Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Ashton Kutcher svaf hjá annarri 2. Vísbendingar um hrottalega árás 3. Pitt grét er hann baðst afsökunar 4. Börn Jacksons horfðu skelkuð á »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Gullkistan skemmtir á Kringlukránni um helgina. Ásgeir Óskarsson, Gunnar Þórðarson, Jón Ólafsson og Óttar Felix Hauksson tína upp úr kistunni gamla gullmola rokksögunnar. Gullkistan leikur á Kringlukránni  „Ég teikna stjörnu“ er annað lagið sem hljóm- sveitin Hjálmar sendir frá sér af væntanlegri breiðskífu. Plat- an, sem kemur út í nóvember, nefn- ist Órar og inni- heldur 10 ný lög en platan er þeirra fimmta hefðbundna hljóðversskífa. Lagið má nálgast á tonlist.is og ómar nú í útvarpi einnig. Hjálmar gefa út „Ég teikna stjörnu“  Rokksveitin Hetjur, sem hefur m.a. á að skipa þeim Vilhjálmi Goða Friðrikssyni og Snorra Barón Jónssyni, ætlar að snúa í gang í haust og spila lög aðila eins og Guns ’n Roses, Whitesnake, Journey, Deep Purple, Dio og Skid Row. Hljóm- sveitin leikur á Gauknum föstudaginn 21. október Rokksveitin Hetjur ríður um héruð Á laugardag Suðvestan hvassviðri með skúrum eða rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 5 til 10 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 15-23 m/s, og skúrir vestan- lands, en hægari austantil og rigning með köflum. Hiti 4 til 14 stig, svalast nyrst. VEÐUR Ólafur Þórðarson stýrir Fylkismönnum í síðasta skipti á morgun þegar Fylk- ismenn taka á móti FH- ingum í lokaumferð Pepsi- deildarinnar í knattspyrnu. Morgunblaðið hefur eftir heimildarmönnum sínum að Fylkir ætli ekki að framlengja samning sinn við Ólaf. Ekki er ljóst hver tekur við en nokkur nöfn hafa verið nefnd. »1 Ólafur stýrir Fylki í síðasta sinn Reiknað með einvígi Vals og Fram í vetur Íslandsmeistarar FH unnu í gærkvöldi fyrsta leik sinn í N1-deildinni í hand- knattleik karla þegar þeir þeir lögðu Akureyringa, 24:20, í Íþróttahöllinni á Akureyri. Heimamenn byrjuðu leik- inn af krafti en FH-ingar tóku öll völd í síðari hálfleik. HK og Valur unnu einnig í fyrsta sinn á keppnis- tímabilinu þegar þau fengu Gróttu og Aftureldingu í heimsókn. »2 Meistarar FH sóttu sig- ur í greipar Akureyringa ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ég vil gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að vera hérna,“ sagði Þórunn Erna Clausen, söng- og leikkona, við nemendur í Menntaskólanum í Kópavogi í gær- morgun í tilefni Alþjóðlega hjarta- dagsins. Þórunn áréttaði við unga fólkið að heilablóðfall gerði ekki endilega boð á undan sér og þó að flestir væru værukærir og hugsuðu með sér að þeir væru ekki í hættu gætu allir fengið hjartasjúkdóma. Einnig ungt fólk. Hún hefði til dæmis fengið heilaáfall fyrir tveimur og hálfu ári vegna meðfædds hjartagalla og eig- inmaðurinn Sigurjón Brink eða Sjonni hefði fallið frá vegna heila- áfalls snemma á líðandi ári, en hann var aðeins 36 ára. Þau hefðu verið vel á sig komin, hraust og ekki verið í áhættuhópi, en hann hefði dáið og hún verið hætt komin. Svimi einkenni Heilsusamlegt líferni er alltaf af hinu góða og reglulegt eftirlit með heilsunni skiptir miklu máli. Þórunn sagði krökkunum að hún hefði fundið fyrir miklum svima og átt erfitt með að standa í fæturna. Hins vegar hefði hún alltaf verið mikið hörkutól og því ekki látið svimann slá sig út af laginu. Samt hefði henni ekki staðið alveg á sama og hringt í móður sína. Meðan á samtalinu hefði staðið hefði tungan lamast og hún misst málið. „Ég vissi nákvæmlega hvað hafði komið fyrir mig og hugsaði: Ég er 33 ára gömul. Af hverju er ég að fá heilablóðfall?“ Hún sagði að fólk ætti að gera ráð- stafanir við slíkar aðstæður. Fólk ætti líka að vera meðvitað um ein- kennin því rétt við- brögð gætu bjargað manns- lífi. Þórunn sagðist hafa lært mikið af áföllunum. Hún hefði örugglega fundið fyrir hjartagall- anum alla tíð en ekki hlustað. Hún hefði farið í hjartaaðgerð og væri stálslegin eftir, gæti gert allt og væri störfum hlaðin. Lagið „Aftur heim“ eftir Sjonna og Þórunni var framlag Íslendinga til Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva í Düsseldorf í Þýska- landi í maí. Þórunn minnti á að boð- skapur lagsins væri sá að lífið væri ekki endalaust. Því mætti ekki gleyma og mikilvægt væri að sýna góðvild. Alltaf. Hún hefði fengið við- vörun og þau Sjonni hefðu tekið mjög mikið mark á henni. „Við átt- um rosalega góðan tíma saman,“ sagði hún. Hjartahlýja og góðsemi  Rétt viðbrögð geta bjargað mannslífi Morgunblaðið/Sigurgeir S. Alþjóðlegur hjartadagur Þórunn Erna Clausen greindi nemendum frá reynslu sinni í tilefni dagsins. Alþjóðlegur hjartadagur var í gær. Hjartavernd, Hjartaheill, Heilaheill og Neistinn standa að deginum á Íslandi og ákváðu samtökin að höfða til ungs fólks í ár með það í huga að hjarta- og æðasjúkdómar byrja oftar en ekki að grafa um sig á unga aldri en með heilbrigðum lífsháttum má verjast þeim. Samtökin fengu Menntaskólann í Kópavogi og Seljaskóla í samstarf með sér og var viðamikil dagskrá í skólunum í gær. Þórunn Clausen ræddi um reynslu sína, nemendum var boðið upp á blóðþrýstingsmælingu og farið var yfir helstu áhættuþætti æðakölkunar og kransæðasjúkdóma. „Hreyfing er lykilatriði góðrar heilsu,“ sagði Bylgja Valtýsdóttir hjá Hjartavernd við ungmennin. Hreyfing lykilatriði heilsunnar HJARTADAGUR Á ÍSLANDI OG UNGT FÓLK Íslandsmót kvenna í handknattleik hefst í kvöld með innbyrðis leikjum þeirra fjögurra liða sem spáð er fjór- um efstu sætunum í vetur. Morgun- blaðið kynnir í dag þau tvö lið sem flestir reikna með að berjist um titl- ana á komandi tímabili, Val og Fram. »4 MMeira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.