Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 12

Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 12
BAKSVIÐ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Ljóst er að engin samstaða er á með- al fulltrúa stjórnarflokkanna í sjáv- arútvegs- og landbúnaðarnefnd Al- þingis um það hvernig halda eigi á málum varðandi stóra frumvarpið svonefnda til heildarendurskoðunar á lögum um stjórn fiskveiða. Skiptast þeir að minnsta kosti í þrennt í afstöðu sinni til málsins. Frumvarpið var sem kunnugt er lagt fram á Alþingi í maí síðastliðn- um og urðu mikil átök í þinginu um málið auk þess sem hörð gagnrýni kom fram á það í umsögnum frá bæði hagsmunaaðilum og sérfræðingum. Fór svo að lokum að ákveðið var að taka frumvarpið af dagskrá þingsins sem fól í reynd í sér að það var dreg- ið til baka. Frumvarpinu var í fram- haldinu vísað aftur til meðferðar í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd þingsins. Einungis á þeirra vegum Samþykkt var á fundi sjávarút- vegs- og landbúnaðarnefndar 29. ágúst síðastliðinn, eftir að allar um- sagnir um frumvarpið höfðu endan- lega skilað sér, að þær yrðu sendar Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráð- herra, ásamt bréfum frá einstökum nefndarmönnum eða hópum þeirra þar sem afstöðu þeirra til frum- varpsins væri lýst. Formaður og varaformaður nefndarinnar, Lilja Rafney Magnús- dóttir og Ólína Þorvarðardóttir, sendu í gær bréf og greinargerð til sjávarútvegsráðherra í samræmi við samþykktina, en þau gögn voru þó einungis send á þeirra eigin vegum og þannig hvorki í nafni annarra full- trúa í nefndinni né stjórnarflokk- anna, Samfylkingarinnar og Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs. Vilja endurrita frumvarpið Fram kemur í bréfi Lilju Rafneyj- ar og Ólínu til sjávarútvegsráðherra að þær leggi meðal annars til að horfið verði frá hinum svokallaða byggðapotti og að strandveiðar verði gefnar frjálsar í skilgreindri strand- veiðihelgi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þá verði skerpt á mark- miðssetningu og útfærslu á tak- mörkunum framsals aflaheimilda, allur afli verði boðinn upp á innlend- um markaði og að skilið verði milli veiða og vinnslu. Ennfremur vilja þær að opnuð verði gátt á milli nýtingarsamninga og leigupotts þannig að handhafar nýtingarsamninga eigi þess kost að bjóða í aflaheimildir í leigupotti og kvótalitlar útgerðir eigi þess kost að bjóða í nýtingarsamninga. Þá bjóð- ast þær til þess „að endurskrifa frumvarpið með aðstoð tilkvaddra sérfræðinga í umboði ráðherra“. „Þetta eru athugasemdir sem við í raun og veru gerðum strax í upphafi á meðan frumvarpið var í vinnslu. Megnið af þeim,“ segir Ólína. Hún segir að þær hafi fengið stuðning í velflestum umsögnum sem borist hefðu um frumvarpið. Þá hafi hún sjálf og Lilja Rafney gert fjölmarga fyrirvara við frumvarpið þegar það var tekið út úr þingflokkum stjórn- arflokkanna og lagt fram fyrr á árinu. „Þannig að við í raun og veru samþykktum bara að það yrði lagt fram og lagt inn í þingið til þess að koma vinnunni á einhvern rekspöl,“ segir Ólína. Nýtt frumvarp verði smíðað Björn Valur Gíslason, þingflokks- formaður VG og fulltrúi í sjávarút- vegs- og landbúnaðarnefnd, sendi sjávarútvegsráðherra eigið bréf þar sem fram kemur gagnrýni á þá ákvörðun að funda ekki í nefndinni um þær umsagnir sem bárust og kalla ennfremur ekki umsagnaraðila fyrir nefndina. Björn Valur segir ennfremur að í ljósi umsagna um frumvarpið og hans eigin fyrirvara við málið þegar það var til umræðu á Alþingi telji hann „rétt að frumvarpið í heild sinni verði ekki lagt fram að nýju. Ég tel jafnframt að smíða þurfi nýtt frum- varp til laga um stjórn fiskveiða sem hafi það að markmiði að uppfylla þau meginmarkmið sem fram koma í samstarfslýsingu ríkisstjórnarflokk- anna um sjávarútvegsmál.