Morgunblaðið - 06.09.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011
Degi er tekið að halla og þrátt fyrir sólskin og
blíðu í höfuðborginni í gær fer ekki á milli mála
að haustið er að nálgast. Margir skelltu sér í
sund, hér eru nokkrir gestir í Árbæjarlauginni í
gærkvöld. Ljósin í lauginni gera umhverfið hlý-
legra og fækka vafalaust árekstrum.
Morgunblaðið/Eggert
Kvöldsund í Árbæjarlauginni
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagðist í fyrirspurn-
artíma á Alþingi í gær ekki ætla að
leggja það á þing og þjóð að fara að
munnhöggvast við forseta Íslands.
Þetta kom fram í svari Steingríms
við fyrirspurn Bjarna Benedikts-
sonar, formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, vegna ummæla forsetans í fjöl-
miðlum um að stjórnvöld hafi beygt
sig fyrir ofbeldi af hálfu Hollend-
inga og Breta í Icesave-málinu.
„Þetta hlýtur að kalla á viðbrögð
frá ríkisstjórninni,“ sagði Bjarni.
Steingrímur sagði fullsnemmt að
menn krýndu sig sjálfskipaða sig-
urvegara í Icesave-málinu.
Ætlar ekki að munn-
höggvast við forseta
vegna Icesave
„Það er prýðilega starfhæf rík-
isstjórn í landinu og það stendur
ekki til að láta einhverja pörupilta
og stráka komast upp á milli stjórn-
arflokkanna.“ Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra lét þessi
orð falla í svari við fyrirspurn Sig-
urðar Kára Kristjánssonar, Sjálf-
stæðisflokki, á Alþingi í gær. Sig-
urður Kári hafði spurt Steingrím
hvort hann styddi harða gagnrýni
þingflokks VG á iðnaðarráðherra
fyrir að setja stjórn Byggðastofn-
unar af og hins vegar ályktun
flokksráðs VG um skipun rannsókn-
arnefndar til að rannsaka aðdrag-
anda þess að íslensk stjórnvöld
samþykktu hernaðaraðgerðirnar í
Líbíu. Spurður um ummæli Stein-
gríms um „pörupilta og stráka“
segist Sigurður Kári í fyrstu hafa
velt því fyrir sér að fá að bera af
sér sakir. „En svo áttaði ég mig á
því að hann var auðvitað að lýsa
þeim sem sömdu og samþykktu
ályktunina.“
Út fyrir eðlilegt umboð
Steingrímur sagði í svari sínu að
skiptar skoðanir hefðu verið á
breytingunum á Byggðastofnun og
þetta því ekki átt að koma á óvart.
Um Líbíu sagði hann að VG hefði
lagst gegn því að NATO tæki við
stjórn mála og í vissum tilvikum
hefði verið farið út fyrir það umboð
sem eðlilegt væri miðað við ályktun
Öryggisráðs SÞ.
Sigurði Kára finnst ekki mikið til
svarsins koma. „Mér finnst alveg
ótrúlegt hversu lítið er úr því gert
þegar samstarfsflokkur ályktar
beinlínis gegn tveimur sitjandi ráð-
herrum í hinum stjórnarflokknum.
Ef slík staða kæmi upp á öðrum
þjóðþingum þá væri komin stjórn-
arkeppa í viðkomandi landi. Stein-
grímur tók undir þessar ályktanir
og þar með að það væri eðlilegt að
embættisfærslur samráðherra hans
yrðu rannsakaðar,“ segir hann.
„Var að lýsa
þeim sem sömdu
ályktunina“
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Viðskiptavinir Nordic Smile tann-
læknastofunnar á Höfðatorgi hafa
sennilega ekki brosað sérstaklega
breitt eftir að stofunni var lokað
fyrir rúmum mánuði. Vonir standa
þó til að fjárhagsleg endurskipu-
lagning takist á næstu dögum og
starfsemi hefjist á ný um miðjan
þennan mánuð.
Fyrirtækið byggist á sænsku
hugviti við tannígræðslur og var
miðað við að kostnaður við
ígræðslur yrði um þriðjungur af
því sem gerist í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Hugmyndin var
að tengja aðgerðirnar við ferða-
þjónustu og upplifun ferðamanns-
ins á Íslandi. Tveir sænskir tann-
læknar störfuðu á stofunni, auk
framkvæmdastjóra og íslensks að-
stoðarfólks.
Ólafur Ólafsson sameindalíf-
fræðingur hefur undanfarið komið
að fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu Nordic Smile. Hann segir að
verið sé að ganga frá lausum end-
um þessa dagana. „Það er verið að
endurskipuleggja fyrirtækið með
nýju fjármagni og verið að fara yf-
ir reksturinn frá a til ö,“ segir
Ólafur.
