Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011
Skákdeild Fjölnis heldur í þriðja
sinn hið vinsæla Skákmót Árna-
messu í Stykkishólmi. Mótið er að
venju ætlað efnilegum og áhuga-
sömum skákkrökkum. Mótið í ár
verður laugardaginn 1. október og
hefst kl. 13:00 stundvíslega og því
lýkur kl. 16:30. Teflt verður í
grunnskólanum Stykishólmi.
Vegleg verðlaun verða veitt í lok
skákmótsins auk þess sem sig-
urvegarar í hverjum flokki fá eign-
arbikar. Líkt og áður er þátttak-
endum boðið upp á að taka rútu
fram og til baka á mótsstað. Skrán-
ing er með tölvupósti á skak-
samband@skaksamband.is.
Árnamessa er haldin til minn-
ingar um Árna Helgason félags-
málafrömuð í Stykkishólmi.
Árnamessa
Laugardaginn 1. október, milli
13.00 og 16.30, efna Alþjóðleg ung-
mennaskipti (AUS) til hátíðar í Ráð-
húsi Reykjavíkur í tilefni 50 ára af-
mælis samtakanna.
„Alþjóðleg ungmennaskipti
(AUS) fagna því að 50 ár eru liðin
frá því fyrstu skiptinemarnir/sjálf-
boðaliðarnir flugu út í hinn stóra
heim til að upplifa spennandi dvöl í
öðru landi. Á þessu hálfrar aldar
tímabili hafa hundruð Íslendinga
farið utan með samtökunum og
annar eins fjöldi erlendra ung-
menna komið til Íslands,“ segir í
frétt frá samtökunum.
Þá gefa Samtökin út bók sem lýs-
ir sögu samtakanna og lífsreynslu
nokkurra sjálfboðaliða erlendis.
Loks stendur AUS fyrir ljós-
myndasýningu í Þjóðmenning-
arhúsinu.
Hátíð haldin í tilefni
50 ára afmælis AUS
Sunnudagskvöldið 2. október kl. 20
verður fótboltamessa í Selfoss-
kirkju. Þar verður fagnað glæstum
árangri Selfyssinga á knattspyrnu-
vellinum á liðnu sumri.
Úrvalsdeildarlið karla og kvenna
mæta til messunnar og liðsmenn að-
stoða við lestra.
Allur tónlistarflutningur verður í
höndum Kristjönu Stefánsdóttur
söngkonu og Ómars Guðjónssonar.
Prestur verður sr. Óskar Hafsteinn
Óskarsson. Allir eru velkomnir.
Fótboltamessa
Konfúsíus-
arstofnunin
Norðurljós og
Kínversk-
íslenska menn-
ingarfélagið
halda fyrir-
lestraröð í til-
efni 40 ára af-
mælis
stjórnmála-
sambands Íslands og Alþýðu-
lýðveldisins Kína.
Arnþór Helgason flytur erindið
„Stiklur um samskipti Íslendinga
og Kínverja frá 1760 til 2000“ í
dag, föstudag, í Lögbergi 102 í
HÍ, kl. 13:20-14:20.
Arnþór fjallar aðallega um
menningarsamskipti, en stjórnmál
og viðskipti ber einnig á góma.
Öllum opið og án endurgjalds.
Samskipti Íslend-
inga og Kínverja
Arnþór Helgason
STUTT
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Veiði er nú lokið, eða er um það bil
að ljúka, í laxveiðiánum með nátt-
úrlegum laxastofnum. Margir lax-
veiðimenn hafa talað um lélega lax-
veiði, og miða þá við síðustu sumur,
en Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpa-
stöðum, sem heldur utan um viku-
legar veiðitölur á vef Lands-
sambands veiðifélaga, segir í pistli
með nýjustu aflatölum að engu að
síður séu horfur á að nú líði að lokum
fjórða aflahæsta stangaveiðisumars
í þekktri sögu laxveiða hér á landi.
„Svona kröfuharðir erum við
orðnir eftir síðastliðin þrjú met-
veiðiár,“ segir Þorsteinn. „Að vísu er
enn ekki útséð um hvort sumarið
verður aflahærra, 2007 eða 2011. Á
því veltur hvort þetta verður fjórða
eða fimmta besta veiðiárið,“ segir
hann og telur líklegt að lokatölur
ættu að verða um 57.000 laxar.
„Þetta var alvöru skot“
Á Vesturlandi hækkuðu veiðitölur
sums staðar nokkuð í liðinni viku, í
ánum þar sem enn var veitt, og mun-
aði þá mestu um að loksins hækkaði
vatnið í ánum eftir afskaplega þurrt
sumar. Lokakippurinn var þó hvað
bestur í Laxá í Kjós þar sem vel á
annað hundrað laxar veiddust síð-
ustu veiðidagana, og var áin þó nán-
ast óveiðandi suma þeirra vegna
flóða. Óskar Páll Sveinsson var við
veiðar ásamt félögum sínum í bresk-
um kastklúbbi og má segja að þeir
hafi fengið bingó - fyrstu haustrign-
ingarnar.
„Þetta eru mjög flinkir veiðimenn
og við fengum á milli 110 og 120
fiska á sex stangir, laxa og sjóbirt-
inga yfir þrjú pund,“ segir Óskar
Páll og bætir við að þar á meðal hafi
verið þrír tíu punda birtingar.
