Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 41
AF AIRWAVES Hallur Már hallurmar@mbl.is Þótt það sé töluvert síðan éghef tekið Airwaves-hátíðinarækilega út var ég þess þó vel minnugur hvað skiptir máli þeg- ar slagurinn er tekinn. Miklu máli skiptir að vera vel skóaður og þann- ig klæddur að veðrið nái ekki að kæla mann niður á milli atriða. Það kemur reyndar niður á „kúlinu“ en hvað um það því tónlistin skiptir höf- uðmáli ekki satt? Í forláta hlaupa- skóm og dúnúlpu lagði ég af stað frá Ingólfstorgi út í Hörpu þar sem for- vitnilegir tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitarinnar voru að hefjast.    Ámiðri leið ákvað ég þó að sjáeitthvað sem ég hafði ekki valið af dagskránni. Enda er einn stærsti kosturinn við hátíðina að geta stokk- ið inn á tónleika sem maður veit lítið um fyrirfram. Í þetta skiptið ramb- aði ég inn á Borko sem var að hefja leik á Listasafninu. Það var ákvörð- un sem ég sé ekki eftir, enda var hljómsveitin í fantaformi og Borko sjálfur hnyttinn á milli laga. Eitt lag- ið fjallaði um það þegar Lionel Ric- hie afneitaði arfleifð sinni sem svart- ur maður, þótt skýrt væri tekið fram að líklega hefði sá atburður aldrei átt sér stað, en það ætti ekki að koma í veg fyrir gera honum skil í lagi! Skyndiákvörðun nr. 1 hafði borið góðan ávöxt.    Stemningin var allt önnur íHörpu þar sem Sinfón- íuhljómsveitin var að gera sig reiðu- búna fyrir flutning á Processions Daníels Bjarnasonar ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni. Það er óneit- anlega skrýtið að fara beint af hressilegum rokktónleikum yfir á sinfóníutónleika í hátíðlegum Eld- borgarsalnum. Það er samt svo mik- ið rokk í þeim Víkingi og Daníel að sú skipting varð einhvern veginn al- gerlega eðlileg. Processions hljóm- aði frábærlega í Eldborg. Kraft- urinn í verkinu var magnaður og hljómsveitin virtist alltaf geta gefið í þegar maður hélt að ekki yrði lengra komist. Tónleikar Sinfóní- unnar eru skemmtileg viðbót við há- tíðina en mættu hugsanlega vera að degi til. Í Hörpunni rambaði ég líka inn á tónleika Seans Lennons. Flottir tónleikar en fullafslappaðir þar sem tími var kominn til að skipta um gír. Wilco-hetjan Nils Cline var of súr fyrir mig í þetta skiptið.    Aftur var haldið á Listasafniðþar sem óárennileg biðröð var tekin að myndast en Beach House var við það að stíga á svið. Retro Stefson var þó enn á sviðinu þegar mig bar að. Berlínardvölin hefur greinilega gert hljómsveitinni gott þar sem bandið virkar í fantaformi, það er í raun afar sjaldgæft að sjá ís- lenskar hljómsveitir í svona góðri æfingu. Sneisafullt Listasafnið var í miklu stuði fyrir metal-salsa Stef- sona og stemningin var með því besta sem ég hef upplifað á Air- waves. Eftir þessa gleðisprengju var komið að ofursvala dúettnum Beach House (sem var þó tríó í þetta skipt- ið) sem olli aðdáendum sínum ekki vonbrigðum. Þrátt fyrir að vera vel skóaður var erfitt að verjast þeirri hugsun að tónleikarnir hefðu kannski frekar átt heima í Eldborg- inni. Yacht sá svo um að loka kvöld- inu á NASA. Þar vantaði ekkert upp á stíliseringu og flottar stellingar hljómsveitarmeðlima.    Hátíðin er greinilega að þróastog tilkoma Hörpu breytir upp- lifun af hátíðinni verulega og „app- ið“ góða gerir alla skipulagningu mun markvissari. Gott partí getur greinilega alltaf orðið betra! Partíið verður betra og betra » Processions hljóm-aði frábærlega í Eldborg. Krafturinn í verkinu var magnaður og hljómsveitin virtist alltaf geta gefið í þegar maður hélt að ekki yrði lengra komist. Morgunblaðið/Ernir Svöl Beach House var yfirveguð á tónleikunum í Listasafninu. MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011 HHHHH -FRÉTTATÍMINN, Þ.Þ. MIÐASALA Á SAMBIO.IS BANGSÍMON Ísl. tal kl. 2 - 6 2D L KONUNGUR LJÓNANNA kl. 4 3D 10 FOOTLOOSE kl. 8 - 10:20 2D 10 REAL STEEL kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12 ALGJÖR SVEPPI kl. 2 - 4 2D L / AKUREYRI -ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH ANNA BOLENA (DONIZETTI) kl. 5 Laugardag 2D L FOOTLOOSE kl. 5:40 - 8 - 10 / sun. kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 10 THE SKIN I LIVE IN kl. 8 - 10:30 / sun. kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 16 BANGSÍMON kl. 2 - 4 - 6 2D L REAL STEEL kl. 10 2D 12 KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 1:40 / sun. kl. 2 - 4 3D L LION KING Með ensku tali - ótextuð kl. 10:20 / sun. kl. 8 3D L ALGJÖR SVEPPI kl. 3:40 /sun. kl. 1:40 - 3:40 2D L / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK FOOTLOOSE kl. 8 - 10:20 2D 10 BORGRÍKI kl. 8 - 10:10 2D 14 ÞÓR kl. 2 - 4 - 6 3D L BANGSÍMON Ísl. tal kl. 2 - 4 2D L ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 750 kr. SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL AÐEINS ÖRFÁAR SÝNINGAR EFTIR STÓRKOSTLEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA - SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA ÍSLENSK TAL „STÓRKOSTLEG SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.“ „KLASSÍK SEM ÞÚ VILT SJÁ AFTUR OG AFTUR“ - J.C. SSP HHHH - L.S. ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH FRÁ FRAM- LEIÐANDANUM STEVEN SPIELBERG - J.C. -VARIETY H H H H - P.T. -ROLLING STONES H H H H NÝJASTA MEISTARAVERK FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM PEDRO ALMODÓVAR -EMPIRE HHHH ANTONIO BANDERAS ER STÓRKOSTLEGUR Í ÞESSUM MAGNAÐA ÞRILLER MYND SEM KEMUR STANSLAUST Á ÓVART Anna Bolena donizetti 15. okt kl.17:00 í Beinni útsendingu 19. okt kl.18:00 Endurflutt www.operubio.is            SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL JÓLIN ERU KOMIN HJÁ OKKUR! www.rumfatalagerinn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.