Morgunblaðið - 06.09.2011, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011
Kvikmyndasafnið sýnir kvik-
myndina Onibaba (1964) eftir
Kaneto Shindo í kvöld, þriðju-
daginn 6. september, klukkan
20 og laugardaginn 10. sept.
klukkan 16. Í kynningu frá
safninu segir: „Onibaba var
auglýst hér heima sem hin um-
deilda japanska kvikmynd eft-
ir snillinginn Kaneto Shindo.
Hún var sögð hrottaleg og
bersögul á köflum og ekki fyrir nema taugasterkt
fólk. Leikstjórinn sagði í viðtali, 93 ára að aldri, að
viðfangsefnið væri maðurinn í frumstæðustu að-
stæðum sínum, þar sem manndráp væri óhjá-
kvæmilegur hluti lífsbaráttunnar en frumafl lífs-
ins væri kynhvötin.“
Kvikmyndir
Manndráp hluti af
lífsbaráttunni
Atemschaukel, nýjasta skáld-
saga Hertu Müller er komin út
í íslenskri þýðingu Bjarna
Jónssonar undir heitinu And-
arsláttur. Hún hlaut Nób-
elsverðlaunin í bókmenntum
árið 2009 og er gestur Bók-
menntahátíðarinnar í Reykja-
vík. Í verkinu fjallar hún um
Rúmeníu í lok seinni heim-
styrjaldarinnar og er sagan
sögð frá sjónarhóli þýskættaðs
Rúmena, en þeir voru allir sendir í þrælk-
unarbúðir til Sovétríkjanna á Stalíntímanum. En
á meðan kommúnistar réðu ríkjum mátti aldrei
minnast á þessa nauðungarflutninga enda þóttu
aðferðir kommúnista of líkar aðferðum nasista.
Bókmenntir
Nóbelsskáldið frá
Rúmeníu með bók
Bók Hertu Muller
Konfúsíusarstofnunin Norður-
ljós sýnir kvikmyndina Dulin
ást í ferskjublómalandi eftir ta-
ívanska leikstjórann Stan Lai
(1992) í Háskóla Íslands, í sal
Odda númer 101, fimmtudag-
inn 8. september klukkan 18.
Myndin fjallar um tvö leikfélög
sem deila æfingasal fyrir slysni
og virðast ósamrýmd í einu og
öllu nema því að þau hafa sömu
sögu að segja; nauðungaflutninga Kínverja. Það
er ókeypis aðgangur og er myndin 107 mínútur að
lengd. Konfúsíusarstofnunin hefur árum saman
staðið fyrir kvikmyndasýningum á kínverskum
myndum og hafa sumar sýningarnar verið vel
sóttar.
Kvikmyndir
Konfúsíusarstofnun
sýnir bíómynd
Stan Lai
Í dag, þriðjudaginn 6. september, hefjast há-
degistónleikar Hafnarborgar á ný. Í ár verða
tónleikarnir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
í stað fyrsta fimmtudag hvers mánaðar eins
og áður. Áfram verðu enginn aðgangseyrir
og betra að mæta á slaginu tólf þar sem tón-
leikarnir hafa náð nokkrum vinsældum og að
sögn stjórnenda hafa þau stundum þurft að
læsa húsinu. Í dag mun Elín Ósk Óskarsdóttir
syngja. Hún hefur sungið fjöldamörg óp-
eruhlutverk innanlands sem erlendis og feng-
ið fjölda viðurkenninga fyrir söng sinn auk
þess sem hún hefur verið sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu.
