Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 48

Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 48
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 260. DAGUR ÁRSINS 2011 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Þarftu að keyra upp kynhvötina? 2. Brad Pitt biðst afsökunar 3. Fjórar milljónir í súginn 4. Ný mynd af Breivik fyrir árásirnar  Geir Ólafsson og Furstarnir eru með barnaplötu í smíðum fyrir jólin. Kallast hún Amma er best. Lög og texta semur Guðmundur Rúnar Lúð- víksson. Karl Möller útsetur. Morgunblaðið/Sigurgeir S Geir Ólafsson gefur út barnaplötu  Weirdcorehóp- urinn stendur fyr- ir uppákomu á Bakkusi í kvöld. Fram koma djdelarosa (Sometime/ Feldberg ), PLX, Futuregrapher og Bix en plata Bix, Animalog, kom út 7. september síð- astliðinn. Weirdcore var stofnað árið 2005 af þeim Tönyu Pollock og Rósu Birgittu Ísfeld og hefur unnið mark- visst að framgangi raftónlistar síðan. Weirdcore og útgáfu- tónleikar á Bakkus  Steinþór Helgi Arnsteinsson, tón- leikahaldari með meiru, mun standa fyrir tónleikum í stofunni sinni á Airwaves – svokölluðu „off venue“. Fram koma m.a. Hjaltalín, Snorri Helgason, Bernd- sen, Kippi Kan- inus, Kreatiiv- motor (Ee), Owen Pallett (Ca), Rabbi Ban- anas, Hermi- gervill, Oculus og Lím Drím Tím. Steinþór Helgi með tónleika í stofunni FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 og dálítil væta með s-ströndinni framan af degi, en annars mun hægari og þurrt. Hiti víða 11 til 16 stig að deginum. Á sunnudag Gengur í suðaustan 13-18 m/s með rigningu S- og V-lands, en annars 10-13 og þurrt að mestu. Hiti 10 til 15 stig. Á mánudag Suðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 9 til 14 stig. Stórstjörnur úr NBA-deildinni, Pau Gasol og Tony Parker, mætast í úr- slitaleik Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik sem fram fer í Lithá- en. Spánn og Frakkland unnu sér í gær sæti í úrslitaleiknum sem fram fer á morgun. Gasol og Parker létu báðir mjög til sín taka í undanúrslita- leikjunum gegn Makedóníu og Rúss- landi í gær. » 2 NBA-stjörnur mætast í úrslitum á EM Óvissa ríkir um hvort stór- leikur ÍBV og KR í Pepsí- deild karla í knattspyrnu geti farið fram í Vest- mannaeyjum á morgun. Veðurspár eru afar slæmar fyrir morgundaginn og vind- hraði í Eyjum gæti náð 20 metrum á sekúndu. Fari svo að leiknum verði frestað verður leikurinn settur á daginn eftir en þá er útlit fyrir skaplegra veður. » 1 Miklu hvassviðri spáð í Eyjum Ísland og Noregur mætast í sannköll- uðum stórleik í undankeppni Evr- ópumótsins í fótbolta kvenna á Laug- ardalsvellinum klukkan 16 í dag. Þetta eru talin tvö sterkustu liðin í riðlinum og því ekki ólíklegt að þetta sé í raun fyrri úrslitaleikur þeirra um sæti í loka- keppni EM í Svíþjóð. »2-3 Ísland og Noregur í baráttu um sæti á EM Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Í þrjátíu ár hefur John Waite ferðast um heiminn með bakpok- ann sinn. Waite er 89 ára gamall og elsti bakpokaferðalangur í heimi svo vitað sé. Hann er eltur af handritshöfundum í Hollywood og bókaútgefendum, allir vilja segja sögu hans en Waite er ekki tilbúinn til þess. Hann hefur nefnilega ekki lokið ferðalaginu, fyrr verður ekkert gefið út. „Ég hef engan tíma til að stoppa til að skrifa bók, ég er enn á ferðinni. Ég er búinn að skipuleggja næstu fimmtán árin í ferðalög og svo hugsa ég um það í framhald- inu,“ segir Waite kankvís. Hann er nú staddur á Íslandi í fyrsta skipti. Waite var sautján ára þegar hann barðist í síðari heimsstyrj- öldinni fyrir England. Árið 1961 flutti hann til Ástralíu þar sem hann á enn heimili og fimm börn, ellefu barnabörn og níu barna- barnabörn. „Konan mín lést 1982 og ári síðar var ég lagður af stað. Ég var ríkisstarfsmaður, kominn á ellilífeyrisaldurinn og vildi gera eitthvað. Mörgum finnst lífið búið þegar þeir hætta að vinna en það er upphaf lífsins því þá er fyrst tími til að gera það sem mann hefur dreymt um allt sitt líf,“ segir Waite. Hann kveðst ekki vera ríkur, segir bakpokaferðalög bara ekki þurfa að vera kostn- aðarsöm. Var um tíu ár í Afríku Fyrstu árin starfaði hann sem sjálfboðaliði hjá Sameinuðu þjóð- unum í Afríku og ferðaðist um stríðshrjáð lönd. Hann hitti Móð- ur Teresu í Kalkútta þar sem hann vann um tíma á einum spít- ala hennar. Hann á vini um allan heim og heldur utan um þá sem hann hittir með því að skrá nöfn þeirra í svarta bók. Hann á nokkr- ar slíkar bækur heima sem eru fullar. „Auk þessarar bókar held ég aðrar tvær á ferðalaginu; dag- bók og bók sem ég fæ fólkið sem ég hitti til að skrifa eitthvað í á sínu tungumáli.“ Waite skipuleggur aldrei ferða- lögin sín. Mætir bara á staðinn og bjargar sér. „Ég skoða ferða- mannastaði en ég tala frekar við heimamenn og fæ upplýsingar um það sem er ekki í bæklingunum.“ Ísland var eitt fárra landa sem Waite átti eftir að heimsækja en nú er listinn kominn niður í Arg- entínu, Grænland og nokkrar eyj- ar í Kyrrahafinu. Waite er af- skaplega hrifinn af hreinleika Íslands og náttúrufegurðinni. Hann ætlar að koma aftur. Enginn tími til að stoppa  89 ára bakpoka- ferðalangur með þrjátíu ára reynslu Morgunblaðið/Eggert Ferðalangur John Waite er að verða níræður en léttur á fæti eins og tvítugur og þarf ekki að nota lesgleraugu. Hann hefur farið í fallhlífarstökk á Indlandi, gengið Kínamúrinn og riðið úlfalda. Tíbet er honum eftirminnilegt. Miðað við að hafa ferðast um allan heim í þrjátíu ár hefur Waite lent í fáum hættum. „Í Mexíkóborg lenti ég einu sinni í því að vera sleginn í höfuðið, rændur öllu og skilinn eftir í blóði mínu til að deyja. En það fór allt vel. Ég hef farið til Mexíkó þrisvar sinnum síðan og bara hitt gott fólk. Flestir í heiminum eru góð- ir en við heyrum bara af þeim örfáu slæmu. Ég sat líka inni í fangelsi í Kína í fjóra daga eftir að hafa óvart ratað inn á her- svæði. Ég bað herforingjann um að skrifa í bókina mína en í staðinn tók hann bókina reiður af mér og ég hélt að ég sæi hana aldrei aftur. En þegar mér var hleypt út köstuðu fangaverð- irnir bókinni á eftir mér og voru þá búnir að skrifa í hana á kín- versku. Ég veit ekki enn hvað stendur þar.“ Flestir í heiminum eru góðir Í LÍFSHÆTTU Góðverk Waite hitti Móður Teresu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.