Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Sudoku Frumstig 3 1 9 5 2 6 1 6 9 5 3 5 8 1 7 6 3 2 8 9 8 3 7 8 7 9 1 3 7 7 9 5 6 3 6 1 2 6 3 1 9 2 1 8 5 7 4 1 3 6 9 8 3 8 7 1 6 8 7 2 5 5 4 6 8 1 2 3 4 6 7 3 9 5 2 8 1 5 1 2 4 8 7 9 6 3 3 8 9 6 2 1 4 7 5 9 2 6 8 5 4 3 1 7 8 3 1 2 7 9 5 4 6 7 4 5 1 3 6 8 2 9 2 7 3 5 6 8 1 9 4 6 5 4 9 1 2 7 3 8 1 9 8 7 4 3 6 5 2 3 9 6 2 8 1 4 5 7 7 2 5 3 4 9 8 6 1 1 8 4 5 7 6 3 2 9 4 7 3 6 9 8 5 1 2 5 6 9 1 2 4 7 3 8 8 1 2 7 3 5 9 4 6 2 5 8 4 6 7 1 9 3 6 4 7 9 1 3 2 8 5 9 3 1 8 5 2 6 7 4 7 4 1 6 9 5 3 8 2 5 3 2 8 4 1 7 6 9 9 8 6 3 2 7 1 5 4 6 1 8 9 5 3 4 2 7 4 5 7 2 1 8 6 9 3 2 9 3 4 7 6 5 1 8 8 2 5 7 6 4 9 3 1 3 6 4 1 8 9 2 7 5 1 7 9 5 3 2 8 4 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 30. september, 273. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Kostið kapps um að kom- ast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. (Lk. 13, 24.) Landsmenn hafa ekki haft yfirmiklu að fagna í þjóðmálunum undanfarin misseri en gleðin skiptir miklu máli og KR-ingar sem aðrir hljóta að dást að árangri Vesturbæj- arfélagsins, sem er ekki aðeins Ís- lands- og bikarmeistari í efstu deild karla í fótbolta í ár heldur einnig tvö- faldur meistari í efstu deild karla í körfubolta. Slíkt leika ekki mörg fé- lög eftir nema kannski Barcelona á Spáni og Víkverji óskar KR-ingum til hamingju með árangurinn. x x x KR-ingar tryggðu sér Íslands-meistaratitilinn í fótbolta um liðna helgi, en á morgun sækja KR- ingar Valsmenn heim. Vonandi sýna stuðningsmenn meistaranna heima- mönnum virðingu á 100 ára afmæl- isári Vals. Einhverjir stuðningsmenn KR hafa sagt að gaman hefði verið að fá bikarinn afhentan á Hlíðarenda á þessum tímamótum en það er óþarfa gorgeir. Í uppeldisstefnu KR er lögð áhersla á að taka sigri án hroka og sýna mótherjunum kurteisi. Það á ekki síst við um leikmenn í efstu deild og stuðningsmenn hvers félags. x x x Fylkismenn stóðu í KR-ingum áKR-vellinum sl. sunnudag og fóru greinilega óánægðir inn í klefa að leik loknum. Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, er kappsfullur maður en einnig sannur íþróttamaður og hann sýndi það í verki þegar hann kom aftur út með leikmenn sína til að klappa meisturunum lof í lófa við verðlaunaafhendinguna. x x x Heimir Hallgrímsson, þjálfariÍBV, er líka gull af manni. „Það er ekki hægt að vera á móti KR með mann eins og Rúnar Kristinsson sem þjálfara,“ sagði hann eftir að meist- aratitill KR var í höfn. Hann bætti við að KR-ingar væru vel að titlinum komnir enda verið með hann í hönd- unum í allt sumar. Heimir Guð- jónsson, þjálfari FH, tók í sama streng og óskaði Rúnari vini sínum sérstaklega til hamingju. Þetta eru allt miklir íþróttamenn og góðar fyrirmyndir. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 flótti, 8 nefnt, 9 ill- um, 10 ferskur, 11 deila, 13 hreinir, 15 beinpípu, 18 súlu, 21 skarð, 22 skotvopn, 23 ávinningur, 24 íþróttagrein. Lóðrétt | 2 hirðusöm, 3 ör- lög, 4 jórturdýr, 5 skrökvar, 6 geigs, 7 lítill, 12 kropp, 14 kyn, 15 gangur, 16 óþétt, 17 dökkt, 18 snjódyngja, 19 spretti upp, 20 mylsna. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 ræfil, 4 helft, 7 kotið, 8 nötra, 9 ann, 11 akir, 13 hana, 14 urðar, 15 form, 17 æfur, 20 hak, 22 ljúfa, 23 rætin, 24 róaði, 25 morði. Lóðrétt 1 rækta, 2 fatli, 3 læða, 4 hann, 5 letja, 6 tjara, 10 naðra, 12 rum, 13 hræ, 15 fílar, 16 rjúfa, 18 fætur, 19 rengi, 20 hali, 21 króm. