Morgunblaðið - 15.10.2011, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Eggert
Tónelskir Þeir Sveinn Dúa og Hjörtur Ingvi leyfðu hvor öðrum að flæða frjálst í samstarfinu við gerð Værðar.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta fór allt af stað þegar
hún Ragnhildur Zoëga
hjá útgáfunni Skrjóðu
heyrði mig syngja ein-
söng á jólatónleikum hjá
Karlakór Reykjavíkur um síðustu
jól. Hún kom til mín að þeim loknum
og sagði að sig langaði til að gefa út
disk með mér. Hún stakk upp á að
Hjörtur sæi um undirleik og útsetn-
ingar en við tveir þekktumst ekkert
áður en til samstarfsins kom,“ segir
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór um
tilurð fyrstu einsöngsplötu hans,
Værðar.
„Ég kem úr annarri átt en
Svenni. Þótt ég sé vissulega klassískt
menntaður hef ég að mestu starfað í
poppgeiranum og í djassinum, en við
vildum láta þau áhrif koma fram á
plötunni, þótt þetta sé meira og
minna klassískt,“ segir Hjörtur Ingvi
Jóhannsson sem er meðlimur í
hljómsveitinni Hjaltalín. „Við Svenni
gáfum hvor öðrum gott frelsi og
leyfðum okkur að flæða í samstarf-
inu. En þetta var nokkuð ögrandi
verkefni því við búum hvor í sínu
landinu; ég bý í Amsterdam þar sem
ég er í tónlistarnámi og Svenni býr í
Vín þar sem hann vinnur við sitt fag,
sönginn.“
Vildi brjóta upp hefðina
„Við Hjörtur hittumst fyrst í vor
einmitt úti í Vín þegar Hjaltalín var
að spila þar og þá lögðum við lín-
Okkur þykir vænt um
íslensku Fjárlögin
Íslands eina von, segja sumir þegar þeir heyra tenórinn Svein Dúu syngja. Út er
komin hans fyrsta einsöngsplata og með honum þar eru píanóleikarinn Hjörtur
Ingvi Jóhannsson, söngkonan Sigríður Thorlacius og nokkrir strengjaleikarar.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011
Þá er komin helgi og margir vilja
nýta þann tíma til að dytta að
heimilinu. Kannski að mála einn
vegg, gera við skáphurðina sem er
búin að vera laus í nokkurn tíma
eða bara nota tímann til að fegra
heimilið. Vefsíða Diy network er
frábær fyrir þá sem vilja gera hlut-
ina sjálfir heima við. Þar er að
finna leiðbeiningar um nærri allt
það sem fólki gæti dottið í hug að
framkvæma heima fyrir. Á vefsíð-
unni er sérstakur vinsældalisti með
því sem fólk hefur helst viljað fá
aðstoð við. Á honum á t.d. finna
leiðbeiningar frá a til ö um hvernig
smíða eigi innbyggðar bókahillur. Er
útskýrt nákvæmlega hvað til þarf
og hvernig skuli bera sig að við
verkið. Á listanum má einnig lesa
sér til um hvernig best sé að smíða
hundakofa fyrir heimilishundinn.
Auk þessa má finna ótal margt á
vefsíðunni diynetwork.com og er
viðfangsefninu skipt í aðgengilega
lista. Allt eftir því hvort mann vant-
ar leiðbeiningar er varða garðinn,
eldhús, gólf eða baðherbergi og þar
fram eftir götunum. Sniðug síða til
að leita sér ráða og fá góðar hug-
myndir að ýmsum lausnum fyrir
heimilið. Alls konar hluti heima fyr-
ir getur maður nefnilega alveg gert
og gert við sjálf/ur gefi maður sér
nægan tíma.
Vefsíðan www.diynetwork.com
Morgunblaðið/Heiddi
Lausn Hér hafa skóhillur frá IKEA öðlast nýtt líf í bókahillu.
Hundakofi í auðveldum skrefum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Áður auglýstum útgáfutónleikum þeirra
Sveins Dúu og Hjartar, í Salnum í Kópavogi
á morgun sunnudag, þurfti að fresta
vegna veikindi fram í nóvember. Auglýst
síðar á salurinn.is. Sveinn kemur fram í
dag, laugardag, kl. 15 í Máli og menningu á
Laugavegi í tilefni útgáfunnar. Fyrir norð-
an verða þeir með tónleika á Akureyri 13.
nóvember. Tóndæmi er hægt að nálgast á
Facebook-síðu Sveins: Sven Hjörleifsson.
FYRIR SUNNAN, FYRIR NORÐAN OG Í BÚÐINNI
Útgáfutónleikar
Andblær liðinna ára er yfirskrift tónleika söngkon-
unnar Agnesar Amalíu og Sardas-kvartettsins sem
verða haldnir í Gerðubergi í dag klukkan 15. Á tónleik-
unum verða fluttar íslenskar dægurperlur eftir konur
og frönsk tónlist í andblæ eftirstríðsára. Munu hugljúf
ástarljóð og tregafullar ballöður í splunkunýjum út-
setningum Martins Frewer fiðluleikara Sardas-
kvartettsins leika um eyru tónlistargesta. Frönsku
lögin ættu margir að kannast við í flutningi lista-
manna eins og Yves Montand, Edith Piaf og Josephine
Baker.
Agnes Amalía lauk söngprófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík árið 2000. Alina Dubik hefur verið kennari
hennar undanfarin misseri og sækir Agnes tíma hjá
henni í Nýja tónlistarskólanum. Agnes Amalía hefur
komið fram á ýmsum tónleikum í gegnum tíðina ein
og í kórum og einnig í söngleikjum, leikritum og óp-
erum. Þá er hún meðlimur Íslenska sönglistahópsins
og syngur með Kammerkór Seltjarnarness. Sardas
kvartettinn hefur starfað frá árinu 1995 en félagar eru
allir þrautreyndir hljóðfæraleikarar úr röðum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands.
Endilega …
Söngkona Agnes Amalía flytur hugljúfa tónlist.
… hlýðið á Sardas-kvart-
ettinn og Agnesi Amalíu
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Verð á mann í tvíbýli
87.900 kr.
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting á góðu hóteli með ríkulegum morgunverði
og íslensk leiðsögn.
Aðventuferðir
til Evrópu!
Borgarferðir
Wagner-ópera
í Berlín
Jólaferð til
Kaupmanna-
hafnar
Verð á mann í tvíbýli
76.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting í tvær nætur á Wake up Copenhagen með
morgunverði og gönguferð um Kaupmannahöfn
með Ragnhildi Þórðardóttur.25.–27. nóvember
16.–19. desember
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
3.–9. desember
Fararstjóri: Óttar Guðmundsson
Aðventuferð til
Varsjár og Berlínar
Verð á mann í tvíbýli
128.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum.
Flogið til Varsjár og heim frá Berlín. Gisting í 6 nætur
á 4* hótelum með morgunverði, allur akstur milli
staða, gönguferð og íslensk fararstjórn.