Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011 Yndislegt barn er borið til grafar. Bak við það er sorg sem öll þjóðin tekur þátt í. Hvers vegna? Vegna þess að orsök þessarar jarðarfarar er að mínu mati að þjóðin sem slík gætti ekki að velferð þessa barns og varð líf þess svo erfitt að það treysti sér ekki til að lifa því. Að mínu mati má segja að þetta hafi verið sjálfsvíg sem var afleið- ing af gáleysi þeirra stofnana sem barnið átti að vera öruggt hjá og höfðu það hlutverk lögum sam- kvæmt að vera liður í að koma því til manns og um leið að gæta að ör- yggi þess. Í mínum hugarheimi er það allra göfugasta og mikils- verðasta starf mannsins að koma barni til manns. Allir sem koma að þessu hlutverki bera ábyrgð og það er engin afsökun til fyrir að koma að þessu starfi með ábyrgðarleysi og kærleiksvöntun. Því miður hefur fjöldi barna og unglinga gengið í gegnum hreint „helvíti“ vegna slæmrar meðferðar frá lífs- förunautum sínum. Fyrir mér er engin afsökun til fyrir þær stofn- anir sem virðast ekki geta gætt að velferð þeirra barna sem þeim er trúað fyrir. Mig tekur það sárt að margir virðast ekki horfa eingöngu á sorg þeirra sem missa barn á vo- veiflegan hátt en reyna að bera í bætifláka fyrir þá opinberu aðila sem virðast hafa brugðist. Á meðan svo er tekið á málum er ekkert lag- að en reynt að réttlæta vinnubrögð sem ekki bera árangur til að upp- ræta einelti og vanlíðan barna í ábyrgð skóla, sveitarfélaga og ríkis. Mér virðist þjóðfélag okkar vera siðblint og getulaust á mörgum sviðum. Barn sem er skyldað til menntunar og gæslu á vegum ríkis og sveitarfélaga á skilyrðislaust rétt á að komast áfram í virðingu og kærleika. Það er glæpur að það verði skotspónn ofbeldis, andlegs og líkamslegs. Skólastjórn og kenn- arar bera ábyrgð á að barnið sé verndað í þeirra umsjá og ef þau eru ekki fær um það og geta ekki tekið á málum eru sveitarstjórnir með ábyrgð á að koma að málum. Ef þær geta ekki heldur valdið starfi sínu þá er ríkið með ábyrgð á öllum þessum starfsstéttum. Ég vona að allar þessar stofnanir rísi upp og stöðvi þetta ferli í eitt skipti fyrir öll. Ég trúi ekki að óreyndu að margt af þessu ábyrgðarfólki haldi áfram að vera meðvirkt og að ekki séu til svo margir ábyrgir kennarar og stjórnendur innan þessara stofnana að ekki sé hægt að uppræta þessi ofbeldisverk sem hafa leitt fjölda einstaklinga til sjálfsvígs og eða til skerts lífs til æviloka. Brettum upp ermar, allir sem einn, sem berum ábyrgð á uppeldi barna þessa lands. Setjum þau lög og reglur sem koma í veg fyrir eineltisglæp. Ég bið þjóðina að rísa nú upp og krefjast bóta í þessum málum. Við hljótum að vera þess umkomin að berjast við þá siðblindu og getuleysi sem er því miður í of mörgum stofnunum í dag gagnvart einelti á börnum. Þeir sem eru vald- ir að einelti, hvort sem það eru börn, unglingar eða full- orðnir, eiga að víkja úr skóla og frá öðr- um stöðum ef þeir taka ekki ábend- ingum um að stöðva eineltið. Sem betur fer eru til skólar og aðrar stofnanir sem taka mjög vel á þessum málum. Ég óska þeim innilega til hamingju og vona að allir skólar og stofnanir sem bera ábyrgð á börnum geti sinnt sínu starfi í framtíðinni án þess að barn í þeirra umsjón beri skaða af. Foreldrar og nærættingjar þess barns sem nú var borið til grafar bera óbærilega sorg. Ég vona að öll þjóðin sameinist um að styðja þau og að Guð gefi að hægt sé að koma í veg fyrir að þau sligist und- an þessari miklu sorg. Ég stóð við hlið vinafólks míns í baráttu þess vegna eineltismáls drengs í 8. bekk í grunnskóla. Það bar engan árangur að biðja um hjálp fyrir barnið þó beðið væri um hana hjá skólastjórn, skólaskrif- stofu