Morgunblaðið - 17.09.2011, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 17.09.2011, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Það viðrar vel til að hlaupa í dag, hrista af sér slenið og fá smá-útrás. Í stað þess að hlaupa um á staðn- um, í hringi, er vissara að setja gjörðir sínar í einhvers konar samhengi. Hlaupið í dag mun því eiga sér stað á tiltekinni götu. Gatan er í Reykjanesbæ, nánar tiltekið á gamla varn- arsvæðinu sem ber núna heitið Ásbrú. Svæðið sjálft hefur verið hluti af íslenskri sögu og samfélagsþróun, en ekki hefur verið minnst á það nýlega né tekið tillit til þess samhengis sem það ber. Kadeco Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf., fyrirtæki sem forsætisráðuneytið stendur fyrir, ætlar sér að koma gamla varnarsvæðinu í borgaraleg not. Fyrirhugað er Ásbrú, vistvænt þekkingarsamfélag, þar sem ný- sköpun er í farabroddi. Til staðar eru ótakmarkaðir möguleikar á heilmiklu landsvæði þar sem fyr- irhugað er að koma á laggirnar nýju samfélagi. Orðræðan sem er notuð í upp- byggingu þess samfélags er okkur kunngerð þessa dagana þar sem frjó hugsun nýsköpunar er sögð helsta leið okkar til þess að skapa annars konar virkjunarmöguleika: hugverkaiðnaðinn. Landsvæði fyrr- um varnarsvæðisins er hreinsað með því að gleyma fyrra hlutverki og vísað til fyrri samfélagsgerðar Íslands, ásatrúarinnar, og þar með til framtíðar þar sem hin hreina náttúruauðlind, hugvitið, er fram- tíðin. Lífsgæði Íslendinga eru nú eink- um óefnisleg líkt og kom fram í ný- legri frétt. Greint var frá því að samfélagið hefði fundið sér nýjan farveg til að mæla sameiginlega verðleika: maraþonhlaup og skokk. Í fréttinni kom fram að ekki er lengur í „tísku“ að meta eigin verðleika út frá peningum. Lífsgæðahlaupið er nú loks orðið raunverulegt hlaup: virkjun líkama okkar í almennings- rýminu. Það býr fullvissa í gullinu mínu, saltinu mínu og í svitanum sem ég kasta frá mér er ég geri mig hæfari en næsta mann í að hlaupa í hringi. Formgerðin sem beinir hlaupurunum á teygjustað, á endastöð, setur hlaupið í samhengi líkt og Íslandsbankahlaupið gerði um daginn. Þú hleypur til góðs þeg- ar þú hleypur í samhengi. Fullvissa um merkingu og samhengi veitir hlaupinu þínu efnislegan tilverurétt. Umrótið sem þú myndar með hlaupinu, útgeislunin sem leysist úr læðingi, er bundin á ný í samhengi sem þú getur beitt hvar sem þér hugnast. Slík beiting, áorkan á veruleika þinn, getur farið fram með öðrum hætti: þeirri einföldu aðgerð að brýna röddina. Sú beiting er líkömum okkar jafn eðlislæg og að hlaupa en virðist ekki hafa skilað sér jafn vel inn í hugmynd Íslend- inga um lífsgæði. Samhengið sem myndast með að ræða og rökræða, svo að þættir í samfélaginu falla ekki í gleymsku, verður að vera okkur til halds og trausts svo við verðum ekki sam- dauna uppvakningar með ljósaperu í stað haus, með blýant í stað búks, með gráðuboga í einni hendi og töng í hinni. Hin eiginlega virkjun hugvitsins verður að eiga sér stað í samræðum í stað þess að kalla ein- ungis eftir frjórri hugsun og sköp- un sem geta skilað vöru í hagvöxt- inn. Ég heiti i(m)material girl og ég sprett úr kynslóð óefnisleikans. Ég er ekkert áþreifanlegt en var um daginn veitt efnisleg tilveru- forsenda með því að vera skilgreind sem grasrót innan stofnunarinnar Nýlistasafnsins. Ég ber með mér eiginleika á við sköpunarmátt, ný- sköpun og frumleika. Í dag mun ég spreyta og spyrna mér á götu í Ásbrú sem ber heitið Lífæðin. Líf- æðarhlaup fer fram með kyndil í hendi og verður hlaupið minn upp- hafspunktur á vegferð minni um hina sameiginlegu