Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 22

Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Þín innkaup á einstöku verði Nýtt kotatímabil Kíktu til okkar DOMTI Nordica | Smáratorgi 1 | sími 522 7000 | domti.is | Opið: mán-fös 11-18, lau 10-18, sun 13-18 Eitthvað fyrir alla í DOMTI: Partývörur Gjafavörur Bílavörur, Einnotavörur Rekstravörur Snyrtivörur Skófatnað Leikföng Pappír Heimilisvörur Búsáhöld Gæludýravörur Húfur og vetlinga Garn Barnavörur, Nærfatnað Ilvötn Silkiblóm og fleira og fleira. Barnasamfellur. Aðeins 990kr/stk. Bílamottur 4 saman. Aðeins 1990kr/pk.Skúringalögur margar gerðir. 490kr/stk.. Bílaperur H-4,12v.90/100W. H-1. H-7. 2 saman í pk. Verð frá 990kr/pk. Barna bómullarpeysur Aðeins 990kr/stk. Barnateppi Aðeins 690kr/stk. Air ilmsprey Aðeins 890kr/stk. Stútur á krana langur. Aðeins 790kr/stk. Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is Ragnar Árnason hagfræðiprófess- or segir ólíklegt að íslenskur sjáv- arútvegur fengi umtalsverða styrki úr sjóðum Evrópusam- bandsins, gengju Íslendingar í sambandið. Eins og greint hefur verið frá í fréttum sendu samtökin Oceana frá sér skýrslu á dögunum, þar sem komist var að þeirri niður- stöðu að niðurgreiðslur ESB til sjávarútvegs hefðu ýtt undir mikla offjárfestingu í evrópskum sjávar- útvegi. Telja samtökin saman styrki til sjávarútvegs innan ESB á árinu 2009 og komast að þeirri niðurstöðu að þeir séu að lágmarki 3,3 milljarðar evra. Það er helm- ingur aflaverðmætis innan ESB sama ár. Rík miðað við margar þjóðir Ragnar segir að líklega fengjum við almennt séð lítið af styrkjum af þeirri ástæðu að enn sem komið er sé Ísland tiltölulega rík þjóð, miðað við margar þjóðir Evrópu- sambandsins. „Í öðru lagi dregur það úr líkum á því að við fengjum mikið af styrkjum að sjávarútveg- urinn hérna er sterkur miðað við sjávarútveginn í Evrópusamband- inu,“ segir hann. Í skýrslunni segir, að fiskveiði- flotinn innan Evrópusambandsins sé að líkindum tvisvar til þrisvar sinnum stærri en sjálfbærar fisk- veiðar leyfi, þar sem niður- greiðslur, millifærslur og styrkir hafi ýtt undir offjárfestingu. Þá standi rekstur sjávarútvegs í mörgum Evrópusambandsríkjum vart undir sér og framlag skatt- greiðenda til hans sé slæm fjár- festing. Niðurgreiðslur hafi sem fyrr segir numið 3,3 milljörðum evra á árinu 2009, eða sem nemur 528 milljörðum íslenskra króna á seðlabankagengi. Eins og sjá má á skýringarmyndinni hér við frétt- ina eru niðurgreiðslur hærri en sem nemur heildarverðmæti land- aðs afla hjá 13 löndum í samband- inu. Fjögur með engan afla Fjögur þeirra eru skráð með ekkert aflaverðmæti; Austurríki, Tékkland, Ungverjaland og Sló- Ólíklegt að Ísland fengi um- talsverða styrki frá ESB  Þrettán ríki sambandsins fá hærri styrki en sem nemur aflaverðmæti þeirra Niðurgreiðslur ESB og aflaverðmæti tölur ársins 2009 í milljónum evra 250 200 150 100 50 0 1, 8 0 ,0 1 9, 1 3, 1 33 ,4 0 ,0 4 6, 8 18 ,2 63 ,2 18 ,0 14 6, 5 90 ,2 9, 1 0 ,0 79 ,1 13 ,6 77 ,7 6, 7 23 5, 3 77 ,7 38 ,0 0 ,6 4 2, 2 0 ,0 5, 8 1, 7 Au st ur rík i Bú lga ría Ei st lan d Fin nla nd Þý sk ala nd Un gv er jal an d Le ttl an d Lit há en Pó lla nd Rú m en ía Sl óv ak ía Sl óv en ía Té kk lan d vakía, og samanlagt fengu þau lönd 48 milljónir evra í sjávarút- vegsstyrki árið 2009. Mestu millifærslurnar fara til Spánar, eða 734 milljónir króna. Aflaverðmæti spænskra fiskiskipa var 1.793 milljónir evra árið 2009. Frændur okkar Danir fá megin- þorrann af aflaverðmætinu í styrki, eða 307 milljónir evra af 360 milljónum. Ítalir fá 251 millj- ón, en aflaverðmæti ítalskra skipa nemur 1.209 milljónum evra. Á