Morgunblaðið - 05.09.2011, Qupperneq 4
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Kajakmennirnir Riaan Manser og
Dan Skinstad komu að landi við
Húsavík seinnipart dags á laugardag
eftir að hafa róið á kajak hringinn í
kringum landið. Fjölmenni tók á
móti þeim félögum við komuna.
Ferðina hófu þeir 27. mars síðastlið-
inn og héldu sem leið lá suður fyrir
landið, en upphaflega stóð til að
henni lyki í júlí.
Veðráttan kom á óvart
Ferðin reyndi talsvert á þá félaga
og þá ekki síst þar sem hreyfigeta
Skinstads er skert vegna vægrar
hreyfilömunar. Kajak þeirra félaga
skemmdist ennfremur í nokkur
skipti á leiðinni og það setti strik í
reikninginn. Þá mun íslensk veðrátta
hafa komið þeim talsvert í opna
skjöldu og þá einkum hversu óút-
reiknanleg hún reyndist að sögn
Tracey Bruton, framkvæmdastjóra
leiðangursins.
Myndatökumenn fylgdu þeim
Manser og Skinstad eftir alla leiðina
í kringum landið en til stendur að
gera heimildamynd um ferðalagið.
Myndin verður sýnd í þrettán þátt-
um í ríkissjónvarpinu í Suður-Afríku
og hefjast sýningar í janúar og síðar
einnig á sjónvarpsstöðinni Travel
Channel að sögn Bruton.
Hringferðinni lokið á 161 degi
Kajakmennirnir Riaan Manser og Dan Skinstad komu til
Húsavíkur á laugardag eftir að hafa róið í kringum landið
Ljósmynd / Tracey Bruton
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fjöldi lausra starfa virðist vera meiri
nú í septemberbyrjun en fyrir ári en
meira ber á atvinnuauglýsingum á
þessum árstíma þegar framhalds- og
háskólar eru komnir í gang. Á sama
tíma eru fleiri að fara af atvinnuleys-
isbótum og í vinnu eða nám. Ráðning-
arstofur og vinnumiðlanir hafa hins
vegar misjafna sögu að segja um
hvort umsóknum um laus störf sé að
fjölga. Þannig segir talsmaður Capa-
cent að á annað hundrað umsóknir
berist um hvert auglýst starf en fram-
kvæmdastjóri job.is hefur það eftir
forsvarsmönnum fyrirtækja að um-
sóknum um ákveðin störf hafi fækk-
að.
Hvað sem því líður þá vekja athygli
tölur Vinnumálastofnunar um laus
störf, sem birtar voru fyrir síðasta júl-
ímánuð. Í byrjun þess mánaðar voru
laus störf um 350 talsins en aðeins
voru 43 staðfestar ráðningar í mán-
uðinum. Til samanburðar voru 329
störf laus í byrjun júlí árið 2010 en
ráðningar í þeim mánuði 172.
30% fleiri störf á job.is
Síðan í lok júlí hefur lausum störf-
um fjölgað og eru nú vel á fjórða
hundraðið. Tölur Vinnumálastofnun-
ar gefa góða vísbendingu um ástandið
á vinnumarkaðnum en eru þó alls ekki
tæmandi yfir öll laus störf hjá einka-
geiranum og hinu opinbera. Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumálastofn-
unnar, segir það áhyggjuefni hve
mörg störf eru laus miðað við að um
11 þúsund manns eru atvinnulausir.
„Það er verkefni okkar hérna hjá
stofnunni næstu vikurnar að manna
þessi störf með öllum ráðum.“
Kolbeinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri job.is, tekur undir það að laus-
um störfum sé að fjölga miðað við
fyrri ár. Þannig eru í dag um 30%
fleiri störf auglýst á job.is en á sama
tíma ári síðan. Það sé athyglisvert þar
sem almennt sé aukning í ráðningum
á haustin að lokinni sumarvinnu
skólafólks. Einnig hafi töluvert verið
um atvinnuauglýsingar í sumar.
Hins vegar vekur það undrun hjá
Kolbeini að færri umsóknir eru núna
um góð og vel launuð störf en oft áður,
þar sem krafist er ákveðinnar
reynslu. Þetta gildi líka um láglauna-
störfin. „Fyrirtæki sem auglýsa hjá
mér eru að hringja og spyrja: Bíddu
við, hvar er kreppan?“ segir Kolbeinn
og telur ýmislegt geta skýrt þetta.
Þannig þurfi ungt fólk með börn
nokkuð há laun til að það telji hag-
stæðara að fara út á vinnumarkaðinn
en að vera heima á atvinnuleysisbót-
um, eða um 300 þúsund króna tekjur
á mánuði hið minnsta. Einnig sé ljóst
að aðhald og eftirlit með svartri at-
vinnustarfsemi sé ekki nægjanlegt og
það þurfi að efla. Tölur frá Vinnu-
málastofnun um fjölda ráðninga sýni
þetta og sanni.
Helgi Hjálmtýsson heldur utan um
starfatorg.is, þar sem laus störf á veg-
um hins opinbera eru auglýst. Hann
segir lægð hafa verið ríkjandi á mark-
aðnum en nú megi merkja fjölgun
auglýsinga líkt og ávallt í byrjun sept-
ember.
Núna eru um 75 atvinnuauglýsing-
ar á starfatorginu, sem er heldur
meira en á sama tíma í fyrra. Meðal
lausra starfa eru nokkrar stöður lög-
reglumanna á höfuðborgarsvæðinu,
störf á sjúkrastofnunum, hjá Þjóð-
skrá, innan Háskóla Íslands og víðar.
