Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Áunnin lífeyrisréttindi jafnt sem lífeyrisgreiðslur sjóðs-
félaga í Almenna lífeyrissjóðnum munu frá og með 1. nóv-
ember næstkomandi minnka um 2,5%. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í tilkynningu sem sjóðurinn birti í
gær á heimasíðu sinni.
Á ársfundi sjóðsins í apríl síðastliðnum var samþykkt
að láta framkvæma tryggingafræðilega athugun miðað
við 30. september sl. og minnka lífeyrisréttindi um 2,5%
frá og með 1. nóvember nk. ef áunnin skuldbinding sjóðs-
ins reyndist vera 7,5% meiri en eignir. Athugunin leiddi
það í ljós að áunnin skuldbinding sjóðsins er komin yfir
þessi mörk og því minnka lífeyrisréttindin eins og áður
segir um næstu mánaðamót. Eftir minnkunina verða
heildarskuldbindingar 4,8% umfram heildareignir og
áunnar skuldbindingar 10,7% umfram eignir. Trygginga-
fræðileg staða sjóðsins verður þá innan löglegra marka.
skulih@mbl.is
Lífeyrisgreiðslur og áunnin
réttindi skerðast um 2,5%
Mikil verðbólga og óhag-
stæð þróun erlendra eigna
Þriðji kjara-
samningurinn
milli flugfreyja
og Icelandair var
samþykktur nú í
vikunni þegar
hann var borinn
undir atkvæði
hjá Flugfreyju-
félagi Íslands. Að
sögn Sigrúnar Jónsdóttur, for-
manns Flugfreyjufélags Íslands,
var hann samþykktur með 24 at-
kvæða meirihluta. Flugfreyjur
höfðu áður í tvígang hafnað kjara-
samningi félagsins við Samtök at-
vinnulífsins fyrir hönd Icelandair.
Þegar kosið var um annan samn-
inginn munaði þó aðeins átta at-
kvæðum.
Skrifað var undir þriðja samning-
inn á fimmtudaginn í síðustu viku.
Þar með var áætluðu verkfalli flug-
freyja Icelandair afstýrt, en það
hefði annars hafist nú á mánudag.
Á miðvikudagskvöld undirrituðu
svo Flugvirkjafélag Íslands og SA
fyrir hönd Atlanta nýjan kjara-
samning. Fyrri samningur var
felldur í atkvæðagreiðslu hjá flug-
virkjum. Nýi samningurinn gildir
til 1. febrúar árið 2014.
Flug-
freyjur
samþykktu
24 atkvæði fram yfir
Hæstiréttur hefur sýknað karlmann
sem var ákærður fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás. Skaðabóta-
kröfu á hendur manninum var vísað
frá dómi. Dómurinn telur ósannað að
maðurinn hafi framið brotið. Hæsti-
réttur staðfesti þar með dóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
Maðurinn var sakaður um að hafa
ráðist á annan mann í félagi við
óþekktan aðila, slegið ítrekuðum
hnefahöggum í andlit mannsins, velt
borði yfir hann þar sem hann lá og
sparkað í höfuð hans.
Héraðsdómur taldi ýmsa annmarka
hafa verið á lögreglurannsókn málsins
og að rannsóknaraðferðir sem beitt
hafði verið hefðu ekki verið í samræmi
við reglur sem gilda um sakbendingu.
Þóttu þessi atriði þó ekki eiga að valda
frávísun málsins heldur koma til skoð-
unar við mat á því hvort ákæruvaldinu
hefði tekist að sýna fram á sekt
ákærða. Taldi héraðsdómur að ekki
yrði ráðið með vissu af myndbands-
upptöku úr öryggismyndavélum, að
ákærði hefði verið sá maður sem réðst
að manninn í umrætt sinn og fram-
burður vitna í málinu leiddi heldur
ekki til þeirrar niðurstöðu.
Sýknaður af
líkamsárás
Þessi vaski verkamaður hjá fyrirtækinu Garðmönnum mundaði hjólsög af
fagmennsku í Tjarnargötu í gær en á stuttum kafla við Ráðhúsið fara fram
framkvæmdir á gangstétt. Gular línur vísuðu beittri söginni leið og að sög-
uninni lokinni stóð til að helluleggja. Það viðraði vel til framkvæmda í gær
en veður var milt og stillt. Í dag er hins vegar gert ráð fyrir rigningu en
spáð er logni og fimm stiga hita.
