Morgunblaðið - 06.09.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 06.09.2011, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011 á plötuna sem geymir það, Waiting For the Floods. Festi kaup á henni glóðvolgri á hátindi gáfnafars míns árið 1985. Á þeim tíma rann sparifé mitt óskipt til Tónabúðarinnar á Ak- ureyri (foreldrar mínir hafa örugg- lega staðið straum af kostnaði við áskriftina að Shoot). Man ég rakst á nokkra félaga mína fyrir utan búð- ina og enginn þeirra hafði heyrt á The Armoury Show minnst enda um frumburð sveitarinnar að ræða. Ég hef örugglega horft mjög gáfulega á þá. Eðli málsins samkvæmt gerðist Castles in Spain mér áleitið þennan morgun en þar sem vinyl-plötusafn- ið mitt safnar nú samviskusamlega ryki á háaloftinu var ekki um annað að ræða en leita lagið uppi á netinu. Réttarsamtök höfunda, innan lands sem utan, bið ég hér og nú forláts en engu tauti varð við hvatvísina kom- ið. Lagið rann nokkuð ljúflega nið- ur. Hefur elst ágætlega. Castles in Spain er áheyrilegasta gáfu- mannarokk enda þótt menn hafi því miður ekki lagt niður vopn í Líbíu meðan ég hlýddi á lagið. Ekki komst ég á slóð fleiri laga með The Ar- moury Show enda sveitin að lík- indum flestum gleymd.    Við nánari eftirgennslan kom ádaginn að Waiting for the Flo- ods var ekki bara fyrsta heldur eina breiðskífa The Armoury Show. Samkvæmt heimildum mæltist plat- an vel fyrir í röðum gagnrýnenda en seldist illa. Lagðist það á sálir liðs- manna og leystist sveitin upp skömmu síðar. Velti menn því fyrir sér var nafn sveitarinnar, The Armoury Show, vitaskuld ekki úr lausu lofti gripið. Hún er nefnd eftir frægri nýlistasýn- ingu sem haldin var í New York á því herrans ári 1913. Ég mundi óljóst eftir söngv- aranum, Richard Jobson, sem reynd- ist áður hafa verið með Stuart heitn- um Adamson, leiðtoga Big Country, í enn einni gáfumannasveitinni, Skids. Bassaleikarinn Russell Webb var þar líka. Jobson, sem stendur nú á fimmtugu, hefur lítið látið til sín taka á tónlistarsviðinu síðan en með- al annars fengist við kvikmyndagerð og sjónvarpsmennsku. Gítarleikari The Armoury Show, John McGeoch og húðstrýk- irinn John Doyle komu úr enn fræg- ari sveit, Magazine. McGeoch, sem nú er látinn, var síðar með John Ly- don í Public Image Ltd. Fara nú að vonum hlýir straumar um aðdá- endur gáfumannarokks. Að heyra þessar sveitir nefndar er eins og að ... (hér mátt þú fylla inn sjálfur, lesandi góður.) En mundu að orðið sem þú vel- ur er um leið skotheld mælistika á gáfur þínar. Fékk kastala í höfuðið » Sá gjörningurverður að skoðast í því ljósi að börn hafa oft ranghugmyndir um gáf- ur foreldra sinna. Umslag Fyrsta og eina breiðskífa The Armoury Show, Waiting for the Floods. Svalir Richard Jobson (annar frá hægri) og félagar í The Armoury Show. AF GÁFUM Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sú var tíðin að ég var haldinnþeim ranghugmyndum að égværi gáfaður. Til að hegða mér í samræmi við það fór ég að hlusta á gáfulega tónlist. Þetta var á níunda áratugnum, þannig að við blasti að sækja í breska nýbylgju- rokkið, póstpönksveitir eins og Big Country, Simple Minds, Echo and the Bunnymen, The Smiths og svo auð- vitað U2. Viskan þótti drjúpa af þeim. Ýmsir félagar mínir, allt mætir menn, hlustuðu andaktugir á þessar sveitir. Struku sér á meðan um hök- una, rýndu hvasseygðir í texta lag- anna og báðu fyrir heimsfriði. Mér var svona mátulega tekið í þessum hópi enda hlustaði ég meðfram á skrælingja eins og Iron Maiden, Me- tallica og Slayer. Það var annaðhvort eða. Eitís var ekki tími málamiðlana. Það fór líka fljótlega svo að ég gekk málminum alfarið á hönd. Ekki vegna þess að ég væri á móti heims- friði, heldur fyrir þær sakir að það lá einfaldlega betur fyrir mér að feykja flösu en nudda á mér hökuna. Allar ranghugmyndir hurfu eins og dögg fyrir sólu. Aldarfjórðungur leið án þess að gáfumannarokkið riði aftur hjá mér húsum, ef undan er skilið eitt atvik: Dóttir mín færði mér plötu með U2 þegar hún kom heim frá útlöndum. New Line on the Horizon heitir grip- urinn. Sá gjörningur verður að skoð- ast í því ljósi að börn hafa oft rang- hugmyndir um gáfur foreldra sinna.    