Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 30

Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Fyrir skömmu gengu skilaboð manna á milli á samskiptasíð- unni Facebook undir fyrirsögninni „Hver eru verðmæti okkar?“ Þar var lýst yfir stuðningi við kjara- baráttu leikskólakenn- ara og fer ekki á milli mála að stuðningurinn í samfélaginu er mik- ill. Almenn samstaða virðist ríkja um þann samning sem nú hefur verið samþykktur og fagna ég því að samkomulag hafi náðst og hin daglega starfsemi leikskólanna getur því haldið óbreytt áfram. Ástæða þess að ég ákvað að skrifa þessa grein er að benda á þá dap- urlegu staðreynd að á haustmisseri 2011 eru aðeins nítján nemar að hefja nám í leikskólakenn- arafræðum við Háskóla Íslands. Það þarf ekki mikla reiknikunnáttu til að sjá að með þessari neikvæðu þróun muni verða erfitt að halda áfram því faglega strarfi sem unnið er á leik- skólum landsins, samkvæmt því að leikskólinn sé fyrsta skólastigið í skólakerfinu. Er ekki kominn tími til að staldra við og spyrja okkur: Hver eru okkar raunverulegu verðmæti? Eins og þjóðin hefur svo harkalega fengið að reyna á síðustu árum er svarið svo sannarlega ekki peningar. Þrátt fyr- ir það hefur það viðgengist að bankastjórar og stjórnarmenn fái greidd „ofurlaun“ fyrir þá miklu ábyrgð sem þeir báru og bera enn – en þegar þjóðin horfði á bankana falla hvern af öðrum og forsætisráð- herra bað Guð að blessa Ísland kannaðist enginn þeirra við að bera nokkra ábyrgð á því hvernig komið væri fyrir bönkunum. Hver eru þá okkar verðmæti? Það dýrmætasta sem við eigum, okkar raunverulegu verðmæti, eru börnin okkar og þá veit ég að ég tala ekki aðeins fyrir sjálfa mig. Í því sam- félagi sem við búum í og krefst að öllu jöfnu atvinnuþátt- töku beggja foreldra er mikilvægt að huga vel að börnunum okkar. Í leikskólanum eyða börnin okkar allt að níu tímum á dag og er því full ástæða til að staldra við og spyrja okkur, hvernig staður viljum við að leikskól- inn sé? Viljum við að í leikskólanum sé unnið metnaðarfullt starf þar sem velferð og þroski barnanna er í brennidepli eða viljum við að leikskólinn verði einhverskon- ar geymslustaður þar sem starfið með börnunum líður fyrir manneklu og áhugaleysi stjórnvalda í mál- efnum barnanna okkar? Ábyrgð leikskólakennara gagn- vart starfinu, börnunum og for- eldrum þeirra er mikil en sagan sýnir að launa- og kjaramál hafa verið í engu samræmi við þá ábyrgð hingað til. Samkvæmt lögum um leikskóla skal meðal annars veita börnunum umönnun og menntun í hvetjandi og öruggu uppeldis- umhverfi. Stuðla skal að því að nám fari fram í leik og skapandi starfi og börnin njóti fjölbreyttra uppeld- iskosta. Markmið starfsins eru því háleit og ábyrgð leikskólakennara eftir því. Án efa liggja margar ástæður að baki því að aðsóknin í námið er ekki meiri en raun ber vitni en það er al- veg ljóst að eitthvað þarf að gera í málefnum leikskólakennara til að snúa þessari þróun við. Þetta er málefni sem varðar börnin okkar og þar með okkur öll. Hver eru verðmæti okkar? Eftir Kristínu Evu Pétursdóttur Kristín Eva Pétursdóttir » Það dýrmætasta sem við eigum, okkar raunverulegu verðmæti, eru börnin okkar ... Höfundur er þriggja barna móðir og nemi í leikskólakennarafræðum við Háskóla Íslands. Í Morgunblaðinu birtust nýlega greinar eftir þá Þorkel Helga- son og Eið Guðnason þar sem þeir vöruðu eindregið við að byggt yrði tilgátuhús að Þor- láksstofu rétt við Skál- holtskirkju, þar sem það muni stórskaða út- lit kirkjunnar. Í tilefni af þessum greinum fjallar Morg- unblaðið um málið og ræðir m.a. við talsmann Þorláksbúðarfélagsins, Árna Johnsen alþingismann. Hann virðist ekkert hafa hugleitt hvort eitthvað kynni að vera til í gagnrýni greinahöfunda og ekki ætla að svara þeim en segir sem svo að alltaf megi reikna með skiptum skoðunum. „Það má alltaf reikna með skiptum skoð- unum, það er bara eðlilegt en allt þetta mál hefur verið í eðlilegum far- vegi og er meira en hálfnað. Þetta er hluti af sögu Skálholts allt frá 12. öld og verið að sýna sögunni og staðnum virðingu,“ segir þar. Þá getur tals- maðurinn þess að allir opinberir að- ilar sem málið varðar hafi at- hugasemdalaust gefið leyfi fyrir þessum framkvæmdum og haft hafi verið samband við þann sem gætir höfundarréttar erfingja Harðar Bjarnasonar, arkitekts Skálholts- kirkju. Í Morgunblaðinu 13. þessa mán- aðar er birt yfirlýsing frá handhöfum höfundarréttar Skálholtskirkju þar sem fram kemur að ekkert samþykki hafi verið eða verði veitt af þeim fyrir