Morgunblaðið - 17.09.2011, Qupperneq 44
Morgunblaðið/Kristinn
Karlmenn Mynd tekin af rennsli á Alvöru mönnum í vikunni. Egill Ólafsson tekur sporið, án efa eggjandi.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Gamanleikritið Alvöru menn, eftir
Glynn Nicholas og Scott Rankin,
verður frumsýnt kl. 20 í kvöld í Aust-
urbæ og mun það vera vinsælasta
gamanleikrit Svíþjóðar þessa dag-
ana. Verkið er frá árinu 1999 og hef-
ur verið sýnt víða um heim en það
verður sett upp á West End í Lund-
únum í byrjun næsta árs.
Í Alvöru mönnum segir af fjórum
karlmönnum, eiganda fyrirtækis og
þremur háttsettum undirmönnum
hans sem halda til Kanaríeyja til að
endurskipuleggja fyrirtækið. Eig-
andinn, leikinn af Agli Ólafssyni, til-
kynnir körlunum að einhver þeirra
muni missa starf sitt og í kjölfarið
brýst út mikil samkeppni milli
mannanna með óvæntum uppá-
komum. Undirmennina þrjá leika
Jóhann G. Jóhannsson, Kjartan
Guðjónsson og Jóhannes Haukur
Jóhannesson en leikstjórn er í hönd-
um Gunnars Helgasonar.
Engin karlremba
Blaðamaður ræddi við Kjartan og
spurði hann hvort Alvöru menn væri
karlrembuverk.
„Alls ekki. Við vorum með rennsli
hérna á laugardagsmorgun og á því
voru 30 stelpur og þær hlógu alveg
út í eitt,“ svarar Kjartan. Reynslan
af sýningum á verkinu hafi verið sú
að konur hlæi meira en karlar. Leik-
ritið fjalli ekki um samskipti
kynjanna að hætti Hellisbúans. Það
sé heldur óhefðbundið, mikið sungið
í því og töluvert uppistand.
„Egill Ólafsson tekur t.d. alveg
„killer“ lag, ógeðslega flott,“ segir
Kjartan en píanóleikarinn Pálmi
Sigurhjartarson mun leika undir á
píanó auk þess að sjá um lifandi leik-
hljóð.
– Þetta fjallar um samskipti karl-
manna og þá samkeppni þeirra á
milli?
„Jú, þetta fjallar um það og líka
samskipti kynjanna, við erum að
verða undir, eins og Egill Ólafsson
segir: nú geta þær bara farið út í búð
og keypt sæði. Það er ekki í leikrit-
inu, hann sagði þetta í útvarps-
viðtali. Þetta fjallar dálítið um sam-
skiptin við konurnar okkar og
börnin og að vera of lengi í
vinnunni,“ segir Kjartan. Meðal þess
sem karlarnir gera er að fara í sjó-
stangaveiði og er hún túlkuð með til-
þrifum af leikurunum. Annar höf-
undur leikritsins, Nicholas, veitti
leikurunum leiðsögn á meðan á æf-
ingum stóð og m.a. í því hvernig þeir
ættu að beita líkamanum þannig að
sem trúverðugast væri að þeir væru
úti á sjó. „Við höfum forðast að nota
orðið látbragð, það hata allir lát-
bragðsleik,“ segir Kjartan um þá
leiðsögn.
„Fyrirgefðu, Jói, má ég þjálfa
þig?“
Hvað vinsældir verksins varðar
bendir Kjartan á hversu vel það hef-
ur gengið í Svíþjóð en segir íslensku
uppfærsluna miklu betri.
„Hún er miklu flottari en þessi
sænska, þeir eru hálflatir í öllu sem
þeir gera í þeirri sýningu,“ segir
Kjartan en hann sá upptöku af sýn-
ingunni með leikurunum og leik-
stjóranum. Kjartan hefur unnið með
þeim öllum áður og segir móralinn
góðan í hópnum. „Við erum mjög
kurteisir hver við annan. Við erum
með svona orðatiltæki, ef við sjáum
eitthvað rangt við það sem við erum
að gera uppi á sviði: „Fyrirgefðu,
Jói, má ég þjálfa þig?“ og þá segir
hann: „Já, gjörðu svo vel“. Þetta er
svo mikið bræðralag hjá okkur.“
– Þeir takast á við lífshættulegar
aðstæður, karlarnir?
