Morgunblaðið - 30.09.2011, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Tíska & förðun
SÉ
RB
LA
Ð
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku og förðun
föstudaginn 14. október 2011.
Í Tísku og förðun verður
fjallað um tískuna veturinn 2011
í förðun, snyrtingu og fatnaði,
fylgihlutum auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 10. október.
MEÐAL EFNIS:
Förðunarvörur
Förðun
Krem
Umhirða húðar
Ilmvötn
Brúnkukrem
Neglur og naglalakk
Fylgihlutir
Skartgripir
Nýjar og spennandi vörur
Haust- og vetrartíska kvenna
Haust- og vetrartíska karla
Íslensk hönnun
Fullt af öðru
spennandi efni
Amur-tígrisynjan Íris lætur vel að sjö vikna gömlu af-
kvæmi sínu í Royev Ruchey-dýragarðinum í Krasnoy-
arsk í Rússlandi. Íris eignaðist þrjá hvolpa í byrjun
ágúst en amur-tígrisdýr eru í útrýmingarhættu.
Íris hugsar vel um hvolpinn sinn
Reuters
Fáir voru á ferli í Hong Kong í gær-
morgun eftir að viðvörun um áttunda
stigs fellibylinn Nesat var gefin út.
Íbúar voru hvattir til að halda sig
heima og var skólum, fyrirtækjum,
fjármálamörkuðum og höfnum lokað
auk þess sem almenningssamgöngur
lágu niðri. Vitað er um þrjú dauðsföll
en um fimmtíu manns þurftu að yfir-
gefa heimili sín eftir að prammi losn-
aði í úfnum sjónum og skall á nálæg-
um sjóvarnargarði. Hátt í 300
flugferðum á alþjóðaflugvellinum í
Hong Kong var frestað eða aflýst.
Síðdegis var fellibylsviðvörunin
lækkuð niður í stig þrjú en þegar
veðrið var hvað verst mældist vind-
hraði yfir 33 m/s.
Bíða björgunar á húsþökum
Nesat olli manntjóni og mikilli
eyðileggingu þegar hann gekk yfir
Filippseyjar á þriðjudaginn. Að
minnsta kosti 35 manns létust og 45
er enn saknað. Fárviðrið og úrhellis-
rigningin sem fylgdu Nesat ollu
miklum flóðum, m.a. í höfuðborginni
Manila þar sem byggingar eru marg-
ar hverjar hálfar á kafi. Árlega
ganga um 20 fellibylir yfir Filipps-
eyjar, margir hverjir mannskæðir,
en Nesat þykir með þeim verstu í ár,
aðallega vegna þess hve mikla úr-
komu hann hafði í för með sér.
Björgunarsveitir nota gúmbáta og
kanóa til að komast að þeim svæðum
sem urðu hvað verst úti. Fjöldi fólks
hefur síðustu daga beðið björgunar á
þökum húsa sinna en að sögn lög-
regluyfirvalda er aðallega um karl-
menn að ræða sem vildu vernda hús
sín og neituðu að yfirgefa þau þegar
stormviðvörun var gefin út. Þá eru
flestir þeirra sem er saknað veiði-
menn sem hunsuðu viðvaranir og
héldu út á sjó skömmu áður en felli-
bylurinn gekk yfir.
Áætlað var að hreinsunarstarf
myndi taka marga daga en óvíst er
hve miklu það mun skila því óttast er
að fellibylurinn Nalgae gangi yfir
landið um helgina. ylfa@mbl.is
Nesat veldur mik-
illi eyðileggingu
Reuters
Manila Fellibylurinn Nesat olli miklum flóðum á Filippseyjum.
Búist við öðrum fellibyl um helgina
lifað í fartesk-
inu.“
Dlamini og
Dlamini-
Manaway eru
barnabörn Mand-
ela og seinni
eiginkonu hans
Winnie Mandela.
Amuah er stjúp-
dóttir Makaziwe
Mandela, sem forsetinn fyrrverandi
eignaðist með fyrstu eiginkonu sinni.
Framleiðendurnir vildu ekki gefa
upp hvað hinum fjölskyldumeðlim-
unum fyndist um þættina en sögðust
telja að þeir hefðu barist fyrir rétti
barna sinna til að feta eigin brautir.
Engum sögum fer af því hvort hinn
aldni Mandela muni birtast í þátt-
unum. ylfa@mbl.is
Suður-Afríkubúar fá á næsta ári
tækifæri til að öðlast innsýn í líf fjöl-
skyldu Nelsons Mandela, fyrrver-
andi forseta landsins, þegar raun-
veruleikaþáttur með þremur barna-
börnum hans í aðalhlutverki fer í
loftið. Þær Zaziwe Dlamini-Mana-
way, Swati Dlamini og Dorothy Ad-
joa Amuah, sem eru á aldrinum 27-
34 ára, segjast ætla að sýna hvernig
það er að vera sjálfstæðar nútíma-
konur í Suður-Afríku. Í tilkynningu
frá framleiðendum þáttarins segir
að fylgst verði með lífi kvennanna
sem menntuðu sig í Bandaríkjunum
en lifa hinu ljúfa lífi meðal ríka og
fræga fólksins í Jóhannesarborg.
„Stelpurnar ólust kannski upp er-
lendis en þær kusu allar að koma aft-
ur heim til Suður-Afríku með allt
það besta sem þær hafa lært og upp-
Barnabörn Mandela
með raunveruleikaþátt
Nelson Mandela
Vilja veita áhorfendum innsýn í líf sjálf-
stæðra nútímakvenna í Suður-Afríku
Fresta þurfti flugi flugfélagsins
SAS á sunnudaginn um sex
klukkustundir vegna þess að ann-
ar flugmaðurinn reyndist drukk-
inn.
Að sögn norska blaðsins VG
neitaði flugstjóri vélarinnar að
halda af stað fyrr en búið væri að
senda nýjan flugmann frá Noregi.
Vélin var á leiðinni frá London til
Oslóar.
Samkvæmt reglum má flug-
maður hjá SAS mest vera með 0,2
prómill af áfengi í blóði átta tím-
um fyrir flug. Það þýðir að
áfengisneysla er bönnuð sólar-
hring fyrir brottför. Flugmann-
inum, sem braut reglurnar, hefur
verið vikið tímabundið frá störf-
um.
Drykkja flugmanns olli töf
Reuters
SAS Flugvél félagsins tafðist um
sex tíma vegna drykkju flugmanns.