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sterkur stokkur. A-NS. Norður ♠Á753 ♥KG6 ♦ÁK42 ♣ÁK Vestur Austur ♠G1042 ♠KD96 ♥D98 ♥Á743 ♦D875 ♦G109 ♣43 ♣D10 Suður ♠8 ♥1052 ♦63 ♣G987652 Suður spilar 6♣. Austur opnaði á Standard-tígli og vestur teygði sig í spaðasvar. Norður doblaði, austur hækkaði í 2♠ og suður blandaði sér í umræðuna með 3♣. „Hvað eru eiginlega margir punktar í þessum stokki?“ hugsaði norður, en sá svo af hyggjuviti sínu að suður hlyti að eiga einspil í spaða og langan lauflit. Og stökk í 6♣. Útspil: ♠G. Það má deila um sagnvisku suðurs, en spilamennska hans var óaðfinn- anleg. Hann drap á ♠Á og trompaði spaða. Notaði svo innkomur blinds á ♣Á-K til að trompa spaða tvisvar í við- bót. Spilaði ♦Á-K og stakk tígul. Þar með var undirbúningi lokið fyrir þving- un á vestur í rauðu litunum. Suður kláraði laufin og vestur neyddist til að fara niður á ♥D aðra, þannig að ♥10 heima varð úrslitaslagurinn. 30. september 1966 Sjónvarpið hóf útsendingar. Dagskráin hófst með ávarpi Vilhjálms Þ. Gíslasonar út- varpsstjóra. Eftirvænting var mikil og daginn eftir sagði Morgunblaðið: „Auðar götur í Reykjavík, bíóin og skemmti- staðir hálftómir, erfitt að ná í leigubíla.“ Fyrst í stað var sjónvarpað tvo daga í viku, tvær til þrjár klukkustundir í einu. Starfsmenn voru um þrjátíu. 30. september 2005 Norska söngkonan Sissel Kyrkjebö hélt tónleika í Há- skólabíói og „söng sig inn í hug og hjarta Íslendinga“, að sögn Morgunblaðsins. Meðal annars söng hún Á Sprengi- sandi og Sofðu unga ástin mín. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Hjördís Bára Andrésdóttir fagnar tvítugsafmæli sínu í dag. Þó svo hún hafi náð þeim áfanga að mega samkvæmt lögum kaupa áfengi hvort sem er í Vínbúðinni eða á krám og knæpum eru slíkar veigar fjarri hennar huga í dag. Hún hyggst halda upp á afmælið í faðmi fjölskyldu og vina og bjóða upp á kökur og kaffi. Ástæðan fyrir því að hún skálar ekki þennan afmælisdaginn er sú að Hjör- dís Bára ber barn undir belti og ekki er nema um mánuður þar til áætlað er að það komi í heiminn. Og raunar er ekki talað lengur um það því Hjördís Bára og Ástþór Tómasson, unnusti hennar og barnsfaðir, vita fyrir víst að um strák er að ræða. En þó svo þau hafi ákveðið nafn á drenginn verður því haldið leyndu þar til honum verð- ur formlega gefið nafn við viðeigandi athöfn. Hjördís er borin og barnfædd á Eskifirði og segir haustið leggjast vel í sig. Hlýtt hafi verið undanfarna daga fyrir austan og allt að fimmtán gráðu hiti í gær. Það komi henni vel enda fátt annað að gera en slaka á þegar svo langt er liðið á meðgönguna, og jafnvel fara í stutta göngutúra. En í dag fer þó mestur tími í að undirbúa kökuboðið og taka á móti gestum. Hjördís Bára Andrésdóttir er tvítug í dag Kökuboð fyrir þá nánustu Hlutavelta Guðbjörg, Gunnar Hrafn, Axel Óli, Daní- el, Alex Leó, Arnar Freyr og Hrannar héldu tombólu fyrir utan Nettó á Salavegi. Þau söfnuðu 6.737 krónum sem þau hafa afhent Rauða krossi Íslands. Á myndina vantar Arnar Frey og Hrannar. Flóðogfjara 30. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.44 -0,0 7.55 4,4 14.11 0,1 20.16 4,2 7.34 19.03 Ísafjörður 3.52 -0,1 9.54 2,4 16.20 0,0 22.11 2,3 7.40 19.06 Siglufjörður 0.05 1,4 6.08 0,0 12.26 1,5 18.27 0,0 7.23 18.49 Djúpivogur 5.03 2,5 11.23 0,1 17.23 2,2 23.31 0,2 7.03 18.32 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Finndu þér áhugamál því þá er mögu- leiki á að kynnast nýju fólki og allt verður auðveldara. Láttu allar óþarfa áhyggjur lönd og leið og einbeittu þér að augnablikinu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Einhver sem skiptir miklu máli mun lað- ast að þessum mikla eldmóði þínum. Reyndu að hafa hemil á eyðslunni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Dramatíkin í vinnunni heldur þér við efnið. