Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hljómlistamaðurinn Hermigervill
(Sveinbjörn Thorarensen) á nú að
baki fjórar plötur. Lausnin (2003) og
Sleepwork (2005) innihéldu ósungið
hipp hopp en í hitteðfyrra datt hann
inn á það að setja þekktar íslenskar
dægurflugur í rafræna yfirhalningu.
Fyrir tilstilli alls kyns hljóðgervla og
ýmiskonar rafrænna ása sem Gervi-
llinn geymir í ermum sínum voru lög
eins og „Glugginn“, „Sveitin milli
sanda“ og „Vegir liggja til allra átta“
send í nokkurs konar „makeover“
svo stuðst sé við sjónvarpsmál. Þessi
lög, ásamt fleirum, litu dagsins ljós á
plötunni Hermigervill leikur vinsæl
íslensk lög og naut platan þónokk-
urra vinsælda. Platan Hermigervill
leikur fleiri íslensk lög kom út fyrir
stuttu, önnur plata tvíleiks.
Hrós
Hermigervillinn er staddur í Belg-
íu um þessar mundir og þar tekur
hann við hrósi vegna umslagshönn-
unar en allar plötur hans hafa verið
einstaklega smekklegar að því leyt-
inu til.
„Jú, þarf þetta ekki allt að vera út-
pælt?“, segir hann. „Ef maður þykist
ætla að vera með einhverja listræna
tilburði þá gengur ekki að skrópa í
einu fagi.“
Platan nýja var tekin upp í Svíþjóð
og segist Hermigervill vera með fær-
anlegt hljóðver með sér, enda sé
hann að myndast við það að lifa af list
sinni.
„Ég er með svona hipparúgbrauð
(og vísar í gamaldags sendiferðabíla)
svo ég geti ferðast um með græj-
urnar. Ég sem t.a.m. fyrir auglýs-
ingar og heimildarmyndir en svo er
það litla dúllan mín, Berndsen, sem
ég er gríðarlega stoltur af. Ég sá um
alla tæknivinnu á Lover in the Dark
og ég á mér þann draum að sá dreng-
ur verði heimsfrægur.“
Risaland
En hvernig komu þessar dæg-
urflugnaplötur til?
„Þetta var bara köllun sem ég
fékk,“ svarar Hermigervill snarp-
lega.
„Ég er farinn að safna gömlum
hljóðgervla og „moog“-plötum,
ógeðslega hallærislegum plötum þar
sem vinsæl lög þeirra tíma voru leik-
in á þessi apparöt. Plöturnar bera
nöfn eins og „The Beatles hits on the
Moog“ og svoleiðis. Í gegnum þessar
plötur sér maður að raftónlist er mun
eldri en að vera eitthvað eitís-
fyrirbæri. Ég er t.d. að spila á þe-
remín sem var fundið upp 1920. En
mér fannst vanta svona íslenska
plötu.
Titillinn vísar í plötu sem Þórir
Baldursson gerði árið 1971, Þórir
Baldursson leikur vinsæl íslensk lög
en þar leikur hann á hammondorgel.
Auk rafhljóða nýti ég mér líka hljóð-
færi, spila á trommur t.a.m. Ég á lítið
krakkasett sem passar vel í rúg-
brauðið. Ég get ekki lengur sest við
venjuleg sett, þá líður mér eins og ég
sé í risalandi (hlær).“
Loforð
Fyrsta platan í tvíleiknum gekk
vel í landann, þau 500 eintök sem
Hermigervill lét framleiða kláruðust.
Þá plötu gaf hann út sjálfur en Kimi
sér um útgáfuna á nýju plötunni. „Ég
nálgast hvert lag á mismunandi hátt,
það ræður því hvernig meðferð það
fær en samt lenda þau nú alltaf í
sama hljóðheimi, hljóðheimi sem ég
slepp ekki úr sjálfur. Og ég lofa því
að þetta er síðasta platan!“
Hipparúgbrauðið góða
Hlaðinn Hermigervill inni í hljóðgervlaturni.