“ Þá segir Björn Valur að nýtt frum- varp eigi að hans áliti að byggjast á þeim niðurstöðum sem náðust í svo- kallaðri sáttanefnd sem skilaði nið- urstöðum sínum fyrir ári. Samleið með minnihlutanum Ljóst er að mikill samhljómur er á milli afstöðu Björns Vals til þess hver næstu skref eigi að vera varð- andi frumvarpið og Einars K. Guð- finnssonar og Jóns Gunnarssonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í sjáv- arútvegs- og landbúnaðarnefnd, og Sigurðar Inga Jóhannssonar, full- trúa Framsóknarflokksins. Fram kemur í bréfum fulltrúa beggja flokka til sjávarútvegsráðherra að hefja þurfi vinnu við nýtt frumvarp þar sem niðurstöður sáttanefndar- innar verði lagðar til grundvallar. Þá segir ennfremur m.a. í bréfi Einars og Jóns að setja eigi ákvæði í stjórnarskrá um að auðlindir Ís- landsmiða verði skilgreindar sem þjóðareign. Veita megi einstakling- um og lögaðilum heimild til afnota á þeim gegn gjaldi sem renni í ríkis- sjóð. Slík afnotaheimild njóti vernd- ar sem óbein eignarréttindi. Þá verði gerðir nýtingarsamningar við núver- andi fiskveiðiréttarhafa. Tryggt verði að tímalengdin stuðli að lang- tímahugsun og arðbærri fjárfestingu í sjávarútvegi. Fyrir afnotaréttinn komi gjald til ríkisins. Engin samstaða í nefndinni  Fulltrúar stjórnarflokkanna í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd ósammála um breytingar á stjórn fiskveiða  Samhljómur með þingflokksformanni VG og fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Morgunblaðið/RAX Frumvarp Stóra kvótafrumvarpið, sem sjávarútvegsráðherra lagði fram á Alþingi sl. vor, er afar umdeilt, jafnt inn- an þings sem utan. Þannig sagði forsætisráðherra í Kastljósi RÚV í gærkvöldi að frumvarpið væri um margt gallað. Sjávarútvegsmálin » Engin samstaða er á meðal fulltrúa stjórnarflokkanna í sjávarútvegs- og landbún- aðarnefnd Alþingis um stóra frumvarpið um stjórn fisk- veiða. » Formaður og varaformaður nefndarinnar hafa sent sjávar- útvegsráðherra tillögur að breytingum á frumvarpinu en einungis í eigin nafni. » Mikill samhljómur er með afstöðu þingflokksformanns Vinstri grænna og fulltrúa sjálfstæðismanna og fram- sóknarmanna um næstu skref í málinu. Ólína Þorvarðardóttir Björn Valur Gíslason 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 „Að mínu mati er þetta útspil einfaldlega spreng- hlægilegt og ekki hægt að taka þetta alvarlega. Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólína Þorvarðardóttir eru manna ólíklegastar til þess að leiða einhverja sátt um fiskveiðistjórnunarmál,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis. Einar segir að greinargerð formanns og varafor- manns nefndarinnar sem send var sjávarútvegsráðherra í gær, þar sem kallað er eftir breytingum á frumvarpinu, sé áfellisdómur yfir frumvarpinu eins og það leggi sig og málinu í heild „vegna þess að þær tvær komu með bein- um hætti að undirbúningi málsins og voru sérstakir ábyrgðarmenn þess á undirbúningsstigum þess“. „Það hins vegar sýnir hversu hraklegt þetta mál er allt saman að það skuli nú vera þannig komið fyrir þessu frumvarpi að ekki einu sinni for- maður og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar sem undir- bjuggu málið treysta sér lengur til þess að verja það og þá virðist mér blasa við að það sé enginn lengur sem reynir að mæla þessu frumvarpi bót sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlaði að keyra í gegn og gera að lögum í vor,“ segir Einar. Það eina sem hægt sé að gera í stöðunni sé að leggja frumvarpið til hliðar og byrja upp á nýtt og þá á grundvalli niður- stöðu sáttanefndarinnar svonefndrar. Enginn mælir frumvarpinu lengur bót Einar K. Guðfinnsson „Það kom nú bara í ljós í vor að þetta frumvarp