þessari framkvæmd. Í grein Eiðs Guðnasonar 15. þessa mánaðar kemur fram að ekki hafi verið gefið út byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni. Þetta er auðvitað graf- alvarlegt mál og leiðir vonandi til þess að ekki verði haldið áfram við bygginguna á þessum stað og það sem komið er fjarlægt. Það breytir þó ekki kjarnanum í gagnrýni Þorkels og Eiðs sem er að tilgátu- hús um Þorláksbúð á þessum stað stórskaði útlit Skál- holtskirkju. Hér á eftir verður lítillega fjallað um málið út frá þessu sjónarmiði og gerð athugasemd við fleiri staðhæf- ingar formælenda þessa fyrirtækis. Uppbygging Skálholtsstaðar hef- ur tekist með ágætum hingað til. Kirkjubyggingin er reisuleg og þótt hún sé nútímaleg hafa meginform hennar skírskotun í eldri kirkjur staðarins. Veggir hennar eru úr steinsteypu sem er hvítmáluð en þök með svörtum skífum. Önnur hús á staðnum hafa verið mótuð með tilliti til kirkjubyggingarinnar í formi, efn- is- og litavali svo úr verður samstæð og falleg heildarmynd. Tilgátuhús að Þorláksbúð skýtur skökku við – líka í bókstaflegri merk- ingu! – þar sem form, efni og litur eru af gjörólíkum toga. Þar sem talsmenn Þorlákbúð- arfélagsins virðast ekki hafa neinar áhyggjur af því að tilgátuhús Þor- láksbúðar muni spilla útliti Skál- holtskirkju er rétt að benda þeim á að Þorláksbúð er heldur ekki neinn sómi sýndur með því að ætla henni að standa undir kórvegg stórrar steinsteyptrar Skálholtskirkju. Í annarri umfjöllun Morgunblaðs- ins segir að innan stjórnar Skálholts hafi komið til tals hvort reisa ætti til- gátuhús Þorláksbúðar á öðrum stað í Skálholti en þar sem húsið er að rísa við hlið kirkjunnar á rústum eldri búðar. Sr. Kristján Björnsson, sem átti sæti í stjórn Skálholts, segir menn ekki hafa talið bygginguna þá lengur tengjast kirkjunni líkt og hún hefur gert allt aftur til 12. aldar á tímum Þorláks helga biskups. „Þarna er verið að endurreisa sögu staðarins. Sögulegt gildi svona húss hefði því glatast hefði það risið á öðr- um stað í Skálholti.“ Við þetta verður að gera þá at- hugasemd að Þorláksbúð getur ekki tengst kirkjunni aftur á 12. öld þar sem hún var ekki byggð fyrr en eftir bruna Árnakirkju 1527 og þá sem bráðabirgðaskýli yfir messuhald, búð eða kapella eins og húsið kallast í heimildum og var hún seinna nefnd Þorláksbúð. Eftir að dómkirkja kennd við Ögmund Páls- son biskup reis var búðin síðan notuð sem skemma til loka 18. aldar. Þá hygg ég að ofmælt sé að eitt til- gátuhús, þótt ágætt sé, muni „end- urreisa sögu staðarins“ sem ég reyndar vissi ekki að hefði glatast. Tilgátuhús eru til ýmissa hluta nytsamleg. Með þeim má t.d. sann- reyna fornar byggingaraðferðir en algengast er, og það sem hér á landi hefur verið gert með góðum árangri, er að veita innsýn í löngu horfna lifn- aðarhætti á áþreifanlegan hátt. Í því er „sögulegt gildi“ tilgátu- húsa fólgið en alls ekki í því að þau séu reist á rústum þeirra húsa sem þau eiga að túlka. Stöng í Þjórsárdal, Auðunarstofa á Hólum og Eiríks- staðir í Haukadal eru góð dæmi um þetta, en ekkert þessara húsa er byggt á rústum upprunalegra húsa. Reyndar eru fornleifafræðingar mjög andsnúnir því að byggt sé á rústum horfinna húsa þar sem það getur spillt frekari fornleifum sem þar kunna að leynast. Bygging tilgátuhúss Þorláksstofu er í sjálfu sér athyglisverð hugmynd. Tillaga mín er því sú að áhuga- menn um tilgátuhús Þorláksbúðar taki staðarval þess til endurskoðunar og finni því verðugan stað. Stað þar sem það truflar ekki útlit Skálholts- kirkju og Skálholtsstaðar í heild, en fengi að njóta sín í landslagi sem kannski er ekki svo mjög frábrugðið því sem var fyrir fimm hundruð ár- um. Óheppileg staðsetning tilgátuhúss í Skálholti Eftir Ormar Þór Guðmundsson » Tillaga mín er því sú að áhugamenn um tilgátuhús Þorláksbúðar taki staðarval þess til endurskoðunar og finni því verðugan stað. Ormar Þór Guðmundsson Höfundur er arkitekt. Skálholtskirkja og vegghleðslur tilgátuhúss Þorláksbúðar, sem þegar hafa verið reistar. –– Meira fyrir lesendur MEÐAL EFNIS: Fjölskyldubílar Umhverfisvænir bílar Rafbílar Atvinnubílar Jeppar Nýjustu græjur í bíla Staðsetningarbúnaður Varahlutir Dekk Umferðin Bíllinn fyrir veturinn Þjófavarnir í bíla Námskeið Ásamt fullt af öðru spennandi efni PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. október. Bílablað SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um fjölskyldubíla, atvinnubíla, jeppa, vistvænabíla og fleira föstudaginn 6.október

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.