efnislausu veröld okkar. Ef vilji stendur til þess að mætast í óefnisleikanum og spyrna saman á móti tómum formgerðum er öllum velkomið að koma og hlaupa. Hlaupið hefst kl. 16. BRYNDÍS BJÖRNSDÓTTIR, myndlistarmaður. Lífæðarhlaup Frá Bryndísi Björnsdóttur Bryndís Björnsdóttir Samkvæmt öruggum heimildum hefur heimilis- og kynferðisofbeldi aukist gríðarlega mikið frá hruni 2007-8. Eða um 93% meiri mál- fjöldi sem leitað er með til sam- taka eins og Afls- ins á Akureyri, segir Sæunn Guðmundsdóttir, talsmaður félags- ins, í prentmiðli. Þetta eru sláandi fréttir. En hvern- ig er hægt að bregðast við? Ein leið til hjálpar/ forvarna er að skapa nýjar ímyndir á sjónvarpsstöðvunum. En íslenskt sjóvarp í fjölda stöðva/rása eykst nú ekki mikið til fræðslumenningar miðað við hvað rásum fjölgar. Þetta var einna best þegar einungis rík- issjónvarpið var með eina rás – hljóðvarp/sjónvarp. En áhrif sjónvarps til ímynd- arsköpunar eru ótvíræð og mjög sterk. Sem sannast á geysilegu áhorfi á sportrásir enska boltans. Tískuímyndir eru fljótar að skapast í sjónvarpi, en ýmsar þeirra eru staðnaðar og ný viðmið eru nauðsyn- leg. Áhugi minn á að breyta viðvar- andi stöðnun er að ná þjóðinni að skjánum í kennslu á hljóðfæri. Stuðla að viðhorfsbreytingu gagn- vart tónlist/hljóðfæraleik. Til mót- vægis við sportstöðvar. Vakin er at- hygli á að ein tenging er mjög æskileg við tónlist/tónsköpun/ hljóðfæraleik. Þolendur jafnt sem gerendur í heimilis- og kynferðisbrotamálum eru oft ekki meðvitaðir um þá sjálfs- hjálp sem hljóðfæraleikur og öll önnur skapandi iðja getur fram- kallað. Reiður einstaklingur missir stjórn á skapi sínu og nærtækast er oft að beita hnefum og berja frá sér, eða í versta falli að valda kynferðisbroti. Reiði sem á t.d. rætur í hruni efna- hagslífs. En oft eru almennir ger- endur/þolendur ekki meðvitaðir um hvað eða hvernig reiði/sorg getur umbreyst í mikla sjálfshjálp og upp- byggilega iðju, ef viðkomandi fær bara smá leiðsögn. Ef við lýðurinn erum með ófrið, erum við lokuð inni, – ekki valdamenn. Þetta mun aldrei breytast. Þess vegna þarf viðhorfs- breytingu í fyrsta lagi hjá yfirmönn- um sjónvarpsstöðva. Til að stuðla að ímyndarbreyttu samfélagi, þjóðin setjist við sjónvarpið heima í stofu. Það er þekkt saga að tónsköpun í sjálfshjálp hefur virkað frábærlega: KK tónlistarmaður samdi eitt sitt fegursta lag í miðju áfalli eftir ætt- ingja missi „When I think of angels“. Enn þekktara er „Tears in heaven“ Eric Clapton, – samið í minningu sonar sem lést af slysförum. Þróun tónmennta/fræðslusjón- varps, – nóg er til af afþreyingar- sportrásum. En fræðsluefni sem þarf að virka eins og afþreying vant- ar í sjónvarp til að vekja forvitni og áhuga. Nótnalestur/tónfræði virkar oft eins og slíkt sé eingöngu ætlað vísindamönnum. En var þá Gísli á Uppsölum vísindamaður? Hann hafði unnið heimavinnu sína og spil- aði á orgel eftir nótum. Nótur verða ekki málið strax, heldur þarf fyrst að setja eftirlætislögin í hljómtæki og spila með á hljóðfærið. Trommu- myndskeið eru um allt á netinu, en ekki af því tagi sem ég er með í huga. Meðfædd ásláttarþörf kom strax fram í barnæsku hjá mér með kjuða- slætti á stampa og tunnur og hafði ég alla takta fljótt á hreinu með höndunum. Og fljótlega sá ég hvern- ig trommari notaði fæturna með. Þar með small áhuginn og ekki var aftur snúið. Síðan hef ég hlustað eft- ir trommu, bassa og gítarleik í allri tónlist og spilað með. Gítarinn er mér í dag sem trommur voru áður. Gítarinn er sterk ímynd í Brekku- söng. En það er einmitt sú stemning sem þarf að ná til sjálfshjálpar í