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenn- ingu sem þú átt skilið. Láttu engan þvinga þig til að gera eitthvað sem þú vilt ekki. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það gæti tekið þig smástund að skilja hvenær einhver þarfnast hjálpar þinnar. En líklegt er að áþekk viðhorf tengi ykkur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Taktu við því sem aðrir eru svo góðir að gefa þér. Erfiðleikar eru alls staðar og þeir eru til þess að sigrast á þeim. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Vertu óhræddur við að opinbera hug- myndir þínar því þér gæti verið fengur að þeim. Hristu af þér slenið og haltu áfram. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Sæktu mál þín af festu en gakktu ekki á rétt annarra því það leiðir aðeins til erfiðleika. Gerðu þetta skemmtilega sem þig hefur lengi langað til að gera. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er líklegt að þú rífist við systkini þín eða nágranna í dag því allir vilja halda fast við sínar skoðanir. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þið verðið hugsanlega beðin um að taka á ykkur aukna ábyrgð. Láttu það eftir þér að gera eitthvað skapandi því það mun veita þér mikla gleði. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Notaðu daginn til þess að brjóta niður hindrun sem þú hefur reist af sjálfs- dáðum. Stundum þurfum við bara á því að halda að hugsa málin í ró og næði. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Til að samband gangi verða báðir aðilar að leggja sitt af mörkum. Segðu já við manneskju sem þú hittir en mundu að enginn er annars eign. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Passaðu þig á hinnu kláru elítu! Hún ber ekki virðingu fyrir þeim sem hún er ósammála, og er þröngsýn að því leytinu til. Fylgdu eðlisávísuninni varðandi ákveðið mál. Stjörnuspá Gullbrúðkaup Efstasundshjónin Sigríður Guð- mundsdóttir og Oddur Möller eiga fimmtíu ára brúðkaupsafmæli í dag, 30. september. Deginum eyða þau á Spánarströndum í faðmi ætt- leggs. Frú Sigríður Helgadóttir frá Hofi í Vopnafirði verður níræð á morgun, laug- ardaginn 1. októ- ber. Hún tekur á móti vinum og ættingjum í fé- lagsheimili tannlækna, Síðumúla 35, kl. 16. Sigríður afþakkar gjafir, en framlag til nauðstaddra í Afríku myndi gleðja hana. 90 ára 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Bd3 O-O 6. h3 Rbd7 7. Be3 e5 8. dxe5 Rxe5 9. Rxe5 dxe5 10. Dd2 c6 11. O-O Rh5 12. Had1 Be6 13. Bh6 Rf4 14. Bxf4 exf4 15. Dxf4 De7 16. e5 Had8 17. Re4 Kh8 18. Rf6 Bxf6 19. exf6 Dc5 Staðan kom upp á Norðurlandamóti öldunga (60 ára og eldri) sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Sture Gustafsson (2027) frá Svíþjóð hafði hvítt gegn Norð- manninum Bård Standal (1883). 20. Dh6 Hg8 21. Bxg6! og svartur gafst upp enda staðan að hruni komin eftir 21… fxg6 22. Hxd8. Á morgun, laug- ardaginn 1. október, fer fram barna- og unglingamótið Árnamessa en það hef- ur verið haldið undanfarin ár í Stykkis- hólmi. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á www.skak.is. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.