Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011
✝ Guðrún Guð-jónsdóttir
fæddist í Voðmúla-
staða-Austurhjá-
leigu (nú Búland) í
A-Landeyjum 21.
janúar 1922. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
7. september 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Guðjón
Guðmundsson, f. 12.5. 1890, d.
3.6. 1955 og Jóna Guðmunds-
dóttir, f. 6.5. 1887, d. 11.7. 1972.
Systkini Guðrúnar: 1) Guð-
mundur, f. 1.9. 1915, d. 22.8.
1998. 2) Ingimundur, f. 28.12.
1916, d. 4.12. 1982. 3) Eggert, f.
17.11. 1918, d. 27.4. 1996. 4)
Kristján B., f. 15.9. 1920, d. 11.4.
1999. 5) Jóhanna, f. 18.1. 1924, d.
15.4. 1980. 6) Sigríður, f. 25.10.
1925, d. 11.10. 2002. 7) Sigurður
Þ., f. 11.6. 1927, d. 8.5. 1998. 8)
Þórður, f. 15.7. 1928. 9) Leifur
Grétar, f. 15.7. 1928, d. 27.1.
1960. 10) Guðni, f. 12.4. 1931. 11)
Kristinn Sigmundur, f. 24.3.
1933, d. 2.12. 1933.
Guðrún giftist 24. júní 1947
Sigurði Óskari Sigurðssyni frá
Kálfholti, f. 18. júní 1922, d. 24.
þau sungu raddað undir stjórn
Ingimundar, bróður hennar.
Fékk heimili þeirra systkina
nafnið Sönghjáleiga meðal sveit-
unga. Guðrún var mjög lagviss
og ætíð syngjandi og var hún
fengin til aðstoðar við söng-
þjálfun kirkjukóra í öðrum hér-
uðum. Þannig kynntist hún eig-
inmanni sínum, Sigurði Óskari.
Hún fór sem ung stúlka í vinnu-
mennsku hjá sýslumannshjón-
unum að Efra-Hvoli, þar sem
henni líkaði vistin vel og áttu þau
hjón eftir að hafa mikil áhrif á líf
hennar. Seinna fór hún og gerð-
ist vinnukona hjá pípulagn-
ingameistara í Reykjavík. Eftir
að hún settist að á Selfossi með
eiginmanni sínum, starfaði hún
um tíma í mjólkurbúinu en lengst
af í þvottahúsi Sjúkrahúss Suð-
urlands. Tengdaforeldrar Guð-
rúnar fluttu til þeirra Sigurðar
þegar þau brugðu búi 1954.
Bjuggu þau hjá þeim sem eftir
lifði og nutu umönnunar Guð-
rúnar þegar ellin færðist yfir. Á
heimili Guðrúnar og Sigurðar
átti fjöldi fólks athvarf til lengri
eða skemmri tíma þegar komið
var í kaupstaðinn og allir boðnir
velkomnir með bros á vör. Eftir
lát Sigurðar bjó Guðrún að
Grænumörk 5 þar til hún flutti á
hjúkrunarheimilið Ljósheima ár-
ið 2004.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 17. sept-
ember 2011, og hefst athöfnin kl.
11.
júlí 1994. Foreldrar
hans voru Sigríður
Hannesdóttir og
Sigurður Sigurðs-
son. Sigríður hóf
síðar sambúð með
Júníusi Ingvarssyni
sem gekk Sigurði
Óskari í föður stað.
Guðrún og Sig-
urður Óskar eign-
uðust þrjú börn: 1)
Jóna Sigríður, f.
14.2. 1948, gift Guðmundi V. Þor-
kelssyni. Þau eiga 2 börn og 3
barnabörn. 2) Ragnheiður Björg,
f. 5.8. 1951, gift Theodóri I. Vil-
mundarsyni. Þau eiga 3 börn og
5 barnabörn. 3) Sigurður Júníus,
f. 19.5. 1954, giftur Hjördísi
Gunnlaugsdóttur. Þau eiga 3
dætur og 5 barnabörn.
Guðrún og Sigurður Óskar
settust að á Selfossi, fyrst að
Austurvegi 30 þar sem þau
bjuggu í sambýli við Ingimund,
bróður Guðrúnar, og síðar fluttu
þau að Tryggvagötu 8b sem varð
heimili þeirra til tæplega 40 ára.
