Morgunblaðið - 15.10.2011, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011
Franska lög-
reglan hefur
handtekið
Frakka og þrjá
Ítali vegna gruns
um að þeir hafi
beitt allhugvit-
samlegri brellu
til að hafa fé af
spilabanka í
Cannes. Frakk-
inn er sakaður
um að hafa merkt spil með bleki,
sem sést ekki berum augum, og séð
til þess að Ítalirnir lékju póker með
spilastokknum sem hann merkti.
Ítalirnir hafi notað sérstakar augn-
linsur til að sjá blekmerkin. Hóp-
urinn er sagður hafa haft 64.000
evrur (10,2 milljónir króna) af
spilavítinu í Cannes með þessum
hætti. Lögreglan telur að sakborn-
ingarnir hafi beitt þessari brellu
víðar í Evrópu áður en þeir voru
handteknir í Frakklandi, að sögn
fréttavefjar BBC. bogi@mbl.is
Höfðu fé af spila-
banka með brellu
Fjárhættuspil.
Frakkland
Liam Fox, varnarmálaráðherra Bret-
lands, hefur sagt af sér vegna tengsla við
kaupsýslumanninn Adam Werritty, sem
mun hafa komið fram sem ráðgjafi hans
án þess að gegna opinberu embætti.
Werritty er grunaður um að hafa mis-
notað aðstöðu sína og að hafa, áður en
Fox tók sæti í ríkisstjórn, notað skrif-
stofu á vegum þingsins til að safna pen-
ingum í sjóð sem hann er í forsvari fyrir.
Í afsagnarbréfi sem Fox ritaði David
Cameron, forsætisráðherra Bretlands,
kemur fram að hann hafi fyrir mistök
ekki gert nægjanlega skýran greinar-
mun milli persónulegra hagsmuna og
starfa sinna sem ráðherra.
Fox bað þingmenn afsökunar fyrir
nokkrum dögum en lagði áherslu á að
hann hefði aldrei teflt þjóðaröryggi í
tvísýnu.
Var svaramaður Fox
Í yfirlýsingu sem Fox sendi frá sér
fyrr í vikunni segir að hann hafi hitt
Werritty 22 sinnum í varnarmálaráðu-
neytinu og átján sinnum á ferðum sín-
um erlendis. Fox ákvað að segja af sér
eftir að breskir fjölmiðlar skýrðu frá
því að fjármálamenn, sem tengjast Ísr-
ael, og öryggisfyrirtæki hefðu greitt
ferðakostnað Werritys þegar hann
hefði ferðast með ráðherranum.
Werritty var svaramaður Fox
þegar hann gekk í hjónaband árið
2005 og er fyrrverandi meðleigjandi
hans. Þá gekk Werritty með nafn-
spjöld sem á stóð að hann væri ráð-
gjafi ráðherrans.
Fox er fimmtugur Skoti. Hann
hefur verið á hægri væng Íhalds-
flokksins og dyggur fylgismaður
Margaret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra. Hann hefur oft verið
á öndverðum meiði við aðra ráðherra
Íhaldsflokksins, að sögn fréttaveit-
unnar AFP.
Fox var fyrst kjörinn á þing árið
1992 og hyggst halda þingsæti sínu.
Liam Fox sagði af sér
Reuters
Hættur Liam Fox hefur
látið af ráðherraembætti.
Tíðni rána hefur margfaldast í
Kaupmannahöfn og hefur danska
lögreglan litlum árangri náð við að
handsama ræningjana. Í september
voru alls 97 rán tilkynnt til lögregl-
unnar í Kaupmannahöfn og er það
met. Í sama mánuði árið áður var
tilkynnt um 51 rán. Í haust var
ákveðið að fjölga í lögregluliðinu í
miðborginni en handtökur hafa
hins vegar verið örfáar.
Danmörk
Ránum fjölgar í
Kaupmannahöfn
Ako „Love“
Kimmidoll
á Íslandi
Ármúla 38
Sími 588 5011
arionbanki.is – 444 7000
ÍS
LE
NS
KA
SI
A.
IS
AR
I5
67
99
10
/1
1
Við viljum sjá þig
Staðreyndin er sú að ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki
fimm sinnum fyrr. Flest eigum við endurskinsmerki ofan í skúffu, en
þau koma aðeins að gagni séu þau notuð. Gætum að því að börnin
okkar noti endurskinsmerki.
Arion banki gefur endurskinsmerki sem nálgast má í öllum útibúum
bankans, í samstarfi við Umferðarstofu. Þeir sem búa fjarri útibúum
bankans geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merkin send.
Nældu þér í endurskinsmerki í næsta útibúi bankans.
JÓLIN
ERU
KOMIN
HJÁ
OKKUR!
www.rumfatalagerinn.is