nærveruþáttum með þjóðina heima í stofu. Að fá alla með í augnablikin, – sjálfviljugar sálir og skapa þannig skilning, vináttu, traust og umfram allt gagnkvæma virðingu. Að finna reiðinni útrás í leik og söng. Og áður en þú veist af hefur þú sæst við um- hverfi, ættingja og vini, – reiðin er úr leik og söngvar og sigrar sameina daga og nætur. Og hjartað þitt er farið að slá í takt við það næsta á vegi þínum. atlifjollist@simnet.is ATLI VIÐAR ENGILBERTSSON, fjöllistamaður. Taktur nýrrar tísku Frá Atla Viðari Engilbertssyni Atli Viðar Engilbertsson Bréf til blaðsins Um þessar mundir eru tvær kvennastétt- ir að fara í verkfall. Flugfreyjur hjá Ice- landair fara í allsherj- arverkfall ef tvö tveggja daga verkföll skila ekki árangri og félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg fara í allsherjarverkfall mánudaginn 26. sept- ember. Það vill þannig til að ég starfaði sem flugfreyja hjá Flugleiðum (Icelandair) í 14 ár og man þegar við fórum í verkfall eitt árið, svo kallað „sokkabuxnaverk- fall’’ þegar Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti, neitaði að skrifa undir lög sem áttu að binda enda á verkfallið vegna þess að það var kvennafrídagurinn 24. október. Svo voru sett lög á verkfallið daginn eft- ir. Nú starfa ég sem félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg. Ég hóf þar störf í apríl á þessu ári og þó ég hafi starfað sem félagsráðgjafi frá árinu 1996 á öðrum sviðum þá hef ég ekki upplifað annað eins álag eins og hefur verið undanfarið. Það merkilega er að fjölmiðlar eru miklu meira uppteknir af yf- irvofandi verkfalli flugfreyja en fé- lagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg. Hugsunarhátturinn frá árinu 2007 virðist enn við lýði. Það skiptir meira máli að hinir efnameiri komist til út- landa en að þeir sem minna mega sín, sem fer sífjölgandi, fái að borða, hafi þak yfir höfuðið, fái aðstoð vegna sálrænna og geðrænna erfiðleika, að gripið sé inn í þegar uppeldi er ábótavant, að fatlaðir og aldraðir fái þjónustu við hæfi, að ungt fólk sem býr við erfiðar aðstæður kom- ist í nám og svo mætti lengi telja. Félagsráðgjafar hjá Reykjavík- urborg sinna þessum verkefnum af natni, en það virðist ekki vera mik- ill áhugi á þessum gríðarlega mik- ilvæga málaflokki hjá fjömiðlum eða fólki almennt! Merkilegt Eftir Hönnu Láru Steinsson Hanna Lára Steinsson » Það merkilega er að fjölmiðlar eru miklu meira uppteknir af yf- irvofandi verkfalli flug- freyja en félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg. Höfundur er félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg. Í framhaldi af út- breiddri óánægju landsmanna með framkvæmd kvóta- kerfisins á ákveðnum sviðum skipaði núver- andi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra starfshóp sem fékk það meginverkefni að setja fram tillögur til breytinga sem leitt gætu til sátta um nýt- ingu þessarar meginauðlindar þjóð- arinnar. Nefndin, sem skipuð var 18 fulltrúum frá hinum svokölluðu hagsmunaaðilum og þingflokkum, skilaði formlegri niðurstöðu 6. sept- ember 2010. Eins og vera ber voru skoðanir nefndarmanna í mörgum tilvikum mjög skiptar þegar fjallað var um málefni sem hefur jafn víða áhrif í samfélaginu eins og nýting sjávarauðlindarinnar, þó að um sumt væri þokkaleg sátt. Eitt af þeim atriðum sem þokka- leg sátt náðist um var að tryggt skyldi í stjórnarskránni að sjáv- arauðlindin væri án minnsta efa í eigu þjóðarinnar líkt og aðrar sam- eiginlegar auðlindir hennar. Þó að hér sé á ferðinni ákvæði sem ekki ætti að vera ágreiningur um, þá voru fulltrúar LÍÚ í nefndinni