Guðrún ólst upp í stórum systk-
inahópi og var mikil tónlist iðkuð
á heimilinu. Hún, ásamt systk-
inum sínum, var oft fengin á
skemmtanir í sveitinni þar sem
Nú kom að því að hún amma
mín fékk hvíldina sem hún var
farin að þrá og komast til afa
sem búinn er að bíða þolinmóð-
ur og vaka yfir henni, nú verður
gleði hjá þeim. Ég var mikið hjá
ömmu og afa, bæði á Tryggva-
götunni þegar ég og vinur minn
æfðum með skólalúðrasveit Sel-
foss í nokkra vetur og eins þeg-
ar þau bjuggu á Bakkatjörninni
en hjá þeim bjó ég á meðan ég
lærði vélvirkjun í FSU. Já, það
var mikið gott að búa hjá ömmu
og afa og heimili þeirra stóð
manni alltaf opið.
Alltaf heyrðist sama hressa
röddin þegar maður kom inn úr
dyrunum „Er það hann Villi
minn“.
Mikið var hún glöð þegar við
Guðrún Erla nafna hennar til-
kynntum henni að hún væri að
verða langamma í fyrsta sinn og
alltaf fannst henni hún verða
ríkari og ríkari eftir því sem
fjölgaði í fjölskyldunni, því fjöl-
skylda og fjölskyldubönd hafa
alla tíð skipt hana miklu.
Því miður komumst við ekki í
jarðarförina en ömmu Gunnu
minnumst við fjölskyldan sem
brosmilda gleðigjafans sem allt-
af var syngjandi og með létta
lund og þar sem við vitum að
það verða fagnaðarfundir hjá
henni og afa ætlum við af því
tilefni að fá okkur „einn til lífs-
ins“ eins og hún sagði alltaf og
sjá hana fyrir okkur blikka aug-
unum og brosa.
Þú hafðir hjarta úr gulli,
elsku amma, hjartans þakkir
fyrir allan sönginn, hvíl í friði.
Vilmundur, Guðrún Erla,
Óskar Fannar, Hlynur Ísak
og Steinar Ingi.
Stillt með ströndum öllum,
stafar vog og sund,
friður er á fjöllum
friður er á grund;
heyrist fuglkvak hinsta,
hljótt er allt og rótt,
hvíl þú hug minn innsta,
himnesk sumarnótt.
Fagra haust þá fold ég kveð.
Faðmi vef mig þínum.
Bleikra laufa láttu beð
að legstað verða mínum.
(Steingr. Thorst.)
Nú þegar ég kveð hana Guð-
rúnu er friður og gleði sú til-
finning sem fyllir hugann. Há-
öldruð kveður hún þetta líf sem
hún lifði í gleði og kærleika.
Gleði og söngur eiga saman í
hugum okkar flestra og þannig
tókst hún á við lífið. Söngur var
henni eðlislægur, raulandi við
vinnu sína, syngjandi í mann-
fagnaði, syngjandi þegar hún
fór í gegnum eitthvað sem okk-
ur hinum hefði fundist erfitt.
Ég er viss um að hún las aldrei
sjálfshjálparbók, vissi vísast
ekkert um slíkar bókmenntir.
Henni virtist ásköpuð jákvæð
hugsun og að sjá eitthvað já-
kvætt í öllu og öllum. Einstök
kona sem átti einstakt heimili
þar sem á tímabili bjuggu sam-
an fjórar kynslóðir. Hún var
tengda-dóttir, eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma á sama
heimilinu á sama tíma og rækti
öll hlutverkin fullkomlega.
Gestir drógust að þessu
heimili og fundu fyrir heilun
allra sinna erfiðleika með kaffi-
sopanum og pönnukökunum
hennar Gunnu. Oft hljómaði
harmonikkuleikur húsbóndans í
stofunni eftir kaffið og hún söng
með og tók dansspor. Gestir
fóru endurnærðir til síns heima.
Guðrún hafði tónlistargáfu og
söngrödd sem algengt er í fjöl-
skyldu hennar. Hún hefði sómt
sér vel í tónlistarhöllum. En
slíkt var ekki í boði fyrir stúlk-
ur úr sveit á Íslandi þegar hún
var ung. Hún virtist ekki harma
það, hefur sennilega ekki hugs-
að þann möguleika. En hæfi-
leikanna nutu hins vegar allir
sem kynntust henni bæði heima
og á vinnustað. Þau hjónin voru
meðal frumbyggja Selfoss, sett-
ust þar að árið 1947, en sveitar-
félagið Selfoss er ári eldra. Þau
bjuggu fyrst að Austurvegi 30
en keyptu húsið Laufás að
Tryggvagötu 8 árið 1954 og
endurbyggðu það og stækkuðu.