Antonía Hevesi píanóleikari hefur verið
listrænn stjórnandi tónleikanna frá upphafi
og hefur hún fengið til liðs við sig marga af
fremstu söngvurum landsins. „Já, þetta verð-
ur mikið tilfinningaflóð á fyrstu hádegistón-
leikunum í vetur enda er yfirskrift þeirra
Svik og bænir,“ segir Antonía Hevesi í spjalli
við Morgunblaðið. „Elín Ósk mun flytja aríur
eftir Beethoven, Puccini og
Bellini. Þetta er 9. starfs-
árið okkar og við erum vel
stemmd fyrir veturinn. Við
stefnum að því að reyna að
fá Hafnfirðinga til liðs við
okkur í vetur og Íslendinga
sem hafa lengi verið er-
lendis. Meðal annars mun
Jóhanna Ósk Valsdóttir
vera með tónleika seinna í
vetur og sömuleiðis Hrólf-
ur Sæmundsson sem hefur sungið mikið í
Þýskalandi og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
sem býr á Spáni. Svo er markmiðið að gefa
alltaf einum ungum einstaklingi sem er að
taka sín fyrstu skref tækifæri til að prufa sig
hér með áheyrendum. Í því samhengi má
benda á að Bragi Bergþórsson, sonur Berg-
þórs Pálssonar, tók sín fyrstu skref hérna hjá
okkur og þótti takast vel til,“ segir Hevesi.
borkur@mbl.is
Tilfinningaflóð í Hafnarborg í hádeginu
Elín Ósk syngur aríur eftir Beethoven og Bellini
í dag Tónleikar verða haldnir mánaðarlega
Morgunblaðið/Kristinn
Tónleikaröð Antonía Hevesi stendur fyrir hádegistónleikaröð í Hafnarborg í vetur.
Elín Ósk
Óskarsdóttir
Myndlistarmennirnir Snorri Ás-
mundsson og Sigrún Gunnarsdóttir
frumflytja í Bíó Paradís kl. 20 í kvöld
dansgjörninginn Inversus, á dans-
listahátíðinni Reykjavik Dance
Festival. Hátíðin hófst í gær. Í til-
kynningu segir um verkið að það
fjalli um „tímabil er umpólun á sér
stað í hjarta mannsins sem veldur
umskiptum og þar með núningi á til-
finningalífinu“ en verkið er unnið í
samstarfi við Helenu Jónsdóttur og
samanstendur af myndbands-
innsetningu og dansgjörningi. Lista-
mennirnir fara inn á ókannaðar slóð-
ir í listsköpun sinni og koma til
dyranna eins og þeir eru klæddir,
eins og því er lýst, en tónlistin í
verkinu er eftir Jóhann Jóhannsson,
verkið The Rocket Builder.
Samtal um ástina
Snorri segir gjörninginn sprottinn
upp úr samtali um ástina, þegar
hlutirnir gangi ekki alveg upp. Þau
Sigrún hafa ekki unnið áður að dans-
gjörningi. Þau dansa bæði í verkinu.
„Þetta er tilfinningaþrunginn dans,
við dönsum með hjartanu, leggjum
allt í þetta og sleppum okkur alveg,“
segir Snorri um dansinn. „Við erum
svolítið að koma úr felum sem prýð-
isdansarar,“ segir hann um dansfimi
þeirra Sigrúnar. Þau gerðu jafn-
framt myndbandsverkið sem er hluti
af gjörningnum en Helena veitti
þeim aðstoð við dansinn.
Gjörningurinn verður fluttur í
stóra salnum í Bíó Paradís, áður en
sýningar hefjast á dansmyndum þar
sem eru einnig hluti af dagskrá
Reykjavík Dance Festival. Hátíðin
stendur til 11. september og má
kynna sér dagskrá hennar á vefsíð-
unni reykjavikdancefestival.is.
Tilfinninga-
þrunginn
dans
Gjörningur fluttur í
Bíó Paradís í kvöld
Gjörningur Snorri Ásmundsson og Sigrún
Gunnarsdóttir flytja dansgjörning.
Sú var tíðin að ég var
haldinn þeim rang-
hugmyndum að ég væri gáf-
aður 32
»
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Síðustu tónleikar sumarsins í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar verða
haldnir í kvöld, þriðjudagskvöldið 6.
september, klukkan 20.30 og kostar
miðinn 2.000 krónur. Þórarinn Stef-
ánsson píanóleikari mun spila bæði
gömul og ný þjóðlög. Árið 2007
hlaut Þórarinn starfslaun lista-
manna til að undirbúa geisladisk
með íslenskum þjóðlögum fyrir pí-
anó. Að sögn Þórarins hefur það átt
hug hans síðan þá. „Þetta hefur
tekið mikið af mínum tíma síðustu
3-4 ár,“ segir Þórarinn í spjalli við
Morgunblaðið. „Ég byrjaði á þessu
þá og þetta hefur síðan bara undið
upp á sig og orðið stærra og stærra
verkefni. Á tónleikunum mun ég
spila aðeins hluta af afrakstri þess-
arar vinnu. Þetta eru einleiksverk
fyrir píanó sem samin eru út frá ís-
lenskum þjóðlögum eða útsetningar
á þeim.
