Morgunblaðið - 17.09.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.09.2011, Blaðsíða 24
FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Helle Thorning-Schmidt, formaður Jafnaðarmannaflokksins danska, hóf í gær viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir kosninga- sigur fylkingar vinstri- og mið- flokka. Stjórnmálaskýrendur danskra dagblaða telja að erfitt verði fyrir Thorning-Schmidt að sætta andstæð sjónarmið rauðu flokkanna svonefndu, einkum í efnahagsmálum. Lítið var talað um kyn Thorning- Schmidt fyrir kosningarnar en flestir fjölmiðlanna í Danmörku lýstu niðurstöðunni sem miklum sigri fyrir konur. „Það liðu 96 ár frá því að konur fengu kosninga- rétt og þar til ein þeirra varð for- sætisráðherra,“ sagði blaðið In- formation. „Þetta tók allt of langan tíma,“ sagði Jørgen Albæk Jensen, pró- fessor í stjórnlögum við Árósahá- skóla, og bætti við að niðurstaðan væri mikilvægt skref í jafnréttis- baráttunni. „Þetta er sögulegt, löngu tímabært, en leiðir samt ekki til mikilla breytinga á stjórnmálum landsins,“ sagði Ove Pedersen, pró- fessor í stjórnmálafræði við Versl- unarháskólann í Kaupmannahöfn. Information benti á að helstu sigurvegarar kosninganna – Radi- kale Venstre og Einingarlistinn – eru undir forystu kvenna. Margr- ethe Vestager er leiðtogi Radikale Venstre, sem bætti við sig átta þingsætum, og Johanne Schmidt- Nielsen fer fyrir Einingarlistanum, sem þrefaldaði þingmannafjölda sinn og fékk 12 sæti. Konur fara því fyrir þremur af fjórum flokkum sem líklegt er að myndi næstu ríkisstjórn. Villy Søvndal er leiðtogi Sósíalíska þjóðarflokksins sem tapaði sjö þingsætum. Thorning-Schmidt er sögð geta verið harðskeytt í stjórnmálabar- áttunni en hefur einnig getið sér orð fyrir færni í að laða fólk til samstarfs. Jafnaðarmannaflokkur- inn var í upplausn þegar Thorning- Schmidt varð formaður hans eftir kosningaósigur árið 2005, en henni tókst að sameina flokkinn. Áður var talið nær óhugsandi að jafn- aðarmenn gætu myndað bandalag með miðflokknum Radikale Ven- stre og Einingarlistanum, sem er lengst til vinstri, en Thorning- Schmidt tókst það einnig. Stjórn- málaskýrendur segja þetta meira afrek en það að brjóta í blað í sög- unni með því að verða fyrsti kven- forsætisráðherra Danmerkur. Háð Einingarlistanum En ekki er sopið kálið þó í aus- una sé komið því dönsku fjölmiðl- arnir leggja áherslu á að mjög erf- itt verði fyrir Thorning-Schmidt að mynda trausta ríkisstjórn með svo ólíkum flokkum. Thorning-Schmidt hefur sagt að hún vilji samstarf við flokka utan rauðu fylkingarinnar. Stjórnmála- skýrandi Politiken telur þó litlar líkur á „breiðu samstarfi“ á þinginu og segir að Thorning- Schmidt verði háð stuðningi Ein- ingarlistans. Búist er við að viðræðurnar um myndun nýrrar stjórnar standi í nokkrar vikur og Jørgen Albæk Jensen telur að þær verði erfiðar. Hann spáir þó því að flokkarnir geri allt sem þeir geti til að jafna ágreininginn því mikið sé í húfi fyr- ir þá. „Ef þeir ná ekki samkomu- lagi með gagnkvæmum tilslökunum vita þeir að hin fylkingin kemst fljótt aftur til valda. Enginn þeirra vill það. Þeir leggja sig alla fram um að tryggja gott samstarf.