Morgunblaðið - 30.09.2011, Page 6

Morgunblaðið - 30.09.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Mött og hlýleg áferð með LADY PURE COLOR NÝTT Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Þingmenn úr stjórnarandstöðu munu ekki gegna formennsku eða varafor- mennsku í nefndum Alþingis en ný lög um þingsköp gera ráð fyrir þeim möguleika. Ragnheiður Elín Árnadóttir, for- maður þingflokks sjálfstæðismanna, segir að ástæðan sé m.a. sú að flokk- arnir hafi verið ósammála um hversu mörg slík embætti ættu að koma í hlut stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar. Miklar breytingar séu í vændum á þingstörfum og talið hafi verið betra að leggja ágreining um þetta mál til hliðar á meðan reynsla kemst á þær. Ragnheiður Elín bendir á að eng- inn ágreiningur sé um hversu marga fulltrúa þing- flokkar eigi að hafa í hverri fastanefnd Al- þingis, um það fari eftir svo- nefndri d’Hondt- reglu um hlut- fallskosningar. Í nýju þingskapa- lögunum sé aftur á móti ekki fylli- lega ljóst hversu mörg formanns- og varaformannsembætti eigi að koma í hlut stjórnarandstöðu og hversu mörg í hlut stjórnar. Um þetta verði að gilda skýr regla til að tryggt sé að hið sama gildi, óháð því hver sé í stjórn eða í stjórnarandstöðu. Ragn- heiður Elín segir aðspurð að það séu ákveðin vonbrigði að ekki hafi náðst samkomulag um skiptinguna. Á hinn bóginn borgi sig ekki að ana að breyt- ingunni, enda skili hún ekki árangri ef ágreiningur sé um skiptingu emb- ætta. Formenn og varaformenn nefnda gegni lykilhlutverki við að koma málum á dagskrá og afgreiða úr nefndum. Formennska megi ekki verða enn eitt bitbeinið í pólitískum skotgrafahernaði. „Það hefur enginn áhuga á því,“ segir hún. Breyta þarf hugarfari Víða á Norðurlöndunum er hefð fyrir að formenn og varaformenn komi úr röðum stjórnarandstæðinga. Ragnheiður Elín bendir á að þar sé mun meiri hefð fyrir að samstaða ná- ist um pólitísk deilumál. „Það er ekki nóg að gera breytingar á nefndaskip- an, það þarf líka að breyta hugarfari.“ Bíða með formennsku  Stjórnarandstaðan fær ekki formennsku í þingnefndum Ragnheiður Elín Árnadóttir BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Símahlustun er eitt þeirra úrræða sem embætti sérstaks saksóknara nýtir sér í rannsóknum sínum, og samkvæmt gögnum sem vísað var í á Alþingi í sumar hefur nýtt sér til hins ýtrasta. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur borið við að upptökur hafi verið leiknar fyrir aðra en þá sem ræða saman í viðkomandi símtölum við skýrslutökur, og að þeir sem hlerað var hjá hafi fyrst frétt af því hjá mönnum í skýrslutökum. Sér- stakur saksóknari segir að í lögum sé mælt fyrir um hvernig tilkynningu um símahlustun skuli háttað og gætt er að því eins og hægt er. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segist í samtali við Morg- unblaðið ekki geta tjáð sig um ein- stök mál. Þegar kemur að umræddu úrræði þurfi hins vegar að gæta vel að settum reglum. „Ákveðnar reglur liggja fyrir um það hvernig viðkom- andi er tilkynnt þetta. En það er hins vegar mat rannsóknaraðilans í hvaða röð aðilar eru teknir fyrir sem varða efni símtalsins. Þar af leiðandi er tæknilega mögulegt að ekki séu allir látnir vita á sama tímamarkinu.“ Í lögum um meðferð sakamála er að finna ákvæði um umrædda til- kynningu. Þar segir að þegar aðgerð sé lokið skuli lögreglustjóri sjá um að þeim sem aðgerði beindist að „sé til- kynnt um aðgerðina svo fljótt sem verða má, þó þannig að það skaði ekki frekari rannsókn málsins.“ Einnig segir í lögunum að skilyrði fyrir símahlustun séu m.a. þau að ástæða sé til að ætla að upplýsingar sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls fáist með þeim hætti. Ólafur segist á ný ekki getað tjáð sig um ein- stök mál „en aftur á móti geta þessi úrræði verið mjög haldgóð sönnunar- gögn í málum, sérstaklega þegar menn tjá sig ekki opið um sakarefn- ið.“ Ósýnileg út á við Lítið hefur heyrst af gangi rann- sókna embættisins að undanförnu og dregur Ólafur ekki fjöður yfir ósýni- leika sérstaks saksóknara. „Því er ekki að neita að þegar við erum í gögnum erum við ekki mjög sýnileg. Sú vinna sést ekki mikið út á við þó svo að unnið sé af gríðarlegu kappi við að ljúka rannsóknum mála.“ Hann segist ekki geta upplýst hve- nær ákærur í stærri málum líti dags- ljósið, enda eigi aðilar máls rétt á því að fá þær upplýsingar fyrst. „Þá er það einfaldlega þannig að þessi mál eru þannig vaxin að þau soga til sín mikla vinnu áður en endapunktur fæst í þau. Það gildir um rannsóknir þessara mála um allan heim. Við er- um ekki sér á parti með það.