Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 2
BAKSVIÐ Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Við erum sérstaklega að leita að verkfræðingum og fólki í bygging- ariðnaðinn en það er hægt að fá störf við næstum hvað sem er í Noregi, t.d. í heilbrigðisgeiranum, tækni- geiranum, við kennslu og margs konar þjónustu,“ segir Ragnhild Synstad, EURES-ráðgjafi í Noregi. Störf innan fjármálageirans og í markaðsmálum séu þó mjög umset- in, segir hún. EURES, evrópsk atvinnumiðlun, og Vinnumálastofnun stóðu í gær fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur en þar kynntu m.a. norsk fyrirtæki og bæjarfélög laus störf og EURES-ráðgjafar frá Bret- landi, Danmörku, Noregi, Þýska- landi, Svíþjóð og Belgíu kynntu at- vinnutækifæri í viðkomandi löndum. Þetta er í áttunda sinn sem Vinnumálastofnun og EURES standa að kynningu af þessu tagi en að sögn Drafnar Har- aldsdóttur, verkefnisstjóra EURES og ráðgjafa, hafa að jafnaði um 1.500 manns sótt kynningarnar. „Okkar starf er að veita fólki ráðgjöf og svara þeim spurningum sem það hefur um t.d. vinnumarkaðinn, al- mannatryggingar og fleira. Hvar vanti leikskólakennara, hvar sé hægt að fá vinnu við sjávarútveg og fleira af þessu tagi,“ segir Ragnhild. Gott vinnusiðferði Hún segir að Norðmenn hafi sloppið vel út úr fjármálakreppunni sem skók heiminn og mikill upp- gangur sé í landinu. „Vinnumarkað- urinn er mjög góður. Atvinnuleysið er aðeins um 2,7% og efnahags- ástandið er gott, vextir lágir og al- mennt mikil velmegun,“ segir hún. Ragnhild segir norska atvinnu- rekendur leita víðar eftir vinnuafli en á Íslandi og svo dæmi séu tekin séu Svíar einnig eftirsóttir starfs- kraftar í Noregi. „Það sem gerir vinnuafl frá Norð- urlöndunum eftirsótt er tungumála- þátturinn, tungumálið er mikilvæg- ur lykill að vinnumarkaðnum. Margir Íslendingar kunna skandin- avískt mál og það gerir þá að eft- irsóttu vinnuafli. En þeir eru líka þekktir fyrir að hafa gott vinnusið- ferði og fyrir að vera hæfir starfs- kraftar. Þá auðveldar líka margt hvað menning landanna er lík,“ seg- ir Ragnhild. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Út vil ek Fjöldi fólks kynnti sér starfsmöguleika í Noregi og víðar á starfakynningunni í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Gnótt starfa í boði í Noregi  Norsk fyrirtæki og bæjarfélög leita eftir starfsfólki  Hægt að fá vinnu við næstum hvað sem er  Skandinavískt tungumál lykill að vinnumarkaðinum 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Þetta er alltaf svona einhvern veginn svífandi yfir vötnunum. Þótt það sé endalaust sagt að þetta séu óskyld mál, aðgreind mál, ESB-umsóknin og þetta,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og formaður utanrík- ismálanefndar Alþingis, spurður um tengslin á milli umsóknar íslenskra stjórnvalda um inngöngu í Evrópu- sambandið og Icesave-deilunnar. Tekið er fram í nýrri stöðuskýrslu Evrópusambandsins um umsókn Ís- lands sem kom út fyrir helgi að Ice- save-deilan sé enn óleyst og ljóst að litið er svo á í Brussel að ein forsenda þess að af inngöngu landsins í sam- bandið geti orðið sé að fundin verði ásættanleg lending í deilunni. Ítrekað hefur komið fram í máli ráðamanna Evr- ópusambandsins, síðan umsóknin um inngöngu í það var send inn sum- arið 2009, að um óskyld mál væri að ræða og sama hafa forystumenn rík- isstjórnarinnar sagt af ýmsu tilefni. Hins vegar hefur hvað eftir annað komið fram í skýrslum sambandsins um umsókn Íslands að lending í Icesave-deilunni sé nauðsynleg til þess að Íslandi verði veitt innganga í það. „Það er örugglega hægt að færa sterk rök fyrir því að þetta séu alger- lega óskyld mál þannig séð en þau hafa snertifleti og snertiflöturinn er auðvitað EES-samningurinn,“ segir Árni. Þannig stæðu Íslendingar eftir sem áður frammi fyrir því að þurfa að takast á við Icesave-málið vegna að- ildarinnar að EES jafnvel þótt um- sóknin um inngöngu í Evrópusam- bandið lægi ekki fyrir. Fylgir í pakkanum „Þetta þýðir að það getur verið ágreiningur um skuldbindingar okk- ar og þá er reynt að finna lausn á því, en þær sem eru í EES-samningnum yrðu náttúrlega að færast yfir í ESB- dæmið. Það er sá vinkill sem þeir taka,“ segir Árni. Fyrir vikið muni það fylgja með í pakkanum þegar farið verði að ræða við Evrópusambandið um þá við- ræðukafla í tengslum við umsóknina sem hafi með þetta mál að gera, verði það enn óleyst þá. Verður að lenda Icesave Árni Þór Sigurðsson  Evrópusambandið lítur á Icesave-deiluna sem EES-mál sem lenda þurfi áður en Ísland geti gengið í sambandið Flugfreyjur höfnuðu nýgerð- um kjarasamn- ingi félags síns við Samtök at- vinnulífsins fyrir hönd Icelandair. Voru atkvæði um samninginn talin í gær. Aðeins átta at- kvæðum munaði en 60% þeirra 414 sem voru á kjör- skrá tóku þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Af þeim sögðu 119 já við samningnum en 127 vildu hins veg- ar fella hann. Að sögn Kristínar Bjarnadóttur, varaformanns Flugfreyjufélags Ís- lands, verður næsta skrefið í kjara- deilunni að skipa nýja samn- inganefnd áður en lengra verður haldið. Þetta er í annað skipti í þessari samningalotu sem flugfreyjur fella kjarasamning. Hafði félagið frestað boðuðum verkfallsaðgerðum þegar skrifað var undir samninginn sem felldur var í gær. Að öllu óbreyttu hefst því tveggja daga verkfall flugfreyja hinn 24. október næstkomandi og allsherjarverkfall 7. nóvember. gudni@mbl.is Flugfreyj- ur felldu samning Ætla að skipa nýja samninganefnd Kristín Bjarnadóttir Rafmagnslaust varð töluvert víða á sunnan- og vest- anverðu landinu í gærkvöldi vegna eldingaveðurs. Verulega var dregið úr fram- leiðslu stóriðju á suðvesturhorninu um stund á meðan Brennimelslína I var úti. Eldingu sló niður í hana og hún aftengdist flutningsnetinu. Þá slógu hitaveitudælur Orkuveitu Reykjavíkur út og truflanir urðu í Hellisheiðar- og Nesjavallavirkjun. Eldingar ollu truflunum á stóriðju Raflínur Eldingu laust niður í línu. „Við erum alltaf að leita að hæfu og vel mennt- uðu fólki,“ segir Cees Schouwenaars, fulltrúi Dresser-Rand í Noregi, en fyrirtækið starfar inn- an olíu- og gasgeirans og framleiðir m.a. gas- hverfla fyrir rafala og miðflóttaaflsþjöppur. Hann segist sérstaklega vera að leita eftir verkfræðingum, m.a. til að sinna tæknilegu eft- irliti, en einnig eru tvö störf laus í fjárreiðudeild fyrirtækisins. „Við höfum verið að ráða fólk frá t.d. Indlandi og Serbíu og víða að í Evrópu,“ segir Schou- wenaars en í Noregi starfa 200 manns hjá fyrirtækinu frá 24 þjóðlöndum. „Það er alltaf erfitt að finna hæfileikaríkt fólk og ef við finnum bara einn starfsmann hérna er það heimsóknarinnar virði.“ Gott fólk vandfundið VANTAR VERKFRÆÐINGA „Ég hef verið frekar heppinn en er orðinn leiður á þess- um endalausu hlaupum eftir vinnu alltaf,“ segir Ár- mann Birgisson múrari, sem var að eigin sögn mættur á kynninguna til að „sjá hvernig landið liggur“. Ármann starfar nú fyrir verktaka en gerir ráð fyrir því að verða verkefnalaus á ný eftir um tvær vikur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann kemur á kynningu af þessu tagi. „Þetta hefur verið þannig að ég hef misst vinnuna en svo hefur eitthvað dott- ið inn um leið og ég er búinn að vera á kynn- ingu,“ segir hann. Hann viti af verkefnum í Stafangri en einnig sé hann að skoða at- vinnumöguleika í Kanada. Ármann segist ætla að byrja á því að fara einn út og sjá svo til í framhaldinu hvort hann flytur fjölskylduna með sér. Leiður á hlaupunum SKOÐAR ATVINNU Í NOREGI OG KANADA Hádegisfundur | Allir velkomnir - frír aðgangur Matvælaframleiðsla morgundagsins - verður nóg af mat fyrir íbúa jarðar? mánudagur 17. október kl. 12:00-13:30 Fyrirlestrarsalur Íslenskrar erfðagreiningar, Vatnsmýri. Fundurinn fer fram á ensku Nánari upplýsingar á www.bondi.is Fyrirlesari: Julian Cribb, höfundur bókarinnar „The Coming Famine: The global food crisis and what we can do to avoid it“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.