Hamast með hjólsög á stéttinni
Morgunblaðið/Kristinn
Að sögn Gunnars er rekstrar-
umhverfi lífeyrissjóða krefjandi um
þessar mundir, ekki síst vegna gild-
andi gjaldeyrishafta.
„Það er hugsanlegt að við séum
að fara inn í tímabil þar sem ávöxtun
lífeyrissjóða gæti orðið lág í nokkur
ár vegna lækkandi vaxta og tak-
markaðra fjárfestingarkosta … Slíkt
umhverfi hefur áhrif á afkomu líf-
eyrissjóðanna og getu þeirra til að greiða lífeyri,“
segir Gunnar.
Framtíðin ekki björt
SEGIR GJALDEYRISHÖFTIN DRAGA ÚR
FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRUM SJÓÐSINS
Gunnar
Baldvinsson
Einstakt uppflettirit um
lækningajurtir á Íslandi
Ný bók eftir Önnu Rósu grasalækni
Glæsil
egar
ljósmy
ndir
~ notkun jurta
~ rannsóknir
~ aldagömul þekking
Ísland er í hópi þeirra landa þar sem
er mestur jöfnuður til náms. Þetta
kemur fram í tölum frá OECD. Töl-
urnar sýna að mikill munur er á milli
landa innan OECD þegar kemur að
fátækt og jafnrétti til náms. Banda-
ríkin, Þýskaland og Bretland eru í
20.-22. sæti en könnunin náði til 31
lands.
Almennt er niðurstaðan sú að lönd
Norður-Evrópu standa sig best í því
að tryggja öllum þegnum sínum jöfn
tækifæri. Fjöldi ríkja stendur sig
hinsvegar miður vel og fá Bandarík-
in, Grikkland, Síle, Mexíkó og Tyrk-
land lægstu einkunn í nýrri
rannsókn Bertelsman Stiftung-
stofnunarinnar í Þýskalandi. Stofn-
unin kannaði stefnu OECD-land-
anna varðandi jöfn tækifæri á
vinnumarkaði og í heilbrigðis- og
menntakerfinu og aðgerðir þeirra til
að draga úr fátækt.
OECD birtir m.a. tölur um hversu
hátt hlutfall barna býr við fátækt.
Norðurlöndin koma þar best úr og
lægst er hlutfallið í Danmörku 2,7%.
Hlutfallið er í kringum 4% í Svíþjóð,
Noregi og Finnlandi, en er 8,3% á Ís-
landi. Þetta hlutfall er 10,1% í Bret-
landi, 19,9% í Þýskalandi og 20,6% í
Bandaríkjunum.
Mismikill jöfnuður
8,3% barna á Íslandi búa við fátækt, en 2,7% í Danmörku
Tölurnar fyrir Bandaríkin og Þýskaland ekki jákvæðar
Standa sig illa
» Þau lönd sem standa verst
að þessu leyti eru samkvæmt
rannsókninni Írland, Ísland,
Ítalía, Grikkland og Japan.
» Ísland, Finnland, Svíþjóð og
Danmörk eru þau lönd sem
standa sig best.
» 12,3% barna í OECD-löndum
búa við fátækt. Hæst er hlut-
fallið í Tyrklandi.
Nokkrir jarðskjálftar urðu í Mýr-
dalsjökli í gær. Frá klukkan 15
mældust sex skjálftar í Kötlu
stærri en 2 á Richter. Þeir hörð-
ustu voru af stærðinni 3,2 og áttu
sér stað með aðeins einnar sek-
úndu millibili, sá fyrri 7 km norður
af Hábungu en sá síðari 5,7 km
norður af Goðabungu.
Að sögn jarðskjálftafræðings hjá
Veðurstofu Íslands er skjálfta-
virknin í Mýrdalsjökli nú svipuð því
sem verið hefur að undanförnu.
Menn hafi því ekki meiri áhyggjur
af þessum jarðhræringum en vana-
lega.
Smáskjálftar hafa mælst reglu-
lega í Mýrdalsjökli síðan í sumar.
Mýrdalsjök-
ull nötrar
Tveir mældust 3,2