hluthafafundi í Exista sem hald- inn var í gær var ákveðið að breyta nafni félagsins og heitir það nú Klakki ehf. Í tilkynningu segir að með nafnbreytingunni sé nýtt eign- arhald og hlutverk félagsins undir- strikað. Eftir nauðasamninga sem kröfuhafar félagsins samþykktu á síðasta ári er Klakki nú nær alfarið í eigu íslenskra og erlendra fjár- málastofnana og lífeyrissjóða. Jafn- framt hafa verkefni félagsins breyst og er sjónum nú einvörð- ungu beint að stýringu á núverandi eignasafni Klakka. Helstu eignir fé- lagsins eru Skipti hf. (móðurfélag Símans, Mílu og Skjásins),Vátrygg- ingafélag Íslands hf., Líftrygginga- félag Íslands hf. og Lýsing hf. Exista verð- ur Klakki Síminn Skipti, móðurfélag Símans, er í eigu Exista, nú Klakka. Einbeitir sér að eignastýringu Morgunblaðið/Kristinn Vextir Peningastefnunefnd Seðla- banka Íslands að störfum. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Skiptar skoðanir eru á því hvað pen- ingastefnunefnd Seðlabankans muni til bragðs taka á vaxtaákvörðunar- fundi sínum næsta miðvikudag. Þó svo að margir sérfræðingar telji að- stæður og horfur í hagkerfinu ekki kalla á vaxtahækkun telja aðrir að peningastefnunefndin muni samt sem áður hækka vexti. Peningastefnunefndin hækkaði vexti um 25 punkta í ágúst og rök- studdi ákvörðun sína með vísun til vaxtar á eftirspurn og atvinnu um- fram spár og versnandi verðbólgu- horfa. Ekki eru allir sammála þessari greiningu. Í fréttabréfi verðbréfa- fyrirtækisins Júpiters segir að fá merki séu um þenslu í hagkerfinu. Bent er á að vaxtahækkanir hér á landi hafi engin áhrif á verðbólguáhrif vegna hækkandi hrávöruverðs á heimsmarkaði og áhyggjur af hækk- andi fasteignaverði og veikingu krón- unnar séu ástæðulausar. Fram kem- ur í fréttabréfinu að fátt styðji við hækkanir á fasteignamarkaði: Kaup- máttur fari rýrnandi, lánakjör séu óhagstæð og bankarnir sitji á miklu magni fullnustueigna. Sérfræðingar Júpiters segja einnig lítinn tilgang vera með því að hækka vexti til að auka vaxtamun við útlönd þar sem Seðlabankinn hafi fulla stjórn á gjald- eyrisflæði vegna haftanna og tiltölu- lega litlar breytingar á innlendum vöxtum hafi engin áhrif á vilja erlenda fjáfesta til að eiga krónur. Greiningardeild Arion-banka bendir á að verðbólguhorfur hafi skánað frá því að Seðlabankinn hækk- aði vexti í ágúst og nýbirtar tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu á 2. ársfjórðungi bendi til þess að slak- inn í hagkerfinu sé meiri en síðasta uppfærsla á hagvaxtarspá Seðlabank- ans gerir ráð fyrir. Einnig taka sér- fræðingarnir fram að þó krónan hafi styrkst frá síðustu vaxtarákvörðun sé trúlegt að sú þróun hafi meira með ferðamannastraum yfir sumartímann að gera en hærri vexti. Samt sem áð- ur telur greining Arion að Seðlabank- inn muni hækka vexti um 25 punkta á miðvikudag og horfi til þess að raun- vextir séu enn neikvæðir og að verð- bólguvæntingar hafi hækkað frá síð- ustu vaxtarákvörðun. Fátt réttlætir vaxtahækkanir Seðlabankans  Vaxtaákvörðun á miðvikudag  Væntingar um að vextir verði hækkaðir aftur þó svo að fá skýr merki sjáist um þenslu  Vextir hækkuðu um 25 punkta í ágúst Greint var frá því á dögunum að stjórn Eldingar, félags smábáta- eigenda við Ísafjarðardjúp, hygðist á aðalfundi félagsins leggja fram tillögu um að geng- ið yrði í ESB. Sigurður K. Hálf- dánarson, formaður Eldingar, sagði í samtali við Bæjarins besta að stjórn Eldingar von- aðist til að með inngöngu gætu smábátaeigendur fengið styrki frá ESB, þannig að jafnvel yrði hægt að lifa af fiskveiðum. Vill inn í sambandið SMÁBÁTAEIGENDAFÉLAG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.