Morgunblaðið - 15.10.2011, Page 24

Morgunblaðið - 15.10.2011, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011 Reuters Forsætisráðherra Taílands, Yingluck Shinawatra, hvatti í gær íbúa Bangkok til að halda ró sinni þrátt fyrir flóð sem hafa kostað minnst 289 manns lífið í norður- og miðhluta landsins. Hún sagði að ekki væri hætta á skæðum flóðum í borginni. Þrátt fyrir orð for- sætisráðherrans líst þessum hundi ekki á blikuna. Bangkok-búar hvattir til að halda ró sinni Greenfield barónessa, virtur vísindamaður í Bretlandi, hefur varað við því að of mik- il tölvuleikjanotkun geti breytt heila barna og breyt- ingarnar geti meðal annars leitt til hegðunarvandamála. Breska dagblaðið The Daily Telegraph hefur eftir bar- ónessunni að tölvuleikir, sem höfði sterkt til skynfæranna, geti gert ákveðnar tauga- tengingar í heilanum óvirkar um stundarsakir eða varanlega. Susan Adele Greenfield er pró- fessor í taugalyfjafræði í Oxford og sérfræðingur í lífeðlisfræði heila. Greenfield segir að börn eyði að meðaltali 2.000 klukkustundum við tölvuskjái á ellefta aldursárinu. Of mikil tölvuleikjanotkun geti leitt til breytinga í heilanum sem geti orðið til þess að börnin eigi erfiðara með að halda athyglinni og einbeita sér, auk þess sem breytingarnar geti leitt til hegðunarvanda- mála. Geta haft jákvæð áhrif Að sögn The Daily Tele- graph hafa nokkrar rann- sóknir bent til þess að of mikil tölvuleikjanotkun geti haft lífeðlisfræðileg áhrif á heilann. Til að mynda bendi rannsókn, sem gerð var í Japan fyrir tíu árum, til þess að þar sem tölvu- leikir örvi aðeins heilasvæði, sem tengjast sjón og hreyfingum, geti það orðið til þess að önnur heila- svæði, sem tengist hegðun, tilfinn- ingum og námi, þroskist ekki eðli- lega. Aðrir vísindamenn hafa á hinn bóginn bent á að ákveðnir tölvuleikir geta haft ýmis jákvæð áhrif á heil- ann, geta til að mynda örvað greind- ina og skerpt minnið, að sögn The Daily Telegraph. bogi@mbl.is Tölvuleikir geta breytt heila barna Greenfield barónessa Minnisvarði um Martin Luther King yngri, þekktasta leiðtoga blökku- manna í Bandaríkjunum og mannréttindabaráttu þeirra, verður afhjúp- aður í Washington á morgun. Upphaflega átti að afhjúpa hann 28. ágúst, þegar 48 ár voru liðin frá því að King flutti ræðuna „Ég á mér draum“, en því var frestað vegna fellibyls. Þetta er eini minnisvarðinn á Mall-svæðinu í Washington sem ekki er til minningar um bandarískan forseta eða stríð. 1 2 3 5 4 1km 1 2 3 4 5 Minnisvarði um Martin Luther King yngri verður afhjúpaður í Washington-borg á morgun, sunnudag MINNISVARÐI UM KING Washington Bandaríkin Heimild: mlkmemorial.org Hönnun: ROMA Design Group Ljósmynd: Reuters Hvíta húsið The Mall Áin Potomac Tidal Basin (tjörn þar sem sjávarfalla gætir) WASHINGTON-BORG Lincoln-minnisvarðinn Stríðsminnisvarði Washington-minnisvarði Þinghúsið Jefferson-minnisvarði Minnisvarði um Martin Luther King Tid al B asi n Við innganginn eru tveir helmingar stórs steins 24 veggskot, hvert þeirra til minningar ummenn sem létu lífið í baráttunni fyrir mannréttindum Vatnsveggur Tilvitnanir í ræður og prédikanir Martins Luthers Kings, í réttri tímaröð Vonarsteinn Stytta af Martin Luther King, með tilvitnun í hann áletraða