Morgunblaðið - 06.09.2011, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 208. tölublað 99. árgangur
SPILAR ÞJÓÐLÖG
Í LISTASAFNI
SIGURJÓNS
ORKUMIKIL
MEÐ MARGAR
HUGMYNDIR
ÁHUGAKONA UM
MATARGERÐ OG
HOLLT LÍFERNI
BREIÐSKÍFA 32 PLÖNTUEFNI OG FORVARNIR 10ÞÓRARINN OG ÞJÓÐLÖGIN 30
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Landsdómur kom saman í gærmorg-
un til að fjalla um kröfu lögmanns
Geirs H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, um að máli Alþingis
gegn Geir yrði vísað frá og að allur
málskostnaður
yrði greiddur
úr ríkissjóði.
Sigríður J.
Friðjónsdóttir,
saksóknari Al-
þingis, telur að
málið eigi að fá
efnislega um-
fjöllun í Lands-
dómi og segir
enga ástæðu til
að vísa því frá.
Gert hafði
verið ráð fyrir
að aðalmeðferð
myndi hefjast í
haust, en nú er beðið niðurstöðu
Landsdóms um hvort málinu verði
vísað frá eða ekki. Niðurstaða mun
að öllum líkindum liggja fyrir eftir
þrjár vikur.
Andri Árnason, lögmaður Geirs,
segir að rannsókn málsins sé veru-
legum annmörkum háð. Engin
skýrsla hafi verið tekin af ákærða og
lögboðinn rökstuðning skorti fyrir
einstökum ákæruatriðum
„Ég lít svo á að búið sé að snúa
sönnunarbyrðinni við og að hann eigi
að sanna sakleysi sitt,“ segir Andri.
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksókn-
ari Alþingis, segir að verjandi Geirs
hefði auðveldlega getað farið fram á
að Geir fengi að skýra mál sitt. Morgunblaðið/RAX
Verði
vísað
frá
Landsdómur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Andri Árnason, verjandi hans. Farið var fram á að
málinu yrði vísað frá á grundvelli annmarka á málatilbúnaði, auk óljósra réttarfarsreglna og skorts á rökstuðningi.
Saksóknari: Engin
ástæða til frávísunar
Landsdómur kom saman í gær vegna frávísunarkröfu lögmanns Geirs H. Haarde
MFarið fram á frávísun » 6
„Vissulega er
þetta fyrir-
komulag tals-
vert öðruvísi en
í sakamálum al-
mennt“
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Ekki eru horf-
ur á að eig-
inlegar samn-
ingaviðræður við
Evrópusam-
bandið um land-
búnaðarmál hefj-
ist í bráð, en
sambandið telur
að Ísland sé ekki
nægilega und-
irbúið til að viðræður geti hafist.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra sagði fyrr á þessu ári,
þegar formlegar viðræður hófust,
að hann vildi að strax yrði byrjað
að ræða erfiðustu málin, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarmál. Jón
Bjarnason landbúnaðarráðherra
vill að ESB útskýri betur yfirlýs-
ingu sína. »2
Ekki hægt að ræða
landbúnaðarmál
Jón Bjarnason
Hátt í 300 störf voru laus hjá
vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í
gær, þrátt fyrir að atvinnuleysi
mælist meira en 6%. Flest lausu
störfin voru fyrir ófaglærða eða
40%.
Illa hefur gengið að fá fólk til
að vinna á frístundaheimilum í
Reykjavík, að sögn Evu Ein-
arsdóttur, formanns íþrótta- og
tómstundaráðs. Enn er eftir að
ráða í um 40 stöður en aðallega er
um að ræða 50% stöður. Þetta hef-
ur þau áhrif að enn eru um 350
börn á biðlista eftir plássi á frí-
stundaheimili í og við grunnskóla.
»16
Flest laus störf eru
fyrir ófaglærða
Unnið er að því að koma upp sér-
stakri miðstöð í Reykjavík þar sem
sprautufíklar geti komið allan sólar-
hringinn og sprautað sig, að sögn
Þórs Gíslasonar, verkefnisstjóra
Heilsuhýsisins sem Reykjavíkur-
deild Rauða kross Íslands stendur
fyrir. Slík úrræði hafa gefið góða
raun erlendis. Sautján einstaklingar
hafa verið greindir með HIV-smit á
þessu ári hér á landi, þar af eru
fíkniefnaneytendur þrettán talsins.
„Við getum kannski aldrei algjör-
lega upprætt svona vandamál en við
verðum að reyna að lágmarka skað-
ann og útbreiðsluna. Það beinist
annars vegar að því að takmarka út-
breiðsluna innan hóps fíkla og svo
útbreiðsluna með kynmökum,“ segir
Magnús Gottfreðsson, sérfræðingur
í smitsjúkdómum á Landspítala.
Magnús segir að kannski verði
aldrei hægt að uppræta svona
vandamál en menn verði að reyna
að lágmarka skaðann, takmarka út-
breiðsluna meðal fíkla og útbreiðslu
sem kynmök valda. Hvert smit
kostar heilbrigðiskerfið 160 milljón-
ir.
„Til að koma í veg fyrir út-
breiðslu HIV-veirunnar þarf að
auka fræðslu um gagnsemi smokka
og gera þá aðgengilegri, bæta þarf
aðgengi fíkla að ókeypis sprautum
og nálum og aðgengi þeirra að fé-
lags- og heilbrigðisþjónustu.“ »12
Sprauti sig inni á miðstöðinni
Víða erlendis geta fíklar farið inn á miðstöðvar Opnar allan sólarhringinn
Morgunblaðið/Ómar
Eitur Sprautur geta borið smit.
Tann-
læknastofunni
Nordic Smile á
Höfðatorgi var
lokað fyrir rúm-
um mánuði. Von-
ast er til að starf-
semi stofunnar,
sem átti að mestu
að byggjast á út-
lendum viðskiptavinum, hefjist á
nýjan leik um miðjan þennan mán-
uð. Verið er að endurskipuleggja
allan reksturinn.
Um 200 manns höfðu leitað til
stofunnar. Aðgerðum var lokið á
hluta viðskiptavina, öðrum var vís-
að annað og örfáir hafa þurft að
bíða, að sögn Ólafs Ólafssonar sam-
eindalíffræðings. »4
Tannviðgerðir bíða
endurskipulags
Það verður nokkuð erfitt og
kostnaðarsamt að búa til golfvöll á
Grímsstöðum á Fjöllum. Þetta er
mat Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings. Hann segir að það sé oft kalt
á Grímsstöðum en ekki sérlega
snjóþungt. Aðalvandinn á golfvöll-
unum sé oft frostlyfting á flöt-
unum. Á golfvelli Akureyringa
hafa menn líka þurft að takast á
við kal sem var mjög mikið í vet-
ur. »2
Dýrt að gera golfvöll
á Grímsstöðum