“ Spurður hvort ekki farið mikill tími í að hlusta á sam- töl manna sem fengist hafa með hlerunum segir Ólafur marga verkliði taka langan tíma. „Menn reyna að koma upp verklagi með þeim hætti að það sé gert án þess að of mikill tími fari í það. Þetta er hluti af því gagnamagni sem við erum með í málum. Við erum með fjöldamörg skjöl sem hald hefur ver- ið lagt á, tölvupósta, heimasvæði og fleira sem þarf að fara yfir og það hleypur á mjög stórum stærðum.“ Þrátt fyrir allt segir Ólafur að vinnan sé á áætlun. „Í heildina eru hóparnir á áætlun. Þó að fyrstu áætl- anir hafi gert ráð fyrir skemmri tíma í gagnayfirferð hafa þær áætlanir verið uppfærðar og gerð raunhæfari markmið. Það er margt í þessum rannsóknum sem verið er að gera í fyrsta skipti hér á landi. Mjög erfitt var því að áætla tíma í upphafi en við erum að ná tökum á því.“ Spurður um hvað sé verið að vinna í fyrsta skipti nefnir hann til að mynda nýungar við vinnslu úr sím- gögnum. Heyrði af símahlerun eftir skýrslutöku annars manns  Sérstakur saksóknari segir að lögum sé fylgt þegar kemur að tilkynningu Hleranir » Í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar í sumar kemur fram að árið 2009 fékk emb- ætti sérstaks saksóknara 19 heimildir til símahlerana. » Á árinu 2010 fóru heimild- irnar hins vegar upp í 72 og voru þær jafn margar og hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu það árið. » Þær voru svo 15 frá janúar til 27. maí sl. Morgunblaðið/Ómar Ísland getur skip- að sér í fremstu röð á alþjóðavett- vangi sem grænt hagkerfi, með áherslu á hreina náttúru, sjálf- bæran orkubú- skap, nýsköpun og menntun til sjálfbærni. Þetta er ein af helstu niðurstöðum nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins. Nefndin leggur áherslu á að um- hverfisvernd og atvinnusköpun séu ekki andstæður. Þvert á móti sé um- hverfisvæn atvinnustarfsemi væn- legasta og að öllum líkindum skyn- samlegasta leiðin til að skapa verðmæti í framtíðinni. Í skýrslu nefndarinnar eru til- greindar 48 tímasettar aðgerðir sem stjórnvöld eru hvött til að ráðast í. Meðal annars er lagt til að efnt verði til fimm ára átaks um að laða til landsins græna erlenda fjárfestingu og að tekin verði upp sérstök mengunargjöld sem verði nýtt til að endurgreiða kostnað við úrbætur í umhverfismálum viðkomandi at- vinnugreinar. Þar með skapist ný störf um leið og dregið verði úr álagi á umhverfið. Vill gjöld á mengandi starfsemi Tillögur um eflingu græns hagkerfis Nefndin vill sjálf- bæran orkubúskap. Sjónvarpað og út- varpað verður beint frá setningu Alþingis á morg- un og hefjast út- sendingar á RÚV kl. 11. Sjálf setn- ingarathöfnin hefst kl. 10.30 með guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni. Fimm mínútur yfir 11 er ætlunin að þingmenn gangi úr kirkju yfir í þinghúsið. For- seti Íslands setur þingið og forseti Alþingis flytur ávarp. Hlé verður gert á þingsetningarfundi kl. 11.35 og fundur hefst að nýju kl. 12.30 er fjárlagafrumvarpinu verður dreift og kosið í þingnefndir. Búast má við fjölda fólks á Aust- urvöll á morgun en svonefndur Sam- stöðuhópur fyrir Íslendinga hefur boðað tónleikahald frá kl. 10-15, í samráði við Hagsmunasamtök heim- ilanna sem ætla að afhenda forsætis- ráðherra 30 þúsund undirskriftir. Þingsetning í beinni Um síðustu mánaðamót sam- einaðist efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra embætti sér- staks saksóknara, en ríkis- stjórnin samþykkti frumvarp þess efnis á vormánuðum. Spurður hvernig gangi í nýju sameinuðu embætti segir Ólaf- ur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari: „Það kom yfir gríðar- legur fjöldi mála en það komu ekki yfir til okkar nema sjö starfsmenn af fjórtán. Þannig að við fengum málafjöldann en færri í áhöfn en fyrir voru og samt var búið að benda á að meira þyrfti til.“ Í byrjun mánaðar var tilkynnt að 85 mál myndu færast frá efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra til embættis sér- staks saksóknara. Af þessum 85 málum eru 79 til meðferðar í deildinni og sex fyrir dóm- stólum. Ólafur segir að það verði nokkurt átak að koma málum í gott horf „en við erum með þetta verkefni og munum taka á því eins og öðru sem fyrir okkur er lagt“. Fjöldi mála en færri með EFNAHAGSBROTADEILDIN Ólafur Þór Hauksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.