Morgunblaðið - 05.09.2011, Síða 10
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Fyrsta uppboð vetrarins
Listmunauppboð
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
mánudaginn 5. september, kl. 18
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
ÞorvaldurSkúlason
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna
svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Skógarálfar Hér hvíla þeir lúin bein á gildum trjábol og tíkin Dimma er verkstjóraleg. F.v Einar, Óskar og Níels.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við erum hálfgerðir skógar-álfar, enda höldum við aðmestu til hér í skóginum,“segir Einar Óskarsson,
verkstjóri í Haukadalsskógi í Bisk-
upstungum, þar sem blaðamaður
hittir hann fyrir hátt uppi í hlíð í
skóginum. Þar er hann í herklæðum
skógarhöggsmannsins og vopnaður
vélsög. Með honum eru starfsmenn-
irnir Óskar sonur hans og Níels
Magnús Magnússon. „Við erum að
fjarlægja stæður af trjábolum sem
hafa verið hér síðan í nóvember þegar
grisjað var í miklum snjóalögum og
við erfiðar aðstæður. Við þurfum að
saga greinarnar af trjánum og saga
bolina niður í réttar stærðir svo þeir
passi á vagninn sem þeir eru fluttir
á.“
Naglaspýtan notuð á Írana
Hann neitar því ekki að starf
skógarhöggsmannsins sé mikil og
erfið vinna. „Það geta verið um 4.800
tré á einum hektara og við grisjun
þurfum við að koma þeirri tölu niður í
1.200-1.500 tré. Í Haukadalsskógi eru
750 hektarar skógivaxið land, svo það
er nóg að gera. Maður nennir ekkert
að vera í þessum skógi upp á eitthvert
gauf, við erum ekkert að bora í nefið
hérna,“ segir Einar og bætir við að í
raun hafi verið farið allt of seint inn í
skóginn til að grisja, verkefnin hafi
safnast upp í mörg ár. „Við komumst
fyrst inn í 21 öldina fyrir tveimur ár-
um þegar við fengum góðan vagn
Við erum ekkert
að bora í nefið
Þau eru ærin verkefni skógarhöggsmannanna sem vinna við að grisja Hauka-
dalsskóg. Þeir fella tré, saga þau niður í borð, kurla þau og búa til brautir og stíga
fyrir útivistarfólk. Einar verkstjóri gistir einn í skóginum og kippir sér ekki upp
við draugagang og stríðni hálftröllsins Bergþórs í Bláfelli.
Tekið á Einar sagar greinar af tré sem hann felldi og var ekki lengi að því.
Írski vegurinn Írsku þrælarnir gerðu veg og lund í sumar.
Tónlist getur haft ótrúlega mikil
áhrif á skapið. Oft lætur tónlistin
manni líða vel eða hjálpar manni
að slappa af. Stundum kemur hún
manni í stuð og einstaka sinnum
verður maður bara æstur og pirr-
aður af því að hlusta á eitthvað.
Forsvarsmenn vefsíðunnar mu-
sicovery.com virðast vera með
þetta allt saman á hreinu. En inni
á síðunni getur maður valið sér
lagalista til að hlusta á, allt eftir
því hvort maður vill slappa af eða
hressa sig við. Ekki nóg með að
maður geti valið lög eftir skapinu
hverju sinni getur maður líka valið
sér ákveðið tímabil og jafnvel horf-
ið aftur allt til fimmta áratugarins.
Sniðug og skemmtileg síða fyrir
tónlistaráhugafólk svo og þá sem
langar bara að létta sér daginn dá-
lítið og gera lífið betra með góðri
tónlist.
Vefsíðan www.musicovery.com
Afslöppun Þessi hlýtur að vera að hlusta á eitthvað róandi.
Lagalisti eftir þínu skapi
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Í hádeginu á morgun mun Pétur
Thomsen segja frá tilurð sýning-
arinnar Ásfjall sem nú stendur í
Myndasal Þjóðminjasafns Íslands. En
þetta er fyrsti hádegisfyrirlestur
vetrarins í röðinni Fræðslufyrirlestrar
Þjóðminjasafns Íslands.
Tákn óraunhæfra áforma
Frá vorinu 2008 hefur Pétur með
tilstyrk Þjóðminjasafns Íslands fylgst
með og ljósmyndað framkvæmdir á
Ásfjalli í Hafnarfirði. Þegar hug-
myndin kviknaði snerist hún fyrst og
fremst um að ljósmynda hverfi í
byggingu og áhrifin sem bygging-
arframkvæmdirnar hafa á allt um-
hverfið. Atburðir í samfélaginu
breyttu hins vegar framkvæmdunum
í eitthvað annað og meira. Hálfbyggð
og mannlaus hverfi í útjaðri höfuð-
borgarsvæðisins urðu tákn óraun-
hæfra áforma. Í stað bjartsýni urðu
vonbrigðin myndefni ljósmyndarans.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Fyrirlestur
Ófrágengið Pétur fangar augnablikið í myndum sínum.
Vonbrigðin urðu myndefni