engu að síður á móti því að það færi í stjórn- arskrána. Utangátta Ef marka má um- ræðuna sem spunnist hefur um frumvarp sjáv- arútvegs- og landbún- aðarráðherra þá virðist eins og sumir nefnd- armannanna sem sam- þykktu nefnt ákvæði hafi ekki alveg gert sér grein fyrir hver áhrifin yrðu. Þetta kemur glöggt fram þegar verið er að fjalla um veðsetningu á óveiddum fiski í sjónum en um hana og fram- salið innan ársins hefur líklega mesta óánægjan verið í núverandi kerfi. Það er nefnilega þannig að bæði einstaklingar og félög hafa ekki heimild til þess að veðsetja ann- að en það sem þeir geta sýnt fram á með óyggjandi hætti að sé þeirra eign. Fiskurinn í sjónum verður ein- faldlega ekki eign sjómanna og út- gerðarmanna fyrr en hann er kom- inn um borð í veiðiskipið; þar til verður hann sameign þjóðarinnar fari nefnt ákvæði í stjórnarskrána. Engu að síður er alveg hárrétt hjá hagfræðingum sem fjölluðu um frumvarpið, að mikið hagræði er í því fyrir útgerðina að geta veðsett fiskinn óveiddan í sjónum, þ.e. veð- sett annarra eignir en útgerðin er þar bara ekki ein á báti. Víðtækt hagræði Hugsum okkur unga parið sem er að hefja búskap í leiguhúsnæði en stefnir, eins og flestir landar okkar, á að eignast sitt eigið húsnæði en vantar tímabundinn aðgang að fjár- magni. Fyrir þetta unga fólk væri það himnasending ef það gæti nú veðsett leiguíbúðina fyrir þeirri upp- hæð sem vantar upp á fjárhæðina sem lánastofnanir lána til kaupa á íbúðarhúsnæði. Þrátt fyrir að hér sé greinilega um mikið hagræði að ræða fyrir unga fólkið, hefur engum svo mikið sem dottið í hug að nefna þessa leið sem mögulega, enda sjá allir að hún er óbrúkleg með öllu eins og það að veðsetja óveidda fisk- inn í sjónum. Stundum hefur þeim sem af ýms- um ástæðum ráða ekki við að greiða fulla leigu verið boðið upp á nið- urgreitt húsnæði. Hugsum okkur einstakling sem á rétt á nið- urgreiddu félagslegu húsnæði en þarf ekki á því að halda sem stendur. Fyrir hann væri það mjög hag- kvæmt ef sömu reglur giltu og verið hafa um leigu á kvóta innan ársins. Þá einfaldlega tæki hann húsnæðið á leigu og endurleigði það síðan hæst- bjóðanda og styngi mismuninum í eigin vasa. Þá væri hann kominn í hóp með þeim útgerðarmönnum sem fengið hafa úthlutað kvóta sem þeir síðan selja frá sér, oft á tíðum fyrir sama verð og fæst fyrir aflann þegar hann er kominn á land. Ótækir viðskiptahættir Ég hugsa að það finnist ekki margir sem telji að við eigum að taka upp þessháttar viðskiptahætti hvað varðar veðsetningu á leigu- húsnæði eða endurleigu á nið- urgreiddu félagslegu húsnæði. Ég reikna meira að segja með því að LÍÚ elítan telji þessháttar við- skiptahætti alveg út í hött og komi ekki til greina. Þá vaknar spurn- ingin af hverju finnst elítunni að nefndir viðskiptahættir eigi við í sjávarútveginum en ekki ann- arsstaðar í samfélaginu og af hverju er elítan á móti því að sjáv- arauðlindin sé án efa sameign þjóð- arinnar? Þegar stórt er spurt verður oft fátt um brúkleg svör. Mitt mat er að þeir sem ráða för hjá LÍÚ séu enn að gæla við það hugarfóstur sitt að sjávarauðlindin verði eign þeirra sem fengið hafa heimild til þess að nýta hana síðustu árin, takist það ekki þá verði þeim úthlutaður svo ríkulegur nýtingarréttur að hann veiti þeim nánast sömu réttindi og eignarrétturinn mundi færa þeim. Ein lög, einn siður Eftir Helga Laxdal » Af hverju var LÍÚ á móti skýru ákvæði um eignarrétt þjóðarinnar á sjávarauðlindinni í stjórnarskrána? Helgi Laxdal Höfundur er vélfræðingur og fyrrverandi yfirvélstjóri. - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.