Hann segir að um 200 viðskipta-
vinir hafi leitað til fyrirtækisins frá
því að það var opnað síðastliðinn
vetur, svipað hlutfall Íslendinga og
útlendinga. Aðalmarkhópur fyrir-
tækisins er útlendingar, en Ólafur
segir að ekki hafi reynst unnt að
fara í markaðssetningu erlendis og
hlutfall útlendinga því ekki verið
eins hátt og að var stefnt. Hann
segir að aðgerðum hafi verið lokið
á hluta viðskiptavina, öðrum hópi
hafi verið vísað annað og örfáir
hafi verið látnir bíða þar til end-
urskipulagningu fyrirtækisins lyki.
Aðspurður segir hann stefnt að
því að fyrirtækið verði opnað á ný
um miðjan þennan mánuð í Höfða-
torgi. Þegar stofan hafi verið opn-
uð í febrúar í fyrravetur hafi verið
þar tíu tannlæknastólar, en selj-
andinn hafi nú tekið hluta þeirra
til sín.
Leitað til Tannlæknafélagsins
Samkvæmt upplýsingum Sigurð-
ar Benediktssonar, formanns
Tannlæknafélags Íslands, eru
dæmi um að fólk hafi snúið sér til
Tannlæknafélagsins eftir að stof-
unni var lokað í lok júlímánaðar.
Þar sem um erlenda tannlækna
hafi verið að ræða hafi fólki verið
vísað á embætti landlæknis.
Endurskipuleggja reksturinn
Útlendingar aðalmarkhópur tannlæknastofunnar á Höfðatorgi 200 viðskiptavinir hafa leitað til
Nordic Smile Lokað frá því í júlílok, en stefnt að því að hefja þjónustu á ný um miðjan mánuðinn
Skola Úr tannlæknastofunni.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við settum bílinn bara á sölu í sum-
ar einhvern tímann og meðal annars
inn á þessa síðu og höfðum aldrei
fengið nein viðbrögð við því nema
frá þessum ágæta manni í Bret-
landi,“ segir Kristín Ágústsdóttir,
blaðamaður, sem lenti í því að reynt
var að svíkja fé út úr henni í
tengslum við kaup á bifreið hennar.
Karlmaður frá Bretlandi hafði
samband við Kristínu og eiginmann
hennar í gegnum tölvupóst vegna
auglýsingar á vefnum Torgið.is og
sagðist hafa áhuga á að kaupa bif-
reið þeirra hjóna. Lýsti hann mikl-
um áhuga á henni og bað um Paypal-
reikning til þess að geta borgað.
Fengu strax efasemdir
Kristín segir að þau hafi strax
fengið grunsemdir um að um svindl
væri að ræða en maðurinn hafi hald-
ið áfram að hafa samband við þau.
Þau hafi því ákveðið að lokum að láta
reyna á þetta með því að gefa honum
upp PayPal-reikningsnúmer enda
um að ræða þjónustu sem er talin
mjög traust.
Í kjölfar þess hafi þau fengið
tölvupóst með staðfestingu á að
greitt hafi verið fyrir bifreiðina en
áður en hægt yrði að millifæra upp-
hæðina inn á reikning þeirra hjóna
þyrftu þau að leggja inn ákveðna
upphæð, sem nam ríflega eitt hundr-
að þúsund krónum, inn á ákveðinn
reikning fyrir flutningskostnaði á
bifreiðinni til Bretlands.
Þau höfðu þá samband við PayPal
og fengu staðfest að um svindl væri
að ræða. Að sögn Kristínar var um-
ræddur tölvupóstur þó úthugsaður
sem og málatilbúningurinn allur.
Fengu falska PayPal-
kvittun fyrir bílnum
Maður í Bretlandi reyndi að svíkja út bíl í gegnum netið
Ljósmynd/Skjámynd af vef PayPal
Netið PayPal er vinsæl greiðslu-
miðlunarsíða.
Lögreglan í Reykjanesbæ hafði síð-
degis á sunnudag afskipti af korna-
barni sem skilið var eftir úti í bíl við
veitingahús í bænum. Við eftir-
grennslan lögreglu kom í ljós að for-
eldrarnir voru inni á veitingahúsinu
að borða.
Þegar lögreglumenn komu á vett-
vang perlaði sviti af barninu og það
var rautt í andliti af hita en sólin
skein inn um rúður bílsins og í andlit
barnsins. Þá var barnið mikið klætt
og augljóslega orðið mjög heitt.
Að sögn lögreglu gáfu foreldrar
barnsins þær skýringar að barnið
hefði verið sofandi þegar þau fóru úr
bílnum, en þau hefðu litið reglulega
eftir því meðan þau voru að borða.
Lögreglan tilkynnti atburðinn til
barnaverndarnefndar, en ekki er
talið að eftirmál verði vegna þessa.
Skildu
barn eftir
úti í bíl
Foreldrarnir
voru úti að borða