Morgunblaðið - 30.09.2011, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar með
bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka
fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Tökum bleikan bíl!
Undirritaður var samstarfssamn-
ingur í gær um að koma á nýrri iðn-
grein; námi í plastsmíðum við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki, FNV. Verkefnið felur
í sér undirbúning á námskrám og
aðstöðu hjá FNV til að hægt verði
að kenna þessa nýju iðn hér á landi.
Auk FNV koma að verkefninu
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Den
Jydske Haandverkerskole í Dan-
mörku og Salpaus Further Educa-
tion í Finnlandi. Verkefnið er
styrkt af menntaáætlun Evrópu-
sambandsins, Leonardo. Aðrir þátt-
takendur eru sveitarfélagið Skaga-
fjörður, Sigurjón Magnússon ehf. í
Ólafsfirði, Siglufjarðar-Seigur ehf.
á Siglufirði og stoðtækjafyrirtækið
Össur hf. Stefnt er að því að fá nám-
ið samþykkt sem fullgilda iðngrein.
Styrkur menntaáætlunarinnar
nemur um 36 milljónum króna.
Ingileif Oddsdóttir, skólameistari
FNV, og Ágúst Indriðason á skrif-
stofu menntaáætlunar ESB á Ís-
landi rituðu undir samninginn.
Samið um
nýtt nám í
plastiðn
Námið verður í
FNV á Sauðárkróki
Plastiðn Skrifað undir samstarfs-
samning um námið í gær.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Íbúðalánasjóður hyggst ganga til
samninga við byggingafyrirtækið
Eykt um að ljúka við utanhússklæðn-
ingu á blokkunum tveimur við Vinda-
kór 2-8 í Kópavogi, sem sjóðurinn
eignaðist á uppboði í fyrravetur.
Sjóðurinn reyndi að selja blokkirnar í
vor og fékk nokkur tilboð í þær en
ekki náðust samningar um sölu.
Blokkirnar verða aftur boðnar til
sölu þegar Eykt sér fyrir endann á
verkefninu.
Framkvæmdir við blokkirnar hafa
legið niðri frá því snemma árs 2008
þegar byggingafélagið sem reisti
þær lagði upp laupana. Þá var að
mestu búið að klæða aðra blokkina að
utan en lengra er í land í hinni blokk-
inni. Blokkirnar eru því að hluta
óvarðar fyrir vatni og vindum og aug-
ljóslega er hætta á að þær skemmist
af þeim sökum. Alls eru 54 íbúðir í
blokkunum tveimur og eru þær
óvenjustórar, oft um 150 fermetrar
og upp úr.
Ágúst Kr. Björnsson, sviðsstjóri
eignasviðs Íbúðalánasjóðs, segir að
eftir að ljóst varð að blokkirnar yrðu
ekki seldar á grundvelli tilboðanna
frá því í vor hafi stjórn sjóðsins
ákveðið að láta ljúka við að klæða
þær að utan. Óskað hafi verið eftir til-
boðum í verkið og hafi átta borist.
Það lægsta var frá Eykt, upp á 237,7
milljónir, og felur það í sér bæði
kostnað við vinnu og efni. Tilboðs-
fjárhæðin er 81,4% af kostnaðaráætl-
un. Ágúst á von á að framkvæmdir
hefjist á næstu dögum.
Ágúst segir að þótt sjóðurinn þurfi
að ráðast í framkvæmdir vegna
sumra fasteigna sem hann hefur tek-
ið yfir séu þau verkefni ekkert í lík-
ingu við það sem þurfi að gera við
Vindakór.
Semja við Eykt um Vindakórsblokkir
Morgunblaðið/Ómar
Ríkiseign Áttu að verða lúxusíbúðir.
Íbúðalánasjóður samdi ekki um sölu á blokkunum tveimur í vor Hæsta kauptilboð var 857 milljónir
Kostar 237 milljónir að ljúka við klæðninguna Aftur auglýstar þegar sér fyrir endann á verkinu
Knattspyrnu-
deild Fylkis í
samvinnu við
ORA hefur
undanfarin 15
haust boðið upp á
síldarveislu í
Fylkishöllinni
fyrir síðasta
heimaleik meist-
araflokks karla.
Veislan verður
haldin í 16. sinn á morgun, laug-
ardag, og hefst klukkan 12:00 en auk
síldar verður plokkfiskur á boð-
stólum. Á sama tíma verður opnuð
sýning í samstarfi við Sögunefnd
Fylkis á gömlum ljósmyndum af
Fylkismönnum í leikjum í gegnum
tíðina. Leikur Fylkis og FH í Pepsi-
deildinni hefst síðan kl. 14:00 en
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis,
tilkynnir gestum byrjunarlið í saln-
um fyrir leik. Lokahóf Fylkis verður
síðan á sama stað um kvöldið.
Fylkismenn
bjóða í síld og
plokkfisk
Fylkir Bikarmeist-
ari 2002.