Það varð þetta fjölskylduhús
sem var áfangastaður fjöl-
margra gesta, sumir komu úr
sveitum og báðust gistingar,
aðrir bjuggu í nágrenninu og
komu til að lyfta geði sínu eins
og fyrr sagði.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að vera boðið að búa á
þessu heimili þegar ég var 14
ára og fara í skóla á Selfossi.
Ég var þannig vitni að og að-
njótandi þess sem ég hef verið
að reyna að lýsa. Á þessum
tímamótum þyrlast upp margar
minningar og þær eru ljúfar og
góðar. Fyrir þær allar, um-
hyggjuna og þolin-
mæðina sem mér, unglingn-
um, var sýnd vil ég þakka.
Ég flyt börnum Guðrúnar og
fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur mínar og fjöl-
skyldu minnar og bið þeim
blessunar.
Sigrún Ásgeirsdóttir.
Guðrún
Guðjónsdóttir
✝ Sigurður Ant-onsson fæddist
á Glæsistöðum í V.-
Landeyjum 31 maí
1928. Hann lést á
dvalarheimilinu
Kumbaravogi eftir
tveggja mánaða
fjarveru að heiman.
Foreldrar hans
voru hjónin Anton
Þorvarðarson, f.
1889, d. 1990, bóndi
að Glæsistöðum, og Guðrún
Guðmundsdóttir frá Sigluvík í
sömu sveit, f. 1898, d. 1980.
Bræður Sigurðar eru: Guð-
mundur, bóndi og málarameist-
ari, f. 1929, Kristinn, bóndi, f.
1930 og Ástþór, bóndi, f. 1932..
Bræðurnir fjórir
bjuggu alla tíð á
Glæsistöðum.
Sigurður var alla
tíð einhleypur.
Hann sótti víða
vinnu, t.a.m. marg-
ar vertíðir í Vest-
mannaeyjum,
margar sláturtíðir
á Hellu og var um
tíma við uppbygg-
ingu Keflavík-
urflugvallar þegar herinn var
að byggja upp aðstöðu sína á
Miðnesheiði.
Sigurður verður jarðsunginn
frá Akureyjarkirkju í dag, 17.
september 2011 og hefst athöfn-
in kl. 14.
Nú er frændi minn, Sigurð-
ur, elsti Glæsistaðabróðirinn,
dáinn.
Faðir minn var hluti af
stórum systkinahópi og mjög
ungur að árum er móðirin dó.
Þá tók elsta systirin, Guðrún,
að sér að stjórna heimilinu og
koma yngstu systkinunum í
móðurstað. Þess vegna var það
að faðir minn reyndi að komast
eins oft og mögulegt var til að
heimsækja systur sína á
bernskuheimili sitt þegar hann
varð fulltíða maður og fluttur
úr sveitinni til Reykjavíkur.
Honum fannst hún vera stað-
gengill móður sinnar sem hann
saknaði alla tíð.
Ég minnist því margra þess-
ara heimsókna sem ég var með
í för með honum og síðar með
eiginmanni mínum og börnum.
Þannig kynntist ég Glæsistaða-
bræðrunum, sonum Guðrúnar
föðursystur minnar.
Alltaf var tekið vel á móti
okkur á Glæsistöðum. Gleði og
ánægja ríkti alltaf á þeim end-
urfundum. Á Glæsistöðum, eins
og flestum íslenskum bújörð-
um, þurfti svo sannarlega að
taka til höndunum. Þar voru
næg viðfangsefni fyrir fjóra
unga bræður. Þeir lærðu af
dugandi foreldrum sem bæði
urðu háöldruð og unnu með
þeim svo lengi sem þau voru
vinnufær. Bræðurnir tóku síðan
við búinu og hafa verið sam-
hentir í því að reka það með
miklum myndarskap. Það er
ekki ofsögum sagt að mikill
sómi sé að búi þeirra hvert
sem litið er, hvort heldur er á
húsakost, skepnuhald eða um-
hverfið allt.
