
indamennirnir samskonar hraðal og
notaður er í stærsta öreindahraðli
heims. Þeir fylla sérsmíðað hólf með
hreinu lofti og efnum, sem talið er
að stuðli að skýjamyndun, og hrað-
allinn dælir síðan róteindum inn í
hólfið. Vísindamennirnir rannsaka
síðan hvaða áhrif geislarnir hafa.
Að sögn Nature benda fyrstu
niðurstöður rannsóknarinnar til
þess að geimgeislarnir valdi breyt-
ingu. Róteindirnar virðist tífalda
myndun örsmárra einda úr and-
rúmsloftinu. „En Kirkby bætir við
að þessar eindir séu alltof litlar til
að vera frumorsök skýja. Sem
stendur segir þetta í raun ekkert
um áhrif geimgeisla á ský og lofts-
lag, en þetta er mjög mikilvægt
skref,“ segir hann.“ bogi@mbl.is
Skýjamyndun getur tengst geimgeislum
Fyrstu niðurstöður rannsóknar CERN benda til þess að geimgeislar geti stuðlað að myndun skýja í
lofthjúpnum Vísindamenn greinir á um hvort geislarnir geti haft mikil áhrif á loftslagsbreytingar
Rannsókn Jasper Kirkby hjá CERN.
Bréf hafa
streymt til fjölda-
morðingjans sem
varð 76 manns að
bana í Ósló og
Útey 22. júlí.
Mörg þeirra eru
ástarbréf frá
konum hvaðan-
æva úr heim-
inum, að sögn
norska dagblaðs-
ins VG.
Fjöldamorðinginn hefur ekki
fengið að lesa bréfin, sem eru af
ýmsu tagi. Á meðal kvennanna sem
hafa skrifað honum eru kristnar
konur, sem vilja lækna morðingjann
af mannvonskunni, konur sem vilja
ganga honum í móðurstað og konur
sem játa honum ást sína.
Fær mörg hótunarbréf
Fjöldamorðingjanum hafa einnig
verið send mörg hótunar- og haturs-
bréf en hann hefur ekki fengið að
lesa þau frekar en ástarbréfin. Dóm-
ari hefur bannað að morðinginn fái
bréf eða heimsóknir.
Norski fangelsispresturinn Kjell
Arnold Nyhus kveðst ekki vera
undrandi á þessum mikla áhuga á
fjöldamorðingjanum, Anders
Behring Breivik. „Ég er ekki hissa á
þessu. Það er til nóg af fólki úti í
samfélaginu sem jaðrar við það að
vera galið og getur hegðað sér
svona,“ hafa norskir fjölmiðlar eftir
prestinum.
Breivik
fær mörg
ástarbréf
Anders Behring
Breivik
Bréf streyma til
fjöldamorðingjans
Að minnsta kosti 32 dauðsföll eru
rakin til fellibyljarins Írenu í níu
sambandsríkjum í austanverðum
Bandaríkjunum um helgina. Dauðs-
föllin voru flest í New York-ríki,
Norður-Karólínu og Pennsylvaníu
eða sex í hverju ríki. Fjórir dóu í
Virginíu, þrír í New Jersey, tveir í
Connecticut, Flórída og Vermont og
eitt dauðsfall varð í Maryland af
völdum óveðursins.
Flest dauðsfallanna urðu af völd-
um trjáa sem féllu, bílslysa sem rak-
in eru til óveðursins eða af völdum
flóða sem fylgdu fellibylnum. Yngsta
fórnarlamb ofsaveðursins var ellefu
ára piltur sem dó þegar stórt tré féll
á hús hans í Virginíu.
Áætlað er að eignatjónið af völd-
um Írenu nemi allt að 7 milljörðum
dollara, sem svarar tæpum 800 millj-
örðum króna, að meðtöldu tjóni sem
tryggingafélög bæta ekki.
Írena varð
32 að bana