Morgunblaðið - 15.10.2011, Qupperneq 11
Þessar fasteignir og lóðir eru til sölu.
Frábært tækifæri fyrir fjárfesta,
byggingarverktaka og athafnamenn.
Allar nánari upplýsingar gefa neðangreindar fasteignsölur.
Stórhöfði 34-40 í Reykjavík
Um er að ræða mjög stóra lóð á Höfðanum í Reykjavík. Lóðin er skráð 6,0 hektarar (60.000 þús. fm). Um er að ræða
óvenjulega stóra iðnaðar- og athafnalóð. Á lóðinni eru talsverðar byggingar og eru þær þessar: Sex stálgrindahús
(braggar) byggð árið 1964 og er hvert hús skráð 308 fm. Þessi hús eru nýtt undir lager og verkstæði og eru í þokka-
legu ástandi . Góð lofthæð og innkeyrsluhurðir eru á þessum skemmum. Einnig er eitt steinsteypt þjónustuhús á
tveimur hæðum byggt árið 1979 sem er skráð 528 fm. Einnig er á lóðinni lítið lagerhúsnæði sem er byggt árið 1984
og er það skráð 79,8 fm. Samtals er húsakostur á lóðinni skráðir 2.455 fm. Gert er ráð fyrir að lóðin verði byggð upp
á næstu misserum og byggja mætti á henni frá 10-20 þús. fm atvinnuhúsnæðis.
Norðurbakki 7-9 í Hafnarfirði
Um er að ræða byggingarlóð undir stórt fjölbýlishús á hafnarbakkanum í Hafnarfirði sem er hluti af nýbyggingar-
svæðinu. Svæðið er að mestu leyti uppbyggt nema á þessari lóð. Lóðin er 5.067,8 fm og búið að samþykkja teikning-
ar af fjölbýlishúsi með alls 62 íbúðum auk 74 stæðum í bílakjallara. Birt stærð hússins er um 8.110 fm. Gatnagerðar-
gjöld eru greidd. Búið er að skipta um jarðveg og steypa hluta sökkla.
Ferjuvað 1-3, Reykjavík
Byggingarlóð undir fjölbýlishús í Norðlingaholti. Stærð lóðar: 4.218 fm. Byggja má skv. samþykktum teikningum, 30
íbúða hús (stórar íbúðir). Bílakjallari fyrir 18 bíla og stæði á lóð eru 42. Birt stærð byggingar sem reisa má eru 3.418
fm.
Sigtún 40 í Reykjavík (Blómavalsreitur)
Um er að ræða byggingarlóð á þessum einstaka stað í borginni. Lóðin er skráð 9.383 fm. Upphaflegt skipulag gerði
ráð fyrir atvinnuhúsnæði og er lóðin (reiturinn) skilgreind sem miðsvæði. Reiturinn er á milli Suðurlandsbrautar og
íbúðarbyggðar í Teigahverfi. Vel hefur verið tekið í að breyta lóðinni í íbúðarbyggð og er þá gert ráð fyrir ca 4ra hæða
byggingum með ca 70-75 íbúðum. Staðsetning lóðar er frábær.
Engin eignaskipti koma til greina og engin áhvílandi lán eru á þessum eignum.
Allar nánari upplýsingar um verð og sýningu eigna,
veita neðangreindar fasteignasölur (einkasala).
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Kirkjustétt 4 - 113 Reykjavík - Sími 534 8300 - www.storborg.is
Magnús Emilsson löggildur fasteignsali.
Hlynur Halldórsson s. 698-2603
Þorbjörn Helgi Þórðarson s. 896-0058
Stefán Hrafn Stefánsson hdl. gsm 895-2049
Íslenska sauðkindin fær heilmikla at-
hygli nú um helgina í tveimur lands-
hlutum. Þá verða haldnar tvær hátíð-
ir tengdar sauðkindinni á
landsbyggðinni. Í Borgarnesi verður
haldin Sauðamessa og á Hvolsvelli
Dagur sauðkindarinnar. Í Borgarnesi
hefst dagskráin með fjárrekstri frá
Dvalarheimili aldraðra klukkan 13.30.
Verður féð rekið að Skallagrímsgarði
en þar verður fjölbreytt dagskrá og
markaður yfir daginn. Einnig verður
kjötsúpa í boði borgfirskra sauð-
fjárbænda. Um kvöldið verður mess-
unni slúttað með ærlegu sauða-
messuballi.
Dagur sauðkindarinnar á Hvolsvelli
fer fram í Skeiðvangi og hefst klukk-
an 14. Sauðfjáreigendur frá Markar-
fljóti að Þjórsá geta komið með um
10 kindur á sýninguna og er fjöl-
breytni í litum og önnur sérkenni
æskileg. Opinn markaður verður á
hrútum og gimbrum og eru fjáreig-
endur hvattir til að koma með fé til
sölu. Keppt verður um fallegustu
gimbrina og uppboð haldið á úrvals-
gripum ef þátttaka fæst. Einnig kjósa
gestir litfegursta lambið. Þá verður
hægt að kaupa sér rjúkandi og góða
kjötsúpu og styrkja um leið Skeið-
vang og Félag sauðfjárbænda.
Sauðkindinni fagnað
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hátíð Sauðamessa verður í Borgarnesi og Dagur sauðkindarinnar á Hvolsvelli.