Alltént. Haldiði að ég hafi ekkivaknað einn morguninn fyrir skemmstu með lagið Castles in Spain með bresku gáfumannarokksveitinni The Armoury Show á heilanum. Hvorki meira né minna. Lagið var mér ekki framandi, ég Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Greinarhöfund hefur sjaldan rekið í annan eins rogastans og þegar hann heyrði frumburð Sóleyjar nokk- urrar Stefánsdóttur í fyrra. Um var að ræða sex laga stuttskífuna Thea- ter Island og ég man ekki eftir að hafa heyrt jafn sannfærandi byrj- unarverk í háa herrans tíð. Skrif mín um plötuna voru líka eftir því: „Þetta er ein af þeim plötum (og þær eru ekki margar) sem grípa mann með fyrsta tóni og draga mann inn í óræðan heim drauma og dásemda. Manni fer einfaldlega að líða vel um leið og fyrsta lagið, „Dutla“, fer af stað. En um leið spennist maður upp (þægilega) og fær nettan fiðring í magann.“ Mér var það því æði ljúft að bjalla í tónlistarkonuna og forvitn- ast aðeins um fyrstu plötu hennar í fullri lengd, sem nú er komin út. Hamborg – Var stefnan alltaf tekin á plötu í fullri lengd? „Já, liggur það ekki beinast við? Þetta gerðist allt mjög hratt með EP plötuna (stuttskífuna). Hann Thomas Morr (eigandi Morr Music, útgefanda Sóleyjar úti í heimi) spurði mig hvort ég ætti einhver lög, planið var aldrei að gefa út sem sólólistamaður. Ég held að ég sé núna á þriggja platna samningi hjá honum. Ég er ekki viss (hlær).“ – Hraus þér þá hugur við því að stíga fram svona ein? „Ég hafði bara ekkert hugsað út í það. Ég var að klára listaháskólann á þeim tíma, var í einhverjum hljómsveitum og var að dútla við að setja saman lög heima hjá mér. En ég sé sko ekki eftir því að hafa látið slag standa. Flest lögin sem mynda Theater Island samdi ég síðan eftir að Thomas hafði haft samband.“ – Hljóðheimurinn á Theater Isl- and er mjög stemningsríkur og sér- stakur. Var hann hugsaður sem svo alveg frá upphafi? „Ég hafði verið að prófa mig áfram með þetta andrúmsloft í skól- anum. Þar reynir maður að hugsa út hvaða stefnu maður vill taka, reyna að finna sinn persónulega stíl og allt það og mér leið vel með þessa vinnu. Þessi heimur er dálítið dökkur og dálítið skrítinn líka. Þetta er stemning sem maður upp- lifir í draumum, eitthvað sem gæti ekki gerst í alvörunni og mér finnst þægilegt að kúpla mig þannig úr þessu venjulega. Ég nenni ekki að skrifa um eitthvað sem ég var að gera í Hamborg í gær (Sóley var stödd þar í borg þegar viðtalið var tekið, þar sem hún var á miðju tón- leikaferðalagi með Sin Fang). Það eru textar þarna sem fjalla um ást- ina og eitthvað sem ég hef upplifað en ég set það allt í þennan óraun- verulega búning.“ Ekkert ósvipað – Hvernig var svo að búa til heila breiðskífu? „Þetta var ekkert ósvipað því að taka upp stuttskífuna. Strax eftir að hún kom út byrjaði ég að semja inn á þessa plötu og þetta er á vissan hátt rökrétt framhald, hlutirnir eru bara ögn þróaðri og þroskaðri í þetta skiptið. Ég er öruggari með ýmislegt, röddin hefur breyst að- eins og ég er að þróa mig áfram og er að reyna að gera betur en síð- ast.“ – Hvað er svo framundan? „Það er bara að halda áfram. Ég ætla að halda áfram að semja fleiri lög þegar við erum búin að fylgja þessari eftir. Ég hef mjög gaman af þessu og er með nóg af hugmyndum og nóg af orku í framhaldið. Þannig er það einfaldlega: Að halda áfram og bæta sig.“ Sóley er sem stendur á Evr- óputúr með Sin Fang þar sem hún spilar einnig en auk þess er hún að koma fram sem sólólistamaður. Hún heldur síðan útgáfutónleika í október komandi. Stemningsríkt og sérstakt  We sink, fyrsta breiðskífa Sóleyjar Stefánsdóttur, er komin út á heimsvísu  Nóg af hugmyndum og nóg af orku  Samdi velflest lögin á fyrstu stuttskífu sína eftir að útgefandi hafði sýnt áhuga Orka „Það er bara að halda áfram. Ég ætla að halda áfram að semja fleiri lög þegar við erum búin að fylgja þessari eftir. Ég hef mjög gaman af þessu og er með nóg af hugmyndum og nóg af orku í framhaldið.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.