á annarri hliðinni Minning Kings heiðruð Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands hafðu það um helgina Bleikt slaufunammi - Pink ribbon candy Sölustaðir: N1, Iða, Mál og menning, Háma, Pósturinn, Skeljungur, Debenhams, Samkaup-Strax, Samkaup-Úrval, Nettó, Kaskó og Melabúðin. www.faerid.com Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.donusnova.is Axel Axelsson, löggiltur fasteignasali Vesturvangur 11, 220 Hfn OPIÐ HÚS í dag milli kl. 11.00-11.30 VERÐ 64,9 millj. stærð 352,4 fm Afar skemmtilega staðsett einbýli, að mestu á einni hæð, í góðum botnlanga á þessu vinsæla stað í hrauninu í Haf- narfirði. Glæsilegt útsýni en eignin stendur við opið svæði á stórri lóð. Fimm svefnherbergi og tvær stofur, í dag er neðri hæðin (65,8 fm) aðskilin frá aðalhæðinni en auðvelt að breyta. 33,3 fm bílskúr. Albert B. Úlfarsson Lögg.fasteignasali Sími 821 0626 albert@domusnova.is albert.domusnova.is Op ið hú s Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hélt velli í atkvæðagreiðslu á þingi landsins í gær þegar tillaga um að lýsa yfir trausti á ríkisstjórn hans var samþykkt með 316 atkvæðum gegn 301. Alls eiga 630 þingmenn sæti í neðri deild ítalska þingsins og at- kvæðagreiðslan bendir til þess að stjórnin hafi nú aðeins eins sætis meirihluta í deildinni. Að sögn The Financial Times vekur niðurstaðan efasemdir um að stjórnin sé nógu sterk til að takast á við mikla efna- hagserfiðleika, sem steðja að land- inu, og knýja fram nauðsynlegar efnahagsúrbætur. Berlusconi óskaði eftir trausts- yfirlýsingunni eftir að stjórnin tap- aði óvænt í atkvæðagreiðslu um mikilvægan hluta fjárlaganna. Nokkrir stjórnmálaskýrendur sögðu að líklega yrði efnt til þing- kosninga næsta vor, rúmu ári áður en kjörtímabilinu á að ljúka. Aðrir sögðu að forsætisráðherrann hefði margoft sýnt að aldrei væri hægt að afskrifa hann. Stuðningurinn við Berlusconi mælist nú aðeins 24% og hefur aldrei verið minni. Búist er við að um 150.000 til 200.000 manns taki þátt í mótmælum gegn efnahagsaðgerðum stjórnarinnar í Róm í dag. bogi@mbl.is Silvio Berlusconi hélt enn velli á þinginu Reuters Léttir Silvio Berlusconi fagnar niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar á þinginu.  Nokkrir stjórnmálaskýrendur spá stjórninni falli en aðrir segja að of snemmt sé að afskrifa forsætisráðherrann Kínverska lögreglan hefur hand- tekið mann 28 árum eftir að hann var ákærður fyrir að faðma konu gegn vilja hennar, en það var álitið alvarlegur glæpur í Kína á þessum tíma. Maðurinn var ákærður á eyj- unni Hainan á grundvelli laga, sem sett voru til að stemma stigu við „ósiðlegri hegðun“ en þau voru síð- ar afnumin. Maðurinn býr nú í hér- aðinu Guangdong og lögreglumenn frá Hainan eru sagðir hafa lagt á sig 1.100 km langa ferð í fellibyl til að handtaka hann. Lögreglumennirnir komust þá að því að sakborningurinn hafði kvænst „fórnarlambinu“. Frétta- veitan AFP hefur eftir talsmanni lögreglunnar að maðurinn hafi ver- ið látinn laus gegn tryggingu og ekki hafi enn verið ákveðið hvort verða eigi við beiðni konunnar um að eiginmaður hennar verði ekki hnepptur í fangelsi. bogi@mbl.is Handtekinn fyrir að faðma verðandi eiginkonu sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.