“ Eitt af því helsta sem sameinar flokkana fjóra er andstaða þeirra við Danska þjóðarflokkinn sem Stefnir í erfiðar viðræður  Deilan um breytingar á lífeyriskerfinu talin verða helsta þrætuepli fylkingar vinstri- og miðflokka í Danmörku  Sagðir tilbúnir til að leggja mikið á sig til að jafna ágreininginn og tryggja gott samstarf Ljósmynd: Reuters Teikning: Kinyen Pong KONUR Í LEIÐTOGAEMBÆTTUM Í HEIMINUM Mary McAleese forseti (1997) Írland Jóhanna Sigurðardóttir (forsætisráðherra frá 2009) RosaOtunbayeva forseti (2010) Kirgisistan Pratibha Patil forseti (2007) Indland Sheikh HasinaWajed forsætisráðherra (2009) Bangladess Yingluck Shinawatra forsætisráðherra (2011) Taíland Julia Gillard forsætisráðherra (2010) Ástralía Angela Merkel kanslari (2005) Þýskaland Micheline Calmy-Rey forseti (2011) Sviss Jadranka Kosor forsætisráðherra (2009) Króatía Atifete Jahjaga forseti (2011) Kósóvó Laura Chinchilla forseti (2010) Kosta Ríka Kamla Persad-Bissessar forsætisráðherra (2010) Trínidad og Tóbagó Rosario Fernandez forsætisráðherra (2011) Perú Cristina Fernandez de Kirchner forseti (2007) Argentína Dilma Rousseff forseti (2011) Brasilía Ellen Johnson- Sirleaf forseti (2006) Líbería Helle Thorning- Schmidt verður fyrsta konan í embætti forsætis- ráðherra í Danmörku Tarja Halonen forseti (2000) Finnland Mari Kiviniemi forsætisráðherra (2010) Finnland Dalia Grybauskaite forseti (2009) Litháen Iveta Radicova forsætisráðherra (2010) Slóvakía Trínidad og Tóbagó Írland Þýskaland Króatía Sviss Indland Ísland Finnland Litháen Slóvakía Kósóvó 24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Kweku Adoboli kom fyrir rétt í Lundúnum í gær, ákærður fyrir fjársvik. Hann er sagður hafa valdið svissneska bankanum UBS tjóni að andvirði tveggja milljarða dollara (230 milljarða króna) með óheimilum viðskiptum. Reuters Ákærður fyrir fjársvik Geimvísindamenn hafa fundið plán- etu sem gengur á braut um tvær sól- ir. Plánetan er í um 200 ljósára fjar- lægð frá sólkerfi okkar og vísindamenn fundu hana með Kepler-stjörnusjónaukanum. Margir hugsa eflaust til plán- etunnar Tatooine, heimkynna Loga geimgengils í Stjörnustríðsmynd- unum, þegar þeir heyra um stjörn- una Kepler-16b en hún gekk einnig um tvær sólir. Ólíkt heimaplánetu Loga, sem var steikjandi heit og sendin, er Kepler-16b ískaldur hnöttur á stærð við Satúrnus. Frost- ið á yfirborði plánetunnar er á bilinu -73 til -101 gráður á Celsíus. Kuldinn stafar af því að þó að plánetan gangi á braut um tvær sólir eru þær báðar minni og kaldari en sólin okkar. Önn- ur þeirra er að- eins fimmtungur af stærð sólar- innar en hin er um 70% af stærð hennar. „Þessi upp- götvun er sláandi. Enn og aftur hef- ur það sem áður var talið vísinda- skáldskapur orðið að veruleika,“ segir Alan Boss, einn geimvísinda- mannanna. Þó að vísindamenn hafi áður talið sig hafa fundið plánetur, sem ganga á braut um tvær sólir, höfðu þeir aldrei fengið endanlega staðfestingu á því. Fundu plánetu á braut um tvær sólir Reikistjarnan Kepler-16b. Morgunblaðið gefur út glæsi- legt sérblað um hannyrðir föndur og tómstundir föstudaginn 30. september MEÐAL EFNIS: Hannyrðir Skartgripagerð Jólakortagerð Útsaumur Prjón og hekl Málun Bútasaumur Módelsmíði Rætt við fólk sem kennir föndur Rætt við þá sem sauma og selja föndurvörur Föndur með börnunum og þeim sem eldri eru Ásamt fullt af öðru spennandi efni um föndur og tómstundir –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 26. sept. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Hannyrðir, föndur & tómstundir SÉRBLAÐ Hannyrðir, föndu r & tómstundir Þetta er tíminn til að huga að hannyrðum og föndri fyrir jólin og sjá hvað er í boði í tómstundum um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.