Morgunblaðið - 06.09.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011
Sigurður Kári Kristjánsson komgreinilega við kaunin á Stein-
grími J. Sigfússyni í fyrirspurn-
artíma Alþingis í gær. Sigurður
Kári velti því upp og óskaði svara
við því hvort og þá
hvaða afleiðingar
tvær nýlegar álykt-
anir flokksstofnana
Vinstri grænna
kynnu að hafa.
Önnur ályktuninbeindist gegn
Katrínu Júl-
íusdóttur iðn-
aðarráðherra, en í
henni gagnrýndi
þingflokkur VG
breytta skipan í
stjórn Byggðastofn-
unar. Hin ályktunin
sneri að störfum
Össurar Skarphéðinssonar utanrík-
isráðherra og þar krafðist flokks-
ráð VG meðal annars rannsóknar á
embættisfærslum ráðherrans.
Sigurður Kári taldi sem von eraugljóst að í ályktununum fæl-
ist vantraust í garð ráðherranna
tveggja og vildi vita hvort Stein-
grímur væri samþykkur álykt-
ununum. Ekki var annað á honum
að skilja en svo væri.
Steingrímur klykkti út meðþeirri fjarstæðu í umræðunum
að segja ráðherrana tvo njóta
„fyllsta trausts“ VG, og bætti við:
Það er prýðilega starfhæf rík-isstjórn í landinu og það stend-
ur ekki til að láta einhverja pöru-
pilta og stráka komast upp á milli
stjórnarflokkanna.“
Hverjir eru pörupiltarnir semreyna að spilla stjórnarsam-
starfinu? Ætli það séu nokkuð þeir
sem ítrekað álykta gegn samráð-
herrum sínum?
Sigurður Kári
Kristjánsson
Hverjir eru
pörupiltarnir?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 5.9., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 11 skýjað
Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað
Vestmannaeyjar 11 skýjað
Nuuk 3 skúrir
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 16 skúrir
Kaupmannahöfn 17 súld
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 12 skúrir
Glasgow 15 skýjað
London 17 léttskýjað
París 18 léttskýjað
Amsterdam 17 skúrir
Hamborg 16 skúrir
Berlín 17 skúrir
Vín 18 þrumuveður
Moskva 13 skýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 17 skúrir
New York 26 léttskýjað
Chicago 16 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:25 20:29
ÍSAFJÖRÐUR 6:24 20:39
SIGLUFJÖRÐUR 6:07 20:23
DJÚPIVOGUR 5:53 19:59
Þingmennirnir Þór Saari og Þráinn
Bertelsson, sem sitja í allsherj-
arnefnd Alþingis, fengu það m.a. í
gegn að í áliti nefndarmeirihlutans
um frumvarp um ný stjórnarráðslög
var lagt til ákvæði um að fundir rík-
isstjórnar skuli teknir upp. Verði
upptökurnar geymdar bak við lás og
slá á Þjóðskjalasafninu í 30 ár en þá
opnaðar öllum.
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, var spurður hvort hann
vissi til þess að sams konar ákvæði
væru í lögum einhverra grannþjóða.
Hann sagðst ekki telja það en tók
fram að hann hefði ekki kannað
þetta mál sérstaklega.
Þór Saari var spurður hvort áhrif-
in af ákvæðinu yrðu ekki einfaldlega
að ráðherrarnir myndu stundum
halda tvo fundi, einn fyrir upp-
tökutækin og annan fyrir sig.
„Það getur vel verið, þetta segja
menn alltaf þegar verið er að kveða
á um meira gagnsæi,“ svaraði Þór.
„Þá eru þessi rök alltaf dregin upp.
Þetta þýði ekki neitt af því að menn
muni bara flytja sig aftur yfir í reyk-
fylltu bakherbergin. En eru það rök
fyrir því að gera þetta ekki? Það er
náttúrlega aldrei hægt að koma al-
gerlega í veg fyrir að fólk fari í
kringum lögin. En því þrengri
stakkur sem mönnum er sniðinn
þeim mun líklegra er að þeir fari að
lögum.“ kjon@mbl.is
Ríkisstjórnarfundir fyrir upptökutækin?
Þór Saari segir að ákvæði um upp-
tökur sé til bóta og auki gegnsæi
Sannleikurinn Allt tekið upp.
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Af þeim 503 milljörðum sem fjár-
málastofnanir afskrifuðu á árunum
2009 og 2010 voru 25 milljarðar í
byggingastarfsemi, 30 milljarðar í
verslun, 10 milljarðar í sjávarútvegi,
34 milljarðar vegna fasteignafélaga,
20 milljarðar vegna þjónustu, fjár-
málastarfsemi, samgangna og flutn-
inga, 16 milljarðar vegna iðnaðar,
landbúnaðar og matvælaiðnaðar og
346 milljarðar sem flokkaðir eru und-
ir annað. Stærstur hluti þessara 346
milljarða er vegna eignarhalds-
félaga.
Þetta kemur fram í svari Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármálaráð-
herra við fyrirspurn Einars K. Guð-
finnssonar, alþingismanns
Sjálfstæðisflokksins.
Í svarinu kemur fram að afskriftir
vegna einstaklinga námu rúmlega 22
milljörðum á þessum tveimur árum,
en 481 milljón til lögaðila. Á árunum
2006-2008 voru heildarafskriftir í
bankakerfinu 2,4 til 6 milljarðar
króna árlega.
Svarið er byggt á upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu. Stofnunin vekur
athygli á að fyrir árin 2006–2008 eru
tölur frá tveimur stærstu bönkunum
en fyrir árin 2009–2010 eru
tölur frá þremur stærstu bönkun-
um. Enn fremur lætur stofnunin þess
getið að upplýsingunum beri að taka
með þeim fyrirvara að bankarnir
kunni að gefa sér mismunandi for-
sendur við útreikning á afskriftum.
Eignarhaldsfélög voru skráð fyrir
hlutabréfum og ýmsum öðrum eign-
um. Mörg þessara félaga voru mjög
skuldsett og fóru lóðbeint á hausinn
þegar hlutabréf þeirra urðu verðlaus.
Hafa afskrifað
503 milljarða
Mest vegna eignarhaldsfélaga
Mikið um gjaldþrot
» Samkvæmt tölu Hagstofu
Íslands urðu 748 fyrirtæki
gjaldþrota árið 2008, 910 árið
2009 og 982 í fyrra. Það sem
af er þessu ári hafa 938 fyr-
irtæki orðið gjaldþrota.
» Þessar tölur benda til þess
að miklar afskriftir verði hjá
fjármálastofnunum á þessu
ári.
Heimsferðir bjóða frábæra 8 nátta ferð til Costa
del Sol þann 20. september. Í boði er einstakt
sértilboð á Griego Mar hótelinu. Gríptu þetta
tækifæri og skelltu þér í frábæra ferð til Costa del
Sol og njóttu lífsins á hreint ótrúlegum kjörum.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða / herbergja
í boði - verð getur hækkað án fyrirvara.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Costa del Sol
Allra síðustu sætin
20. september í 8 nætur
Verð kr.107.400 - með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi
með „öllu inniföldu“ í 8 nætur. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með
„öllu inniföldu“ kr. 124.900.
Hótel Griego Mar HHH
Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins
í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum.
Frá kr. 107.400 með allt innifalið