Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011
Stækkunarstjóri Evrópusam-bandsins ritaði grein í Morg-
unblaðið í gær sem er um margt
athyglisverð. Ekki vekur síst at-
hygli það sem hann segir um evr-
una:
Þó að evrusvæðið eigi réttilegaí erfiðleikum
um þessar mundir
er evran einn
sterkasti gjaldmið-
ill heims og heldur
áfram að vera til
hagsbóta fyrir þau
lönd sem nota
hana.“
Hvaða lönd ætli það séu semevran hefur verið til hags-
bóta fyrir? Eru það ríkin sem
horfa upp á efnahag sinn hruninn
eða við það að hrynja og geta
ekkert gert til að bæta stöðuna?
Stefan Füle sagði einnig aðstuðningur almennings við
inngöngu í ESB væri frumskil-
yrði, en sem kunnugt er fer því
fjarri að sá stuðningur sé til stað-
ar hér á landi. Ef íslensk stjórn-
völd tækju mark á stækk-
unarstjóranum væri umsókninni
sjálfhætt.
Hann sagðist líka fagna því aðstjórnvöld ætluðu „að fræða
fólk um Evrópusambandið og
samningaferlið“ til að „eyða bæði
ranghugmyndum og ótta í garð
sambandsins“.
Upplýsingaskrifstofa ESB á Ís-landi, sem hann nefndi svo,
yrði opnuð í Reykjavík á næstunni
og mundi taka þátt í því starfi.
Ætli upplýsingarnar sem þarverða veittar verði jafn
traustar og upplýsingar stækk-
unarstjórans um evruna?
Stefan Füle
„Upplýsingar“ frá
Evrópusambandinu
STAKSTEINAR
Sigríður Ármannsdóttir, löggiltur
endurskoðandi, sagði sig úr eftirlits-
nefnd með skuldaaðlögun ein-
staklinga og fyrirtækja sl. vor. Eftir
sitja í nefndinni þau María Thejll,
hdl. og forstöðumaður Lagastofn-
unar Háskóla Íslands, formaður
nefndarinnar, og Þórólfur Matthías-
son, prófessor við Hagfræðideild
Háskóla Íslands.
Sigríður sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að hún hefði sagt sig úr
nefndinni af persónulegum ástæð-
um.
„Það er einfaldlega þannig hjá
mér, að ég er svo mikið erlendis að
ég taldi mig ekki hafa tíma til þess
að sinna þessu starfi sem skyldi,“
sagði Sigríður.
Heldur meira álag
María Thejll, formaður nefnd-
arinnar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að úrsögn Sigríðar úr
nefndinni hefði í sjálfu sér ekki mikil
áhrif á störf nefndarinnar, fyrir utan
það, að heldur meira álag væri á
henni og Þórólfi. „Við fengum, um
líkt leyti og Sigríður sagði sig úr
nefndinni, þrjá starfsmenn, sem við
höfðum beðið lengi eftir, frábæra
starfsmenn, en það er vissulega
missir fyrir okkur að Sigríður er
ekki lengur að starfa með okkur.
Hún var frábær liðsmaður,“ sagði
María.
Markmið laga um sértæka skulda-
aðlögun er að hraða endurreisn ís-
lensks efnahagslífs í kjölfar banka-
og gjaldeyrishrunsins haustið 2008
og að tryggja að jafnvægi komist á
virði eigna og greiðslugetu annars
vegar og fjárskuldbindinga ein-
staklinga, fyrirtækja og heimila hins
vegar.
Hlutverk eftirlitsnefndarinnar
sem komið var á fót á árinu 2009 er
að fylgja því eftir að samræmdum
reglum um sértæka skuldaaðlögun
samkvæmt lögum nr. 107/2009 sé
framfylgt af kröfueigendum, þ.e.
bönkum og fjármálafyrirtækjum og
að gætt sé sanngirni og jafnræðis við
framkvæmd sértækra aðgerða.
Starf nefndarinnar tekur til af-
greiðslu mála frá lokum október
2009 þegar lögin tóku gildi, til 31.
desember 2011. Nefndin hefur sent
frá sér 3 skýrslur um störf sín.
agnes@mbl.is
Sagði sig úr eftirlitsnefnd
María
Thejll
Sigríður
Ármannsdóttir
María Thejll og Þórólfur Matthíasson eftir í nefndinni sem
hefur eftirlit með skuldaaðlögun einstaklinga og fyrirtækja
- nýr auglýsingamiðill
Veður víða um heim 14.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 rigning
Bolungarvík 4 rigning
Akureyri 7 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 6 skúrir
Vestmannaeyjar 7 skýjað
Nuuk -2 léttskýjað
Þórshöfn 11 súld
Ósló 3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 3 léttskýjað
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 15 skýjað
Glasgow 16 skúrir
London 15 heiðskírt
París 15 heiðskírt
Amsterdam 12 heiðskírt
Hamborg 10 heiðskírt
Berlín 10 skýjað
Vín 8 skýjað
Moskva 2 skýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 7 skýjað
Montreal 17 skúrir
New York 20 alskýjað
Chicago 12 léttskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:18 18:10
ÍSAFJÖRÐUR 8:29 18:09
SIGLUFJÖRÐUR 8:12 17:52
DJÚPIVOGUR 7:49 17:38
Íslenska landsliðið í brids er komið til
Amsterdam í Hollandi þar sem það
hefur keppni á heimsmeistaramótinu
í brids á sunnudagsmorgun. Tuttugu
ár eru síðan Íslendingar tóku síðast
þátt á mótinu og gerðu sér þá lítið
fyrir og urðu heimsmeistarar og
hrepptu Bermúdaskálina eftirsóttu.
Björn Eysteinsson landsliðsfyr-
irliði segir stemninguna í íslenska
hópnum vera mjög góða og að þeir
stefni hátt. „Menn bíða spenntir eftir
því að byrja. Fyrsti leikur er á móti
Svíþjóð á sunnudag. Við spilum 21
leik í undankeppninni og við ætlum
okkur að vinna þá alla,“ segir Björn
og var hinn brattasti.
Fjórir af sjö spilurum sem urðu
heimsmeistarar fyrir 20 árum taka
aftur þátt í mótinu nú, þeir Jón Bald-
ursson, Þorlákur Jónsson og Að-
alsteinn Jörgensen. Björn er fyrirliði
án spilamennsku eins og 1991. Auk
þeirra eru í liðinu Bjarni Einarsson,
Magnús Magnússon og Sigurbjörn
Einarsson. Áhersla er á að spilarar
séu í góðu líkamlegu formi og Björn
segir þau vera ófá kílóin sem fokið
hafi af liðinu á síðustu mánuðum.
Tuttugu og tvær þjóðir taka þátt í
undankeppni heimsmeistaramótsins
nú. Björn segir Ítalíu og Bandaríkin
vera með gríðarlega sterk lið, auk
þess sem Svíar, Hollendingar og Pól-
verjar eru taldir sigurstranglegir.
ingveldur@mbl.is
Bridslandsliðið
er í góðu formi
Keppnin um Bermúdaskálina hefst
JÓLIN
ERU
KOMIN
HJÁ
OKKUR!
www.rumfatalagerinn.is
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Haust á Alicante
Sólarferð
81.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum og gisting á
Hotel Castilla.
27. okt.–5. nóv.
TILBOÐ!
EINSTAKT
VERÐ
Verð frá: