Morgunblaðið - 05.09.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 5. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 207. tölublað 99. árgangur
GOTT GENGI Á
NORÐUR-
LANDAMÓTI
SVIK,
HARMUR
OG DAUÐI
ERU HÁLFGERÐIR
SKÓGARÁLFAR Í
HAUKADALSSKÓGI
HAM VEX SKEGG 26 FELLA TRÉ, SAGA OG KURLA 10MET OG MEISTARAR ÍÞRÓTTIR
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Ég held að Ólafur Ragnar Grímsson
ætti bara að stíga skrefið til fulls og
fara bara í framboð til þings,“ segir
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs, um ummæli sem Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, lét falla um
Icesave-málið í fréttum Ríkisútvarps-
ins í gær.
Þar sagði Ólafur meðal annars að íslensk stjórnvöld
hefðu beygt sig fyrir ofbeldi af hálfu Breta og Hollend-
inga í málinu og að skynsamlegast hefði verið að bíða og
sjá hvaða fjármunir fengjust fyrir
eignir gamla Landsbankans í stað
þess að „setja íslenska þjóð og sam-
starf okkar við Evrópuríkin í þessa
spennitreyju“. Ólafur sagði nýjasta
matið á eignum bankans, þar sem gert
er ráð fyrir að þær dugi ríflega fyrir
forgangskröfum, staðfesta það að
réttast hefði verið að standa að málum
með þeim hætti.
Álfheiður segir Ólaf einfaldlega
eiga að snúa aftur í stjórnmálin þar sem hægt sé að svara
honum á jafnréttisgrunni. „Hann langar það greinilega.
Hann sér eftir því að hafa farið þaðan út og hann á bara
að koma þangað aftur. Bjóða sig fram.“ »2
Vill forsetann í framboð
Álfheiður
Ingadóttir
Ólafur Ragnar
Grímsson
Þingmaður vill geta svarað Ólafi Ragnari á jafnréttisgrunni
Góða veðrið á höfuðborgarsvæðinu í gær nýttu sér
margir til að fara í berjamó. Sumir nýttu tækifærið
til að fylla fötur af berjum og flytja heim í bíl en
aðrir létu sér nægja að ganga um og beygja sig eftir
beri af og til eins og þessar mæðgur sem ljósmynd-
ari Morgunblaðsins rakst á í Heiðmörk.
Morgunblaðið/Golli
Brugðu sér í berjamó
Björn Jóhann Björnsson
Kristján H. Johannessen
Mikill fjöldi lausra starfa er í boði um þessar
mundir og virðist sem um aukningu sé að
ræða frá því á sama tíma í fyrra. Ráðning-
arstofur og vinnu-
miðlanir eru ekki
einhuga um hvort
umsóknum um laus
störf sé að fjölga eð-
ur ei. Tölur frá
Vinnumálastofnun,
sem birtar voru fyr-
ir síðastliðinn júlí-
mánuð, gefa ágæta
vísbendingu um
stöðu mála á vinnu-
markaðnum. Þar
kom fram að laus
störf voru um 350
talsins en einungis
var um að ræða 43
staðfestar ráðning-
ar í þeim mánuði.
Síðan í lok júlí hefur
lausum störfum tekið að fjölga á nýjan leik.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, segir það áhyggjuefni hve mörg
störf eru laus miðað við fjölda atvinnulausra.
Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri job.is,
bendir á að um 30 prósentum fleiri störf séu
auglýst á job.is en á sama tíma í fyrra. Segir
hann það vekja undrun að færri umsóknir
eru núna um vel launuð störf en oft áður. Ým-
islegt er talið geta útskýrt það, t.a.m. þarf
ungt barnafólk nokkuð há laun til að það telji
hagstæðara að fara út á vinnumarkaðinn en
að vera á atvinnuleysisbótum. Á vefsíðunni
starfatorg.is eru laus störf á vegum hins op-
inbera auglýst. Þar hefur einnig orðið fjölgun
á auglýsingum, 638 auglýsingar hafa verið
birtar það sem af er þessu ári en fyrstu átta
mánuðina í fyrra voru þær 608.