væri ótækt. Illa undirbúið og illa ígrundað. Það var ekki hægt að átta sig á því hver væri tilgangurinn með því,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar- flokksins og fulltrúi flokksins í sjávarútvegs- og land- búnaðarnefnd Alþingis, um stóra frumvarpið svonefnda um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða og greinar- gerð formanns og varaformanns nefndarinnar um það til sjávarútvegsráðherra. Sigurður segir að það hafi enda komið í ljós í áliti sér- fræðinefndar sem sjávarútvegsráðherra skipaði til þess að leggja mat á frumvarpið að nefndin hafi „tætt frum- varpið niður og staðfesti þá afstöðu okkar að það ætti einfaldlega að vísa málinu aftur til ráðherra og beina þeim tilmælum til hans að halda áfram vinnu við breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu á grundvelli sáttanefnd- arinnar sem hann skipaði á sínum tíma“. Lagt er til í bréfi Sigurðar til sjávarútvegsráðherra fyrir hönd Fram- sóknarflokksins að skipaður verði samráðshópur „allra hlutaðeigandi og vinni í sátt og samlyndi að því að finna þessari mikilvægustu atvinnugrein okkar Íslendinga viðeigandi skipulag. Niðurstaðan ætti að vera með þeim hætti að sem víðtækust sátt náist um sjávarútvegsstefnuna og að atvinnu- greinin búi við stöðugleika“. „Illa undirbúið og illa ígrundað“ Sigurður Ingi Jóhannsson „Það er mjög gagnrýnisvert að ekki hafi verið fundað um þessar umsagnir í sjávarútvegs- og landbún- aðarnefnd. Þetta er mjög óvenjulegt,“ segir Atli Gísla- son alþingismaður sem sæti á í sjávarútvegs- og land- búnaðarnefnd Alþingis. Hann er ósáttur við það fyrirkomulag sem samþykkt var á fundi nefndarinnar í lok ágúst sl. að einstakir fulltrúar í nefndinni eða hópar fulltrúa myndu koma sjónarmiðum sínum varðandi stóra frumvarpið svo- nefnda um breytingar á stjórn fiskveiða og umsagnir sem borist hafa um það á framfæri við Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra bréfleiðis í stað þess að fundað væri með hefðbundnum hætti í nefndinni um málið. Atli sat ekki umrædd- an fund. Þá sé ennfremur ámælisvert að formaður og varaformaður sjáv- arútvegs- og landbúnaðarnefndar komi fram sem slíkir í máli sem ekki hafi verið tekið til umræðu á vettvangi nefndarinnar. Þá gagnrýnir Atli að þær Lilja Rafney og Ólína hafi boðist til þess í bréfi sínu til sjávarútvegsráðherra að endurskrifa frumvarpið, nokkuð sem sé á könnu ráðuneytisins að gera enda um stjórnarfrumvarp að ræða. Þau um- mæli feli einfaldlega í sér vantraust í garð sjávarútvegsráðherra. Lýsa vantrausti á sjávarútvegsráðherra Atli Gíslason „Það er augljóst af lestri þessarar greinargerðar að það er ekki tekið neitt tillit til þeirra athugasemda sem hafa komið fram varðandi áhrif frumvarpsins á sjávarútveg- inn og á þjóðarhag. Það er alveg skautað framhjá þeim, það er alveg augljóst,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna (LÍÚ), um greinargerð formanns og varafor- manns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis til sjávarútvegsráðherra. „Ef eitthvað þá gera þessar tillögur vont frumvarp ennþá verra vegna þess að þarna er meðal annars lagt til að tekinn verði ennþá stærri hlut af aflaheimildum fyrirtækjanna. Síðan er gert ráð fyrir því, án þess að það sé neitt skil- greint, hvort það eigi að dragast frá aflamarki eða vera veiði umfram veiðiráðgjöf, að handfæraveiðar verði stórauknar sem er ávísun á tuga þúsunda tonna veiði,“ segir Friðrik. Hann segir það alveg ljóst að fyrirliggjandi frumvarp stjórnarflokkanna geti ekki orðið grundvöllur að endurskoðun laga um stjórn fiskveiða hér við land. Það færi því best á því að leggja frumvarpið til hliðar og hefja þá vinnu á nýjum grunni. Vont frumvarp yrði gert ennþá verra Friðrik J. Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.