Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Jura kaffivélar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Þetta hefur gengið vel. Aðstæður í
Landeyjahöfn eru nokkuð góðar
núna. Þar er ágætt dýpi og það er
verið að dýpka,“ segir Ívar Gunn-
laugsson, skipstjóri á Herjólfi, en
siglingar Herjólfs í höfnina hafa
gengið vel alla þessa viku. Dýpkunar-
skipin Skandia og Perla hafa bæði
verið að dýpka höfnina síðustu daga.
Herjólfur byrjaði að sigla í Land-
eyjahöfn á ný á laugardaginn. Dag-
ana áður hafði Skandia unnið að
dýpkun hafnarinnar. Perlan var til
aðstoðar í nokkra daga, en hætti
dýpkun á miðvikudaginn.
Ívar segir að gott dýpi sé nú við
höfnina en
Skandia ætli að
halda áfram að
breikka rennuna
meðan veður
leyfi. Hann segir
að Skandia muni
verða til taks í
vetur og dýpka
eftir þörfum.
Þegar Ívar er
spurður hvort
hann sé bjartsýnn á að hægt verði að
nota höfnina í vetur segir hann að það
fari eftir veðri. Erfitt sé að sigla inn í
höfnina í vondum veðrum þegar öldu-
hæð sé mikil.
Veðurspáin næstu daga er góð og
því eru ekki horfur á að truflanir
verði á siglingum í Landeyjahöfn al-
veg á næstunni.
Sæferðir og Eimskip eru þessa
dagana að skila inn tillögum til Vega-
gerðarinnar um hvernig félögin sjái
fyrir sér að hægt verði að leysa ferju-
mál Eyjamanna næstu árin. Vega-
gerðin hefur síðustu vikur kannað
hvort hægt sé að fá ferju leigða eða
keypta erlendis frá sem leysi Herjólf
af hólmi. Kristín Sigurbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni,
segir að þessi leit hafi ekki skilað ár-
angri. Það sé hægt að fá svokallaðar
C-ferjur, en engin B-ferja hafi fund-
ist. Hafsvæðið við suðurströndina er
skilgreint sem B-svæði, sem þýðir að
ferjur sem þar sigla verða að uppfylla
strangari kröfur.
Tvö skip dýpka höfnina
Siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn hafa gengið vel í vikunni
Gott dýpi er við höfnina núna og veður hefur verið ágætt
Ívar
Gunnlaugsson
Íslenska ríkið hef-
ur stefnt Starfs-
mannafélagi Sin-
fóníuhljómsveitar
Íslands vegna
ágreinings varð-
andi formsatriði
um verkfalls-
boðun.
En heimildarmenn segja að mikill
þrýstingur sé á deiluaðila að semja sem
fyrst svo að ekki þurfi að aflýsa miklum
tónleikum næstkomandi fimmtudag
þar sem Rumon Gamba heldur um
stjórnvölinn. Flutt verður verkið Plán-
eturnar eftir Gustav Holst, einleikari
er Denis Matsuev.
Málið gegn Starfsmannafélaginu var
þingfest í Félagsdómi á miðvikudag og
má reikna með úrskurði í næstu viku.
Ríkið álítur að ekki hafi verið lögmætt
að samþykkja nema eina verkfalls-
boðun í senn, ekki nokkra fimmtudaga
fram í tímann. Ríkið vill sjálfstæða at-
kvæðagreiðslu um hvert verkfall en
verkfallsboðun var samþykkt með yfir
96% greiddra atkvæða. Tónleikarnir á
fimmtudag eru mikill viðburður og
ljóst að afar vandræðalegt væri að
þurfa að afboða þá.
Fundur verður í deilunni fyrir há-
degi í dag. Magnús Pétursson ríkis-
sáttasemjari segir að málið sé enn á
sínu borði, embættið taki enga afstöðu
til lögmætis verkfallanna. kjon@mbl.is
Sinfóníu-
deila veld-
ur vanda
Stórtónleikar með
Gamba á fimmtudag
Þrír Litháar voru handteknir í sum-
arbústað í Árnessýslu í fyrrinótt grun-
aðir um ólöglega vörslu og meðferð
mikils magns kókaíns. Fjórði mað-
urinn var síðan handtekinn á höfuð-
borgarsvæðinu í tengslum við málið.