„Við förum þarna í sjóstangaveiði
og lendum þá í smá-lífsháska. Það
gerðist líka í alvörunni þegar við fór-
um út á sjó, margir héldu að það
væri „publicity stunt“ en það var al-
veg í alvöru. Það munaði sjö mín-
útum að við færum í kletta sem voru
þarna,“ segir Kjartan en þeim lífs-
háska voru á dögunum gerð skil í
Kastljósi í Sjónvarpinu.
– Þið voruð þó mjög rólegir, ég sá
ekki betur.
„Já, það var bátur að koma en
skipstjórinn var aðeins farinn að
ókyrrast og þá fórum við að ókyrr-
ast.“
– Það er ekki mjög karlmannlegt
að skríkja í geðshræringu?
„Nei, það var einn okkar samt
sem gerði það, Jóhannes Haukur.
Það var ekki út af þessu heldur því
að hann var svo sjóveikur. Við vor-
um bara nýkomnir út úr innsigling-
unni við Reykjavíkurhöfn þegar
hann fór að verða sjóveikur, hann
vildi bara snúa í land strax.“
Kjartan segir Egil hins vegar hafa
hagað sér eins og skipstjóri, stjórn-
að björgunaraðgerðum og gripið
kaðalinn með tönnunum sem hent
var til þeirra.
Karlar í klípu á Kanarí
Leikritið Al-
vöru menn verður
frumsýnt í kvöld í
Austurbæ
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011
„SKEMMTILEG BÍÓMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA, LÍFLEG,
FYNDIN OG HENTAR ÖLLUM
ALDRI“
- HULDA GEIRSDÓTTIR,
RÁS 2
HHH HHH
„VEKUR ÍMYNDUNARAFL
ÁHORFENDA“
- ÓLAFUR H. TORFASON
RÁS 2
HHHH
„SVEPPI, VILLI OG GÓI SKILA
ALLIR SÍNU UPP Í TOPP“„ALLIR
Á SVEPPA“
- A.E.T MORGUNBLAÐIÐ
„FÁLKAORÐUNA Á SVEPPA“
- K.I. PRESSAN.IS
HHH
ALGJÖR SVEPPI kl. 12 - 12:30 - 1 - 2 - 2:30 - 3 - 4 - 4:30 - 6 - 6:30 - 8:30 2D L
DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 16 LARRY CROWNE kl. 8 2D 7
DRIVE kl. 1:30 - 3:40 - 8 - 10:10 2D VIP HORRIBLE BOSSES kl. 5:50 VIP- 8 -10:10 2D 12
FRIGHT NIGHT kl. 10:30 3D 16 GREEN LANTERN kl. 10:10 2D 12
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D 7 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 12:30 - 3 - 5:30 L
DRIVE kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 16 FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:20 3D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 2D L BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:40 2D 7 HARRYPOTTER7 kl. 2 3D 12
FRIGHT NIGHT kl. 8 - 10:30 3D 16
/ EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr.
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS
„DRIVE ER SANNKALLAÐ
MEISTARAVERK“
- TIME OUT NEW YORK
„DRIVE ER BESTA MYND
ÁRSINS 2011“
- FILMOPHILIA.COM
MEÐ TÆPLEGA 9
Í EINKUNN
Á VIRTASTA
KVIKMYNDAVEF
HEIMS - IMDB.COM
SÝND Í KRINGLUNNI
HHHH
„EIN SÚ BESTA SEM ÉG HEF
SÉÐ Á ÞESSU ÁRI“
-KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„ÞESSI MYND ER ROSALEG
OG ENGINN ÆTTI AÐ FARA
ÚT ÓSÁTTUR“
-SCENE.IS