Öll tónlistarsagan
Elstu verkin eru eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson en hin yngstu eru
eftir Kolbein Bjarnason sem hann
hefur verið að semja fyrir mig und-
anfarið. Þetta eru fjögur lög, eða
textar öllu heldur, sem fjalla um
árstíðirnar;Fagurt er í Fjörðum,Öll
náttúran enn fer að deyja, Þegar
vetrarþokan grá og Vorið langt.
Kolbeinn nálgast efniviðinn á
skemmtilegan og persónulegan hátt
og tvinnar stundum saman tveimur
lögum eins og til dæmis í vetrarlag-
inu um vetrarþokuna en þá byrjar
Kolbeinn á jarðbundnara lagi um
Krumma sem krunkar út og er al-
þekkt lag. Tvö þessara laga voru
flutt á þjóðlagahátíðinni á Siglufirði
í sumar en hin var ég bara að fá í
síðustu viku. Efnisskráin í heild
snýst í kringum verk Kolbeins því
þetta er það nýjasta sem er að ger-
ast í íslenskri píanótónlist í dag.
Það er líka áhugavert að efnis-
skráin á tónleikunum spannar í
raun tónlistarsöguna. Elstu verkin
eru eftir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son, okkar fyrsta tónskáld og svo er
farið í gegnum söguna. Síðan fáum
við skáld einsog Hallgrím Helga-
son, fæddan 1914, en hann vann
mikið með íslensk þjóðlög og síðan
eru þarna Hafliði Hallgrímsson,
Karólína Eiríksdóttir og Oliver
Kentish. Höfundarnir hafa mjög
ólíka nálgun og mér finnst þetta
eiga erindi við okkur í þjóðfélags-
ástandinu eins og það er, að skoða
ræturnar og kafa svolítið inn á við.
Erfiðast við þetta var eiginlega að
velja úr, því það er svo mikið af
góðu efni til. Ég má ekki hafa
svona dagskrá lengri en einn og
hálfan klukkutíma. Svo var ég með
ansi gott lag sem ég fékk frá Rúnu
Ingimundar en ég náði ekki að æfa
það nægilega vel til að koma því í
dagskrána. Svo kemur þetta út og
meira til á tvöföldum geisladiski á
næsta ári ásamt bæklingi. Þessi
bæklingur er reyndar að breytast í
bók hjá mér. Síðan taka við tón-
leikaferðir til að fylgja disknum eft-
ir,“ segir Þórarinn sem virðist vera
með nóg á sinni könnu.
Þjóðlögin eiga erindi til okkar
Gömul og ný
þjóðlög í Lista-
safni Sigurjóns
Píanó Þórarinn gefur út tvöfaldan disk með þjóðlögum á næsta ári.
Hann hóf píanónám við Tónlist-
arskólann á Akureyri, en lauk
kennara- og einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
vorið 1987 undir handleiðslu
Halldórs Haraldssonar. Að loknu
framhaldsnámi í Hannover í
Þýskalandi bjó Þórarinn og
starfaði um nokkurra ára skeið í
Þýskalandi og Danmörku. Þór-
arinn hefur komið fram á tón-
leikum víða um Evrópu sem ein-
leikari og meðleikari með
söngvurum og hljóðfæraleik-
urum. Hann hefur einnig skipu-
lagt fjölda tónleika, meðal ann-
ars í Þýskalandi, Danmörku,
Grænlandi og Færeyjum. Þór-
arinn hefur gert upptökur fyrir
sjónvarp og útvarp meðal ann-
ars með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Þórarinn Stefánsson
kennir við tónlistarskólana fyrir
norðan og síðan 2004 hefur
hann verið list-
rænn stjórn-
andi Tónlist-
arhússins
Laugaborgar
í Eyjafjarð-
arsveit.
Þórarinn
Stefánsson
PÍANÓLEIKARINN
Þórarinn
Stefánsson