Hátíð í Borgarnesi og Hvolsvelli
urnar með plötuna. Seinna bættust
svo við lög sem mér er annt um og
einnig lög sem honum er annt um.
Niðurstaðan varð því frekar róleg
plata og þess vegna völdum við þetta
nafn, Værð. Aðeins eitt lag er svolítið
flippað, Minni karla, en við förum
nokkuð frjálslega með það,“ segir
Svenni og bætir við að þegar þeir
fóru af stað með verkefnið hafi fyrsta
hugmynd hans verið að gera plötu
með vögguvísum. „En svo þróaðist
þetta út í að vera að mestu lög úr
bókinni Íslenskt söngvasafn, sem
margir þekkja undir nafninu Fjár-
lögin. Fjárlögin eru æðisleg. Auk
þess syng ég nokkur lög eftir okkar
bestu sönglagahöfunda, þá Pál Ís-
ólfsson, Sigvalda Kaldalóns og
Björgvin Guðmundsson. Ég vildi
gera eitthvað sem væri ekki dæmi-
gert fyrir einsöngvara. Vissulega
hefði verið auðvelt að gera disk með
óperuaríum og taka Gígjuna og
Hamraborgina, en mig langaði til að
brjóta aðeins upp þá hefð.“
Dúett með Sigríði Thorlacius
„Við völdum líka Fjárlögin af því
að okkur finnst ástæða til að halda
þeim á loft, láta þessi lög lifa. Sum
laganna á diskinum kannast fólk vel
við, eins og Svanasöng á heiði og Enn
syngur vornóttin, en mörg þessara
laga finnst okkur heyrast allt of lítið.
Til dæmis Þrjár þjóðvísur, sem ég út-
setti úr þremur lögum, en þar syngur
Sigríður Thorlacius dúett með
Svenna,“ segir Hjörtur og bætir við
að hann hafi leyft sumum lögunum að
vera óbreytt en í öðrum fiktaði hann
með útsetningar. „Píanóið er ekki
eina hljóðfærið sem kemur við sögu á
diskinum, því við fengum nokkra
snilldarhljóðfæraleikara til liðs við
okkur. Strengjakvartett leikur í
tveimur lögum og selló og kontra-
bassi í nokkrum.“
Dalakofinn á Títanik?
Þeir segja að auðvitað hafi disk-
urinn þróast á leiðinni, margt af því
sem þeir ætluðu að hafa með upp-
haflega hafi dottið út og annað bæst
við á síðustu stundu. „Til dæmis lagið
Mamma ætlar að sofna, það datt inn
daginn áður en diskurinn fór í
vinnslu. Útsetningin var gerð á
staðnum og það þurfti ekki nema
eina upptöku. Það var skemmtilegt,“
segja þeir félagar og játa fúslega að
sum lög standi hjartanu nær en önn-
ur á diskinum. Svenna er mjög annt
um Fósturlandsins freyju sem og
lagið Við fjallavötnin, en þau hefur
hann bæði sungið mjög oft á tón-
leikum. Dalakofinn er aftur á móti í
miklu uppáhaldi hjá Hirti. „Þetta er
svo fallegt gamalt lag. Það er útlent
og ég heyrði einhverju sinni sögu um
að Títanik-kvartettinn hefði spilað
þetta lag á meðan skipið sökk. Veit
ekki fyrir víst hvort það er rétt, en
sagan er góð.“
Syngur á Listahátíð í vor
Svenni hefur verið að syngja
heilmikið úti í Vín þar sem hann býr,
en hann lauk námi frá Tónlistar- og
sviðslistaháskólanum í Vín fyrir ári
og síðan þá hefur hann lifað af söngn-
um. „Í fyrravetur var ég mikið á ferð
og flugi að kynna mig en ég er með
nokkra umboðsmenn og þeir hóa í
mig til að syngja fyrir hjá óperu-
húsum og öðrum. Núna er ég kominn
með minn fyrsta alvörusamning við
óperuhús í Linz, þar sem ég syng
hlutverk Ferrandos í nýrri upp-
færslu á Cosi fan tutte eftir Mozart,
og sýningar verða eitthvað fram á
næsta sumar. Það er góður stökk-
pallur fyrir mig,“ segir Svenni sem
kemur oft heim til Íslands til að
syngja. Til dæmis söng hann við opn-
un Hörpunnar og núna er hann í
Töfraflautunni hjá Íslensku óper-
unni. Hann syngur með Jónasi Ingi-
mundarsyni í Salnum í lok nóvember
og um jólin syngur hann á Jóla-
tónleikum Björgvins Halldórssonar.
Í vor syngur hann á Listahátíð með
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ljósmynd/Nadja Meister
Vín í sumar Svenni syngur egypskan lögreglustjóra í uppfærslu á nýrri óp-
eru sem frumflutt var á sumarhátið í Vín á vegum Opera Sirene.
Bellini Svenni tók þátt í uppfærslu á Il pirata eftir Bellini í Basel í Sviss fyr-
ir rúmu ári, hér syngur hann á móti Alexöndru Lubchansky í því verki.
Núna er ég kominn
með minn fyrsta alvöru-
samning við óperuhús í
Linz, þar sem ég syng í
nýrri uppfærslu á Cosi
fan tutte.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011
Pfaff • Grensásvegi 13 • Sími 414 0400 • www.pfaff.is
facebook.com/pfaff.is
Láttu þér
líða vel
á Heilsudögum
í dag milli kl. 11–16