Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 36
36 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ÆTTI AÐ GETA SKÝLT MÉR FYRIR AFTAN ÞETTA TRÉ ÞEGAR FRAM LÍÐA STUNDIR KALLI SAGÐI AÐ ÉG MÆTTI KASTA NÚNA GOTT OG VEL... SVO ÞÚ SÉRT MEÐ MERKIN Á HREINU: 1 ÞÝÐIR FAST KAST, 2 ÞÝÐIR LAUST OG 3 ÞÝÐIR SNÚNINGSKAST VEISTU HVAÐ? ÞÚ ERT FREKAR SÆTUR! ÉG LÆRÐI SNEMMA Á LÍFSLEIÐINNI AÐ ÉG GÆTI EKKI STÓLAÐ Á NEINN NEMA SJÁLFAN MIG! ER ÞAÐ EKKI VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ÁTT BARA EINN GÓÐAN STÓL? ÉG ÆTLA AÐ BÚA TIL LISTA YFIR ALLT ÞAÐ SEM MIG LANGAR AÐ GERA ÁÐUR EN ÉG DEY KOMAST AÐ ÞVÍ HVAÐ MIG LANGAR TIL AÐ GERA MAGNÚS OG BÖRNIN KOMA FRAM Í RAUNVERULEIKAÞÆTTI MAGNÚS KEPPANDI Í FYRSTU HÉLT ÉG AÐ ÞAÐ MYNDI VERA AUÐVELT AÐ SMÍÐA GO-KART BÍL VIÐ FÉLAGARNIR BJUGGUM TIL ÓFÁA ÞEGAR VIÐ VORUM YNGRI. MAÐUR ÞARF BARA SPÝTUR, DEKK OG VÉL ÚR SLÁTTUVÉL HVERNIG SETJUM VIÐ ÞETTA SVO SAMAN, AFI? ÉG ER EKKI ALVEG VISS, JÓI FÉLAGI MINN SÁ ALLTAF UM ÞAÐ FINNST ÞÉR MIAMI EKKI FALLEG BORG PETER? ALLT ER FALLEGT ÞEGAR ÉG ER MEÐ ÞÉR VERST AÐ ÉG FINN EITTHVAÐ SLÆMT Á MÉR NÚ ÞARF ÉG BARA AÐ LOKKA HANN TIL MÍN... ...SAMA HVAR HANN ER! Tölvukennsla er ekki það þarfasta Þeir sögðu frá því í fréttum, og voru með neyðarástandssvipinn á sér á meðan, að tölv- ur í reykvískum grunnskólum hefðu ekki verið endurnýj- aðar svo og svo lengi. Þetta var víst alveg ómögulegt ástand. Mætti ég hins vegar láta í ljós þá skoðun, að skólarnir ættu hið snarasta að draga úr tölvukennslu sinni en reyna fremur að kenna börnum og unglingum að gera sig skiljanleg á íslensku. Skólarnir þurfa ekki að kenna krökkum á tölv- ur. Börn lifa fyrir tölvur, enda þær bráðum eina leiktækið sem þau mega nota án þess að vera með hjálm. Mun brýnna er að kenna þeim að tala rétt mál, orða hugsun sína á móðurmálinu svo sómi sé að. Þar stefnir í raunveru- legt neyðarástand. Fólk kemur nú í stríðum straumum úr skólakerfinu og fallbeygir vitlaust eða alls ekki, staf- setur rangt, þekkir fá orðatiltæki en misskilur þau sem það þó þekkir, og þannig mætti áfram telja. Sögu lands og þjóðar þekkir það næstum í engu. Almenn grunnþekking, af því tagi sem áður þótti nauðsynleg hverjum þeim sem vildi teljast menntaður maður, finnst nú varla hjá ungu fólki. En það er afar lipurt á tölvu, getur hlaðið niður stolinni tónlist á leifturhraða og telur sig eiga kröfu til þess að hvergi sé kennt neitt „erfitt“ en allir fái háar einkunnir. Allt kennsluefni skal vera á einföldu máli, með mörgum myndum og aðgengilegt á netinu. Aldrei má þurfa að fletta upp í bók. Orða- bækur vill þetta fólk ekki sjá, alfræðibækur enn síður. Wikipedia er þessu fólki bæði mark- tæk og nægileg heim- ild. En eftir því sem fleiri og fleiri kunna minna og minna eykst skyldusöng- urinn um hve skólakerfið sé „frá- bært“ og „fagmennskan“ ógurleg. Reyndar segja spekingarnir sjaldn- ast að skólarnir séu góðir. Nei, á stirðmálstímum er auðvitað sagt að þar sé „unnið frábært starf“. Vanda- málið í íslensku skólakerfi er ekki að grunnskólarnir séu ekki með allra nýjustu tölvurnar. Vandamálið er fremur að menn koma út ófróðir, óta- landi og óstafsetjandi. En allt þetta fólk sem hefur ekki grunnþekkingu, fallbeygir vitlaust og misskilur orða- tiltæki, hvar ætlar það að hasla sér völl í framtíðinni? Varla getur það allt orðið fréttamenn á Ríkisútvarpinu? Lúinn borgari. Ást er… … besta meðalið. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa/myndlist kl. 9, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Smíði/útsk. kl. 9. Boðinn | Vatnsleikf. kl. 9.15 (lok. hóp.). Bólstaðarhlíð 43 | Handav., kaffi. Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14. Ef næg þátttaka fæst verður námsk. í fram- sögn. Skrán./uppl. í félagsmiðstöð. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist Gullsmára á mán. kl. 20.30, Gjá- bakka á mið. kl. 13, fös. kl. 20.30. Gleði- gjafarnir í Gullsmára kl. 14. Opið hús í Gullsmára 1. okt. kl. 14. Úlfar Þormóðs- son og Viðar Hreinsson lesa úr nýjum bókum, Elín Kroyer les gamanmál. Tóm- as Axel og hljómsveit. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur sun. kl. 20, Klassík leikur. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.20, málm/silfursm. kl. 9.30/13, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður og jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, leik- fimi kl. 10.30. Gleðigjafarnir kl. 14. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9/11, félagsvist FEBG og námsk. í leðursaumi kl. 13, fullbókað. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Kaffispjall í krók kl. 10.30. Jóga kl. 11. Spilað í krók kl. 13.30. Syngjum saman kl. 14. Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9, prjónakaffi kl. 10, stafganga kl. 10.30, spilasalur op. frá hád., kóræf. kl. 12.30, nýir fél. velkomnir. Þri. 4. okt. kl. 9 hefst glerskurður. Fös. 7. okt. kl. 13 hefst bók- band. Hraunbær 105 | Handav. kl. 9. Haust- litaferð 5. okt. Farið kl. 12.30. Ekið um Þingvelli o.fl. Kaffi í Þrastalundi. Hraunsel | Tréskurður kl. 10, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13, biljard í kjallara Hraunsels. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Vinnustofa kl. 9 án leiðb. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið 8.50. Gönuhlaup/thaichi kl. 9. Lista- smiðjan kl. 9; myndlist. Gáfumannakaffi kl. 15. Hæðargarðsbíó kl. 16. Handav/ prjónahorn kl. 9 á mán. Íþróttafélagið Glóð | Markaður og Glóðargaman í Gjábakka 1. okt. kl. 13. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun laug- ard. sölusýn. á handverki kl. 13-16 á Korpúlfsstöðum. Norðurbrún 1 | Myndlist/útsk. kl. 9. Vesturgata 7 | Kaffi/dagblöð kl. 9, enska kl. 10.15, tölvukennsla kl. 12.30, sungið v/flygil kl. 13.30, tölvuk. frk. kl. 14.15, dans kl. 14.30. Enska kl. 10.15. Fé- lagsmiðstöðin verður 21 árs 3. okt. Boð- ið í kaffi frá kl. 9-10.30. Námsk. í spænsku, framh., hefst 5. okt. kl. 9.15, f. byrj. kl. 10.45. Námsk. í trésk. hefst 5. okt. kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja. Leir- mótun/handav. kl. 9. Morgunst. kl. 9.30, bingó kl. 13.30. Píanóleikari óskast einu sinni í viku, uppl. í s. 411-9450/ 822- 3028. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Bjarni Stefán Konráðsson yrkirfallegt ljóð undir yfirskrift- inni: Orð verða ljóð: Orðin þau á mig leita óróleg, stór og smá. Ég reyni þeim ró að veita og raða sem best ég má. Og orðin þau verða að óði hvar una þau dável sér. Og í þessu litla ljóði liggja þau fyrir þér. Guðjón Torfi Guðmundsson sendi Vísnahorninu línu í tilefni af vísu sem birtist í Vísnahorninu 25. júlí: „Þá datt mér í hug ein sem ég lærði fyrir margt löngu, líkast til um þann tíma sem „gervi“frjóvganir kvenna voru að byrja. Hún er svohljóðandi: Fyrst er sæðið sett í glas síðan dælt með sprautum. Meiri tækni, minna þras menn eru að verða að nautum. Ekki veit ég hver höfundurinn er.“ Jósefína Dietrich er óvenju hag- mælt af ketti að vera. Enda hefur hún enga minnimáttarkennd yfir uppruna sínum: Mannfólk hefur málið sitt og mælir stundum ljóð, samt er litla malið mitt miklu betra hljóð. Og það vex henni ekki í augum að yrkja sléttubönd: Kvæða hnoðu væna vatt vafða kynngi fræða. Gæða sléttu böndin batt bærði stýrið læða. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af „gervi“frjóvgunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.