Lögð var fram krafa um gæslu-
varðhald í fjórar vikur yfir Litháunum
þremur og um tíu daga gæsluvarðhald
yfir fjórða manninum. Héraðsdómur
Suðurlands tók sér í gærkvöldi frest
fram til morguns til að úrskurða um
gæsluvarðhaldskröfuna.
Lögreglan á Selfossi naut aðstoðar
ríkislögreglustjóra við málið.
Með mikið
magn
kókaíns
Gæsluvarðhald
ákvarðað í dag
Haldin var fjáröflunarsamkoma með matarveislu og tónlist í Turninum við
Smáratorg í Kópavogi í gær til styrktar Guðmundi Felix Grétarssyni sem
missti báða handleggina í slysi árið 1998. Boðin voru upp nokkur listaverk
og ljóst á svipbrigðunum að áhuginn var mikill. Guðmundur safnar nú fé á
heimasíðu sinni, hendur.is, til að geta farið í handaágræðslu í Lyon í
Frakklandi. Tekjurnar af miðasölunni í gær runnu allar í sjóð Guðmundar.
Uppboð til styrktar Guðmundi Felix
Morgunblaðið/Golli
Þyrluskortur gagnrýndur
Árni Bjarnason segir að lífi sjómanna verði teflt í tvísýnu í vetur
Innanríkisráðherra segir að málið verði rætt á ríkisstjórnarfundi í dag
Helgi Bjarnason
Kristján Jónsson
„Því miður sýnist mér að það eigi að
tefla lífi og limum íslenskra sjómanna
í tvísýnu. Menn verða þá að fara út á
sjó með það í huga að þeir verði held-
ur betur að passa sig. Enginn kemur
þeim til bjargar, ef sú staða kemur
upp að þeir þurfa að fá hjálp með
þyrlu,“ segir Árni Bjarnason, formað-
ur Félags skipstjórnarmanna, um
stöðuna í þyrlumálum Landhelgis-
gæslunnar.
Önnur björgunarþyrla Landhelgis-
gæslunnar, TF-Líf, fer í mikla við-
gerð um áramót og ekki hefur tekist
að fá nýja þyrlu til að leysa hana af
hólmi þá þrjá mánuði sem viðgerðin
tekur. Það dregur mjög úr björgunar-
getu Gæslunnar því þær vinnureglur
eru viðhafðar að ekki er farið til
björgunar meira en 20 sjómílur á haf
út nema önnur þyrla sé til taks. Að-
eins önnur björgunarþyrlan var til
taks um tíma í sumar og þá urðu erf-
iðleikar við björgunaraðgerðir í
Kverkfjöllum.
„Það er skelfilegt að horfa fram á
það að vetur er að ganga í garð með
sínum fylgikvillum og engrar björg-
unar að vænta ef menn lenda í sjáv-
arháska utan við 20 sjómílur frá landi.
Það er óásættanleg staða,“ segir Árni.
„Hvað sem allri kreppu líður, þá verð-
ur það okkur til ævarandi skammar ef
þetta fer á versta veg. Það er víða að-
hald í þjóðfélaginu en ég hefði talið að
þetta væri innan ramma en ekki utan,
og myndi falla undir grunnþjónustu
sem verður að veita.“
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir að Landhelgisgæslan
hafi ekki setið aðgerðalaus heldur
kannað allar leiðir í málinu. „Við höf-
um ekki viljað semja vegna þess að
okkur hafa ekki borist nægilega góð
leigutilboð. En við erum vongóð um
að þetta muni núna ganga eftir og
tímamörkin eru áramót þegar Líf fer í
klössun.“
Árni
Bjarnason
Ögmundur
Jónasson