Morgunblaðið - 06.09.2011, Side 11
Morgunblaðið/Golli
Indversk matargerð Í karríkryddblöndunni er allt það krydd sem hefur
hvað mesta virkni eins og t.d. engifer, hvítlaukur, túrmerik og fleira.
rannsóknir sýna að krabbamein
myndast mjög oft í slíkum bólgum.
Vestrænt mataræði inniheldur mikið
af ómega-6 fitusýrum sem eru í
miklu magni í ákveðnum tegundum
af matarolíum og eiginlega öllum
skyndibita og feitum dýraafurðum.
Masala fullt af góðum efnum
„Ég er ekki grænmetisæta en
ég borða mikið af fiski og reyni að
lágmarka neyslu á kjöti. Ég elda
mikið af indverskum mat en aðferðir
í indverskri matargerð hámarka alla
þá eiginleika sem maður vill ná fram
í matnum. Í karríkryddblöndunni
eru allt það krydd sem hefur hvað
mesta virkni eins og t.d. engifer,
hvítlaukur, túrmerik og fleira.
Svartur pipar, sem er yfirleitt
með í karríblöndunni, magnar líka
upp áhrif túrmeriksins svo og olían
sem maður byrjar á að steikja í lauk
og hvítlauk og bætir síðan kryddinu
út í. Loks bætast tómatar líka út í
blönduna og eldaðir tómatar hafa
mikið af lýkópeni sem er talið vinna
gegn blöðruhálskirtilskrabbameini,“
segir Þórunn. Staðfest hafa verið yf-
ir 1.000 plöntuefni í litríkum fæðu-
tegundum. Í aðeins einni fæðuteg-
und eins og t.d. tómötum geta verið
yfir 100 slík efni sem vinna hvert
með öðru. Þórunn segir tengsl mat-
ar og krabbameins hafa verið rann-
sökuð um allan heim en fræðimenn í
Bandaríkjunum hafi verið sér-
staklega ötulir í útgáfu um þessi
mál.
Matur á að skemmast
Aðspurð hvort Þórunni hafi
fundist erfiðara að fylgja slíku mat-
aræði eftir að hafa vanist miklu úr-
vali grænmetis og ávaxta í Banda-
ríkjunum segir hún að það hafi
vissulega verið viðbrigði. En á móti
komi að hún hafi getað aðlagað mat-
aræðið íslensku hráefni.
„Ég var orðin vön að geta keypt
margar ákveðnar tegundir af berj-
um t.d. en hér heima breytir maður
bara aðeins til. Íslenska grænmetið
er mjög gott og ég tók líka eftir því
þegar ég kom heim að maturinn
skemmdist alltaf miklu fyrr sem er
betra því að matur á náttúrlega að
skemmast. Þetta sýnir manni að það
er mun minna af ýmiss konar við-
bættum efnum í matnum hér. Maður
þarf að passa sig betur í Bandaríkj-
unum hvað maður kaupir inn en það
er kostur við það að búa í Evrópu að
lagasetningin er öðruvísi og betri
hvað þetta varðar,“ segir Þórunn. Á
vefsíðu Þórunnar má finna ýmiss
konar upplýsingar og uppskriftir en
hún heldur nú einnig námskeið á
vegum Krabbameinsfélagsins þar
sem hún miðlar fræðslu sinni og góð-
um ráðum til fólks.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011
Vestmannaeyjahlaup verður haldið í
fyrsta sinn næsta laugardag 10. sept.
Boðið verður upp á 5, 10 og 21 km.
Leiðin er sögð vera mjög falleg og
einstaklega skemmtileg. Hlaupið
hefst við Íþróttamiðstöðina kl. 12 og
eru öll hlaupin ræst á sama tíma.
Einnig verður á laugardaginn hið
svokallaða Hafnarhlaup á Höfn í
Hornafirði en það er hluti af ÍFormi,
árlegu fjölgreinaíþróttamóti fyrir 30
ára og eldri. Hafnarlaupið er 12,6 km
og verður hlaupið frá Sindravöllum
kl. 10.00 og endað á sama stað.
Hlaupaleiðin er fjölbreytt og
skemmtileg en hlaupið er hringinn í
kringum bæinn að mestu á göngu-
stígum en einnig að hluta til á götum
bæjarins. Vert er að taka fram að til
mikils er að vinna, því í verðlaun
verður Hornafjarðarhumar í kílóavís.