Hermigervill gefur út ...leikur fleiri ís-
lenzk lög Tvíleik lokið með útgáfunni
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
hefur hafið rannsókn á innbrotum
sem gerð hafa verið í tölvur þekktra
einstaklinga úr heimi lista og af-
þreyingar í Bandaríkjunum og má
þar nefna Scarlett Johansson, Milu
Kunis og Justin Timberlake. Þá virð-
ist sem óprúttnir einstaklingar hafi
komist yfir ljósmyndir af frægu fólki
sem geymdar voru í farsímum þess
og tölvum, meðal annars af Joh-
ansson. Þá hafa einnig nekt-
armyndir birst af leikkonunni Jes-
sicu Alba á netinu.
Dagblaðið Los Angeles Times seg-
ir frá því að talsmaður FBI hafi stað-
fest að rannsókn sé hafin á inn-
brotum í tölvur og farsíma tuga
þekktra einstaklinga.
Lögmaður Johansson hefur varað
menn við því að birta stolnar myndir
af henni á netinu. Slúðurvefurinn
TMZ hefur m.a. fjallað um mynd-
irnar af Johansson og að hún hafi
beðið lögmann sinn að ganga í málið
líkt og leikkonan Mila Kunis.
Reuters
Stuldur Johansson er ekki sátt.
Stolnar myndir
af frægu fólki
Leikarinn og hjartaknúsarinn
Brad Pitt segir í viðtali við tíma-
ritið Parade að líf hans hafi verið
aumkunarvert áður en hann
kynntist barnsmóður sinni Angel-
inu Jolie. Hann hafi verið orðinn
leiður á því að láta sem hjónaband
þeirra Jennifer Aniston væri í
blóma. Pitt segist hafa eytt miklu
púðri í að fara huldu höfði og
forðast sviðsljósið sem fylgir
Hollywood-stjörnum hvert sem
þær fara. „Ég fékk nóg af því að
sitja á sófa með jónu í hönd, í fel-
um. Mér fannst þetta orðið aumk-
unarvert,“ segir Pitt í viðtalinu.
Það hafi verið gæfuspor að eign-
ast börn með Jolie.
Jolie færði
lífinu lit
Reuters
Pyttur Pitt féll í fúlan pytt en náði
sér upp úr honum.
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
I DON´T KNOW HOW SHE DOES IT KL. 1 (TILBOÐ) - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
I DON´T KNOW HOW... Í LÚXUS KL. 1 - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L
WARRIOR KL 8 - 10.50 16
SPY KIDS 4D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 - 5.50 L
OUR IDIOT BROTHER KL. 8 - 10.10 14
STRUMPARNIR 2D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.40 - 5.50 L
STRUMPARNIR 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 - 5.40 L
30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14
I DON´T KNOW HOW SHE DOS IT KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
COLOMBIANA KL. 8 - 10.20 16
MELANCHOLIA KL . 6 - 9 12
Á ANNAN VEG KL. 4 (TILBOÐ) - 6 - 8 10
SPY KIDS 4D KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 L
30 MINUTES OR LESS KL. 10 14
STRUMPARNIR 3D KL. 3.40 (TILBOÐ) L
I DON´T KNOW HOW SHE DOS IT KL. 8 - 10 L
COLOMBIANA KL. 6 - 8 - 10 16
STRUMPARNIR 3D KL. 4 (TILBOÐ) L
Á ANNAN VEG KL. 4 (TILBOÐ) 10
SPY KIDS 4D KL. 6 L
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
COLOMBIANA Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 (Power)
WARRIOR Sýnd kl. 7 - 10
THE CHANGE-UP Sýnd kl. 5:50 - 8
THE DEVILS DOUBLE Sýnd kl. 10:15
SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
STRUMPARNIR ÍSL TAL Sýnd kl. 2 (700kr.) - 4
Í FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI!
BÍÓMYND
Í FJÓRVÍDD!
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ ÞEIM
SÖMU OG FÆRÐU OKKUR „TAKEN“
FRÁ LEIKSTJÓRA
WEDDING
CRASHERS
OG HANDRITS-
HÖFUNDUM
THE HANGOVER
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:15
Hvar í strumpanum
erum við ?
Sýnd í 3D með
íslensku tali
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKT R MEÐ RAUÐU