Það sem af er ári hafa 638 auglýs-
ingar verið birtar, borið saman við
608 fyrstu átta mánuðina í fyrra og
tæplega 500 árið 2009. Þetta er þó enn
aðeins helmingur af því sem var árin
2006-2008 þegar um 1.200 auglýsing-
ar birtust á starfatorgi fyrstu átta
mánuðina þessi ár.
Gunnar Haugen, framkvæmda-
stjóri Capacent Ráðningar, segir ein-
hverja aukningu hafa orðið í auglýst-
um störfum en ekki mikla. Hins vegar
beri að túlka aukninguna varlega þar
sem eitthvað af þessum auglýsingum
sé vegna starfa sem erfitt er að fá fólk
í. Því sé ekki endilega um fjölgun
lausra starfa að ræða.
Fleiri að líta í kringum sig
Gunnar segir margar umsóknir um
hvert starf, eða yfirleitt á annað
hundrað, og fleiri séu tilbúnir að
skoða nýja atvinnumöguleika, þ.e. að
skipta um vinnu ef tækifæri gefast.
„Haustið er venjulega tími mikillar
eftirspurnar eftir fólki og ég hugsa að
eftirspurnin núna verði ekki minni en
í fyrra. Núna vantar aðallega fólk í
fjölbreyttari tegundir starfa. Eftir-
spurnin er innan þjónustugeirans og
eftir sérfræðingum en minni eftir
millistjórnendum og í ný störf. Við
verðum lítið vör við þessi nýju störf
inni á vinnumarkaðnum,“ segir Gunn-
ar.
Fleiri störf á lausu en áður
Lausum störfum fjölgar á ný Á fjórða hundrað störf á skrá Vinnumálastofn-
unar Yfir 11 þúsund manns skráðir atvinnulausir Lítið um ný störf í boði
Morgunblaðið/Ernir
Fjöldi auglýsinga á starfatorg.is
50
Heimild. www.starfatorg.is
100
150
200
250
Fjöldi birtra greina með auglýsingum í mánuði, stundum fleiri en ein
auglýsing í sömu grein. Endurbirtar auglýsingar ekki taldar með.
2006 2007 2008 2009 2010 2011
jan -ág.
0
145
205
37
75
Auglýsingar eftir mánuðum frá ársbyrjun 2006
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2011
Prag
Kr. 74.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Ilf í 3 nætur með morgunverði.
29. september í 3 nætur
Heimsferðir bjóða helgarferð til Prag í beinu flugi í haust, ellefta árið
í röð. Haustið er einstakur tími til að heimsækja borgina, sem er
einstaklega falleg og iðandi af lífi. Í Prag er hagstætt verðlag og þar
eru frábær tækifæri til að gera hagstæð innkaup og njóta lífsins í mat
og drykk.
Mörg hótel í boði - Spennandi kynnisferðir
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Frábært verð
Jarðskjálftavirkni í eldstöðinni
Kötlu í Mýrdalsjökli hefur að und-
anförnu verið meiri en venja er og
hafa smáskjálftar mælst nokkuð
reglulega á svæðinu.
Einar Kjartansson, jarðeðlisfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir
talsverðan fjölda smáskjálfta hafa
mælst við eldstöðina og að hrina
jarðskjálfta hafi t.a.m. mælst síðast-
liðinn laugardag. „Þá var stærsti
skjálftinn 3,2 og það var annar álíka
stór á fimmtudaginn var,“ segir Ein-
ar. Skjálftinn á laugardag leiddi af
sér talsverða hrinu smærri skjálfta.
„Það var svolítil hrina í kringum
þennan seinni. Við mældum upp
undir tíu skjálfta á undan og eftir
þessum stærsta á um það bil tuttugu
mínútna tímabili.“
Spurður hvort um sé að ræða
kvikuinnstreymi segir Einar erfitt
að slá því föstu að svo stöddu. „Við
vitum það í sjálfu sér ekki en það er
ekki ólíklegt að þetta tengist inn-
skotum.“
Erfitt er að segja til um framvindu
málsins en náið hefur verið fylgst
með Kötlu frá því að hún fór að
minna reglulega á sig. Einar segir þó
líklegast að smám saman muni draga
úr þessari virkni. khj@mbl.is
Hrina við
Kötluöskju
Faraldur HIV-smits er nú meðal
sprautufíkla hér á landi og fjölgar
nýsmitum ört meðal þess hóps.
Magnús Gottfreðsson, sérfræðingur
í smitsjúkdómum á Landspítala og
prófessor við læknadeild Háskóla Ís-
lands, segir að samkvæmt nýjustu
tölum hafi 17 einstaklingar verið
greindir með HIV-smit á þessu ári
og þar af eru fíkniefnaneytendur 13
talsins.
„Í raun og veru hafa aldrei greinst
fleiri fíkniefnaneytendur með nýsmit
en á þessu ári,“ segir Magnús og
bendir á að tíu fíklar hafi greinst
með HIV-smit árið 2010. Nýverið
hitti Magnús starfsfélaga sína á Kar-
ólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
þar sem honum var m.a. greint frá
því að fjórir fíkniefnaneytendur
hefðu greinst með HIV-smit þar í
landi á þessu ári en íbúafjöldi þar er
rúmar níu milljónir.
Magnús segir að þegar HIV-smit
berist í hóp fíkla sé útbreiðsluhraði
innan hópsins mun meiri en innan
annarra hópa. „Reynslan segir okk-
ur að um leið og smit berst í hóp
fíkniefnaneytenda breiðist smit
hratt út, sérstaklega vegna þess að
fólk samnýtir sprautur og nálar.“
khj@mbl.is
Faraldur
HIV-smita