Talsvert
framboð
starfa
Lausum störfum
fjölgar á ný
Skýtur
skökku við
» Á sama tíma
og ellefu þúsund
manns eru at-
vinnulausir eru á
fjórða hundrað
störf á skrá
Vinnumálastofn-
unar.
» Um 30% fleiri
störf eru auglýst
á job.is en á
sama tíma fyrir
ári.
MFleiri störf á lausu »4
„Það er ekkert aldurstakmark á
þetta frekar en á reiðhjól. Það sem
við höfum mestar áhyggjur af er að
það eru börn að keyra þessi tæki og
meira að segja brjótandi þær regl-
ur sem almennt gilda um hjólreið-
ar,“ segir Einar Magnús Magn-
ússon, upplýsingafulltrúi
Umferðarstofu, um rafmagns-
vespur þær sem njóta sífellt meiri
vinsælda hér á landi. Þær flokkast,
þrátt fyrir að vera vél- eða rafknúin
hjól, sem ein tegund reiðhjóla og
gilda um þau flestar sömu reglur og
reiðhjól.
Einar segir að í innanríkisráðu-
neytinu sé verið að skoða hvort
ekki þurfi að greina þessi tæki frek-
ar í sundur og þá með hvaða hætti.
Allt er það gert fyrst og fremst til
að tryggja öryggi vegfarenda. »8
Brjóta reglur á
rafmagnsvespum
Brot Nauðsynlegt er að vera með hjálm.
Angela Merk-
el, kanslari
Þýskalands, virt-
ist hafa beðið
ósigur í þing-
kosningum í
Mecklenburg-
Vorpommern í
gær. Samkvæmt
útgönguspám
fékk flokkur
hennar, Kristi-
legir demókratar (CDU), 24%
stuðning en hann var með 28,8% í
kosningunum 2006. Jafnaðarmönn-
um var spáð 37%. Fréttaskýrendur
telja að erfiðleikar evrunnar eigi
stóran þátt í lélegum árangri CDU.
Flokki Merkel spáð
miklu fylgistapi
Angela
Merkel
Eldgosin í Eyjafjallajökli og Gríms-
vötnum undanfarin ár benda til að
tímabil aukinnar eldvirkni sé hafið
hér á landi. Rannsóknir hafa sýnt að
eldvirkni á Íslandi gengur í bylgjum,
sem koma t.d. fram sem sveiflur í
tíðni og stærð eldgosa í og við Vatna-
jökul. Þau fjögur gos sem orðið hafa
á því svæði síðustu 15 ár eru talin
marka upphaf á virku tímabili.
Á slíku tímabili er búist við eldgosi
í Grímsvötnum annað til sjöunda
hvert ár, auk þess sem þekkt er að
goshrinur verða samhliða í eld-
stöðvakerfi Bárðarbungu.
Af þessu tilefni hefur ríkisstjórnin
samþykkt tillögu umhverfisráðherra
um að hafist verði handa við gerð
heildaráhættumats vegna eldgosa á
Íslandi. Byggist tillagan á áætlun
sem Veðurstofan vann fyrir um-
hverfisráðuneytið ásamt Almanna-
varnadeild ríkislögreglustjóra, Jarð-
vísindastofnun Háskóla Íslands,
Landgræðslu ríkisins og Vegagerð-
inni og er fyrsti áfanginn verkefni til
þriggja ára. Við gerð matsins verður
stuðst við hættumatsramma Al-
þjóðaveðurfræðistofnunarinnar og
Sameinuðu þjóðanna, sem skilað
hafa góðum árangri við hættumat
vegna ofanflóða. »14
Hættumat unnið vegna
aukinnar eldvirkni