Nánari upplýsingar á www.iformi.is
Hlaup í Vestmannaeyjum og á Höfn um næstu helgi
Morgunblaðið/Golli
Hlaup Það er gaman að taka þátt í allskonar hlaupum, á hinum ýmsu stöðum
um landið. Hér má sjá glaðbeitt fólk hlaupa í Krabbameinshlaupinu í sumar.
Hornafjarðarhumar í verðlaun
Hélène Magnússon fjallaleið-
sögumaður, hönnuður og
eigandi prjónaritsins
prjonakerling.is, gerði sér lít-
ið fyrir og fór með tólf manna
hóp í prjónaferð yfir Fimm-
vörðuháls í ágúst. Hún gekk
með hnykilinn í handarkrik-
anum, rétt eins og konur
gerðu hér áður fyrr og prjón-
aði heila peysu á leiðinni sem
hefur fengið nafnið Fimm-
vörðuháls. Eðli málsins sam-
kvæmt var ekki gengið eins
hratt og gert hefði verið ef
engir hefðu verið prjónarnir
en það var líka stoppað reglu-
lega á göngunni til að setjast
niður og prjóna. Tólfmenning-
arnir sem skelltu sér í prjóna-
ferðina voru frá ýmsum horn-
um heimsins, Evrópu,
Norður-Ameríku og Skandinavíu. Vert er að taka fram að ferðirnar eru líka opn-
ar Íslendingum og á döfinni eru bæði haustprjónaferð á láglendinu sem og
vetrarprjónaferð í Landmannalaugar en þá verður prjóni og gönguskíðum
blandað saman. Prjónaferðirnar fer Hélène í samstarfi við Íslenska fjallaleið-
sögumenn og í þessum ferðum kynnist fólk Íslandi, náttúrunni, íslenskri
menningu og situr prjónanámskeið. Nánari upplýsingar www.prjonakerling.is
Fjallganga með prjónaívafi
Gamla góða Hér prjónar hluti af gönguhópnum í baðstofu Skógasafnsins.
Fær Hélène finnst ekkert mál að ganga og
prjóna á sama tíma eins og sjá má hér.
Vel lukkuð fjölþjóðleg prjóna-
ganga á Fimmvörðuháls
Sparibleikja
með rauðu
karríi og spínati
UPPSKRIFT
Sparibleikja Fiskur er í miklu
uppáhaldi hjá Þórunni.
Fiskur er í miklu uppáhaldi hjá
Þórunni og er þessi uppskrift
fengin af vefsíðu hennar. Upp-
skriftin inniheldur meðal annars
spínat og túrmerik sem hvort
tveggja er krabbameinshaml-
andi.
Uppskrift fyrir 4
4 lítil bleikjuflök
salt og nýmalaður svartur pipar
2 msk. extra virgin ólífuolía
1 msk. kókosolía
4 hvítlauksgeirar, marðir
1 tsk. ferskt engifer, rifið
½ ferskur rauður chili smátt
saxaður (má sleppa)
3 msk. rautt karrímauk
1 tsk. túrmerik
1 dós kókosmjólk
1 tsk. hrásykur
4 lime lauf (eða safi úr einni
límónu) 2 pokar spínat
1 msk. fiskisósa
1 msk. sojasósa
Aðferð Hitið ofninn upp í hæsta
mögulega hita og stillið á grill.
Merjið hvítlaukinn og látið hann
anda. Leggið bleikjuflökin í ofn-
skúffu og hellið extra virgin
ólífuolíu yfir. Kryddið með salti
og nýmöluðum svörtum pipar og
leggið til hliðar. Hitið kókosolíu
á wok-pönnu og steikið saman
hvítlauk, engifer, chili, karrí-
mauk, túrmerik og svartan pipar
í um 3 mínútur. Bætið spínati
saman við og látið spínatið
mýkjast upp. Bætið því næst
kókosmjólk, hrásykri, lime-
laufum, fiskisósu og sojasósu
saman við og látið suðuna koma
upp. Lækkið undir og látið malla
við lágan hita á meðan fiskurinn
grillast. Grillið fiskinn í ofni í um
þrjár til fimm mínútur eða þar til
hann er næstum grillaður í
gegn. Berið fiskinn fram á spí-
natbeði og skreytið með ferskri
steinselju.
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallar skattar. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.