og afrit bréfa væru send til menntamálaráðuneytis. Þetta gekk mjög nærri barninu sem missti hæfni sína til lærdóms. Eftir vetur- langa baráttu var afráðið að setja það í Tjarnarskóla og þar náði barnið aftur upp hæfileikum sínum til náms. Bæði var þetta dýrt fyrir aðstandendur og einnig var það mikill sársauki fyrir barnið að missa af góðum félögum til margra ára. Var þá baráttan tekin upp aft- ur og farið í borgarstjórn til að fá hjálp. Þar var reynt að taka upp málið og skólayfirvöld beðin um að fara yfir það en ekkert gekk. Var þá gripið til þess ráðs að senda grein til Morgunblaðsins sem vakti mikla athygli og út frá því bauð sjónvarpsstöðin ÍNN að taka á málinu með fulltrúum frá skóla- skrifstofu, félagi skólastjóra, hverfaskrifstofu félagsmála, full- trúa barnsins og menntamálaráðu- neyti. Þetta hafði þau áhrif að skólayfirvöld tóku við sér og unnið var með skynsemi að málum sem enduðu þannig að barnið fór í sinn hverfaskóla sem stóð vel að málum eftir þetta. Þessi einstaklingur er mjög vel staddur í dag, ekki síst skólalega og félagslega. Þetta segir að fjölmiðlar hafa mikil völd. Ég ákalla þá um hjálp við að koma þessum málum í gott horf. Ég bið ykkur að koma ekki að því með röfli eða ati sem aðeins gerir illt verra. Finnið lausnir með yfirvöld- um. Einelti Eftir Selmu Júlíusdóttur » Brettum upp ermar allir sem einn, sem berum ábyrgð á uppeldi barna þessa lands. Setjum þau lög og reglur sem koma í veg fyrir eineltisglæp. Selma Júlíusdóttir Höfundur er skólastjóri Lífsskólans, Aromatherapyskóla Íslands ehf. Einnig er hún rithöfundur. Undanfarið hefur mikið verið rætt um hugsanleg kaup Kín- verjans Huang Nubo á landareigninni Grímsstöðum á Fjöll- um. Margir hafa velt fyrir sér hvort hann geti þá eignast alla landareignina eða megi eingöngu byggja þar hótel. Það er engin nýlunda að Kínverjar vilji eiga og reka hótel hér á landi því að þannig geta kínverskir ferðamenn, sem heimsækja Ísland, greitt kín- verskum eiganda hótelsins fyrir gistinguna. Kínverskar ferðaskrif- stofur geta líka komið með sína ferðamenn með skipi til Íslands, eins og t.d. Norrænu, látið þá aka um Ísland í hópbíl, sem er í eigu kínversks aðila hér. Einnig geta þeir líka haft með sér kínverskan leiðsögumann svo að hvorki þurfi að greiða íslensku rútu-fyrirtæki né íslenskum leiðsögumönnum laun. Ekki er beinlínis hægt að segja að þetta efli íslenska ferða- þjónustuaðila. Ef tilboð þessa kínverska auð- jöfurs verður samþykk kemur ósjálfrátt í hugann hvort hann muni þá fá kínverskan arktitekt til að teikna hótelið. Einnig hvort sá arkitekt muni þá teikna það samkvæmt kínverskri stefnu, sem kallast Feng Shui og er um 3000 ára gömul. Vitað er að margir bandarískir hóteleigendur (og nú einnig evrópskir) láta teikna sín hótel eftir þeirri stefnu til að fá gesti, sem aðhyllast Feng Shui-stefnuna. Hún felst m.a. í því að meiri áhersla er lögð á bogadregnar línur en beinar línur eða hvöss horn. Útidyr hússins eiga t.d. að snúa í austur því að þar kemur sólin upp. Höfðalag rúmanna á að snúa í suður og eldhúsið í austur. Eins og margir vita hafa hin ýmsu lönd heimsins ákveðna „ótrú“ á margs konar tölum, lit- um o.fl. Lengi hafa Íslendingar haft ótrú á tölunni 13, sem á að boða eitthvað neikvætt. Það gera líka Bandaríkjamenn og margar fleiri þjóðir og margir bandarískir hóteleigendur sleppa því tölunni 13 á sínum hótelherbergjum og hafa enga 13. hæð. Kínverjar hafa hins vegar ótrú á tölunni 4 og hafa margir kínverskir hóteleig- endur því ekki herbergi nr. 4 og enga 4. hæð. Þeir vilja því heldur ekki gista í herbegi nr. 4 á öðrum hótelum. Þegar farið er í viðskipti við Kínverja er mikilvægt að kynna sér