Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011
–– Meira fyrir lesendur
MEÐAL EFNIS:
Fjölskyldubílar
Umhverfisvænir bílar
Rafbílar
Atvinnubílar
Jeppar
Nýjustu græjur í bíla
Staðsetningarbúnaður
Varahlutir
Dekk
Umferðin
Bíllinn fyrir veturinn
Þjófavarnir í bíla
Námskeið
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. október.
Bílablað
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
fjölskyldubíla,
atvinnubíla, jeppa,
vistvænabíla og fleira
föstudaginn 7. október
Dominique Strauss-Kahn, fyrrver-
andi yfirmaður Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, hitti í gær Tristane Banon á
tveggja tíma fundi á lögreglustöð í
París í Frakklandi. Banon, sem er
guðdóttir annarrar eiginkonu
Strauss-Kahns, sakar hann um að
hafa reynt að nauðga sér árið 2003
þegar hún var rúmlega tvítug. Henni
var á sínum tíma ráðlagt að kæra at-
vikið ekki.
Banon sagði frá reynslu sinni í
sjónvarpsþætti árið 2007, þó án þess
að nafngreina Strauss-Kahn. Hún
lýsti honum sem „óðum simpansa á
fengitíma“ og sagðist hafa þurft að
verjast honum með kjafti og klóm.
Hún kærði ekki atvikið fyrr en í maí
á þessu ári, eftir að Strauss-Kahn
var ákærður fyrir að hafa þvingað
herbergisþernu á hóteli í New York
til kynmaka.
Framhaldið ákveðið
Fundurinn fór fram án lögmanna
þeirra en hinsvegar voru lögreglu-
menn viðstaddir. Að sögn Henri
Leclerc, eins lögmanna Strauss-
Kahns, stóðu bæði hann og Banon
fast við sínar frásagnir af því hvað
gerðist fyrir átta árum. Spurður
hvort Strauss-Kahn hefði beðist af-
sökunar, svaraði Leclerc: „Hann
hefur ekkert gert sem þarf að af-
saka.“
Lögreglan hefur þegar yfirheyrt
um 20 vitni og átti fundurinn í gær að
marka lok rannsóknar hennar á mál-
inu en nú er það í höndum saksókn-
ara að ákveða framhaldið. Hann get-
ur ákveðið að engar forsendur séu til
þess að gefa út ákæru, að fyrning-
arfrestur sé liðinn eða að ákæra beri
Strauss-Kahn.
Banon, sem er rithöfundur og
blaðamaður, segir Strauss-Kahn
hafa lokkað sig inn í tóma íbúð í Par-
ís á þeim forsendum að hann ætlaði
að veita henni viðtal vegna bókar
sem hún var að skrifa. Strauss-Kahn
hefur viðurkennt að hafa gert hosur
sínar grænar fyrir henni, en neitar
að hafa beitt ofbeldi og hefur höfðað
mál á hendur henni fyrir ærumeið-
ingar.
Banon segir að falli saksóknari frá
málinu muni hún höfða einkamál.
ylfa@mbl.is
Strauss-Kahn
þvertekur fyrir
nauðgunartilraun
Tristane Banon stendur föst á sínu
Reuters
Strauss-Kahn Ræddi við Banon í
tvo tíma á lögreglustöð í gær.
Perugia. AFP. | Morðmál á Ítalíu hef-
ur undanfarin fjögur ár verið fjöl-
miðlamatur um allan heim. Á mánu-
dag er von á úrskurði vegna
áfrýjunar Amöndu Knox, sem gefið
er að sök að hafa myrt meðleigjanda
sinn, Meredith Kercher, í bænum
Perugia fyrir fjórum árum. Er Knox
kvendjöfull eða saklaust fórnar-
lamb?
„Það er mögulegt að hér hafi ver-
ið gerð mistök. Enginn er óskeik-
ull,“ sagði Carlo Dalla Vedova, verj-
andi Knox, í gær í dómsalnum í
háskólabænum Perugia þar sem
morðið var framið.
Vedova fordæmdi „ævintýralegar
lýsingar“ sem ákæruvaldið hefði
dregið upp af morðinu og sagði að
endurskoðun réttarmeinagagna,
sem hefði kynt undir efasemdum um
greiningu á lífsýnum, hefði hjálpað
vörn hennar. Eldhúshnífur, sem
sagður var morðvopnið, passaði ekki
við skurðina á líki Kercher og á hon-
um væri heldur ekki að finna lífsýni
hennar. Hnífurinn fannst í íbúð kær-
asta Knox og fundust lífsýni úr
Knox á honum. Sagði Vedova að
ekki væri hægt að líta á hnífinn sem
morðvopnið.
Þið verðið að sýkna
„Það eru engar sannanir, þið
verðið að sýkna,“ sagði hann við
kviðdómendur að viðstaddri Knox.
Verjandinn sakaði einnig fjöl-
miðla um að setja upp eigin dómstól
í máli Knox þar sem byggt hefði ver-
ið á æsilegum upplýsingum um kyn-
líf hennar og persónu. Knox „hefur
verið krossfest og niðurlægð á al-
menningstorginu … Það hefur verið
valtað yfir hana og henni nauðgað“
með óprúttnum fréttaflutningi,
sagði hann.