Þegar þeir bræður voru
sóttir heim var allt innanhúss
til sóma og góðar veitingar
frambornar. Við minnumst
góðra endurfunda á síðustu
árum eins og alltaf.
Íslenskir bændur þurfa að
vera dugandi eigi fyrirtækið
að bera sig. Þannig dugnað
átti Sigurður frændi og allir
bræður hans. Í þeim dugnaði
komu fram bestu mannkostir
sem hægt er að öðlast: þ.e.
vinnusemi, úthald, hagsýni,
sparsemi, bjartsýni og trú,
auk umhyggju fyrir öllu sem
lifir og bróðurkærleik svo að
samvinnan yrði sú sem hún
varð.
Fyrir þetta fordæmi þakka
ég og bið ykkur Kristni, Guð-
mundi og Ástþóri blessunar
Guðs, hann veiti ykkur huggun
í sorg ykkar.
Guð blessi minningu Sigurð-
ar.
Sigríður Ólafsdóttir Candi.
Sigurður Antonsson
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur fjölskyldunni samúð, hlýhug
og vináttu vegna veikinda, andláts og
útfarar okkar hjartkæra
KJARTANS GUÐJÓNSSONAR,
Heiðmörk 1,
Stöðvarfirði.
Jóna Hallgrímsdóttir,
Guðjón Kjartansson, Agnes Guðmundsdóttir,
Oddný Vala Kjartansdóttir, Þorvaldur Hreinsson,
Halla Kjartansdóttir, Björn Svanur Víðisson,
Kristján Erling Kjartansson, Pálína Auður Lárusdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langalang-
ömmu,
JÓNÍNU MARGRÉTAR GÍSLADÓTTUR,
áður til heimilis að
Sóltúni 11.
Grímur H. Brandsson, Sigríður Ágústsdóttir,
Tómas J. Brandsson, Karen Jónsdóttir,
Ágústa Brandsdóttir Hummel, Werner Hummel,
Guðbrandur G. Brandsson, Arnheiður Vala Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem veittuð
okkur aðstoð og sýnduð hlýhug og samúð
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og tengda-
sonar,
ÁSGEIRS GUÐJÓNS KRISTJÁNSSONAR
frá Bolungarvík,
Drafnarbraut 2,
Dalvík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar og
lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri fyrir alúð og góða
umönnun.
Bergljót Vilhelmína Jónsdóttir
og fjölskylda.
✝
Þökkum af alhug öllum þeim sem heiðruðu
minningu okkar elskulegu
ARNÞRÚÐAR MARGRÉTAR
JÓHANNESDÓTTUR
sjúkraliða,
Arahólum 4,
áður Kópavogsbraut 107,
sem lést þriðjudaginn 28. júní, og sýndu okkur og fjölskyldunni
allri samúð og hlýju við fráfall hennar.
Sigurður Gunnlaugsson,
Aðalbjörg Sigurðardóttir, Gísli Eiríksson,
Gíslunn Arngrímsdóttir,
Hulda Sigurðardóttir, Haraldur Þorsteinsson,
Sigurlaug Sigurðardóttir, Emil Valgarðsson,
Margrét Sigurðardóttir, Eyþór Rafn Þórhallsson,
ömmu- og langömmubörnin.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa, lang-
afa og langalangafa,
GUNNÞÓRS RAGNARS
KRISTJÁNSSONAR,
áður til heimilis í Skarðshlíð 29,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Kjarnalundi og lyflækninga-
deildar Sjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun.
Jakobína Þórey Gunnþórsdóttir,
Kristján Gunnþórsson, Jónína S. Helgadóttir,
Þóroddur Gunnþórsson, Lilja Marinósdóttir,
Sveinmar Gunnþórsson, Kristín Pálsdóttir,
Eyþór Gunnþórsson, Soffía Valdemarsdóttir,
Jóhanna Gunnþórsdóttir, Brynjólfur Lárentsíusson,
Ragnar Gunnþórsson,
Haraldur Gunnþórsson, Hallfríður Hauksdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
MAGNÚSAR KARLS PÉTURSSONAR
læknis,
Einilundi 1,
Garðabæ.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Pétursdóttir,
Ólafur Tryggvi Magnússon, Björg Vilhjálmsdóttir,
Magnús Karl Magnússon, Ellý Katrín Guðmundsdóttir,
Atli Freyr Magnússon, Steinunn Gestsdóttir,
Ásdís Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.