fyrirfram siði þeirra og venjur. T.d. hafa litirnir hvítt og svart neikvæða merkingu í þeirra huga og því ekki æskilegt að viðsemj- endur eða aðrir gefi þeim gjafir með þeim lit. Einnig er óráðlegt að gefa þeim klukku (það gæti táknað dauða), en rauði liturinn táknar hins vegar hamingju og velgengni. Ekki er heldur ráðlagt að gefa þeim vasaklút að gjöf því að það gæti verið fyrirboði um sorg. Einnig er sagt að Kínverjar telji meira hreinlæti felast í því að skyrpa á göturnar heldur en að snýta sér í vasaklút og láta hann og svo í eigin vasa ... með innihaldið innaní. Í ágúst árið 2006 var eftirfar- andi frétt í Morgunblaðinu: „Vegna sívaxandi fjölda Kínverja, sem ferðast úr landi, hefur sið- menningarnefnd kínverska Kommúnistaflokksins beðið þá Kínverja, sem ferðast til útlanda, að gæta að mannasiðum sínum til að verða heimalandinu ekki til skammar. Þeir eru m.a. minntir á að fara ekki úr skónum í flug- vélum, sem þeir ferðast með, ekki ræskja sig með látum og hávaða á almannafæri, ekki tala of hátt í farsíma og hvorki hrækja sé reykja á götum úti.“ Þeir íslensku stjórnmálamenn, sem nú ætla að ræða við þennan Huang Nubo, ættu að kynna sér siði og venjur Kínverja í við- ræðum og viðskiptum. Enda þótt Kínverjar séu vanir þéttbýli vilja margir þeirra ekki láta þann, sem þeir eru að tala við, koma of ná- lægt sér (proximics). Sá, sem ætl- ar að afhenda Kínverja nafn- spjaldið sitt, ætti því ekki að hafa þröngt nærrými þ.e. ekki að ganga of nálægt viðkomandi... heldur standa beint fyrir framan hann/hana, rétta fram nafn- spjaldið með báðum höndum og þannig að það snúi beint að við- takandanum.. ekki sjálfum sér. Síðan á sá/sú, sem afhendir spjaldið, að hneigja sig fyrir þeim kínverska. Best væri að hafa upp- lýsingar um eigin starfsemi í svart-hvítu á framhlið nafn- spjaldsins, en á bakhliðinni gull- litaðan texta á mandarín- kínversku. Sá litur táknar að þú berir virðingu fyrir þeim, sem þú gefur nafnspjaldið. Rétt er að taka fram að of- anskráð er ekki endilega algild regla enda hafa flestar þjóðir ólíkar skoðanir á flestum hlutum. Til dæmis má nefna að það eru ekki allir Íslendingar, sem hafa ótrú á tölunni 13. Og sennilega eru ekki allir Kínverjar, sem endilega kjósa eða vilja hafa rýmt nærrými. Er ekki líka fróðlegt að vita að Kínverjar kalla Ísland „Bingdao“? Kínversk fyrirtæki á Íslandi Eftir Birnu G. Bjarnleifsdóttur Birna G. Bjarnleifsdóttir » Þeir íslensku stjórnmálamenn, sem nú ætla að ræða við þennan Huang Nubo, ættu að kynna sér siði og venjur Kínverja í viðræðum og viðskiptum. Höfundur er fv. fagstjóri Leiðsöguskólans í MK, núverandi eldri borgari. –– Meira fyrir lesendur : Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: SÉRBLAÐ Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað Vertu viðbúinn vetrinum föstudaginn 21.október Vertu viðbúinn vetrinum PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA Fyrir kl. 16, mánudaginn 17. október. www.gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Óska eftir einbýlishúsi til leigu til tveggja ára, möguleiki á framlengingu, helst utan höfuðborgarsvæðisins t.d. Reykjanesið, Mosfellsdalurinn, Kjósin eða Kjalarnesið. Leiga greidd fyrirfram. Verður að vera leyfi fyrir hund. Lágmark 3 svefnherbergi. Svör óskast send á box@mbl.is merkt „Einbýlishús“. Einbýlishús óskast til leigu Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréf- um til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felliglugganum. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er not- að er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá not- andasvæðið virkt. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.