„Djöfulleg“ sál
Ákæruvaldið hefur sagt að á bak
við hlédrægt yfirbragð Knox leynist
„djöfulleg“ sál. Það hefur lýst henni
sem lostafullri og hirðulausri. Hún
hafi notað eiturlyf og stundað sam-
kvæmislífið, komið með ókunnuga
menn heim til sín til að stunda kynlíf
og gert sambýlisfólki sínu lífið leitt
með því að skilja eftir titrara og
nærfatnað á glámbekk.
Giulia Bongiorno, lögmaður Raf-
faele Sollecito, fyrrverandi kærasta
Knox, sagði fyrr í þessari viku að
saksóknararnir væru gagnteknir af
að Knox væri tálkvendi í líkingu við
aðalpersónu 19. aldar skáldsögunn-
ar Venus im Pelz eftir austurríska
rithöfundinn Leopold von Sacher-
Masoch, sem masokismi er kenndur
við.
Fjölskylda Knox lýsir henni hins
vegar sem ástríkri stúlku, sem elski
íþróttir og hafi í samtölum við móð-
ur sína verið stolt af vináttunni við
Kercher.
Leiðari í dagblaðinu The New
York Times um málið árið 2009 bar
yfirskriftina „Sakleysingi á erlendri
grund“.
„Hvernig á ég að hafa verið fær
um slíkt ofbeldi,“ spurði Knox með-
an á áfrýjuninni stóð. „Hvernig gæti
ég hafa framið slíkt illvirki gagnvart
vinkonu minni?“
Saksóknararnir segja að Kercher
hafi verið myrt þegar hún neitað að
taka þátt í kynlífsleik með Knox, þá-
verandi kærasta sínum, áðurnefnd-
um Sollecito, og innflytjanda að
nafni Rudy Guede. Hún fannst nán-
ast nakin í blóði sínu og hafði verið
skorin á háls. Á líkinu voru mar-
blettir og mörg stungusár. Ákæru-
valdið heldur því fram að Knox hafi
valdið hnífnum eða einum hnífi af
fleiri á meðan tveir aðrir í herberg-
inu héldu Kercher.
Laug í fyrstu yfirheyrslu
Ekki hjálpaði málstað Knox að í
fyrstu yfirheyrslunni eftir morðið
laug hún vísvitandi og reyndi að
koma því á saklausan mann. Lög-
maður mannsins, sem hún bar röng-
um sökum, sagði fyrr í vikunni að
sál Knox hefði tvö andlit,. „Önnur
hliðin er eins og engill, góð og um-
hyggjusöm, á vissan hátt eins og
dýrlingur, hin er eins og kvendjöfull,
djöfulleg, satanísk og grimm og vill
fara út á ystu nöf í hegðun. Sú Am-
anda kom fram 1. nóvember 2007.“
Knox segir hins vegar að hún hafi
verið yfirheyrð af mikilli hörku án
þess að lögmaður væri viðstaddur
og þess vegna hafi hún logið.
Í annarri yfirheyrslu að næturlagi
rétt eftir morðið, þá einnig án lög-
fræðings, sagði hún að hún hefði
verið í húsinu þegar morðið var
framið og öskur Kercher leituðu enn
á sig.
Knox var dæmd í 26 ára fangelsi
árið 2009. Hún hefur alltaf haldið
fram sakleysi sínu og segist hafa
verið heima hjá kærasta sínum,
Sollecito, þegar morðið var framið 1.
nóvember 2007. Hún áfrýjaði dómn-
um.
Les Dostojevskí og Hemingway
Knox hefur nú setið í fangelsi í
fjögur ár. Að sögn ítalsks þing-
manns, Rocco Girlanda, sem gaf út
bók byggða á samtölum við hana,
hefur Knox varið tímanum í að lesa
bækur eftir Dostojevskí og Hem-
ingway og biðjast fyrir. Í viðtölun-
um segir hún að sig dreymi um
frelsi og kveðst vilja verða túlkur
eða rithöfundur. Hún elski náttúr-
una og langi til að verða móðir.
Knox er frá Seattle í Bandaríkj-
unum. Hún kom til Ítalíu í sept-
ember árið 2007 til að vera í eitt ár
við háskólann í Perugia, sem er vin-
sæll hjá erlendum stúdentum.
kbl@mbl.is
Morðingi eða saklaust fórnarlamb?
Morðmál á Ítalíu vekur heimsathygli Ákæruvaldið vill þyngja refsingu Amöndu Knox sem dæmd
var fyrir að myrða meðleigjanda sinn Verjandinn segir að Knox hafi verið krossfest og niðurlægð
Reuters
Fyrir rétti Bandaríski námsmaðurinn Amanda Knox, sem sökuð er um að
hafa myrt Meredith Kercher, kemur í réttarsalinn í Perugia á Ítalíu í gær.
Áfrýjun Knox
» Búist er við því að dómur
falli í máli Knox eftir helgi.
Verði dómur undirréttar stað-
festur á hún þess kost að
áfrýja einu sinni enn.
» Knox var dæmd í 26 ára
fangelsi á fyrsta dómstigi. Í
áfrýjuninni krefst verjandi
hennar sýknunar. Ákæruvaldið
krefst að dómnum verði breytt
í lífstíðarfangelsi.
» Nokkrar bækur hafa verið
gefnar út um morðmálið. Í
þeim eru meðal annars dregn-
ar fram brotalamir á rannsókn-
inni.