„Þetta var alvöru skot og síðasta
daginn, þegar áin var að falla eftir
flóð þann næstsíðasta, komu milli 50
og 60 laxar á land.
Það vantaði alls ekki lax í Kjósina
í sumar, það vantaði bara vatnið.“
Erfiðar aðstæður
Haustlægðirnar hafa flykkst til
landsins síðustu daga. Þær hafa
komið hreyfingu á sjóbirtinginn í
Skaftafellssýslum og hafa veiðimenn
víða veitt ágætlega. Viðmælandi var
í holli sem veiddi vel í Tungufljóti í
Skaftártungum en þar var birting-
inn þó bara að finna í skilum árinnar
og Ása-Eldvatns. Góð veiði hefur
líka verið í Eldvatni, þar sem holl
fékk á dögunum um 40 birtinga og
átta laxa, og í Fitjaflóði í Grenlæk.
Ragnar Johansen í Hörgslandi
segir að veiðin í Vatnamótunum í
Skaftá hafi þó liðið fyrir mikið vatn
og skolað. „Aðstæður hafa verið
mjög erfiðar en þó hafa menn náð
allt að 24 fiskum.
Það er ekkert bingó, eins og við
höfum séð síðustu haust, en það er
enn tími til stefnu; bestu veiðidag-
arnir á liðnum árum hafa verið þriðji
og tíundi október,“ segir Ragnar og
bætir við að meðalvigtin nú sé sú
besta sem hann hafi séð.
„Vantaði ekki lax í Kjósina,
það vantaði bara vatnið“
Fyrstu haustlægðirnar örvuðu veiðina Verður fjórða eða fimmta besta lax-
veiðiárið Ágætis sjóbirtingsveiði í Skaftafellssýslum og góð meðalvigt
Stór haustlax Óðinn Helgi Jónsson hampar 102 cm löngum hæng sem hann veiddi í vikunni í Ármótunum í Hrúta-
fjarðará. Viðureignin tók um fimmtíu mínútur en laxinn tók túpu í „haustlitunum“. Veiði lýkur í Hrútu í dag.
Aflahæstu árnar
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Staðan 28. september 2011
Heimild: www.angling.is
Lokatölur
2010
6.210
6.280
4.043
2.279
2.777
2.065
2.235
3.760
1.978
1.178
1.961
1.164
1.170
1.493
1.046
Veiðin
21. sept
4.388
4.140
2.290
2.134
2.032
2.016
1.912
1.825
1.526
1.373
1.219
1.150
990
1.066
911
Ytri-Rangá & Hólsá (24)
Eystri-Rangá (18)
Miðfjarðará (10)
Norðurá(15)
Blanda(16)
Selá í Vopnafirði (8)
Langá (12)
Þverá - Kjarrá (14)
Haffjarðará (6)
Breiðdalsá (8)
Grímsá og Tunguá (8)
Elliðaárnar (4)
Laxá í kjós (10)
Laxá í aðaldal (18)
Hofsá & Sunnudalsá (10)
* Veiði lokið
4.599
4.275
2.364*
2.134*
2.032*
2.017*
1.934*
1.825*
1.526*
1.420
1.313
1.150*
1.112*
1.067
956*
Sýningin MATUR-INN verður
haldin á Akureyri í fimmta sinn
um helgina. Hefð er orðin fyrir
sýningunni á tveggja ára fresti
og síðast, árið 2009, komu á milli
12 og 14 þúsund gestir. Reiknað
er með öðru eins nú.
Sýningarbásar í Íþróttahöll-
inni á Akureyri eru fleiri en á
síðustu sýningu og sýn-
ingasvæðið stærra. Sem fyrr er
aðgangur ókeypis og undir-
strikað að um er að ræða sölu-
sýningu og því hægt að gera góð
kaup hjá sýnendum, að sögn að-
standenda.
Sýningin er haldin af félaginu
Mat úr Eyjafirði í góðu sam-
starfi við Þingeyska matarbúrið
og Matarkistuna Skagafjörð. Að
baki þessum félögum standa
matvælaframleiðendur stórir
sem smáir, veitingaaðilar, ferða-
þjónustufyrirtæki, verslanir- og
þjónustufyrirtæki.
Keppt verður í matreiðslu á
eldhússvæði sýningarinnar. Til
að mynda munu þjóðþekktir ein-
staklingar spreyta sig á laxarétt-
um, matreiðslumenn munu
keppa um besta makrílréttinn,
bakarar glíma við eftirrétti og
loks munu veitingahús keppa í
flatbökugerð. Á sýningunni
verða sýningarbásar fyrirtækja
og matarmenningarfélaga, mark-
aðstorg þar sem t.d. hægt verð-
ur að kaupa ferska haust-
uppskeru og sultur margs konar.
Samhliða sýningunni verður
húsbúnaðarsýning í anddyri
Íþróttahallarinnar og á laugar-
daginn verður kveikt upp í ris-
agrilli úti fyrir þar sem hefst
sólarhringsgrillun á nauts-
skrokk. Hann verður síðan tilbú-
inn á sunnudag og gefst þá gest-
um tækifæri til að bragða á
herlegheitunum.
Sýningin verður opin frá kl.
11 til 17 á laugardag og sunnu-
dag.
Norðlenskur
matur í hávegum
Ókeypis aðgangur að sölusýningu
Matur-INN Frá sýningu Matar úr Eyjafirði á Akureyri fyrir tveimur árum.